Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. maí 2026 06:51 Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Vísir/Vilhelm Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna gagnrýnir fyrirhuguð áform Icelandair um að kaupa nær helmingshlut í maltneska félaginu Fly Play Europe. Hann segir áform flugfélagsins vera að færa hluta starfsemi flugfélagsins út fyrir íslenska kjarasamninga. „
Stöldrum aðeins við. Af hverju hefur stærsta flugfélag landsins áhuga á að kaupa félag á Möltu sem hvorki á né rekur eigin flugvélar og hefur ekki neina sjálfstæða starfsemi til að tala um?“ spyr Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, í skoðanagrein á Vísi. FÍA og Icelandair takast nú á um kjarasamninga í húsnæði ríkissáttasemjara og er óhætt að segja að nokkur hiti sé á milli aðila. Icelandair þurfti í tvígang á einni viku að aflýsa flugferðum sem ekki tókst að manna og seinkun varð á þeirri þriðju vegna mönnunarvanda. FÍA hefur hafnað að um ólögmætar verkfallsaðgerðir sé að ræða en Bogi sagði í yfirlýsingu á mánudag ýmislegt benda til hins gagnstæða. Þann 1. apríl skrifaði Icelandair undir viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49 prósenta hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Félagið var dótturfélag Play sem fór í þrot á síðasta ári og er í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða. Hann vísar í orð stjórnenda Icelandair sem segja kaupin geta aukið sveigjanleika, samkeppnishæfi, skapað hagræðingu og opnað aðgang að hagstæðara rekstrarumhverfi. Jón Þór gefur hins vegar lítið fyrir þær útskýringar. „Þetta kann að hljóma ágætlega og eðlilega en þegar málið er skoðað nánar eru sterkar vísbendingar um að meginástæða verkefnisins sé að færa hluta starfsemi Icelandair út fyrir íslenskt vinnumarkaðsumhverfi og íslenska kjarasamninga.“ Færi störf frá Íslandi „Malta hefur árum saman verið vinsæll áfangastaður fyrir evrópsk flugfélög sem vilja nýta meiri sveigjanleika í ráðningum, lægri launakostnað, veikara samningsumhverfi stéttarfélaga þar í landi og slæm kjör launafólks,“ segir Jón Þór. Umræddur sveigjanleiki sé ekki að ráða starfsfólk á Möltu á lægri kjörum en tíðkast á Íslandi heldur að flytja störf, skatta og skatttekjur úr landi. Það kallist félagslegt undirboð, eitthvað sem þó nokkur lággjaldaflugfélög stundi á svæðinu. „Það gefur þessum vísbendingum byr undir báða vængi að FÍA hefur óskað eftir skýrum svörum frá stjórnendum Icelandair um hvort starfsmenn félagsins hér á landi geti fengið forgang að störfum innan nýrrar starfsemi á Möltu en við því hafa stjórnendur ekki viljað verða. Því er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að verkefnið snúist að verulegu leyti um að lækka launakostnað með því að færa störf úr íslensku rekstrarumhverfi,“ segir hann. Vert er að taka fram að daginn sem Icelandair undirritaði viljayfirlýsinguna sagði Bogi Nils, forstjóri Icelandair, að ekki standi til að fækka starfsfólki hér á landi fari kaupin í gegn. Þjónustuver Icelandair hafi verið bæði á Íslandi og erlendis en engin breyting sé fyrirhuguð varðandi það. Ekki bjartsýnn miðað við sambærileg verkefni Jón Þór telur hugmynd Icelandair vera að færa hluta Boeing-757 flotans til Möltu en fyrir nokkrum dögum sagði Bogi að flugfélagið skoði alvarlega að hætta rekstri slíkra véla í lok sumars. Með því að flytja starfsemina fylgi einnig mikill kostnaður til lengri tíma áður en hagræðingin myndi skila sér. „Saga Icelandair af sambærilegum erlendum verkefnum gefur heldur ekki sérstakt tilefni til bjartsýni. Má þar nefna fjárfestingar Icelandair í Smartlynx (LatCharter) í Lettlandi (4,2 milljarða tap), Travel-Service í Tékklandi (900 m.kr.tap) og Grænhöfðaeyjaævintýrið Cabo Verde Airlines (700-1.000 m.kr.tap). Því er mikil óvissa um hvort þetta skref myndi skila sér í aukinni rekstrarhagkvæmni fyrir félagið á næstunni.“ Ekkert einkamál Jón Þór segir fyrirhuguð kaup ekki einkamál fyrirtækisins þar sem um sé að ræða einn stærsta vinnustað landsins sem skili gríðarlegum tekjum í ríkissjóð. Félagið sé einnig í stórum hluta í eigu almennings og íslenskra lífeyrissjóða, sem eigi að standa vörð um fjármuni almennings, ávaxta þá og greiða út. „Geta lífeyrissjóðirnir sætt sig við og samþykkt í formi aðgerðarleysis að félag í þeirra eigu og einn stærsti innlendi vinnuveitandinn færi hluta starfsemi sinnar, og þar með tekjur starfsfólks, útsvar og aðrar greiðslur, úr landi? Er það í samræmi við þá samfélagslegu ábyrgð sem íslensk fyrirtæki vilja standa fyrir?“ spyr hann. „Icelandair naut gríðarlegs stuðnings frá íslensku samfélagi í gegnum heimsfaraldurinn. Ríkið veitti félaginu ríkisábyrgðir og almenningur studdi við bakið á því á erfiðum tíma, það gerðu flugmenn ásamt öðru starfsfólki líka. Það er því eðlilegt að spurt sé hvort stærsta flugfélag þjóðarinnar telji sig ekki bera einhverja ábyrgð gagnvart því samfélagi sem stóð með því. Heiðarlegra væri að ræða íslenskt rekstrarumhverfi opinskátt við stjórnvöld og vinnumarkaðinn í stað þess að leita leiða til að færa störf og skatttekjur úr landi undir yfirskini „sveigjanleika“.“
Icelandair Flug Vinnumarkaður Kjaramál Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira