Erlent
150 151 152 153 154 155 156 157 158 … 334 ›
Lygni þingmaðurinn ákærður fyrir fjárþvætti og svik George Santos, umdeildur fulltrúadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá New York, hefur verið ákærður fyrir að nota kosningasjóði sína í einkaþágu og fyrir að ljúga að þinginu, svo eitthvað sé nefnt. Ákærur gegn honum voru opinberaðar í dag en þingmaðurinn hefur verið handtekinn. Erlent 10.5.2023 13:54
Kynferðisbrotamál Trump muni verða til umræðu í kosningabaráttunni Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands, telur að kynferðisbrots dómur Donald Trump munu vafalaust verða til umræðu í kosningabaráttunni. Óvíst sé hver áhrifin verða í atkvæðum talið. Erlent 10.5.2023 12:20
Dorrit miður sín og stendur þétt við bak Khan Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, er miður sín fyrir handtöku Imrans Khans, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan. Hún segist sannfærð um að Khan sé ekki spilltur. Erlent 10.5.2023 12:06
Musk meðal þeirra sem dreifðu samsæriskenningum Lögreglan í Allen í Texas hefur staðfest að Mauricio Garcia, sem skaut átta til bana og særði sjö í verslunarmiðstöð í bænum um helgina, var skreyttur nasista húðflúrum. Sömuleiðis hafði hann lýst yfir aðdáun sinni á nasistum á netinu. Erlent 10.5.2023 10:07
Sagður hafa sett upp falda myndavél á klósetti skemmtiferðaskips Karlmaður hefur verið sakaður um að koma upp faldri myndavél á klósetti eins stærsta skemmtiferðaskips í heimi. Maðurinn er sagður hafa tekið upp yfir 150 manns að nota klósettið, þar á meðal mikið af börnum. Erlent 10.5.2023 08:36
Vilja skilgreina Wagner-hópinn sem hryðjuverkasamtök Franska þingið hvetur til þess að Evrópusambandið skilgreini Wagner-málaliðahópinn sem hryðjuverkasamtök. Breskir miðlar segja að bresk stjórnvöld áformi að gera slíkt hið sama. Erlent 10.5.2023 07:14
Íbúum í Brienz gert að yfirgefa bæinn vegna hættu á berghlaupi Svissnesk yfirvöld hafa fyrirskipað íbúum í hinum smáa fjallabæ Brienz að pakka í töskur og yfirgefa heimili sín tafarlaust vegna yfirvofandi hættu á stærðarinnar berghlaupi. Erlent 10.5.2023 07:00
Blóðug átök í Pakistan Til blóðugra átaka og fjöldamótmæla hefur komið víða í Pakistan í kjölfar þess að forsætisráðherrann fyrrverandi Imran Khan var handtekinn í gær. Erlent 10.5.2023 06:58
Fjórtán ára stúlka í feluleik skotin í höfuðið Fjórtán ára stúlka var skotin í höfuðið þegar hún var í feluleik á landareign manns í bænum Starks í Louisiana. Maðurinn sem skaut stúlkuna hefur verið handtekinn og ákærður en stúlkan er ekki talin vera í lífshættu. Erlent 10.5.2023 01:51
Sá áður óþekkt smástirnabelti sem óséðar reikistjörnur móta Tvö áður óþekkt smástirnabelti sáust í efnisskífu í kringum nálæga stjörnu þegar James Webb-geimsjónaukinn beindi sínu haukfráa auga að sólkerfinu. Stjörnufræðingar telja næsta víst að óséðar reikistjörnur í fæðingu móti beltin. Erlent 9.5.2023 23:30
Lygni þingmaðurinn ákærður Bandaríska dómsmálaráðuneytið er sagt hafa ákært George Santos, fulltrúadeildarþingmann Repúblikanaflokksins frá New York, fyrir glæp. Santos varð uppvís að umfangsmiklum lygum um ævi sína og störf eftir að hann náði kjöri á þing. Erlent 9.5.2023 22:28
Trump fundinn sekur um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar Kviðdómur í New York dæmdi Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sekan um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar í garð E. Jean Carroll í dag. Trump var dæmdur til þess að greiða Carroll fimm milljónir dollara í miskabætur, jafnvirði tæpra 690 milljóna íslenskra króna. Erlent 9.5.2023 19:16
Hækkar laun um 45 prósent rétt fyrir kosningar Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, tilkynnti í morgun að laun opinberra starfsmanna yrðu hækkuð um 45 prósent. Nokkrir dagar eru í forsetakosningar í Tyrklandi en skoðanakannanir gefa til kynna að Erdogan sé í vandræðum. Erlent 9.5.2023 13:31
Imran Khan handtekinn í dómsal Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, hefur verið handtekinn. Lengi hefur staðið til að handtaka Khan þar sem hann er grunaður um spillingu og var það gert er hann mætti í dómsal í Islamabad í morgun. Erlent 9.5.2023 10:26
