Bandaríkin

Meintur njósnari fyrir CIA og Mossad dæmdur til dauða í Íran
Írani sem sagður er hafa útvegað leyniþjónustum Bandaríkjanna og Ísrael upplýsingar um ferðir hershöfðingjans Qassem Soleimani, sem felldur var í loftárás í byrjun janúar, verður tekinn af lífi.

Lögreglumaðurinn þarf að reiða fram meira en 165 milljónir til að losna
Dómari í Minnesota hefur ákveðið að Derek Chauvin, lögreglumaðurinn sem varð valdur að dauða George Floyd í Minneapolis á dögunum og olli í kjölfarið einhverjum mestu mótmælum í Bandaríkjunum í áratugi, geti losnað úr varðhaldi, reiði hann fram 1,25 milljónir Bandaríkjadala.

Ein Pointers-systra látin
Bandaríska söngkonan Bonnie Pointer er látin, 69 ára að aldri. Pointer og systur hennar gerðu garðinn frægan með sveitinni Pointer Sisters.

Þúsundir minnast George Floyd
Búist er við að þúsundir sæki minningarathöfn um George Floyd, Bandaríkjamann sem lögregluþjónn er sakaður um að hafa myrt í Minneapolis í síðasta mánuði. Lögregluþjónninn mætti fyrir dóm í dag.

Framboð Trump í miklum vandræðum
Líkur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á að ná endurkjöri virðast hafa versnað til muna undanfarnar vikur.

Umdeildur falinn fjársjóður fundinn í Bandaríkjunum
Eftir áratugslanga leit hefur umdeildur falinn fjársjóður auðjöfursins Forrest Fenn verið fundinn í Klettafjöllum Bandaríkjanna.

Lögðu fram opinbera beiðni um að ræða við Andrés vegna Epstein
Alríkissaksóknarar í Bandaríkjunum hafa lagt fram formlega beiðni til yfirvalda Bretlands um að fá að ræða við Andrés Bretaprins. Það vilja þeir gera vegna rannsóknar þeirra á kynferðisbrotum Jeffrey Epstein.

Vilja auka eftirlit og breyta verkferlum lögreglu
Demókratar á bæði fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem þeir eru í meirihluta, og öldungadeildinni ætla að leggja fram frumvarp sem snýr að umfangsmiklum breytingum á eftirliti með störfum lögreglu og verkferlum.

Keyrði inn í þvögu mótmælenda og skaut einn
Maður í bandarísku borginni Seattle í Washington-ríki hefur verið handtekinn eftir að hann ók inn í þvögu mótmælenda og skaut minnst einn. Myndband náðist af atvikinu.


Mitt Romney á meðal mótmælenda í Washington
Mitt Romney, öldungardeildarþingmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikana, var einn af um þúsund mótmælendum sem marseruðu í átt að Hvíta húsinu í morgunsárið í Washington í Bandaríkjunum.

„I can't breathe“
Mótmælin sem nú standa yfir í Bandaríkjunum eiga sér langan aðdraganda og eru nýjasti þátturinn í langri sögu réttindabaráttu svartra Bandaríkjamanna.

Bindur enda á útgöngubann í New York
Borgarstjóri New York-borgar, Bill de Blasio, hefur ákveðið að afnema útgöngubann í borginni, einum degi á undan áætlun.

Dómsmálaráðherrann segir Trump aldrei hafa beðið um að hermenn yrðu sendir til að kveða niður mótmæli
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, William Barr, segir Bandaríkjaforseta ekki hafa gengið það langt að óska eftir því að tíu þúsund hermenn verði kallaðir út til þess að aðstoða lögreglu við að kveða niður óeirðir og mótmæli í bandarískum borgum.

Rifu niður styttu af hershöfðingja Suðurríkjanna
Lítill hópur mótmælanda reif niður styttu af suðurríkjaleiðtoganum Williams Carter Wickham hershöfðingja sem stóð í borginni Richmond í Virginíu.

Vantreysta lögreglunni og óttast hana
Doktor í afbrotafræði segir að svart fólk í Bandaríkjunum verði ekki eingöngu fyrir óhóflegri valdbeitingu af hendi lögreglunnar heldur teygi misréttið anga sína til réttarkerfisins. Rannsóknir sýni að svart fólk treystir ekki lögreglunni í Bandaríkjunum og óttast hana.

Bush á meðal repúblikana sem ætla ekki að kjósa Trump
Nokkrir áhrifamenn í Repúblikanaflokknum ætla annað hvort ekki að kjósa Donald Trump í forsetakosningunum í haust eða jafnvel greiða Joe Biden, frambjóðanda demókrata, atkvæði sitt. George W. Bush, fyrrverandi forseti, er á meðal þeirra sem ætlar ekki að styðja Trump til endurkjörs.

