
Handbolti

Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin
Haukar sigraði Fram í framlengdum leik í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta í Úlfarsárdal í kvöld. Fram skoraði ekki mark í framlengingunni og endaði leikurinn með fjögurra marka sigri Hauka, 27-23.

Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri
Íslandsmeistarar Vals unnu öruggan sigur á ÍBV í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta, lokatölur 28-22.

Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu
Flensburg í góðri stöðu eftir fyrri leik liðsins gegn Sävehof í 8-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handbolta. Teitur Örn Einarsson átti mjög fínan leik í liði Flensburg.

Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann
Króatíska handknattleikssambandið hefur ákveðið að úrskurða Slóvenann Marko Bezjak í tólf mánaða bann vegna árásar hans á eftirlitsmann í toppslag Nexe og Zagreb í efstu deild Króatíu í handbolta, fyrr í þessum mánuði.

Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“
Þórir Ólafsson er hættur sem þjálfari karlaliðs Selfoss í handbolta og Spánverjinn Carlos Martin Santos mun taka við stjórn liðsins.

Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið
Ólafur Stefánsson mun láta af þjálfun þýska handboltaliðsins EHV Aue eftir tímabilið. Markvörður liðsins, Sveinbjörn Pétursson, mun þá einnig yfirgefa félagið.

„Mun stærri sigur en ég bjóst við“
Valur gerði sér lítið fyrir og sigraði rúmenska liðið CS Minaur Baia Mare með átta mörkum í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Evrópubikar EHF í kvöld. Það var einstaklega góð stemning og umgjörð kringum leikinn í kvöld og var Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, stoltur af leikmönnum sem og stuðningsfólki.

Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot
Valur gerði sér lítið fyrir og sigraði rúmenska liðið CS Minaur Baia Mare með átta mörkum í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Evrópubikar EHF. Leikurinn endaði 36-28 og fara Valsmenn með átta marka forskot til Rúmeníu.

„Hefðum þegið betri markvörslu“
Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, var heilt yfir ánægður með frammistöðu leikmanna sinna þó svo að liðið hafi lotið í lægra haldi fyrir FH í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld.

„Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var að vonum sáttur við lærisveina sína þegar liðið komst yfir í 1-0 í rimmu sinni við ÍBV í undanúrslitum Olísdeildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld.

Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV
FH lagði ÍBV að velli, 36-31, þegar liðin áttust við í fyrsta leik sínum í undanúrslitum Olís deildar karla í Kaplakrika.

Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu
Kadetten Schaffhausen er komið í 2-1 í undanúrslitaeinvíginu á móti Pfadi Winterthur í baráttunni um svissneska meistaratitilinn.

„Við erum góðir og þeir eru góðir“
Evrópuævintýri Valsmanna í handboltanum gæti haldið áfram á Hlíðarenda í kvöld og þjálfari Valsmanna kallar eftir góðum stuðningi úr stúkunni.

Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið
Aldís Ásta Heimisdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og félagar í Skara jöfnuðu í dag metin á móti Höörs í átta liða úrslitum sænsku úrslitakeppninnar í handbolta.

Zwickau sogast niður í fallbaráttu
Díana Dögg Magnúsdóttir og stöllur hennar í þýska úrvalsdeildarliðinu Zwickau máttu þola 33-24 tap gegn Bensheim/Auerbach Flames.

Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting
Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting höfðu betur, 37-28, gegn Benfica í portúgölsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Fredericia missti toppsætið til Skjern
Guðmundur Guðmundsson og lærisveinum hans í Fredericia gengur ekki nógu vel í úrslitakeppni danska handboltans en liðið tapaði í dag sínum þriðja leik í síðustu fjórum leikjum.

Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel
Haukur Þrastarson og félagar í pólska liðinu Industria Kielce unnu fyrri leikinn í undanúrslitaeinvígi sínu á móti KGHM Chrobry Głogów.

Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mun þurfa að tryggja sér sæti á HM án þess að geta treyst á landsliðsmarkvörðinn Viktor Gísla Hallgrímsson í einvígi sínu gegn landsliði Eistlands. Landsliðsþjálfarinn segir það ekki þýða neitt að mæta með hangandi haus í verkefnið sem er gegn fyrir fram töluvert veikari andstæðingi.

„Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“
Stefnt er að því að HM í handbolta árið 2031 fari meðal annars fram á Íslandi. Svo það verði að veruleika þá þarf ný Þjóðarhöll að vera klár fyrir þann tíma.

Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn
Magdeburg vann þriggja marka útisigur á Flensburg í stórleik þýsku úrvalsdeildar karla í handbolta. Segja má að Íslendingarnir í Magdeburg hafi verið áberandi, þá sérstaklega Ómar Ingi Magnússon.

Úlfurinn gæti farið til Magdeburg
Þýski landsliðsmarkvörðurinn Andreas Wolff sem leikur með Kielce í Póllandi er orðaður við Evrópumeistara Magdeburg.

Svona var blaðamannafundur Snorra Steins
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi HSÍ þar sem æfingahópur karlalandsliðsins fyrir leiki þess gegn Eistlandi var tilkynntur.

Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar
Evrópska handboltasambandið hefur tilnefnt mark íslensku landsliðskonunnar Perlu Ruth Albertsdóttur sem eitt af flottustu mörkunum í undankeppni EM 2024.

Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“
Í gær varð ljóst hvaða liðum Ísland mætir á Evrópumóti kvenna í handbolta sem hefst í lok nóvember. Spennan er mikil á meðal landsliðskvenna enda eru tólf ár síðan liðið komst síðan þangað.

Hergeir til Hauka
Hergeir Grímsson er genginn til liðs við Hauka og mun spila með liðinu í Olís-deild karla í handbolta á næstu leiktíð. Frá þessu greindu Haukar á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen
Arnar Freyr Arnarson skoraði fjögur mörk þegar Melsungen lagði Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta.

Sveinn Andri samdi við Stjörnuna
Sveinn Andri Sveinsson er genginn í raðir Stjörnunnar og mun spila með liðinu í Olís-deild karla á næstu leiktíð.

Ísland í erfiðum riðli á EM
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta verður í riðli með Hollandi, Þýskalandi og Úkraínu á EM í lok árs. Austurríki, Ungverjaland og Sviss halda mótið í sameiningu.

Jóhanna Margrét skiptir um lið innan Svíþjóðar
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, landsliðskona í handbolta, skiptir um félag í Svíþjóð eftir tímabilið. Hún fer frá Skara til Kristianstad.