Eldgos og jarðhræringar

Jarðskjálfti að stærð 3,2 við Kleifarvatn
Klukkan 16:17 varð skjálfti að stærð 3,2 við Kleifarvatn á Reykjanesskaga.

Telur sérkennilegt að engin jarðskjálftavirkni sé við landrisið nærri Þorbirni
Doktor í jarðeðlisfræði telur líkur á að landrisið við Þorbjörn stafi af jarðvarmavinnslu við Svartsengi. Vísindaráð almannavarna hefur talið líklegustu skýringuna kvikusinnskot.

Jarðskjálfti að stærð 3,1 á Reykjanestá
Jarðskjálfti að stærð 3,1 varð klukkan 20:10 í kvöld um 3,6 km norður af Reykjanestá.

Hellar í Eldvörpum girtir af vegna lífshættulegrar gasmyndunar
Lögreglan á Suðurnesjum girti í dag af hella í Eldvörpum á Reykjanesskaga vegna lífshættulegrar gasmyndunar í þeim. Enn þá er hægt er að fara um svæðið við hellana en til að koma í veg fyrir að fólk fari ofan í þá þótti ráðlegast að girða þá af.

Með svæðið í hálfgerðri gjörgæslu
Ómögulegt er að segja til um það hvort lengi hafi gætt lífshættulegra gilda lofttegunda í hellum í Eldvörpum á Reykjanesskaga, að sögn náttúruvársérfræðings.

Jörð skelfur enn við Grindavík og Gjögurtá
Skjálftahrina hófst í gærmorgun um tíu kílómetra norður af Gjögurtá.

Hundruð jarðskjálfta mældust við Grindavík í liðinni viku
Land hefur risið um fimm sentímetra í kringum fjallið Þorbjörn en hvorki eru merki um að það fari vaxandi né minnkandi.

Mælingar efldar við Þorbjörn
Jarðskjálftavirkni mælist enn á svæðinu norðan við Grindavík. Virknin er yfir meðallagi en þó minni en þegar hún var hvað mest í lok janúar.

Skjálfti 3,1 að stærð við Grindavík
Skjálfti 3,1 að stærð mældist skammt frá Grindavík klukkan 8:26 í morgun.

Stór skjálfti í Rússlandi mældist á Íslandi
Jarðskjálfti að stærð 6,9 varð austur af Rússlandi upp úr klukkan hálf ellefu í morgun. Skjálftinn skilaði sér á kort Veðurstofu Íslands sem skjálfti upp á 3,7 nærri Borgarnesi.

Jarðskjálfti að stærð 3,2 við Grindavík
Nokkrar tilkynningar hafa borist Veðurstofunni um að skjálftinn hafi fundist í Grindavík og Bláa Lóninu.

Minni skjálftavirkni við Þorbjörn og lítið landris
Þetta er nú allt að róast. Ég myndi nú ekki segja að þetta væri búið, það eru alveg að koma inn skjálftar þarna og við sjáum alveg á Grindavíkurstöðinni að það er enn þá svolítil virkni en hún er mjög lítil þannig að við náum ekki að staðsetja þá, segir Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands

Hátt í hundrað tilkynningar bárust um skjálftann
Jarðskjálfti sem mældist 3,7 að stærð og átti upptök sín við Hengilinn í morgun fannst allt frá Selfossi og upp í Borgarfjörð.

Jarðskjálfti að stærð 3,6 skók jörð við Hellisheiðarvirkjun
Jörð skalf á höfuðborgarsvæðinu klukkan 7:24 í morgun eftir að jarðskjálfti af stærð 3,6 varð með skjálftamiðju um fjóra kílómetra norðvestur af Hellisheiðarvirkjun.

„Þetta magn af kviku myndi aldrei geta búið til neitt eldgos“
Kvikan sem er að safnast saman á um þriggja til fimm kílómetra dýpi við fjallið Þorbjörn á Reykjanesi er í mjög litlu magni að sögn Benedikts Ófeigssonar, jarðeðlisfræðings á Veðurstofu Íslands.

