Eldgos og jarðhræringar
120 121 122 123 124 125 126 127 128 … 132 ›
Askan í Evrópu: Útlitið aðeins bjartara Askan úr eyjafjallajökli heldur áfram að hrella evrópubúa og lama flugsamgöngur. Þó hafa flugvellir verið opnaði í Noregi og Svíþjóð þótt það gæti verið tímabundið. Erlent 19.4.2010 06:59
Flugvélin er bylting í gosrannsóknum Ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar hefur leikið aðalhlutverk við gagnaöflun við gosstöðvarnar á Suðurlandi. Upplýsingarnar hafa gagnast við hættumat og veitt jarðvísindamönnum ómetanleg tækifæri til rannsókna. Innlent 18.4.2010 22:39
Allt á kafi í grárri drullu „Það er leiðindalykt og allt á kafi í grári drullu,“ segir Berglind Hilmarsdóttir, ábúandi á Núpi undir Eyjafjöllum. Í gær birti til eftir að öskunni hafði kyngt niður og skildi eftir sig svart teppi yfir sveitinni. Berglind finnur til í öndunarfærunu og segir þungt að anda. „Eins og maður sé alltaf með ryk í nefinu. Fólk er eflaust misviðkvæmt fyrir þessu, ég get ekki ímyndað mér að þetta sér gott fyrir viðkvæma og börn.“ Innlent 18.4.2010 22:39
Ferðalangar fengu ekki að fara inn í Fljótshlíð Mikill fjöldi lagði leið sína austur á Hvolsvöll á laugardag til að berja gosstrókinn úr Eyjafjallajökli augum. Ökumenn fengu ekki að fara inn í Fljótshlíð eða að Markarfljóti samkvæmt fyrirmælum frá Almannavörnum. „Ég held að fólk hafi almennt sýnt því skilning,“ segir Smári Sigurbjörnsson, formaður björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli. Innlent 18.4.2010 22:39
Spá Veðurstofu Íslands um öskufall Sunnudagur: Vestanátt beinir gosmekki yfir Mýrdalsjökul. Búast má við öskufalli í Meðallandi og á Mýrdalssandi. Snýst í norðanátt í nótt, með öskufalli suður af Mýrdalsjökli. Innlent 18.4.2010 22:39
Gosstrókurinn er lægri en óróinn eykst Gosvirkni í eldstöðinni á Eyjafjallajökli var minni í gær en áður og fór gosmökkurinn ekki jafn hátt og síðustu daga. Gosóróinn óx hins vegar, og er mjög erfitt að ráða í þýðingu þessara breytinga, segir Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Innlent 18.4.2010 22:39
Vongóðir um flug til Norðurlandanna í dag Milljónir flugfarþega eru enn strandaglópar vegna ösku frá eldstöðinni í Eyjafjallajökli. Askan hafði engin áhrif á þotur sem flugu tilraunaflug yfir meginlandi Evrópu í gær. Mikill þrýstingur er á flugmálayfirvöld að aflétta flugbanni. Innlent 18.4.2010 22:39
Óvíst hvenær umferð verður hleypt á veginn Verktakar luku í gær við bráðabirgðaviðgerð á þjóðvegi 1, hringveginum, við Markarfljótsbrú en ekki hefur verið ákveðið hvenær vegurinn verður opnaður fyrir almennri umferð. Einnig var gert við varnargarða sem verja veginn og brúna yfir Markarfljót. Innlent 18.4.2010 22:39
Icelandair fellir niður flug og breytir áætlun Icelandair hefur ákveðið að fella niður flug til Kaupmannahafnar á morgun, mánudag en hefur sett þess í stað upp aukaflug til Osló þar sem veittar hafa verið flugheimildir. Jafnframt hefur flug til Helskinki verið fellt niður, en þess í stað sett upp aukaflug til Tampere í Finnlandi þar sem opið er fyrir flug, en auk þess verður flogið til Stokkhólms á morgun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flugfélaginu. Innlent 18.4.2010 20:48
Átta íbúafundir haldnir í vikunni Átta fundir verða haldnir með íbúum í grennd við Eyjafjallajökul næstu daga. Á fundunum verða yfirvöld og almannavarnanefnd í héraði, ásamt dýralækni, veðurfræðingi, jarðvísindamanni og fleiri sérfræðingum og fulltrúum stofnana sem koma að málum. Innlent 18.4.2010 19:22
Ótímabært að spá fyrir um endalok gossins Töluvert hefur dregið úr virkni eldstöðvarinnar undir Eyjafjallajökli. Ekki er hins vegar orðið tímabært að spá fyrir um endalok þess. Meira en 700 tonn af gosefni ruddust upp úr gígnum á hverri einustu sekúndu fyrstu þrjá sólarhringana. Innlent 18.4.2010 19:06
Minni gosvirkni Gosvirkni í Eyjafjallajökli hefur verið minni í dag en áður. Gosmökkurinn fer lægra, öskumyndun er minni og litlar fréttir af hafa borist af öskufalli. Mökkur er bæði yfir Mýrdals- og Eyjafjallajökli en aska nær ekki niður í byggð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. Innlent 18.4.2010 17:42
Iceland Express hyggst fljúga til Evrópu á morgun Iceland Express stefnir að flugi til Kaupmannahafnar, Berlínar, Tenerife og Alicante á morgun, mánudag. Stefnt er að því, að Kaupmannahafnarvélin fari í loftið í fyrramálið, og Alicante, Tenerife og Berlín eftir hádegið. Félagið hefur hins vegar aflýst öllu flugi til London á morgun. Innlent 18.4.2010 16:53
Hrygningarsvæðum virðist ekki stafa hætta af hlaupvatninu Fyrstu niðurstöður Hafrannsóknarstofnunar benda til þess að hrygningarsvæðum þorsks og annarra mikilvægra fisktegunda stafi ekki hætta af hlaupvatninu við ósa Markarfljóts vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Innlent 18.4.2010 16:19
Reyna að fljúga til og frá Skandinavíu Icelandair stefnir að flugi til og frá Skandinavíu og Bandaríkjunum á morgun, en aflýsir flugi til Bretlands og meginlands Evrópu. Innlent 18.4.2010 15:53
Allt grátt „Það er náttúrulega allt grátt og það var skelfilegt að koma út," segir Heiða Björg Scheving, á bænum Steinum, þegar hún lýsir því hvernig var að koma út í morgun. Frá því að eldgosið hófst í Eyjafjallajökli í síðustu viku hefur mikið öskufall verið á svæðinu. Innlent 18.4.2010 15:39
Reyna að opna veginn við Markarfljót í kvöld Stefnt er að því að opna Hringveginn við Markarfljót í kvöld. Vinna síðustu daga við viðgerðina á veginum og varnargörðum hefur gengið vel og styttist í að hægt verði að flytja neyðarakstur af gömlu brúnni yfir á þá nýju og þar með um Hringveginn. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Innlent 18.4.2010 14:58
Dýrin hafa það gott Dýralæknar hafa í morgun farið á bæi og kanna ástandið á skepnum sem hafa verið úti í öskufallinu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og segja ástandið ótrúlega gott, samkvæmt samhæfingarmiðstöð almannavarna. Innlent 18.4.2010 13:16
Ragna fundar með blaðamönnum um eldgosið Nokkrar breytingar hafa orðið á gjóskufalli, óróa og gosmekki á gossvæðinu á Eyjafjallajökli en ekki sést til gosstöðvanna. Flugvél Landhelgisgæslunnar flýgur nú yfir svæðið og berast upplýsingar frá vísindamönnum síðar í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. Innlent 18.4.2010 13:10
Magnús Tumi: Ekkert hægt að fullyrða um Kötlugos Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir vissulega líkur á því að gos hefjist í Kötlu í kjölfarið á gosinu í Eyjafjallajökli en ekkert sé hægt að fullyrða í þeim efnum. Innlent 18.4.2010 12:28
