Golf
130 131 132 133 134 135 136 137 138 … 178 ›
Haraldur Franklín og Signý Íslandsmeistarar í holukeppni Haraldur Franklín Magnús og Signý Arnórsdóttir eru Íslandsmeistarar í holukeppni árið 2012 en mótinu var að ljúka í Leirdalnum í Kópavogi. Golf 24.6.2012 16:34
Birgir Leifur og Ingunn fengu brons Birgir Leifur Hafþórsson tók bronsverðlaunin á Íslandsmótinu í holukeppni. Birgir Leifur hafði betur gegn Rúnari Arnórssyni í bronsleiknum, 2/1. Golf 24.6.2012 16:12
Hlynur Geir: Fínt að vera með heimsmeistara á pokanum Hlynur Geir Hjartarson er með heimsmeistara sem aðstoðarmann á Íslandsmótinu í holukeppni og er Hlynur ekki í vafa um að kraftlyftingamaðurinn Benedikt Magnússon hafi haft góð áhrif á sig á undanförnum dögum. Golf 24.6.2012 12:34
Keiliskonurnar Anna og Signý mætast í úrslitum Anna Sólveig Snorradóttir úr Keili og Signý Arnórsdóttir úr Keili mætast í úrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Leirdalsvelli, heimavelli GKG. Anna hefur komið gríðarlega á óvart á þessu móti en þetta er í fyrsta sinn sem hún tekur þátt, Signý sigraði á þessu móti árið 2009 og hún lék til úrslita í fyrra en tapaði þeim leik gegn Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur úr Golf 24.6.2012 12:31
Haraldur Franklín: Hlynur er búinn með bensínið Haraldur Franklín Magnús úr GR er að leika í fyrsta sinn í úrslitum á Íslandsmótin í holukeppni en hann sigraði Rúnar Arnórsson úr Keili 1/0 í undanúrslitum í morgun á Leirdalsvelli. Haraldur lék gríðarlega vel í morgun og fékk 5 fugla. Hlynur Geir Hjartarson úr Golfklúbbi Selfoss verður mótherji Haraldar í úrslitaleiknum. Golf 24.6.2012 12:08
Hlynur Geir: Besta golfhögg sumarsins "Birgir Leifur hefur alltaf rúllað mér upp í holukeppni fram til þessa og einnig í sveitakeppninni þegar við höfum mæst. Þetta er stór áfangi fyrir mig að vinna langbesta kylfing Íslands,“ sagði Hlynur Geir Hjartarson kylfingur úr Golfklúbbi Selfoss eftir að hann lagði Birgi Leif Hafþórsson úr GKG í undanúrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Leirdalsvelli, heimavelli GKG. Golf 24.6.2012 11:58
Styttist í úrslitaleikina í holukeppninni | Birgir Leifur úr leik Það verða þeir Hlynur Geir Hjartarson og og Haraldur Franklín Magnús sem leika til úrslita á Íslandsmótinu í holukeppni en undanúrslitin fóru fram í morgun. Í kvennaflokki mætast Anna Sólveig Snorradóttir og Signý Arnórsdóttir í úrslitum. Golf 24.6.2012 11:52
Birgir Leifur: Ég hafði heppnina með mér "Þetta er heilmikil törn og mikið álag sem fylgir þessu móti. Ég er ánægður með margt hjá mér, tveir leikir af fjórum hafa fram til þessa verið mjög góðir,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG í dag eftir að hann komst í undanúrslit Íslandsmótsins í holukeppni. Golf 23.6.2012 19:46
Undanúrslit karla og kvenna | Birgir Leifur og Hlynur Geir mætast Í kvöld lá fyrir hvaða keppendur mætast í undanúrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer rjómablíðu í Leirdalnum í Kópavogi. Golf 23.6.2012 19:32
Íslandsmótið í holukeppni: Aðeins fjórir eftir í karlaflokki Það er nú ljóst hvaða kylfingar í karlaflokki spila í undanúrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni en átta manna úrslitin fóru fram nú síðdegis. Golf 23.6.2012 18:22
