Ríkisstofnanir fá endurgreiðslu 6. mars 2007 10:00 Árni M. Mathiesen Fjármálaráðherra sést hér við opnun nýs þjónustuvefjar skattayfirvalda. Myn/Vilhelm
Til stendur að endurgreiða ríkisstofnunum virðisaukaskatt af allri þjónustu sem þær kaupa af tölvu-og hugbúnaðarfyrirtækjum. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra upplýsti um þetta á ráðstefnunni „Útvistun - allra hagur“ sem haldin var fyrir helgi af Samtökum UT-fyrirtækja, Samtökum iðnaðarins, Ríkiskaupum og ráðuneytum fjármála, iðnaðar og viðskipta. Með endurgreiðslunni á að leysa svokallað VSK-mál sem lengi hefur verið eitt helsta baráttumál upplýsingatæknigeirans. Bent hefur verið á að í núverandi fyrirkomulagi væri innbyggður hvati ríkisins til að halda úti eigin hugbúnaðar- og tölvudeildum, í stað þess að kaupa þjónustu frá einkaaðilum og með því væri samkeppnisstaða skekkt. Samkvæmt gildandi lögum leggja opinberir aðilar og fjármálafyrirtæki ekki virðisaukaskatt á þjónustu sína og geta ekki fengið hann endurgreiddan nema af tiltekinni skilgreindri þjónustu sem þeir kaupa af einkaaðilum. Þannig fæst ekki endurgreiddur virðisaukaskattur af hýsingu upplýsingakerfa. Á fundinum sagði Árni að í fjármálaráðuneytinu væri þegar hafinn undirbúningur að gerð verklagsreglna sem gerðu endurgreiðslu mögulega og að ráð væri gert fyrir breytingunni við undirbúning fjárlaga 2008. Sömuleiðis sagði hann að tækist vel til með breytinguna gagnvart þjónustukaupum tölvu- og hugbúnaðarfyrirtækja sæi hann ekkert því til fyrirstöðu að útfæra sömu lausn gagnvart annars konar þjónustu og vörusölu einkaaðila, líkt og Samtök iðnaðarins og fleiri hafi lagt til.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira