Handbolti

Danmörk og Svíþjóð í undanúrslit
Danmörk og Svíþjóð eru komin í undanúrslit á EM karla í handbolta. Danmörk vann öruggan sigur á Noregi á meðan Svíþjóð lagði Portúgal.

Slóvenía lætur sig dreyma eftir sigur á Hollandi
Sigur Slóveníu á Hollandi í milliriðli Evrópumóts karla í handbolta heldur möguleikum Slóveníu á sæti í undanúrslitum á lífi þó lítill sé. Lokatölur leiksins í dag 37-34 Slóveníu í vil.

„Frakkarnir það eina sem stóð í vegi fyrir því að við yrðum besta lið í heimi“
Hreiðar Levý Guðmundsson og Bjarni Fritzson, fyrrverandi landsliðsmenn í handbolta, voru gestir í síðasta þætti Besta sætisins eftir tap Íslands gegn Frakklandi á EM í gær.

EM í dag: Fastur í lyftu og fífldirfska Óðins
Það hefur ekki verið yfir miklu að gleðjast fyrir Íslendinga á Evrópumótinu í handbolta. Henry Birgir Gunnarsson og Sindri Sverrisson voru heldur súrir á svipinn í nýjasta þætti EM í dag en sáu ljósa punkta.

Myndasyrpa frá sannfærandi sigri Ólympíumeistara Frakklands
Ísland mátti síns lítils gegn Ólympíumeisturum Frakklands þegar þjóðirnar mættust í milliriðli á EM karla í handbolta, lokatölur 39-32.

Þýskaland bjargaði stigi úr ómögulegri stöðu
Þýskaland náði á einhvern ótrúlegan hátt í stig gegn Austurríki á EM karla í handbolta í kvöld. Austurríki skoraði ekki síðustu tíu mínútur leiksins sem lauk með jafntefli 22-22. Þjóðirnar eru í sama riðli og Ísland.

Valur og Fram með stórsigra
Íslandsmeistarar Vals og Fram unnu stórsigra í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Þá vann ÍBV góðan heimasigur í Vestmannaeyjum.

Skýrsla Sindra: Þeir eru kóngarnir í þessari höll
Ísland þurfti hálfgert kraftaverk til að vinna Frakkland á EM í handbolta í dag. Við vissum það svo sem. Og það kraftaverk varð aldrei að veruleika.

Ungverjaland í góðum málum eftir sigur á Króatíu
Ungverjaland vann þriggja marka sigur á Króatíu í milliriðli Evrópumóts karla í handbolta, lokatölur 29-26. Bæði lið eru með Íslandi í riðli en næsti mótherji strákanna okkar er Króatía.

Besta sætið: „Ég er ekki að sjá eitthvað lið“
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, ákvað að skafa ekki af hlutunum þegar hann ræddi sjö marka tap Íslands gegn Ólympíumeisturum Frakklands á EM karla í handbolta í dag.

Samfélagsmiðlar: Hefur gert okkur lífið leitt í bráðum 20 ár
Ísland tapaði með sjö marka mun gegn Ólympíumeisturum Frakklands í milliriðli á EM karla í handbolta. Lokatölur 39-32 eftir að franska liðið keyrði yfir strákana okkar undir lok leiks.

„Vantaði upp á í dag og þeir voru bara betri“
„Fyrst og fremst svekkjandi að tapa, þeir voru bara betri en við í dag,“ sagði Haukur Þrastarson eftir sjö marka tap Íslands gegn Frakklandi á EM karla í handbolta.

Léttir fyrir Óðinn: „Sem betur fer fór hann inn“
„Mér líður ekki vel,“ voru fyrstu orð Óðins Þórs Ríkharðssonar, leikmanns íslenska karlalandsliðsins í handbolta, eftir sjö marka tap gegn Frökkum á EM í dag, 32-39.

Tölfræðin á móti Frakklandi: 22 mörk og 16 stoðsendingar frá bekknum
Sóknin gekk betur en í flestum leikjum og það voru vonarstjörnur loksins að stimpla sig en íslenska liðið var þó langt frá því að ógna sterku frönsku liði.

Einkunnir Strákanna okkar á móti Frakklandi: Haukur, Óðinn og Viggó frábærir en vörn og markvarsla í molum
Ísland tapaði þriðja leik sínum í röð á EM karla í handbolta þegar það laut í lægra haldi fyrir Frakklandi, 39-32, í milliriðli 1 í dag.