Segir Rússa berjast fyrir fullveldi Rússlands Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hélt því fram í ræðu í Moskvu í morgun, þar sem Rússar minntust sigurs í seinni heimsstyrjöldinni, að innrás Rússa í Úkraínu væri í rauninni barátta um tilvist Rússlands og rússnesk gildi. Erlent 9.5.2023 09:17
Keppast við að finna dreng sem týndist í helli áður en flóð verða of mikil Viðbragðsaðilar á norðureyju Nýja-Sjálands leituðu langt fram á kvöld í gær að barni, sem týndist í helli. Gríðarlegar rigningar og flóð hafa verið á svæðinu og liggur því mikið á að finna barnið. Erlent 9.5.2023 08:12
Drápu tólf í loftárásum á Gaza Að minnsta kosti tólf Palestínumenn eru látnir, þar á meðal þrír háttsettir liðsmenn í samtökunum Heilagt stríð, í árásum Ísraelshers á Gaza-ströndinni. Erlent 9.5.2023 07:00
Rússar skutu 25 stýriflaugum á Úkraínu í nótt Rússar eru sagðir hafa skotið 25 stýriflaugum á Úkraínu í nótt og í morgun, daginn sem þeir minnast sigurs Sovétmanna í seinni heimsstyrjöldinni. Erlent 9.5.2023 06:30
Byssumaðurinn sagður hafa aðhyllst hvíta öfgahyggju Samfélagsmiðlanotkun karlmanns sem skaut átta manns til bana í verslunarmiðstöð í bænum Allen í Texas um helgina bendir til þess að hann hafi aðhyllst hvíta þjóðernishyggju og nýnasisma. Hann er meðal annars sagður hafa kennt sig við hægrisinnaðar dauðasveitir á herklæðum sínum. Erlent 8.5.2023 23:09
„Absúrd“ að Karl sé kóngur í Karíbahafi Forsætisráðherra eyjaríkisins Sankti Vinsent og Grenadína í Karíbahafi segir það „absúrd“ að Karl Bretakonungur sé þjóðhöfðingi ríkisins. Hann segist myndu vilja sjá valdatíma Karls á eyjunum líða undir lok á sinni lífstíð. Erlent 8.5.2023 22:46
Ökumaður sem ók inn í hóp fólks ákærður fyrir manndráp Yfirvöld í Texas í Bandaríkjunum ákærðu karlmann á fertugsaldri sem ók bíl sínum inn í hóp fólks við skýli fyrir flóttafólk fyrir átta manndráp í dag. Maðurinn er sagður eiga langan sakaferil að baki og lögregla hefur ekki útilokað að hann hafi ekið viljandi á fólkið. Erlent 8.5.2023 22:01
Færeyingar byrjuðu á enn einum jarðgöngum í dag Færeyingar hófu í dag að grafa enn ein jarðgöngin, að þessu sinni tveggja kílómetra innanbæjargöng í jaðri Þórshafnar. Þetta þýðir að samtímis er núna verið að grafa sex jarðgöng í Færeyjum, til viðbótar við tvenn sem frændur okkar hafa nýlokið við. Erlent 8.5.2023 20:44
Sakar lögreglu um að hafa skipulagt handtökurnar fyrirfram Graham Smith, leiðtogi lýðveldissamtakanna Republic, sakar lögregluyfirvöld í Lundúnum um að hafa skipulagt það fyrirfram að handtaka mótmælendur við krýningu Karls III Bretakonungs, til að trufla og gera lítið úr mótmælum lýðveldissinna á krýningardaginn. Erlent 8.5.2023 12:48
Stálu tvö hundruð skóm en geta ólíklega notað þá Óprúttnir þjófar hlupu á sig er þeir stálu rúmlega tvö hundruð skóm í borginni Huancayo í Perú á dögunum. Tjónið er sagt vera mikið en það er þó ólíklegt að þjófarnir græði mikið á skónum sem þeir stálu. Erlent 8.5.2023 11:33
Komst lífs af með því að lifa á víni í fimm daga í óbyggðum Ástralíu Lögregla í Ástralíu fann á dögunum 48 ára konu í óbyggðum Viktoríu þar sem hennar hafði verið saknað í fimm daga. Konan komst lífs af með því að neyta einungis sleikipinna og víns sem hún var með í bílnum, en hún hafði fest bíl sinn í leðju á fáförnum vegi. Erlent 8.5.2023 10:03
Á þriðja tug látnir eftir að bát hvolfdi á Indlandi Að minnsta kosti 22 eru látnir eftir að ferðamannabát hvolfdi skammt frá landi í Kerala-héraði á Indlandi í gærkvöldi. Erlent 8.5.2023 08:16
Notuðu rafbyssu á mann og skutu hundana hans Yfirmenn Lundúnarlögreglunnar hafa gripið til varna fyrir lögreglumenn sem skutu mann með rafbyssu og skutu hundana hans tvo til bana fyrir framan öskrandi vitni. Erlent 8.5.2023 07:59
Haraldur konungur lagður inn á sjúkrahús Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á Ríkissjúkrahúsið í Osló vegna sýkingar og þarf hann að gangast undir meðferð vegna þessa. Erlent 8.5.2023 07:47
Rússar láta sprengjum rigna í Úkraínu Yfirvöld í Úkraínu segjast hafa skotið niður þrjátíu og fimm íranska Shahed dróna í morgun en Rússar sendu þá á skotmörk víðsvegar um landið. Erlent 8.5.2023 07:19
Vilhjálmur sagði að Elísabet hefði verið stolt Tónleikar fóru í dag fram við Windsor-kastala í London í tilefni af krýningu Karls III Bretakonungs í gær. Segja má að viðburðurinn í dag hafi náð hámarki þegar Vilhjálmur krónprins tók til máls og klöppuðu áhorfendur gríðarlega þegar hann gekk upp á sviðið. Erlent 7.5.2023 23:51