Viðskipti erlent
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 334 ›
Síðasta Boeing 747-þotan úr flugvélaverksmiðjunni Síðasta eintak júmbóþotunnar, eða Boeing 747, fór út úr samsetningarverksmiðju Boeing í borginni Everett norðan Seattle í Washington-ríki í gærkvöldi. Þetta er fraktvél af undirtegundinni 747-8 og verður afhent bandaríska vöruflutningafélaginu Atlas Air snemma á næsta ári. Viðskipti erlent 7.12.2022 16:20
Rafmyntagrafarar í kröppum dansi Lánveitendur hafa gengið að veðum í hundruð þúsundum véla sem eru notaðar til þess að grafa eftir rafmyntum í kjöfar falls rafmyntakauphallarinnar FTX í síðasta mánuði. Rafmyntagrafarar geta nú margir ekki staðið í skilum á lánum sínum þegar þrengir að þeim úr nokkrum áttum. Viðskipti erlent 2.12.2022 11:08
Zuckerberg líka ósáttur við Apple Mark Zuckerberg, forstjóri META (áður Facebook), segir Apple hafa of mikil völd á sviði smáforrita í síma og snjalltæki. Tók hann þar undir ummæli auðjöfursins Elon Musk, sem lýsti því yfir fyrr í vikunni að hann ætlaði í stríð við Apple, áður en hann dró svo í land með það. Viðskipti erlent 1.12.2022 14:07
Fallni rafmyntakóngurinn segist engin svik hafa framið Sam Bankman-Fried, fyrrverandi forstjóri fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, fullyrti að hann hefði ekki reynt að féfletta neinn þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti eftir gjaldþrotið í gær. Hann segist hvorki óttast saka- né skaðabótamál. Viðskipti erlent 1.12.2022 11:02
Segja bitcoin líkjast fjárhættuspili Sérfræðingar Seðlabanka Evrópu segja að eftirlitsaðilar og fjármálastofnanir ættu ekki að veita rafmyntinni bitcoin lögmæti þar sem henni sé haldið uppi á óeðlilegan hátt og hún beri líkindi við fjárhættuspil. Myntin sé á leið til glötunar. Viðskipti erlent 30.11.2022 14:57
Musk segist ætla í stríð við Apple Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins Twitter, bölsótaðist út í tæknirisann Apple og sakaði fyrirtækið óbeint um að hata tjáningarfrelsi í gær. Ef eitthvað er að marka yfirlýsingar Musk er Apple að íhuga að henda Twitter út úr snjallforritaverslun sinni. Viðskipti erlent 29.11.2022 09:12
Prófun á fyrsta vetnishreyflinum gekk vel Breski flugvélahreyflaframleiðandinn Rolls Royce segir að prófanir á fyrsta vetnisknúna flugvélahreyflinum hafi gengið eins og í sögu. Viðskipti erlent 28.11.2022 14:25
Kynhneigð og trúarbrögð víkja af Facebook Trúarbrögð, pólitískar skoðanir, heimilisföng og kynhneigð fólks munu hverfa af Facebook um mánaðamótin. Talsmaður Facebook segir breytinguna vera gerða til að einfalda notendum að nota miðilinn. Viðskipti erlent 28.11.2022 14:10
Rafmyntakeisarinn sem reyndist nakinn Stofnandi rafmyntakauphallarinnar FTX var hylltur sem einhvers konar kennifaðir rafmyntarbransans og viðraði sig upp við stórstjörnur og stjórnmálamenn. Allt að milljón fjárfesta og viðskiptavina sitja nú uppi með milljarða dollara tap eftir skyndilegt hrun fyrirtækisins. Viðskipti erlent 27.11.2022 07:01
Kynnir litaflokkun til leiks á Twitter Twitter hyggst taka í gagnið litaflokkuð hök við reikninga á Twitter sem gefa til kynna að um hinn rétta aðila sé um að ræða á bak við viðkomandi reikning. Viðskipti erlent 25.11.2022 14:31