„Náum ekki að framkvæma neitt af því sem við ætluðum að gera“
Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson var eðlilega súr og svekktur eftir tap Íslands gegn Frakklandi á EM í handbolta í dag.

„Töpuðum fyrir betra liði í dag“
„Við töpuðum bara fyrir betra liði í dag. Þeir voru sterkari, sérstaklega sóknarlega,“ sagði línumaðurinn Elliði Snær Viðarsson eftir tap Íslands gegn Frakklandi í milliriðli EM karla í handbolta.

Umfjöllun: Frakkland - Ísland 39-32 | Ólympíumeistararnir of stór biti fyrir strákana okkar
Ólympíumeistarar Frakklands voru of stór biti fyrir strákana okkar í öðrum leik liðanna í milliriðli á EM karla í handbolta. Lokatölur 39-32 og íslenska liðið hefur nú tapað þremur leikjum í röð.

„Þær hafa verið fyrst og fremst ógeðslega heppnar og ég held að þær viti það“
ÍR tapaði í dag naumlega gegn Haukum í leik sem réðist á lokamínútu leiksins. Lokatölur 27-28 í æsispennandi leik í Skógarselinu.

Umfjöllun og viðtal: ÍR - Haukar 27-28 | Gestirnir stálu sigrinum af nýliðunum
Í dag hófst 14. umferð Olís-deildarinnar. ÍR og Haukar áttust við í Skógarselinu og lauk leiknum með eins marks sigri Hauka í spennandi leik sem réðst á lokasekúndum leiksins. Lokatölur 27-28.

Sjáðu ótrúlegt sirkusmark Óðins gegn Frökkum
Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson á það til að skora falleg og oft og tíðum ótrúleg mörk á handboltavellinum. Hann gerði einmitt það í fyrri hálfleik gegn Frökkum.

Óbreyttur hópur frá tapinu gegn Þjóðverjum
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, hefur valið þá 16 leikmenn sem mæta Frökkum í milliriðli á EM í handbolta í dag.

Sigur Íslands á síðasta EM situr enn í Frökkum sem ætla að hefna sín
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann frækinn átta marka sigur gegn Frökkum í milliriðili á EM 2022 í Svíþjóð og Ungverjalandi. Liðin mætast nú aftur í milliriðli EM síðar í dag og ætla Frakkar að hefna fyrir ófarirnar.

EM í dag: Þurfum heimskari menn í liðið
Henry Birgir Gunnarsson og Sindri Sverrisson voru á léttu nótunum í nýjasta þætti EM í dag, þar sem hitað var upp fyrir leikinn við Frakka sem fram fer í Köln í dag.

Snorri: Sáum í fyrsta sinn hvað við stöndum fyrir
Snorri Steinn Guðjónsson man að sjálfsögðu vel eftir kraftaverkinu á HM 2007, í Þýskalandi, þegar Ísland vann risasigur gegn Frökkum, og vonast sjálfsagt eftir einhverju svipuðu þegar hann stýrir íslenska liðinu gegn Frökkum á EM í dag.

Vilja fá Donna inn í liðið: „Mér er skítsama hvað er ósanngjarnt“
„Ég hefði viljað sjá Donna með í þessu,“ sagði Einar Jónsson í síðasta hlaðvarpsþætti Besta sætisins eftir leik Íslands gegn Þjóðverjum.

„Þá endar þetta á fallegum stað“
„Það venst voðalega illa að tapa landsleik,“ segir Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður sem hefur fulla trú á því að Ísland geti unnið Frakkland á EM í handbolta í dag.

„Hefði tekið starfsmenn af lífi fyrir að kveikja í Íslendingunum“
Klúðrið með íslenska þjóðsönginn fyrir leik Þýskalands og Íslands í gær er líklegt til að hafa farið í taugarnar á Alfreð Gíslasyni, þjálfara þýska landsliðsins í handbolta.

„Kannski höfum við haldið að við séum orðnir of góðir?“
Landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson segist loksins hafa séð „íslenska geðveiki“ í strákunum okkar í gærkvöld þegar þeir mættu Þýskalandi á EM í handbolta.

Ótrúlegur endasprettur og Danir komnir langleiðina í undanúrslit
Danir stigu stórt skref í átt að undanúrslitum Evrópumótsins í handbolta er liðið vann eins marks sigur gegn Svíum í kvöld, 28-27.