Eldgos og jarðhræringar
66 67 68 69 70 71 72 73 74 … 132 ›
Töluvert stærra gos og virðist byrja af meiri krafti Eldgosið sem hófst við Geldingadali í dag er töluvert stærra en það sem sást í fyrra og virðist byrja af meiri krafti. Þrátt fyrir það telst gosið vera lítið og er lítil hætta á því að það ógni byggð eða innviðum á nærliggjandi svæði. Innlent 3.8.2022 18:53
Fann tvo menn sem voru fastir og skutlaði þeim alveg upp að hrauninu Gylfi Blöndal var á ferð með vini sínum nálægt gosstöðvunum í Geldingadal þegar hann rakst á tvo blaðamenn mbl.is á leið að gosinu. Þeir voru fastir en Gylfi var á mun betri bíl en þeir og skutlaði þeim alveg upp að lekandi hrauninu með aðstoð blaðamannapassa þeirra. Innlent 3.8.2022 17:34
Svona var blaðamannafundurinn vegna eldgossins Almannavarnir hafa boðið til fjölmiðlafundar klukkan 17:30 í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Tilefnið er eldgosið sem hófst við Geldingadali á öðrum tímanum í dag. Innlent 3.8.2022 16:46
Kristján Már fjarri góðu gamni og missir af gosinu Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, er reyndasti fréttamaður landsins, þegar kemur að umfjöllun um eldgos og aðrar jarðhræringar. Lífið 3.8.2022 16:24
„Þetta er með meiri heppnisstundum í lífinu“ Guðrún Lára Pálmadóttir og eiginmaður hennar voru með þeim fyrstu til að sjá eldgosið með eigin augum í dag. Hún segir aðdragandann vera með meiri heppnisstundum lífs síns. Innlent 3.8.2022 16:17
Blásið til upplýsingafundar vegna eldgossins Almannavarnir hafa boðað til blaðamannafundar klukkan 17:30 vegna eldgossins sem hófst við Geldingadali í dag. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 3.8.2022 16:15
Gosið leggst vel í Grindvíkinga Guðrún Kristín Einarsdóttir er formaður slysavarnadeildarinnar Þórkötlu í Grindavík, sem er deild innan Landsbjargar. Hún var hress þegar Vísir heyrði í henni, gosið leggst bara vel í hana. Innlent 3.8.2022 16:14
Búið að loka fyrir akstur á vegslóðum við gosstöðvarnar Neyðarstig almannavarna var virkjað um klukkan þrjú í dag vegna eldgossins sem hafið er í Geldingadölum. Þetta ákvað ríkislögreglustjóri í samráði við lögregluna á Suðurnesjum. Innlent 3.8.2022 16:01
Í þyrlu á ystu nöf yfir gosinu Þar er aldeilis ekki fyrir lofthrædda að standa vaktina sem fréttatökumenn hjá Stöð 2 og RÚV þegar eldgos eru annars vegar. Innlent 3.8.2022 15:55
„Hressandi að fá eitt eldgos í viðbót“ Bogi Adolfsson formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík segir að allar björgunarsveitir á Suðurnesjum hafi verið kallaðar út, þau séu að ná tökum á málunum og fara yfir stöðuna. Hann hvetur almenning til að hlusta á tilmæli. Innlent 3.8.2022 15:36
Léttir að gosið sé hafið Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir í samtali við fréttastofu að það sé ákveðinn léttir að það sé farið að gjósa, sérstaklega á svona góðum stað. Enginn mannvirki séu í grennd við gosstöðvar en það kom honum ekkert sérlega á óvart að gosið skyldi hefjast í dag. Innlent 3.8.2022 15:04
Grín og alvara í bland vegna eldgossins Eldgos er hafið á ný og viðbrögð á samfélagsmiðlum í takt við það. Netverjar deila ýmist skoðunum á gosinu sjálfu eða afleiðingum þess á meðan Domino's býður upp á frítt gos í tilefni dagsins. Lífið 3.8.2022 14:55
Bein útsending frá eldgosinu Eldgosið er hafið á Reykjanesskaga, nánar tiltekið í vestanverðum Meradölum. Innlent 3.8.2022 14:47
„Lítið og nett hraungos“ Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir í samtali við fréttastofu að gosið sem hófst á Reykjanesi í dag sé lítið og nett. Virknin sé að draga sig saman í ákveðna gíga og þá muni gjósa úr gígopum frekar en sprungunni. Innlent 3.8.2022 14:37
Eldgos hafið við Fagradalsfjall Eldgos hófst í Meradölum á Reykjanesi á öðrum tímanum í dag í framhaldi af mikilli skjálftavirkni á svæðinu undanfarna daga. Jarðeldar sáust greinilega á vefmyndavélum frá svæðinu og staðfestu sérfræðingar Veðurstofunnar í framhaldinu að um eldgos væri að ræða. Innlent 3.8.2022 13:34
Enn engin merki um gosóróa á Reykjanesi Mikil skjálftavirkni er enn á Reykjanesskaga en engin merki um gosóróa. Búast má við að skjálftavirkni komi í hviðum næstu daga og vikur. Innlent 3.8.2022 12:46
Innviðaráðherra telur minnkandi líkur á flugvelli í Hvassahrauni Innviðaráðherra telur ljóst að líkurnar á flugvelli í Hvassahrauni fari minnkandi vegna jarðhræringa á svæðinu. Sérfræðingahópur á vegum stjórnvalda fundar í dag um jarðhræringar á Reykjanesi. Innlent 3.8.2022 12:25
Skjálfti af stærðinni 4,2 varð við Kleifarvatn Snarpur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Innlent 3.8.2022 12:03
Næstu kynslóðir þurfi að búa sig undir tíð eldgos Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að næstu kynslóðir landsmanna þurfi að búa sig undir tíð eldgos á Reykjanesskaganum. Innlent 3.8.2022 10:56
Vaktin: Reykjanesið skelfur Eldgos er hafið á Reykjanesskaga. Jarðeldar sjást greinilega á vefmyndavélum frá svæðinu þar sem eldgos kom upp í mars í fyrra. Innlent 3.8.2022 10:22
„Ég var dálítið stressaður og var farinn að leita að dyrunum“ Þó Íslendingar séu margir orðnir vanir jarðskjálftum, líkt og þeim sem riðið hafa yfir á Reykjanesskaga og víðar að undanförnu, þá eru það ekki allir. Nokkrir erlendir ferðamenn sem fréttastofa hitti höfðu aldrei upplifað jarðskjálfta fyrr en á mánudagskvöld. Innlent 3.8.2022 07:00
Minni virkni í nótt en einn stór skjálfti í morgunsárið Nokkuð færri skjálftar urðu á Reykjanesskaga í nótt en aðeins fjórir mældust þrír að stærð eða stærri. Þar af var einn af stærðinni 4,6 sem reið yfir klukkan hálf sex í morgun. Innlent 3.8.2022 06:40
Óútskýrður eldur í mosa en engin kvika sjáanleg Ljósblossar í Fagradalsfjalli sem Landhelgisgæslan var send að kanna nú eftir miðnætti reyndust vera vegna elds í mosa. Engin merki eru um kviku á svæðinu. Innlent 3.8.2022 01:26
Allra augu beinast að svæði sem í fyrra var talið líklegast til að gjósa Augu jarðvísindamanna, sem og fróðleiksþyrstra landsmanna um næsta eldgos á Reykjanesskaga, beinast núna að svæði austan og norðaustan Fagradalsfjalls sem liggur til norðausturs frá eldstöðvunum í Geldingadölum í fyrra og í átt að hinu svipmikla fjalli Keili. Þar benda mælingar til að kvika streymi núna inn í kvikugang sem gæti brotist upp til yfirborðs á næstu dögum með eldgosi. Innlent 2.8.2022 22:50
Lögreglumenn sendir út til að kanna aðstæður við Fagradalsfjall Fulltrúar lögreglunnar á Suðurnesjum könnuðu aðstæður við Fagradalsfjall í kvöld eftir að bera fór þar á reyk. Sáu þeir ekkert athugavert á svæðinu að sögn náttúruvársérfræðings sem segir engin merki um að kvika sé að koma upp á yfirborðið. Innlent 2.8.2022 22:22
Öflugir skjálftar í Krýsuvík: „Þetta er enginn stórskaði eins og er“ Verulegar líkur eru taldar á eldgosi við Fagradalsfjall á næstu dögum eða vikum. Nýjar niðurstöður benda til þess að kvikugangur liggi mjög grunnt undir yfirborðinu. Ummerki skjálftahrinunnar eru greinileg á meðferðarheimilinu í Krýsuvík og segir framkvæmdastjórinn þá hörðustu líkjast brotsjó. Innlent 2.8.2022 20:17
Reykurinn í Fagradalsfjalli ekki merki um kviku Reykur sem sést rjúka upp við Fagradalsfjall í vefútsendingu mbl.is frá svæðinu er ekki merki um að kvika sé á leið upp á yfirborðið, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Jarðskjálfti að stærð 3,8 mældist um 2,1 kílómetra suðsuðvestur af Keili um klukkan 19:40 í kvöld og fylgdu minni eftirskjálftar í kjölfarið. Stóri skjálftinn fannst meðal annars á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 2.8.2022 19:49
Verulegar líkur á gosi á næstu dögum eða vikum Líkurnar á eldgosi á svæðinu í kringum Fagradalsfjall á næstu dögum eða vikum hafa aukist og eru nú taldar verulegar. Þetta má lesa úr niðurstöðum nýrra aflögunarlíkana en líkt og staðan er núna virðist vera að hægja á aflögun og skjálftavirkni við Fagradalsfjall. Var það einn af forboðunum fyrir eldgosið sem hófst í mars á seinasta ári. Innlent 2.8.2022 18:40
Litakóða fyrir Grímsvötn breytt í gult Veðurstofan hefur breytt litakóða fyrir Grímsvötn í gult. Nokkrir jarðskjálftar stærri en 1,0 að stærð hafa mælst þar í eftirmiðdag og stærsti skjálftinn af þeim mældist 3,6 að stærð klukkan 14:24. Jarðskjálftavirkni er því umfram eðlilega bakgrunnsvirkni að sögn náttúruvársérfræðinga. Innlent 2.8.2022 17:24
Jarðskjálfti nálægt Grímsvötnum af stærðinni 3,7 Jarðskjálfti af stærðinni 3,7 mældist 2,7 kílómetra norðnorðaustur af Grímsfjalli klukkan tuttugu mínútur yfir tvö í dag. Fyrir utan þennan stóra skjálfta hefur verið lítið um virkni á svæðinu. Innlent 2.8.2022 16:53