Bólusetningar
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 51 ›
Bóluefni Janssen með 66 prósent virkni Niðurstöður þriðja fasa prófana á bóluefni belgíska lyfjafyrirtækisins Janssen sýna að bóluefnið hefur 66% virkni gegn kórónuveirunni en allt að 72% virkni í Bandaríkjunum. Erlent 29.1.2021 15:31
Bóluefni AstraZeneca fær grænt ljós hjá Lyfjastofnun Evrópu Lyfjastofnun Evrópu hefur mælt með útgáfu skilyrts markaðsleyfis fyrir bóluefni bresk-sænska lyfjafyrirtækisins AstraZeneca gegn Covid-19 í Evrópu. Erlent 29.1.2021 15:19
Fólk á tíræðisaldri boðað í bólusetningu Þriðjudaginn 2. febrúar mun heilsugæslan bjóða öllum íbúum á höfuðborgarsvæðinu 90 ára og eldri, þ.e. fæddir 1931 eða fyrr, COVID-19 bólusetningu á Suðurlandsbraut 34. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilsugæslunni. Innlent 29.1.2021 11:29
Bóluefni AstraZeneca gæti fengið markaðsleyfi í Evrópu í dag Bóluefni bresk-sænska lyfjafyrirtækisins AstraZeneca gegn Covid-19 gæti fengið skilyrt markaðsleyfi í Evrópu í dag. Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) mun funda um bóluefnið í dag og ætti niðurstaða varðandi leyfið að liggja fyrir eftir þann fund. Erlent 29.1.2021 09:35
Vellauðugt par sótt til saka fyrir að svíkja út bóluefni ætlað frumbyggjum Kanadískt par á yfir höfði sér fangelsisvist eftir að hafa beitt brögðum til að fá bólusetningu við kórónuveirunni. Parið, sem er hvítt og forríkt, fékk bóluefni sem ætlað var viðkvæmum hópi kanadískra frumbyggja. Erlent 28.1.2021 23:48
Bóluefni Novavax veitir 90 prósenta vörn Bóluefni lyfjaframleiðandans Novavax veitir 89 prósent virkni gegn kórónuveirunni. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum þriðja fasa rannsóknar sem gerð var á Bretlandi. Bóluefnið virðist einnig virka gegn suðurafríska afbrigði veirunnar, þó ekki eins vel. Erlent 28.1.2021 22:00
Rannsókn hafin á framleiðsluvanda að beiðni ESB Belgískir eftirlitsaðilar hafa, að beiðni framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hrundið af stað rannsókn á framleiðsluvanda verksmiðju sem framleiðir bóluefni AstraZeneca í Belgíu. Erlent 28.1.2021 15:24
Bóluefni Pfizer virðist virka bæði gegn breska og suðurafríska afbrigðinu Vísbendingar eru um að bóluefni Pfizer og BioNTech við Covid-19 virki vel gegn nýjum afbrigðum kórónuveirunnar sem kennd hafa verið við Bretland og Suður-Afríku. Erlent 28.1.2021 12:45
ESB og AstraZeneca lofa að leysa deilu sína um bóluefni eftir krísufund Evrópusambandið (ESB) og bresk-sænska lyfjafyrirtækið AstraZeneca hafa heitið því að leysa deilu sínu um bóluefni AstraZeneca og Oxford-háskóla gegn Covid-19. Erlent 28.1.2021 07:04
„Hún þarf bara eitt gott partí og þá er ballið byrjað“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að lítið þurfi út af að bregða til að kórónuveirufaraldurinn fari aftur af stað. Veiran sé enn úti í samfélaginu, þó það sé í litlum mæli. Fara þurfi mjög hægt í tilslakanir. Innlent 27.1.2021 18:35
Evrópusambandið biðlar til AstraZeneca að standa við gefin loforð Evrópusambandið hefur biðlað til lyfjaframleiðandans AstraZeneca að afhenda því fleiri skammta af bóluefni framleiðandans við Covid-19 en ætlað er. Fyrirtækið er sagt ekki geta afhent skammtana sem samningar segja til um vegna vandræða við framleiðslu. Erlent 27.1.2021 18:05
Hét því að setja aukinn kraft í bólusetningar Joe Biden Bandaríkjaforseti hét því í gær að setja aukinn kraft í bólusetningu þar í landi þannig að flest allir Bandaríkjamenn verði búnir að fá bólusetningu gegn Covid-19 í lok sumars eða snemma í haust. Erlent 27.1.2021 07:08
Heltust úr bóluefnalestinni en rétta nú fram hjálparhönd Franska lyfjafyrirtækið Sanofi hyggst aðstoða lyfjafyrirtækið Pfizer við framleiðslu á hundrað milljón skömmtum af bóluefni þess síðarnefnda gegn kórónuveirunni. Fyrstu Pfizer-skammtarnir frá Sanofi eru þó ekki væntanlegir fyrr en í júlí. Erlent 26.1.2021 23:24
„Áhugavert“ bóluefni sem lofar mjög góðu Sérfræðingur í ónæmisfræðum segir bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni, sem Íslendingar gætu átt von á til landsins á fyrsta ársfjórðungi, áhugavert bóluefni, sem svipi mjög til bóluefnis AstraZeneca. Niðurstöður úr fyrsta og öðrum fasa rannsókna lofi mjög góðu. Innlent 26.1.2021 19:53
Segja fréttir um takmarkaða virkni byggja á mistúlkun gagna Þýska heilbrigðisráðuneytið og AstraZeneca hafna fréttum þess efnis að bóluefni lyfjafyrirtækisins gegn Covid-19 virki ekki eins og áður hafði verið talað um. Forsvarsmenn AstraZeneca segja fréttirnar „fullkomlega rangar“ en samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu er um að ræða mistúlkun á gögnum. Erlent 26.1.2021 19:37
„Ósköp var þetta nú Miðflokkslegt“ „Ósköp var þetta nú Miðflokkslegt. En gott og vel, það er bara partur af veruleikanum hér í þingsal og eitthvað sem við verðum að reyna að hafa skilning á,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, þegar hún svaraði fyrirpurn Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þingmanns Miðflokksins, um bóluefni. Innlent 26.1.2021 18:18
Tilkynningar um andlát orðnar átta Lyfjastofnun var í gær tilkynnt um andlát aldraðrar manneskju sem fengið hafði bólusetningu gegn kórónuveirunni með bóluefni Pfizer. Engar vísbendingar eru um tengsl bólusetningarinnar og andlátsins. Stofnuninni hefur nú verið tilkynnt um átta andlát eftir bólusetningu. Innlent 26.1.2021 17:48
Heilbrigðisráðherra býst við bóluefni Janssen fyrr en áður var talið Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir von á bóluefni Janssen fyrr en áður var talið. Þetta kom fram í máli Svandísar í umræðum um skýrslu sem hún flutti um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. Innlent 26.1.2021 14:54
Vilja bíða með útgöngubann og skyldubólusetningu Velferðarnefnd Alþingis leggur til að heimild til setningar útgöngubanns og skyldubólusetningar á landamærunum verði felldar brott úr frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum. Innlent 26.1.2021 13:30
Uppfært: Bóluefni fyrir 35 þúsund manns væntanlegt fyrir lok mars Ísland á von á bóluefni fyrir 33.500 manns í febrúar mánuði. Enn sé stefnt að því að þorri þjóðar verði bólusettur fyrir mitt ár, þó engu sé slegið á föstu. Innlent 26.1.2021 12:10
Pfizer farið að rukka fyrir sjötta skammtinn Eftir að fram kom að hægt er að ná sex bóluefnaskömmtum út úr flöskum Pfizer í stað fimm, er bandaríski lyfjaframleiðandinn nú farinn að rukka fyrir sjötta skammtinn. Hærri reikningar Pfizer eru þó sendir út án samþykkis frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Viðskipti erlent 26.1.2021 11:34
Heilbrigðisráðherra gefur þinginu skýrslu um bóluefni Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, mun flytja munnlega skýrslu um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. Síðast flutti ráðherra sambærilega skýrslu áður en þingfundum var frestað fyrir jólafrí. Innlent 26.1.2021 10:57
Ný afbrigði og bólusetningar: Full ástæða til að fara varlega Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ekki þurfi nema smá óheppni til að smit berist inn í landið. Þess vegna, segir hann, er nauðsynlegt að viðhafa áfram öflugt eftirlit á landamærunum og huga að persónubundnum sóttvörnum. Innlent 25.1.2021 23:54
Segja bóluefni AstraZeneca ekki virka fyrir 65 ára og eldri Bóluefni AstraZeneca er sagt ekki munu fá markaðsleyfi í Evrópu til bólusetningar þeirra sem eru 65 ára og eldri. Ástæðan mun vera sú að bóluefnið tryggi eldra fólki ekki næga vörn gegn sjúkdómnum. Þessum fullyrðingum neitar aftur á móti AstraZeneca. Erlent 25.1.2021 23:44
Íhuga að banna útflutning á bóluefni til ríkja utan sambandsins Evrópusambandið er sagt íhuga að banna útflutning á bóluefni til ríkja utan sambandsins eftir að AstraZeneca greindi frá töfum í framleiðslu á föstudag. Búist var við hundrað milljónum skammta til aðildarríkja á fyrsta ársfjórðungi, en útlit er fyrir að aðeins helmingur þess skili sér á þeim tíma. Erlent 25.1.2021 20:14
Hátt í fjórtán þúsund skammtar af bóluefni AstraZeneca væntanlegir til landsins í febrúar Von er á 13.800 skömmtum af bóluefni frá AstraZeneca í febrúar, ef væntingar ganga eftir um að bóluefnið fái markaðsleyfi í Evrópu á föstudaginn. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá heilbrigðisráðuneytinu við fyrirspurn Rúv. Innlent 25.1.2021 19:30
Bóluefni Moderna virðist virka gegn nýjum afbrigðum veirunnar Bóluefni frá Moderna virðist virka gegn afbrigðum kórónuveirunnar nýju sem kennd hafa verið við Bretland og Suður-Afríku. BBC greinir frá og hefur eftir vísindamönnum hjá lyfjafyrirtækinu sem rannsökuðu blóðsýni úr átta manns sem höfðu verið bólusett með tveimur skömmum af bóluefninu frá Moderna. Erlent 25.1.2021 14:54
Fólkið á Grund bólusett og takmarkanir minnkaðar í næstu viku Bólusetningu heimilismanna Grundarheimilanna lauk fyrir helgi. Frá og með 1. febrúar verður hægt að minnka þær takmarkanir sem verið hafa á heimsóknum aðstandenda til heimilismanna. Þó er ekki reiknað með eðlilegu ástandi fyrr en í fyrsta lagi í byrjun sumars. Innlent 25.1.2021 14:35
Eitthvað mikið þurfi að fara úrskeiðis til að breytt nálgun heppnist ekki Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ánægjulegt hve fáir hafi greinst með covid-19 innanlands undanfarna daga. Hann bendir þó á að það sé áhyggjuefni hversu margir séu enn að greinast á landamærunum. Þeir sem þar greinist geti orðið alvarlega veikir sem geti skilað sér í auknu álagi á heilbrigðiskerfið. Innlent 24.1.2021 22:00
Nýttu glufu í kerfinu til að tryggja sjálfum sér bólusetningu Hópur bæklunarlækna við Sønderjylland-sjúkrahúsið í Danmörku nýtti sér glufu í kerfinu til að tryggja sjálfum sér bólusetningu gegn covid-19. Læknarnir nýttu glufuna til að bóka bólusetningu fyrir sjálfa sig en málið hefur vakið nokkra reiði meðal samstarfsmanna þeirra á sjúkrahúsinu og víðar í danska heilbrigðiskerfinu. Erlent 24.1.2021 17:16