Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Stöðnun? Tölum um stað­reyndir

Að undanförnu hafa ákveðnir frambjóðendur haldið því fram að Reykjanesbær hafi setið eftir og að hér ríki stöðnun. Sú mynd stenst hins vegar illa þegar horft er til þróunar síðustu ára.

Skoðun
Fréttamynd

Hver má búa í Garða­bæ?

Við þekkjum þetta mörg, uppaldir Garðbæingar, að hafa flutt úr bænum okkar til að hefja fullorðinslífið. Hluti ástæðunnar snýr að því að það getur verið spennandi og hentugt að búa á nýjum stað, en hluti af því er líka að framboð af húsnæði til kaups eða leigu í Garðabæ er varla til staðar fyrir fólk sem er að taka sín fyrstu skref utan foreldrahúsa.

Skoðun
Fréttamynd

HK á skilið meiri metnað

Nú fer að styttast í að gengið verði til samninga við verktaka um byggingu stúku við nýjan knattspyrnuvöll við Kórinn, stúku sem því miður verður of lítil frá fyrsta degi.

Skoðun
Fréttamynd

Frum­byggjar og frum­kvöðlar í jarð­hita Hvera­gerði

Eins og margir aðrir Hvergerðingar þá erum við uppalin í og við gróðurhúsin í Hveragerði og eigum þaðan margar kærar minningar. Hér markaðist æskan af návígi við kraftinn í hverunum og jarðskjálftana með ylinn undir fótum okkar og í hjörtum okkar.

Skoðun
Fréttamynd

Íþróttabærinn Kópa­vogur

Það er öllum ljóst að í Kópavogi er í boði eitt það öflugasta íþróttastarf sem býðst á landinu. Úrvalið er mikið og iðkendafjöldi félaga í Kópavogi er hlutfallslega sá hæsti á landinu.

Skoðun
Fréttamynd

Rekstrarafgangur á kostnað í­búa - er það árangur?

Það er áhugavert að fylgjast með fulltrúum meirihlutans hampa sér vegna afkomu Sveitarfélagsins Árborgar. Reksturinn hefur batnað og samkvæmt meirihlutanum liggur lykillinn þar í ábyrgri fjármálastjórn, hagræðingu og auknum tekjum. Líkt og fyrir fjórum árum er því lofað að þessi ábyrga fjármálastjórn muni skila sér til íbúa í formi lægri skatta.

Skoðun
Fréttamynd

Hafnar­fjörður í gíslingu þéttingarstefnu Reykja­víkur

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa vaxið mikið undanfarin ár og þar er Hafnarfjörður engin undantekning. Íbúðum hefur fjölgað og hér rísa ný hverfi með blandaðri byggð. Það hljómar allt vel en segir ekki alla söguna. Eins og staðan er nú hefur Hafnarfjörður í raun lítið annað val en að byggja upp á forsendum þéttingarstefnu þvert á vilja íbúa skv. búsetukönnunum HMS, þrátt fyrir að bærinn hafi nægt byggingarland sem hægt væri að nýta til skynsamlegs vaxtar, meira svigrúms, aukinna lífsgæða fyrir íbúa, og atvinnulíf.

Skoðun
Fréttamynd

Um­ferðar­mál í Urriðaholti – Flótti frá vandanum

Með fjölgun íbúa í Urriðaholti og uppbyggingu þjónustu í Kauptúni hefur álag á inn- og útkeyrsluleiðina í hverfið aukist gríðarlega og annar enganveginn umferðinni. Unnið er að opnun út á Flóttamannaveg sem mun vonandi eitthvað létta á álaginu á núverandi innkeyrslu inní hverfið. Ég óttast því miður að það verði óverulegt og þessi tenging verði fyrst og fremst flóttaleið og gagnsemin felist í að hafa fleiri en eina leið í hverfinu ef meginleiðin lokast.

Skoðun
Fréttamynd

Hildur Björns­dóttir og bíla­stæðin í borginni

Ég var að ræða við sjálfstæðismann um daginn um fækkun bílastæða í borginni. Hann sagði mér frá kosningaloforðum þeirra um að fjölga aftur stæðum og benti mér á grein um þetta efni í Morgunblaðinu, eftir oddvita þeirra, Hildi Björnsdóttur.

Skoðun
Fréttamynd

Öflugt at­vinnu­líf á Akur­eyri

Þegar við kjósum nú á vordögum fólk til að sitja í bæjarstjórn næsta kjörtímabil hlýtur hugurinn að beinast að því hvað flokkar og framboð ætla sér í frekari uppbyggingu atvinnuvega þessa samfélags okkar.

Skoðun
Fréttamynd

Í­þróttir, lýðheilsa og for­varnir

Íþróttahreyfingin hefur í áratugi verið einn mikilvægasti lykillinn að forvörnum á Íslandi og gegnt lykilhlutverki við að styðja foreldra í uppeldi og þroska ungmenna. Því er áhyggjuefni að sjá hvernig hluti íþróttastarfs á landinu hefur á síðustu misserum og árum færst nær afþreyingariðnaði og frá því sem dr. Þórólfur Þórlindsson, prófessor emeritus í félagsfræði, barðist fyrir um árabil, þ.e. heilsusamlegu lífi ungs fólks án vímugjafa.

Skoðun
Fréttamynd

Tryggjum að Hvera­gerði verði á­fram bær fyrir alla

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hafa ASÍ og BSRB beint kastljósinu að einu stærsta réttlætismáli samtímans, húsnæðismálum. Á nýlegum fundi samtakanna var sérstaklega fjallað um almenna íbúðakerfið og ábyrgð sveitarfélaga í uppbyggingu húsnæðis. Spurningin sem brennur á mörgum er einföld – en þung: Hvar á unga fólkið og venjulegt launafólk að búa?

Skoðun
Fréttamynd

Álftnesingar mæta af­gangi

Það er eitthvað undarlegt við framkvæmdir á Álftanesi. Stundum virkar eins og verið sé að leika í stað þess að framkvæma. Verktakar mæta með tæki, grafa djúpa holu og skilja svo svæðið eftir mannlaust mánuðum saman á meðan þeir halda áfram í verkefni annars staðar í bænum með tilheyrandi raski fyrir íbúa og neikvæðum áhrifum á skólastarf.

Skoðun
Fréttamynd

Það kemur ekki til greina að rífa upp samgöngusáttmálann

Umræðan fyrir komandi kosningar hefur færst frá bílastæðum yfir í að endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni. Þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður árið 2019 markaði það tímamót í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sameinuðust öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, leidd af ýmsum flokkum, um forgangsröðun framkvæmda enda höfuðborgarsvæðið eitt atvinnu- og búsetusvæði.

Skoðun
Fréttamynd

Stórasta Ár­borg í heimi?

Árborg er það sveitarfélag sem hefur vaxið hvað hraðast á undanförnum árum og íbúum fjölgað langt umfram áætlanir. Sú þróun sýnir að Árborg er eftirsóttur staður til búsetu, enda hvergi betra að vera. En örum vexti fylgja líka vaxtaverkir.

Skoðun
Fréttamynd

Pólitísk for­gangs­röðun í þágu allra Kópa­vogs­búa

Núna eru um þrjár vikur til sveitarstjórnarkosninga. Núverandi meirihluti undir forystu Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur verið mjög áberandi í fjölmiðlum upp á síðkastið þar sem fulltrúar hans tala um hversu frábær þjónustan í bænum sé og hvernig samráð við íbúa hafi ráðið ríkjum á yfirstandandi kjörtímabili. 

Skoðun
Fréttamynd

Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim

Það er eitthvað alvarlegt að þegar foreldrar þurfa að óttast kerfið sem á að hjálpa börnunum þeirra. Félagslega kerfið og heilbrigðiskerfið eru að bregðast börnunum okkar. Það er eitthvað mikið að í samfélagi sem veitir ekki eigin börnum lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Skoðun
Fréttamynd

Ég er líka að taka fullan þátt í sam­fé­laginu!

Ég er orðin þreytt. Ekki á því að vera heimavinnandi með dóttur mína, leika við hana, setja í vélina, taka til, elda og fleira, heldur vegna þessara endalausu útúrsnúninga. Það eru margar konur búnar að stíga fram með skrifum sínum og segjast tala fyrir hagsmunum kvenna – fyrir framtíðinni – á meðan þær tala niður uppeldi, barneignir og konur.

Skoðun
Fréttamynd

Að byggja bæ – eða sam­fé­lag?

