Birgir Leifur hafnaði í 47. sæti Jón Júlíus Karlsson skrifar 8. september 2013 14:10 Birgir Leifur varð Íslandsmeistari í fimmta sinn í sumar. Mynd/GSÍ
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lauk í dag keppni á Open Blue Green Côtes d'Armor Bretagne mótinu sem fram fór í Frakklandi á Áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur lék lokahringinn á 73 höggum eða þremur höggum yfir pari. Hann lék hringina fjóra í mótinu á samtals 286 höggum eða sex höggum yfir pari. Íslandsmeistarinn fékk tvo fugla, þrjá skolla og einn skramba á hringnum í dag. Hann byrjaði geysilega vel í mótinu og var í öðru sæti eftir fyrsta hring eftir að hafa leikið á 65 höggum. Ekki gekk nógu vel hjá Birgi Leifi í kjölfarið. Birgir er með takmarkaðan keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni sem er önnur sterkasta mótaröð Evrópu. Hann er á biðlista inn í næsta mót sem fram fer í Úkraínu í næstu viku.Lokastaðan í mótinuSkortkortið Hjá Birgi Leifi í mótinu í Frakklandi.
Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Steig á tána á Mike Tyson Sport Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Fótbolti Elliði segir HM ekki í hættu Handbolti Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira