
FIFA

FIFA hefur rannsókn á rasískum söngvum Argentínumanna
Í kjölfar kvörtunar franska knattspyrnusambandsins, FFF, hefur Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hafið rannsókn á níðsöngvum leikmanna argentínska karlalandsliðsins í garð þess franska.

Forseti FIFA djammaði með Kim Kardashian og Boris Johnson í Indlandi
Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, sást í trylltum dansi í indversku brúðkaupi síðastliðinn föstudag. Meðal annarra gesta í brúðkaupinu voru Kim Kardashian, Boris Johnson og John Cena.

Ancelotti segir FIFA borga of lítið og ætlar ekki á HM félagsliða
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segir liðið ekki ætla að taka þátt á heimsmeistaramóti félagsliða sem fer fram sumarið 2025. Peningarnir sem FIFA býður er langt frá því að teljast ásættanlegt tilboð.

Dæmdur í sex mánaða bann eftir að hafa verið ólöglegur allan sinn landsliðsferil
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur staðfesti að Emilio Nsue, fyrirliði Miðbaugs-Gíneu, hafi aldrei verið löglegur með liðinu á 11 ára landsliðsferli sínum. Nsue vann til að mynda markahæsti leikmaður Afríkukeppninnar sem fram fór fyrr á þessu ári.

Leikmannsamtökin hóta verkfalli
Alþjóðaleikmannasamtökin FIFPro og PFA segjast vera tilbúin að fara í verkfall vegna áhyggjum þeirra um ofhlaðna leikjadagskrá bestu leikmanna heims.

Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag
Forseti FIFA, Gianni Infantino, var heldur harðorður í garð samtakanna sem gagnrýnt hafa fyrirhugaðar breytingar á heimsmeistaramóti félagsliða. Hann sagði gagnrýnina tilgangslausa og benti á að þeir fáu leikir sem FIFA skipuleggur fjármagna fótboltastarfsemi um allan heim.

Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, heimilaði meðlimi framkvæmdaráðs sambandsins að vera á meðal gesta á ráðstefnu sambandsins sem stendur yfir í Bangkok þrátt fyrir að sá sitji í fangelsi.

FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA mun skipa stýrihóp til að rannsaka helstu kosti og galla þess að spila deildarleiki erlendis. Relevant Sports, skipuleggjandi íþróttaviðburða í Bandaríkjunum, er talinn mikill áhrifavaldur á ákvarðanatöku sambandsins.

Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða
FIFA hefur sett á laggirnar heimsmeistaramót félagsliða kvenna í fótbolta. Mótið mun samanstanda af 16 félagsliðum og fara fram á fjögurra fresti, í fyrsta sinn í ársbyrjun 2026.

FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið
Forkólfar alþjóðaknattspyrnunnar eru nú teknir til að vinda ofan af ýmsum umbótum sem áttu að bæta stjórnarhætti í kjölfar umfangsmikil spillingarmáls sem skók hana fyrir áratug. Bandarísk yfirvöld kannast ekki við að hafa lagt blessun sína yfir umbæturnar.

Hóta því að lögsækja FIFA
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur bætt enn við þétta leikjadagskrá bestu knattspyrnumanna heims með því að stækka mikið heimsmeistarakeppni félagsliða. FIFA menn virðast hins vegar hafa fundið þolmörkin ef marka má viðbrögðin.

Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“
777 dagar eru þangað til HM karla í fótbolta hefst í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Þrátt fyrir að svo langur tími sé til stefnu hafa áhyggjur gert vart við sig í bandaríska stjórnkerfinu í kringum skipulag mótsins.

Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana
Amnesty samtökin hafa brugðist hart og hratt við nýjustu fréttum úr herbúðum Alþjóða knattspyrnusambandsins um að höfuð fótboltans í heiminum hafi gert risasamning við sádi-arabískt olíufyrirtæki.

Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald
Þorvaldur Örlygsson, nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands, átti sinn fyrsta fund með Gianni Infantino, forseta FIFA, í París á þriðjudag.

Ísland upp um eitt sæti hjá FIFA en Norðmenn niður fyrir Malí
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hækkaði sig um eitt sæti á nýjasta styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem var gefinn út í morgun.

