Sport

Sjálfstraustið í lagi í Keflavík

Lið Keflavíkur í Intersportdeildinni í körfuknattleik hefur ekki miklar áhyggjur af væntanlegum andstæðingum sínum í fjögurra liða úrslitunum sem hefjast á morgun en liðið mætir ÍR sem sló Njarðvík út í tveimur leikjum í fyrstu umferð. Í skoðanakönnun á heimasíðu liðsins eru aðeins þrír möguleikar í boði: 3-2 fyrir Keflavík, 3-1 fyrir Keflavík og 3-0 fyrir Keflavík. Menn þar á bæ gera greinilega ekki ráð fyrir að ÍR-ingar eigi einhverja möguleika gegn núverandi deildarmeistara Keflavíkur. Könnunina má sjá hér: http://www.keflavik.is/karfan/forsida/



Fleiri fréttir

Sjá meira


×