Funda með íbúum undir Eyjafjöllum Fundur með íbúum undir Eyjarfjöllum verður haldinn í dag á Heimalandi klukkan 13. Á fundinum verða fulltrúar almannavarnarnefndar og sveitarstjórnar. Farið verður yfir ástand og horfur á svæðinu. Íbúar eru hvattir til að mæta. Innlent 18.4.2010 12:03
„Þetta er samstillt átak“ „Það standa sig allir mjög vel,“ segir Berglind Hilmarsdóttir, á bænum Núpi undir Eyjafjöllum, og vísar til aðgerða björgunarsveitarmanna, Rauða krossins og sveitunga hennar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Hún tekur sem dæmi að björgunarsveitarmenn séu vel skipulagðir og fari á milli bæja og gangi þar í öll verk. „Þetta er samstillt átak.“ Innlent 18.4.2010 11:34
Icelandair fjölgar flugum til Þrándheims Vegna mikillar eftirspurnar hefur Icelandair ákveðið að efna til fjögurra aukafluga í dag til Þrándheims í Noregi. Áður hafði verið tilkynnt að farin yrðu tvö flug. Fyrsta flugið er klukkan 13, tvær flugvélar fara klukkan 14 og fjórða flugið er klukkan 15. Innlent 18.4.2010 10:51
Milljónir strandaglópa Í Evrópu og víðar eru milljónir strandaglópa vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Um 20 lönd lokuðu fyrir alla flugumferð nú um helgina og sum þeirra hafa framlengt bannið fram á morgundaginn, að sögn BBC, meðal annars Belgía, Búlgaría, Tékkland, Danmörk, Finnland, Lettland, Lúxemborg, Bretland og Slóvakía. Askan hefur því nú valdið meiri röskun á flugi en hryðjuverkaárásirnar ellefta september. Erlent 18.4.2010 10:43
Vegir greiðfærir Frá Vegagerðinni koma þær upplýsingar að óvíst sé hvenær hringvegurinn við Markarfljót opnast fyrir almenna umferð. Ef frá eru talin vandamálin á gossvæðinu er greiðfært um allt sunnanvert landið. Annars eru hálkublettir sum staðar á heiðum, og með norðausturströndinni, á Möðrudalsöræfum og fjallvegum á Austurlandi. Innlent 18.4.2010 10:29
Talsverður órói mældist á miðnætti Talsverður órói mældist við eldgosið í Eyjafjallajökli á miðnætti, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Auk þess voru miklar drunur og aukinn kraftur. Innlent 18.4.2010 10:22
Iceland Express flýgur einnig til Þrándheims Iceland Epress flýgur til Þrándheims klukkan 15:30 í dag. Þetta flug hentar einkum þeim, sem áttu bókað með félaginu til Kaupmannahafnar, en tvær vélar áttu að fara þangað í dag. Þá hefur tveimur flugum til London verið aflýst. Fyrr í morgun var greint frá því að Icelandair hyggst einnig fljúga til Þrándheims. Innlent 18.4.2010 10:20
Eldgosið á Eyjafjallajökli - myndir Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var á slóðum eldgossins á Eyjafjallajökli í gærkvöld og myndaði það sem fyrir augun bar. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan. Innlent 18.4.2010 10:01
Icelandair flýgur til Þrándheims í dag Iclelandair hefur fengið heimild til flugs til Þrándheims í Noregi og efnir Icelandair til tveggja aukafluga þangað. Brottför fyrra flugsins er kl. 13 og brottför seinna flugsins er klukkustund síðar. Brottför frá Þrándheimi til Íslands verður síðan klukkan 18:50 og 19:50 að staðartíma. Innlent 18.4.2010 09:55
Lögreglan á Hvolsvelli ítrekar bann Lögreglan á Hvolsvelli vill ítreka að Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull eru skilgreind bannsvæði, einnig er öll umferð á Mýrdalsjökli bönnuð. Veður er að breytast á svæðinu og vindur að færast til vesturs. Innlent 17.4.2010 19:34