Fjölmennustu mótmælin í Washington-borg til þessa
Mótmæli gegn lögregluofbeldi og kerfislægri kynþáttahyggju héldu áfram í mörgum borgum Bandaríkjanna í gær. Þau eru sögð hafa farið að mestu friðsamlega fram. Í Washington-borg mótmælu um tíu þúsund manns í stærstu mótmælunum í borginni til þessa.

Lýsa sig saklausa af því að hafa hrint eldri borgara
Lögreglumennirnir tveir sem ákærðir hafa verið líkamsárás gegn 75 ára gömlum vegfarenda í mótmælum í Buffalo i New York ríki Bandaríkjanna á dögunum lýstu sig saklausa af ákærum í málinu.

Þúsundir mótmæla í Washington
Þúsundir mótmælenda marsera nú um götur Washington, höfuðborgar Bandaríkjanna, til þess að mótmæla lögregluofbeldi og kynþáttafordómum.

Notkun táragass sætir gagnrýni
Ekki síður í ljósi þess að táragas er flokkað sem efnavopn sem bannað er að nota í stríði.

Kallar þúsundir hermanna heim frá Þýskalandi
Forseti Bandaríkjanna hefur fyrirskipað hernaðaryfirvöldum í Pentagon að kalla heim þúsundir bandarískra hermanna sem staðsettir hafa verið í herstöðvum í Þýskalandi.

Búast við fjölmennum mótmælum í Washington
Yfirvöld í Washington-borg búa sig undir fjölmenn mótmæli þar í dag á sama tíma og ákveðið hefur verið að afvopna þjóðvarðliða og senda hermenn heim frá borginni. Samstöðumótmæli vegna dauða óvopnaðs blökkumanns í haldi lögreglu fóru fram í Ástralíu og Asíu í dag.

Goodell viðurkennir að NFL hafi gert mistök
Einn óvinsælasti maður bandarískra íþrótta, Roger Goodell, framkvæmdastjóri NFL, hefur viðurkennt að deildin hafi gert mistök í meðhöndlun sinni á mótmælum leikmanna deildarinnar gegn kynþáttahatri og lögregluofbeldi síðustu ár.

Rekinn frá LA Galaxy vegna kynþáttafordóma eiginkonu sinnar
Serbneski knattspyrnumaðurinn Aleksandar Katai hefur verið leystur frá störfum hjá bandaríska úrvalsdeildarliðinu Los Angeles Galaxy vegna ógeðfelldrar hegðunar eiginkonu sinnar á samfélagsmiðlum.

Öll sérsveitin hætti til að styðja félaga sem var refsað fyrir ofbeldi
Á sjötta tug sérsveitarmanna lögreglunnar í Buffalo í Bandaríkjunum hætti í henni til að sýna samstöðu með tveimur félögum sínum sem voru settir í leyfi eftir að myndband birtist af þeim hrinda manni á áttræðisaldri í götuna. Maðurinn er sagður alvarlega slasaður en hann tók þátt í mótmælum gegn lögregluofbeldi.

Biden tryggði sér formlega sigur í forvali demókrata
Endanleg úrslit í forvali sem fór fram í sjö ríkjum Bandaríkjanna og Washington-borg á þriðjudag þýða að Joe Biden, fyrrverandi varaforseti, hefur nú tryggt sér nægilegan fjölda kjörmanna til þess að hljóta útnefningu Demókrataflokksins sem forsetaframbjóðandi hans í haust. Bernie Sanders, helsti keppinautur Biden, lýsti sig sigraðan í apríl.

Sleginn yfir því að tapa dýragarðinum í hendur erkióvinarins
Joseph Maldonado-Passge, betur þekktur sem Joe Exotic, er í hæsta máta óánægður með að Carole Baskin, erkióvinur hans og forstjóri dýraverndunarsamtakanna Big Cat Rescue, hafi fengið yfirráð yfir dýragarði sem eitt sinn var í eigu Exotic.

Tilkynnti minnkandi atvinnuleysi og sagði það „frábæran dag fyrir George Floyd“
Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt blaðamannafund í dag þar sem hann fór yfir atvinnuleysi í landinu, sem hefur minnkað undanfarið eftir mikla aukningu í kórónuveirufaraldrinum.

Borgarstjóri Washington nefndi torg til heiðurs Black Lives Matter
Muriel Bowser borgarstjóri Washington D.C. hefur breytt nafni torgs fyrir utan Hvíta húsið í Black Lives Matter torgið.