Musk hleypir nær öllum sem voru bannaðir aftur á Twitter Öllum þeim notendum á Twitter sem hafa verið bannaðir fyrir nær hvaða sakir sem er verður hleypt aftur á samfélagsmiðilinn í næstu viku. Elon Musk, eigandi Twitter, ákvað þetta eftir óformlega skoðanakönnun. Viðskipti erlent 25.11.2022 08:26
Kona í fyrsta sinn ráðin forstjóri stærsta fyrirtækis Grænlands Stjórn sjávarútvegsrisans Royal Greenland hefur ráðið nýjan forstjóra. Fyrir valinu varð hin danska Susanne Arfelt Rajamand en hún hefur mikla alþjóðlega reynslu úr matvælageiranum. Viðskipti erlent 23.11.2022 13:18
Milljarðaeignir FTX sagðar horfnar Verulegum hluta eigna fallna rafmyntarkauphallarinnar FTX var stolið eða er horfinn, að sögn lögmanna fyrirtækisins. Lögmaður fyrirtækisins heldur því fram að Sam Bankman-Fried, fyrrverandi forstjóri FTX, hafi rekið það eins og persónulegt lén sitt. Viðskipti erlent 23.11.2022 09:13
Stjórnendur FTX sagðir hafa keypt lúxusíbúðir fyrir milljarða Rafmyntarfyrirtækið FTX, stofnandi þess, foreldrar hans og æðstu stjórnendur fyrirtækisins eru sagðir hafa keypt fjölda lúxusfasteigna á Bahamaeyjum fyrir jafnvirði milljarða króna á undanförnum tveimur árum. Fyrirtækið er nú í gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum og er til rannsóknar vegna meintra verðbréfasvika. Viðskipti erlent 22.11.2022 15:35
Önnur Bob-skipti hjá Disney Stjórn Disney tilkynnti í gær að Bob Chapek, forstjóra, hefði verið sagt upp störfum. Í stað hans yrði Bob Iger, fyrrverandi forstjóri og fyrrverandi stjórnarformaður, ráðinn aftur til starfa. Viðskipti erlent 21.11.2022 14:55
Gríðarlegar skuldir fallna rafmyntafyrirtækisins Hið fallna rafmyntafyrirtæki FTX skuldar fimmtíu stærstu lánadrottnum nærri þrjá milljarða dollara, andvirði um 430 milljarða íslenska króna. Viðskipti erlent 20.11.2022 13:47
Trump mættur aftur á Twitter Búið er að opna aftur fyrir Twitter-reikning Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Elon Musk, forstjóri Twitter, tilkynnti í nótt um að aðgangurinn yrði opnaður aftur eftir skoðanakönnun sem yfir fimmtán milljón notendur tóku þátt í. Viðskipti erlent 20.11.2022 02:28
Leyfir almenningi að kjósa um endurkomu Trump Elon Musk, eigandi Twitter og stofnandi Tesla, hefur boðið almenningi að kjósa um hvort Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti ætti að snúa aftur á Twitter. Á tólf klukkutímum hafa rúmlega tíu milljónir manna kosið. Viðskipti erlent 19.11.2022 13:49
Holmes dæmd í ellefu ára fangelsi Elizabeth Holmes, stofnandi Theranos, hefur verið dæmd í ellefu ára fangelsi fyrir að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Holmes var sakfelld í upphafi árs en refsingin ekki ákveðin fyrr en nú. Viðskipti erlent 18.11.2022 23:18
Starfsmenn flýja Twitter vegna afarkosta Musk Það er óhætt að setja að framtíð samfélagsmiðilsins Twitter sé í uppnámi eftir að hundruðir starfsmanna virtust velja að kveðja fyrirtækið í stað þess að gangast undir afarkost Elon Musk um að starfsmenn skuldbittu sig til að vinna langa og stranga vinnudaga ellegar hættu. Viðskipti erlent 18.11.2022 07:44
Segist aldrei hafa séð aðra eins óráðsíu og hjá FTX Nýr forstjóri fallna rafmyntarfyrirtækisins FTX segist aldrei hafa séð aðra eins óstjórn og þá sem átti sér stað hjá félaginu. Hann átti engu að síður þátt í að greiða úr flækjunni eftir fall Enron sem er talið eitt subbulegasta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 17.11.2022 22:11