Garðabær er einn þeirra staða á landinu þar sem vöxtur er gríðalegur. Það er jákvætt og segir sína sögu um að bærinn er eftirsóknarverður. En hraður vöxtur kallar líka á skýrar ákvarðanir.

Skoðun
Fréttamynd

Fjár­magn í þágu fjöl­skyldna

Slagorð Flokks fólksins er einfalt en skýrt: FÓLKIÐ FYRST SVO ALLT HITT. Við viljum að öllum líði vel í borginni okkar, að allir geti fundið til öryggis og þurfi ekki að kvíða morgundeginum.

Skoðun
Fréttamynd

Allir eru jafnir en enginn fær að blómstra

Einu sinni var stór garður þar sem rækta átti sterk og heilbrigð tré. Í garðinum voru margar tegundir: lítil birkitré, hraðvaxandi víðir og hægvaxin en sterk eik. Garðyrkjumaðurinn hafði eitt markmið: „Öll þessi tré eiga að vaxa jafnt og vera hamingjusöm“ sagði hann.

Skoðun
Fréttamynd

8. sætið

„Ég hefði nú viljað sjá þig ofar á listanum“ er setning sem ég hef heyrt seinustu daga og er nú líklega gott dæmi um að hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það. Fyrir utan hvað listinn okkar er stútfullur af harðduglegu og hæfileikaríku fólki, þá er sko engin tilviljun að ég vermi áttunda sætið. Nei, nei, þetta er allt saman vel úthugsað.

Skoðun
Fréttamynd

Í­þrótta­mann­virki til sölu fyrir at­kvæði

Kosningar eru skemmtilegasti parturinn af stjórnmálum. Þá lifnar líf og skoðanaskipti eiga sér stað um samfélagið allt. En kosningar draga líka fram það versta í stjórnmálamönnum: örvæntingafull loforð eru gefin og ráðist er í vanhugsaðar framkvæmdir í þágu þess að tryggja atkvæðin sem réttlæta tilveru stjórnmálamannsins. Það segir sig sjálft að slíkt er ekki skynsamlegt til langs tíma og ekki til þess fallið að tryggja að vel sé farið með okkar sameiginlegu sjóði.

Skoðun
Fréttamynd

Börnin fyrst – fjár­mögnun til fram­tíðar

Það er einföld staðreynd að samfélag er aldrei sterkara en sú vernd sem það veitir börnum sínum. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Í Hafnarfirði stöndum við frammi fyrir vaxandi verkefni, sífellt fleiri börn og ungmenni glíma við fjölþættan vanda og þurfa stuðning fyrr en áður. Þetta eru ekki tölur í skýrslum né nafnlaus mál í kerfum. Þetta eru börn sem búa hér í Hafnarfirði, ganga í leik-, grunn- og framhaldsskóla og eru framtíð samfélagsins okkar. Þau þurfa viðbrögð núna, ekki þegar vandinn er orðinn dýrari og erfiðari viðureignar fyrir barnið, fjölskylduna og samfélagið allt. Þess vegna skiptir tíminn öllu máli.

Skoðun
Fréttamynd

Kaupleiga er bjarg­ráð – ekki brask

Það er þyngra en tárum taki að heyra af ráðherra og aðstoðarmanni hans tala um frekju Grindvíkinga. Grindvíkingar hafa skapað tugi milljarða í tekjur fyrir þjóðarbúið í gegnum tíðina Grindvíkingar eru ekki að biðja um ölmusu, við erum ekki að betla neitt af ríkinu. Við viljum geta keypt húsin okkar aftur á sanngjörnu markaðsverði, þegar markaðsverð liggur fyrir.

Skoðun
Fréttamynd

„Snákaolía“ Mið­flokksins

Dómsmálaráðherra Viðreisnar, Þorbjörg Sigríður, sá sig knúna til að skrifa facebook færslu sérstaklega um tillögu okkar í Miðflokknum í Kópavogi, um að hækka heimgreiðslur og gera þær að raunverulegum kosti fyrir fjölskyldur. Hún uppnefnir tillöguna ,,snákaolíusölu“. Þar dró hún athyglina í burtu frá hinu raunverulega vandamáli sem er það tómarúm sem myndast á milli fæðingarorlofs og leikskólavistunar barna.

Skoðun