Telja nú að kvikan sé á þriggja til fimm kílómetra dýpi
Vísindaráð Almannavarna kom saman til fundar í dag þar sem farið var yfir stöðu mála vegna landriss og jarðskjálftavirkni við fjallið Þorbjörn á Reykjanesskaga.

Aðeins þrír skjálftar frá miðnætti
Þrír skjálftar hafa mælst þar frá miðnætti.

Land risið um fimm sentímetra og áframhaldandi smáskjálftavirkni
Nýjustu gögn úr GPS mælum sýna áframhaldandi landris á svæðinu vestan við Þorbjörn. Í heildina hefur land risið um fimm sentímetra frá 20. janúar og þá sýna gervitunglamyndir sömu þróun.

Þrjátíu skjálftar frá miðnætti
Áfram hafa mælst skjálftar í grennd við Grindavík og einkenndist nóttin af smáskjálftavirkni.

Nýtt myndband sýnir greinilega hvernig skjálftavirknin jókst
Nýtt myndband frá Veðurstofu Íslands sýnir greinilega hvernig skjálftavirknin nærri Grindavík jókst tímabundið síðastliðið föstudagskvöld.

Líkir jarðhræringunum við Grindavík við það að troða bók í miðjan bókastafla
Töluverð jarðskjálftavirkni hefur verið við Grindavík síðustu daga og er kvikuinnskot talin líklegasta skýringin á jarðhræringunum. Jarðeðlisfræðingur líkir innskotinu og áhrifum af því við það að troða bók í miðjan bókastafla.

Um fjörutíu skjálftar frá miðnætti
Jarðskjálftavirkni hefur áfram mælst í grennd við Grindavík, frá miðnætti hafa mælst um fjörutíu skjálftar á svæðinu, flestir undir 2 að stærð.

Fremur rólegt á skjálftasvæðunum við Grindavík í nótt
Frá miðnætti mældust um sex skjálftar á svæðinu.

Annar jarðskjálfti að stærð 3,3 mældist við Grindavík
Skjálftinn er hluti af um 150 jarðskjálftum sem mælst hafa á svæðinu í dag.

Telur innskot kviku líklegra en eldgos á Reykjanesskaga
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur, einn kunnasti jarðvísindamaður Íslendinga, bendir á háa eðlisþyngd kvikunnar og að kvikuinnskot séu algengari en eldgos.

Um 80 skjálftar í nágrenni Grindavíkur frá miðnætti
Búast má við áframhaldandi skjálftavirkni.

„Það var eins og trukkur hefði keyrt á húsið okkar“
Íbúum í Grindavík var verulega brugðið þegar stórir skjálftar riðu yfir í gærkvöldi. Síðasta sólarhring hafa meira en 700 jarðskjálftar mælst í grennd við bæinn, sá öflugasti 4,3 að stærð. Talið er að skjálftarnir séu afleiðingar landriss en ekki merki um gosóróa.

Björgunarsveitaræfing með þyrlu í Grindavík í kvöld
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík mun í kvöld halda æfingu með þyrlu Landhelgisgæslunnar í nágrenni Grindavíkur. Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá sveitinni.

Náðu óvart myndbandi af skjálftanum í Grindavík: „Það var pínu power í þessu“
Facebook-síðan Live Darts Iceland birti í gærkvöldi myndband sem er klippt út úr beinu streymi síðunnar og sýnir þegar jarðskjálfti af stærðinni 4,3 skók Grindavík stuttlega í gær.

Grindvíkingar fundu vel fyrir skjálftunum: „Ég held að enginn hafi sofið hann af sér“
Jarðskjálftavirkni norðnorðaustur af Grindavík var mikil í gærkvöld og nótt eins og greint hefur verið frá og mældust yfir 500 skjálftar síðasta sólarhring. Bæjarstjóri Grindavíkur segir íbúum hafa brugðið í skjálftahrinunni.