Átta manna úrslitin hafin hjá körlunum Riðlakeppni Íslandsmótsins í holukeppni er lokið og nú er ljóst hvernig átta manna úrslitin líta út. Það er ljóst að Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Arnór Ingi Finnbjörnsson, ver ekki titilinn því hann er fallinn úr leik. Golf 23.6.2012 14:41
Farið að draga til tíðinda á Íslandsmótinu í holukeppni Aðeins ein umferð er eftir á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer á Leirdalsvelli í Kópavogi. Átta kylfingar unnu báða leiki sína í gær. Golf 23.6.2012 11:08
Íslandsmótið í holukeppni: Tveir bráðabanar í fyrstu umferð Fyrstu umferð riðlakeppninnar í Íslandsmótinu í holukeppni er lokið. Leikið er á Leirdalsvelli í Kópavogi. Einir tveir leikir fóru í bráðabana. Selfyssingurinn síkáti Hlynur Geir Hjartarson lagði GR-inginn Árna Pál Hansson í bráðabana og slíkt hið sama gerði Keilismaðurinn Ísak Jasonarson gegn heimamanninum Kjartani Dór Kjartanssyni. Golf 22.6.2012 14:19
Úlfar velur í landsliðsverkefni unglinga Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, hefur valið unga og efnilega kylfinga sem munu keppa fyrir Íslands hönd í nokkrum landsliðsverkefnum sem framundan eru í sumar. Um er að ræða EM stúlkna í Þýskalandi, European Young Masters mótið í Ungverjalandi og Junior Open mótið í Englandi. Golf 21.6.2012 17:45
Íslandsmótið í holukeppni hefst á morgun Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Arnór Ingi Finnbjörnsson, einnig úr GR, hafa titla að verja á Íslandsmótinu í holukeppni sem hefst á morgun. Að þessu sinni verður leikið á Leirdalsvelli, heimavelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Alls eru 32 karlar skráðir til leiks og 15 konur. Golf 21.6.2012 13:30
Sex kylfingar á leið í ungmennalandsliðsverkefni Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari Íslands í golfi, hefur valið þá sex kylfinga sem keppa á tveimur unglingamótum fyrir Íslands hönd í júlí. Þetta kemur fram á Kylfingur.is. Golf 21.6.2012 06:00
Kristján Þór úr leik eftir holukeppnina Kristján Þór Einarsson, kylfingur úr Keili, tapaði í holukeppni gegn Portúgalanum Ricardo Melo Gouveia 4/3 í 64 manna úrslitum Opna breska áhugamannameistaramótsins í golfi í dag. Golf 20.6.2012 14:56
Kristján komst örugglega í gegnum niðurskurðinn Kristján Þór Einarsson úr Kili spilaði mjög vel í gær á öðrum hring sínum á á opna breska áhugamannamótinu í golfi sem fer fram í Skotlandi. Kristján Þór var á pari eftir fyrsta daginn en lék annan hringinn á einu höggi undir pari. Hann er í 7. til 14. sæti þegar mótið er hálfnað. Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum var tveimur höggum frá því að ná niðurskurðinum. Golf 19.6.2012 19:39
Golfdagurinn haldinn hátíðlegur á morgun Í tilefni af Ólympíuviku ÍSÍ mun Golfsamband Íslands, í samstarfi við golfklúbba vítt og breitt um landið, standa að Golfdeginum sem verður haldinn miðvikudaginn 20. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sambandinu. Golf 19.6.2012 19:00
Westwood flytur til Bandaríkjamanna Englendingurinn Lee Westwood hefur ákveðið að flytja til Bandaríkjanna. Hann telur að það muni hjálpa honum að vinna risatitil. Golf 19.6.2012 12:45