Norska Elkjøp bakkar út og gefur Amnesty auglýsingaplássin í tengslum við HM Fáeinum dögum fyrir HM í knattspyrnu í Katar hefur norski raftækjasölu risinn Elkjøp ákveðið að hætta sem kostunaraðili HM-útsendinga sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Fyrirtækið mun þess í stað gefa mannréttindasamtökunum Amnesty auglýsingaplássin. Viðskipti erlent 17.11.2022 16:25
Fjárfestir í FTX stefnir Bankman-Fried, Bündchen, Curry og fleirum Fjárfestir í rafmyntakauphöllinni FTX hefur stefnt fyrrverandi forstjóra og stofnenda hennar, Sam Bankman-Fried, og ellefu stjörnum sem auglýstu kauphöllina. Sá sem stefnir kauphöllinni segir þau kærðu hafa valdið því að fólk tapaði milljörðum dollara. Viðskipti erlent 17.11.2022 11:20
Ætlar að fá annan til að stýra Twitter Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins Twitter, segist ætla að draga úr afskiptum sínum af miðlinum og fá einhvern annan til að stýra fyrirtækinu. Sá stutti tími sem Musk hefur átt Twitter hefur verið stormasamur svo vægt sé til orða tekið. Viðskipti erlent 16.11.2022 22:52
Lengri vinnudagar hjá „harðara“ Twitter 2,0 Auðjöfurinn Elon Musk hefur gefið þeim starfsmönnum Twitter sem enn vinna hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu frest út daginn á morgun til að sverja þess heit að skuldbinda sig til að vinna lengri vinnudaga hjá „harðara“ Twitter. Geri þau það ekki verði þeim sagt upp. Viðskipti erlent 16.11.2022 15:13
Bezos segist ætla að gefa meirihluta auðæfa sinna Jeff Bezos, stofnandi vefverslunarrisans Amazon og einn ríkasti maður heims, segist ætla að gefa meirihluta auðæfa sinna á lífsleiðinni. Ríkidæmi Bezos eru metin á um 124 milljarða dollara, jafnvirði meira en 18.000 milljarða íslenskra króna, þessa stundina. Viðskipti erlent 14.11.2022 23:51
Kaup á bláu haki Twitter valda usla í raunheimum Á dögunum opnaði samfélagsmiðillinn Twitter fyrir að fólk gæti keypt sér bláa hakið við hlið nafns síns sem gefur til kynna að um hinn rétta aðila sé að ræða. Í kjölfar nýju stefnunnar hafa gervi aðgangar sprottið upp og verið notendum til mikils ama. Viðskipti erlent 12.11.2022 17:53
Óreiðan virðist ráða ríkjum hjá Twitter Frá því auðjöfurinn Elon Musk tók við stjórn samfélagsmiðilsins Twitter hefur mikil óreiða ríkt þar. Musk varaði við því í nótt að gjaldþrot kæmi til greina en fyrr í gærkvöldi hafði hann sagt stöðu fyrirtækisins vera erfiða en margir af æðstu yfirmönnum fyrirtækisins hafa sagt upp á undanförnum dögum. Viðskipti erlent 11.11.2022 14:59
FTX fer fram á endurskipulagningu og forstjórinn víkur Rafmyntarfyrirtækið FTX óskaði eftir því að vera tekið til endurskipulagningar á grundvelli laga um gjaldþrot í Bandaríkjunum í dag. Þá var greint frá því að forstjórinn Sam Bankman-Fried hefði sagt af sér. Viðskipti erlent 11.11.2022 14:43
Frystu eignir FTX-rafmyntarkauphallarinnar Hrakfarir rafmyntarkauphallarinnar FTX sem varð fyrir áhlaupi innistæðueigenda í vikunni halda áfram. Yfirvöld á Bahamaeyjum frystu eignir dótturfélags FTX og þá berast fréttir af því að bandarísk yfirvöld rannsaki möguleg lögbrot stofnanda félagsins. Viðskipti erlent 11.11.2022 08:54