Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran
4 5 6 7 8 ›
Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Íslendingur búsettur í Kúveit-borg segir að fólk sé beðið um að halda sig innandyra vegna braks frá drónum og flaugum sem hafa verið skotin niður. Hann vonar að árásunum fari að linna en fjölskyldan sé við öllu búin. Innlent 2.3.2026 23:31
Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum „Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum. Innlent 2.3.2026 18:56
Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran um helgina voru skýlaust brot á alþjóðalögum en hvorki íslenskir né evrópskir ráðamenn hafa treyst sér til þess að fordæma þær frekar en mannrán á forseta Venesúela í vetur. Prófessor í stjórnmálafræði ræðir við Vísi um hvort alþjóðalög skipti máli eða ekki. Innlent 2.3.2026 13:31
Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag. Innlent 2.3.2026 12:00
Vaktin: Sprengjum rignir enn Bandaríkjamenn og Ísraelar gera enn árásir á Írana, sem svara fyrir sig með eigin eldflaugum og drónum á nágrannaríki sín. Árásirnar hófust á laugardaginn og verið nánast linnulausar síðan þá. Ísraelar hafa einnig gert árásir á skotmörk í Líbanon og segja þær beinast gegn bandamönnum Íran í Hezbollah, sem skutu eldflaugum að Ísrael í nótt. Erlent 2.3.2026 09:32
Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana. Erlent 2.3.2026 07:51
Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Háværar sprengingar heyrðust í Jerúsalem, Dúbaí, Doha og Manama í morgun, er Íranir héldu áfram að gera árásir á skotmörk til að hefna fyrir hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael. Erlent 2.3.2026 06:27
Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran. Það kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ríkjanna þar sem þeir segja handahófskenndar eldflaugaárásir Írana á nágrannalönd ógna öryggi borgara sinna og bandamanna. Erlent 1.3.2026 22:31
Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin ekki munu hætta hernaðaraðgerðum sínum í Íran fyrr en hverju einasta markmiði sé náð. Hann kveðst eiga von á frekara mannfalli innan raða Bandaríkjahers en heitir því að hefna hinna föllnu og segir klerkastjórnina heyja stríð við siðmenninguna. Erlent 1.3.2026 21:50
Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Bandaríkjaher gerði umfangsmiklar loftárásir á höfuðstöðvar Íranska byltingarvarðarins í gær og sprengdu þær nánast í loft upp. Eyðileggingin er gríðarleg og yfirmaður byltingarvarðarins er látinn. Erlent 1.3.2026 19:10
Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandaríska herinn hafa sökkt níu skipum íranska flotans. Sum þeirra segir hann „stór og mikilvæg“. Erlent 1.3.2026 17:53
Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Mahmoud Ahmadinejad, fyrrverandi forseti Írans, er látinn eftir að hafa fallið í loftárásum bandaríska og ísraelska hersins í Íran. Erlent 1.3.2026 15:53
Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins. Viðskipti erlent 1.3.2026 15:29
Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila. Erlent 1.3.2026 15:15
Íslendingar óska eftir aðstoð Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum haft samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins. Þeim hafi verið veittar upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni. Innlent 1.3.2026 14:04
Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Engin skipulögð stjórnarandstaða er til staðar í Íran segir fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum. Útilokað sé að steypa klerkastjórninnni með einungis loftárásum. Innlent 1.3.2026 13:12
Gerir stólpagrín að Von der Leyen Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gerir stólpagrín að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem tilkynnti í gær að hún hefði boðað til fundar í öryggisráði ESB. Erlent 1.3.2026 12:20
Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Ísraelsher segist aftur hafa hafið loftárás á skotmörk djúpt inni í írönsku höfuðborginni Teheran, rúmum sólarhringi eftir að herinn felldi æðstaklerk Írans í samvinnu með Bandaríkjunum. Íranir hafa skotið flugskeytum í átt að nágrannaríkjum í nótt til að hefna æðstaklerksins. Erlent 1.3.2026 09:04
Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Íranir heita hefndum eftir að fjöldi háttsettra manna, þar á meðal æðsti leiðtogi landsins, var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna í gær. Ísraelsmenn segjast hafa drepið æðstaklerkinn í fyrstu sprengjuhríðinni í gær, sem lagði aðsetur hans í eyði. Erlent 1.3.2026 08:25
Stríðið muni halda áfram út vikuna Þrátt fyrir að æðstiklerkur Írans sé sagður látinn hyggjast Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn halda árásum á Íran áfram í einhverja daga. Meint andlát Ayatollah Ali Khamenei þarf ekki að jafngilda hreinum stjórnarskiptum í Íran. En hver tekur þá við? Erlent 1.3.2026 00:28
Trump: Khamenei látinn Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag. Erlent 28.2.2026 19:43
Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, setur spurningamerki við réttlætingu Bandaríkjanna og Ísrael fyrir árásum á Íran. Það séu vonbrigði að farið sé á svig við alþjóðalög og erfitt sé að ráða í umfang og árangur aðgerðanna á þessum tímapunkti, svo stuttu eftir að þær hófust. Íranski herinn hefur sagst ætla að kenna Bandaríkjunum og Ísrael „sögulega lexíu“ en Erlingur segir eftir að koma betur í ljós hver viðbrögð Írana verða með gagnárásum. Innlent 28.2.2026 13:09
Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Skömmu eftir að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran í morgun birti Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarp á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Erlent 28.2.2026 10:16
Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Hið minnsta tvö hundruð eru taldir látnir eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árás á Íran í morgun. Ísraelsríki segir árásina fyrirbyggjandi og Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að æðstiklerkur Írana hafi verið felldur. Vísir færir ykkur nýjustu fréttir í vaktinni hér að neðan. Erlent 28.2.2026 07:32
Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Starfsmönnum sendiráðs Bandaríkjanna í Jerúsalem barst tölvupóstur frá sendiherranum Mike Huckabee í morgun, þar sem hann hvatti þá sem vildu yfirgefa Ísrael vegna mögulegra árása Bandaríkjanna á Íran ættu að gera það strax í dag. Erlent 27.2.2026 12:11
Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta um að ráðast eða ráðast ekki á Íran mun meðal annars velta á mati Steve Witkoff og Jared Kushner á því hvort Íranir séu viljandi að tefja fyrir samningi um kjarnorkuáætlun landsins. Erlent 24.2.2026 08:28
Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Steve Witkoff, sérlegur sendifulltrúi Donald Trump Bandaríkjaforseta, segir forsetann ekkert botna í því hvers vegna Íranir hafa ekki gefið eftir í samningaviðræðum við Bandaríkjamenn, þrátt fyrir þann hernaðarmátt sem Bandaríkin hafa byggt upp á svæðinu á síðastliðnum vikum. Erlent 23.2.2026 06:27
Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Bandaríkjamenn hafa ekki haft jafn mikinn viðbúnað í háloftunum og getu til loftárása í Mið-Austurlöndum frá árinu 2003, þegar innrás var gerð í Írak. Búið er að senda gífurlegan fjölda herþota og stuðningsflugvéla á svæðið, auk tveggja flugmóðurskipa og fjölda annarra herskipa. Erlent 19.2.2026 11:12
„Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er líklegri en ekki til að hefja stríð gegn klerkastjórninni í Íran og slíkt stríð gæti hafist á næstunni. Árásir yrðu umfangsmiklar og stæðu líklega yfir í að minnsta kosti nokkrar vikur. Trump er sagður vera að missa þolinmæðina gagnvart klerkastjórninni. Erlent 18.2.2026 15:25
Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Yfirvöld í Íran tilkynntu í dag að Homuz-sundi hafi verið lokað og það yrði lokað í nokkrar klukkustundir vegna heræfinga. Eldflaugum hefur verið skotið út á sundið í þessum æfingum, sem eru haldnar á sama tíma og bandarískir og íranskir erindrekar funda í Genf. Bandaríkjamenn hafa hótað árásum á Íran, semji klerkastjórnin ekki um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni. Erlent 17.2.2026 12:13