Tólf áhorfendur dæmdir í fangelsi fyrir að syngja í Sádí Arabíu
Mannréttindasamtök víða um heim hafa fordæmt yfirvöld í Sádí Arabíu eftir að tólf áhorfendur á leik Al Safa og Al Bukiryah í janúar voru dæmdir til fangelsisvistar fyrir þær sakir að syngja söngva með trúarlegri tilvísun.

Dortmund komst á HM án þess að spila
Borussia Dortmund tryggði sér í gær sæti í næstu heimsmeistarakeppni félagsliða þrátt fyrir að vera ekki að spila.

FIFA bjó til nýja tuttugu þjóða keppni sem byrjar í lok mars
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur stækkað heimsmeistaramótið upp í 48 lið og heimsmeistarakeppni félagsliða upp í 32 lið en það var ekki nóg. Nú hafa þeir búið til nýja keppni og ætla byrja á henni strax í þessum mánuði.

Hugmyndinni um bláu spjöldin hent í ruslið
Alþjóðlega knattspyrnuráðið IFAB mun ekki halda prófunum áfram með bláu spjöldin sem ráðið kynnti til sögunnar á daögunum.

FIFA algjörlega mótfallið bláu spjöldunum
Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, hefur alfarið sett sig upp á móti bláum spjöldum sem átti að kynna til sögunnar fyrr í mánuðinum.

Bónusar landsliðsfólks helmingi lægri og færri leikir eftir mikið tap KSÍ
Leikir knattspyrnulandsliða Íslands verða enn færri í ár en í fyrra, eða alls tíu leikjum færri, og greiðslur til leikmanna A-landsliðanna helmingi lægri, samkvæmt fjárhagsáætlun Knattspyrnusambands Íslands. Sambandið þarf að rétta af reksturinn eftir 126 milljóna tap á síðasta ári.

Ísland heldur áfram að falla niður um sæti á FIFA-listanum
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er komið niður í 73. sætið á nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins.

Bláu kortin ekki kynnt til sögunnar jafn fljótt og vonast var til
Það virðist sem öll séu ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að bláaum spjöldum í knattspyrnu. Prófa átti regluverkið á næstu leiktíð en nú virðist sem því hafi verið frestað.

Ruglaðist þegar hann kaus leikmann ársins og hélt að HM teldist með
Roberto Martínez, þjálfari portúgalska karlalandsliðsins í fótbolta, segist hafa gert mistök þegar hann kaus í vali á besta leikmanni ársins á FIFA verðlaunahátíðinni sem fór fram fyrr í mánuðinum.

Lið þurfi að gefa leiki ef stuðningsmenn beita leikmenn kynþáttaníð
Gianni Infantino, forseti alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, vill að koma á nýjum reglum sem kveða á um að lið þurfi að gefa leiki ef stuðningsmenn þeirra beita leikmenn kynþáttaníð.

Fjórði febrúar 2024 stór dagur fyrir gestgjafa HM 2026
Alþjóða knattspyrnusambandið ætlar að gefa út leikjadagskrána fyrir næstu heimsmeistarakeppni karla 4. febrúar næstkomandi.

Mbappé varar fótboltann við því að elta NBA deildina
Franski knattspyrnumaðurinn Kylian Mbappé segir að evrópskur fótbolti sé að nálgast álagið í NBA deildinni í körfubolta með því að vera sífellt að bæta við leikjum.

„Skandall að Messi hafi unnið“
Norski fótboltasérfræðingurinn Carl-Erik Torp var allt annað en sáttur við það þegar Lionel Messi var í gær kosinn besti knattspyrnumaður ársins hjá FIFA.

Håland og Messi jafnir að stigum en Messi stóð uppi sem sigurvegari
Í gærkvöld fór verðlaunahátíð FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, fram í Lundúnum. Var besta knattspyrnufólk ársins 2023 heiðrað.

Messi og Bonmatí leikmenn ársins
Lionel Andrés Messi og Aitana Bonmatí eru leikmenn ársins 2023 að mati Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA. Voru leikmennirnir tveir heiðraðir á hátíðlegri athöfn í Lundúnum.