Ráðist að varamannaskýli Djurgården Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. júlí 2008 13:21 Sigurður Jónsson, þjálfari Djurgården.
Sigurður Jónsson, þjálfari Djurgården, og félagar hans á varamannabekk liðsins í gær voru í hættu er æstir stuðningsmenn réðust að varamannaskýlinu. Djurgården lék í gær á heimavelli gegn Svíþjóðarmeisturum IFK Gautaborg en staðan í leiknum var lengi vel 1-1. Þegar uppbótartíminn var nýhafinn fékk Djurgården aukaspyrnu rétt utan við vítateig gestanna. Boltinn barst inn á teig og féll leikmaður heimaliðsins við. Dómari leiksins lét leikinn hins vegar halda áfram. Nokkrir leikmenn Djurgården mótmæltu dómnum á meðan að gestirnir héldu í skyndisókn og skoruðu sigurmark leiksins, aðeins 26 sekúndum eftir að heimamenn tóku aukaspyrnuna. Við þetta brjáluðust margir stuðningsmanna Djurgården sem hefur ekki unnið í sjö leikjum í röð, eða í tvo og hálfan mánuð. Sigurður, Matias Jonsson og markvarðaþjálfarinn reyndu að róa mannskapinn niður en án mikils árangurs. Þrjár mínútur liðu þar til leikurinn var flautaður af og menn gátu gengið til búningsklefa. „Þetta er gjörsamlega óásættanlegt," sagði Bosse Lundquist, einn forráðamanna Djurgården. „Við munum nú skoða myndbandsupptökur af atvikinu til að bera kennsl á þessa menn. Við viljum ekki hafa þá á okkar leikjum. Við munum setja þá í bann," bætti hann við.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Sjá meira