Fuglamaður truflaði verðlaunaafhendingu US Open Athyglissjúkur einstaklingur stal senunni í verðlaunaafhendingu US Open í nótt. Hann ruddist niður úr stúkunni, tók sér stöðu fyrir framan myndavélarnar og fór að mynda fuglahljóð. Þræleðlilegt alveg. Golf 18.6.2012 23:45
Kristján 104 sætum fyrir ofan Ólaf eftir fyrsta daginn Kristján Þór Einarsson úr Kili og Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum eru búnir með fyrsta hring á opna breska áhugamanna golfmótinu sem fram fer í Skotlandi en leikið er á bæði Glasgow Gailes Links og Royal Troon völlunum. Golf 18.6.2012 20:49
Simpson vann US Open Webb Simpson vann opna bandaríska meistaramótið í golfi, US Open, í nótt. Þetta er hans fyrsti risatitill á ferlinum. Simpson endaði mótið á einu höggi yfir pari eða höggi betur en Graeme McDowell og Michael Thompson. Golf 18.6.2012 09:30
McDowell og Furyk efstir | Woods lék af sér á þriðja hringnum Graeme McDowell frá Norður-Írlandi og Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk, sem báðir hafa sigrað á opna bandaríska meistaramótinu, eru einu kylfingarnir sem eru undir pari fyrir lokahringinn á opna bandaríska meistaramótinu sem fram fer í dag. Þeir eru báðir á einu höggi undir pari samtals. Tiger Woods náði sér alls ekki á strik á þriðja hringnum og lék hann á 75 höggum eða 5 höggum yfir pari á hinum gríðarlega erfiða Olympic Club golfvelli. Golf 17.6.2012 09:45
Góður árangur hjá yngstu afrekskylfingum landsins Í dag lauk mótum á Arion-banka unglingamótaröðinni og Áskorendamótaröðinni. Um 250 unglingar tóku þátt í mótum helgarinnar sem er frábær þátttaka og ljóst að það er mikil gróska í unglingagolfinu hér á landi. Leikið var á Korpúlfsstaðavelli á Arion-banka unglingamótaröðinni en á Áskorendamótaröðinni var leikið á Húsatóftavelli í Grindavík. Golf 16.6.2012 22:00
Tiger efstur eftir annan dag Tiger Woods deilir efsta sætinu á US Open eftir tvo keppnisdaga með David Toms og Jim Furyk á einu höggi undir pari. Woods og Toms léku á pari á öðrum keppnisdegi en Furyk var einn aðeins sjö kylfinga sem léku undir pari vallarins í gær. Golf 16.6.2012 10:00
Kristinn Reyr lék best á fyrri hring í Korpunni Fyrri hringurinn af tveimur var leikinn í gær á Korpúlfsstaðavelli í þriðja stigamóti sumarsins á Arion-banka unglingamótaröðinni. Frábær þátttaka er í mótinu en alls eru 135 kylfingar sem taka þátt í mótinu í þremur aldurflokkum hjá báðum kynjum. Golf 16.6.2012 08:36
Táningurinn á sama skori og efsti maður heimslistans Yngsti keppandinn í sögu US Open, hinn 14 ára gamli Andy Zhang, stóð sig vel á fyrsta hring mótsins í gær og kom í hús á 79 höggum á hinum afar erfiða velli í San Francisco. Golf 15.6.2012 13:15
Thompson: Fullt af fólki veit ekki hver ég er Hinn lítt þekkti Bandaríkjamaður, Michael Thompson, er efstur á opna bandaríska meistaramótinu í golfi, US Open, eftir fyrsta keppnisdag. Thompson lék á fjórum höggum undir pari í gær og er þrem höggum á undan Tiger Woods, David Toms, Nick Watney, Justin Rose og Graeme McDowell. Golf 15.6.2012 10:15
Milljónastyrkur til kylfinga Tilkynnt var um stofnun afrekssjóðsins Forskots á blaðamannafundi hjá Golfsambandi Íslands í gær. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við þá kylfinga, atvinnumenn sem og áhugamenn, sem stefna á að komast í fremstu röð í heiminum í íþróttinni. Golf 15.6.2012 00:01