Í Bandaraíkjunum féll S&P 500 um 4,1 prósent, og tæknirisinn Nasdaq féll um 6,3 prósent.
Í Lundúnum féll FTSE 100 sjóðurinn um 2,8 prósent, og í París féll CAC-40 um 2,5 prósent. DAX í Frankfurt féll um 3,2 prósent.
Þar áður féllu markaðir í Asíu, þar sem Nikkei 225 í Japan féll um 12,4 prósent, eða um 4,451 stig. Það er stærsta hrun þess frá upphafi.
Markaðir féllu einnig í Taiwan, Suður-Kóreu, Indlandi, Ástralíu, Hong Kong og Shanghai.
Kemur til vegna vinnumarkaðstalna
Lækkunin kom beint í kjölfar nýrra vinnumarkaðstalna í Bandaríkjunum, en þar jókst atvinnuleysi úr 4,1 prósentum í 4,3 prósent. Þetta olli áhyggjum um að vinnumarkaðurinn í Bandaríkjunum væri farinn að kólna.
Gunnar Örn Erlingsson, skuldabréfamiðlari hjá Arion Banka, segir að vinnumarkaðstölurnar í síðustu viku hafi ýtt þessu öllu af stað. Þetta hafi ef til vill komið á óvart, því hagvaxtartölur vikuna þar á undan vestanhafs voru yfir væntingum markaðsaðila.
„Markaðurinn hefur verið frekar yfirspenntur virðist vera, og miklar væntingar í honum,“ segir Gunnar. Yfirleitt rétti markaðurinn svo úr kútnum.
Lækkunin hefur fyrst og fremst áhrif á tæknifyrirtæki, segir Gunnar, en áhrifin hafi smitáhrif á allan hlutabréfamarkaðinn.
Gunnar segir að nú séu meiri líkur á því að bandaríski seðlabankinn lækki vexti í september.