Krabbamein
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Bætum lífsgæði þeirra sem lifa með krabbameini Það fer kannski ekki mikið fyrir Bleiku slaufunni þegar við nælum hana í okkur í byrjun október, en merkingu hennar þekkja flestir, ef ekki allir. Hún táknar samstöðu okkar með konum sem greinst hafa með krabbamein, minnir okkur á allt sem unnist hefur og hvetur okkur til að gera enn betur. Hún er í senn umhyggja, framfarir og von. Skoðun 18.10.2025 07:02
Segja eins og áður aðeins samið til skamms tíma og leiðrétta ráðherra Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, segir það ekki rétt sem kom fram í máli Ölmu Möller heilbrigðisráðherra í umræðum um Ljósið að það hafi verið undirritaður nýr samningur um fjárveitingar til Ljóssins. Sjúkratryggingar og Ljósið hafi aðeins komist að samkomulagi um fjármagn þessa árs og samningurinn sé til skamms tíma eins og áður. Innlent 16.10.2025 14:06
Fórnaði frægasta hári handboltans Fyrrverandi handboltastjarnan Mikkel Hansen þekkir margt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Pabbi hans er þar á meðal. Hansen hefur nú rakað af sér líklega þekktasta hár handboltasögunnar, til að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini. Handbolti 16.10.2025 13:32
„Var alltaf Mist með krabbamein alls staðar annars staðar“ Fótboltakonan Mist Edvardsdóttir var smám saman að festa sig í sessi í íslenska landsliðinu þegar henni var kippt hratt niður á jörðina. Hún var 23 ára þegar hún greindist með Hodgkins eitlakrabbamein en segir fótboltann hafa hjálpað sér mikið og meinið ef til vill stuðlað að því að hún fann ástina og eignaðist tvo stráka. Íslenski boltinn 16.10.2025 08:00
Tryggja þarf öfluga endurhæfingu fyrir einstaklinga með krabbamein Um þriðjungur Íslendinga greinist með krabbamein á lífsleiðinni. Á árunum 2018-2022 greindust að meðaltali rúmlega 1800 einstaklingar með krabbamein á ári hér á landi og gera spár ráð fyrir áframhaldandi fjölgun krabbameinsgreindra á næstu árum. Skoðun 15.10.2025 21:30
Stöndum með Ljósinu! Ljósið er ekki góðgerðarsamtök og alls ekki bara „samtök úti í bæ“. Ljósið er eina sérhæfða endurhæfingarmiðstöðin fyrir krabbameinsgreinda á Íslandi, með leyfi frá Embætti landlæknis, rekin af þverfaglegum hópi starfsfólks – sjúkraþjálfurum, sálfræðingum, iðjuþjálfum, næringarfræðingum og hjúkrunarfræðingum. Skoðun 15.10.2025 19:32
Segir óvirðingu að kalla Ljósið „samtök úti í bæ“ Fyrrverandi heilbrigðisráðherra og formaður Vinstri grænna segir ummæli forsætisráðherra um að Ljósið séu samtök úti í bæ óvirðingu. Hún segist sammála ráðherra um að framlög til samtakanna ættu að ráðast í gegnum langtímasamninga frekar en í fjárlögum en hefur áhyggjur af lækkun framlaga til þjónustu sem sé krabbameinsgreindum nauðsynleg. Innlent 15.10.2025 18:33
Biðtíminn sé dauðans alvara sem auki álag ofan í áfallið Formaður Krabbameinsfélagsins segir íslenska heilbrigðiskerfið illa undirbúið til að veita viðunandi þjónustu við konur sem greinast með brjóstakrabbamein. Biðtími eftir geislameðferð sé óboðlegur og þrátt fyrir fögur fyrirheit um úrbætur í framtíðinni þá nýtist það ekki þeim sem nú bíða í von og óvon eftir að komast í meðferð. Innlent 15.10.2025 14:52
Stíflaður mjólkurkirtill reyndist ólæknandi krabbamein Hönnuðurinn Thelma Björk Jónsdóttir er konan á bak við Bleiku slaufuna í ár. Hún sótti um að hanna slaufuna og var valin úr hópi 120 umsækjenda. Lífið 15.10.2025 13:00
Skora á stjórnvöld að beita sér fyrir styttri bið eftir geislameðferð Biðtími eftir geislameðferð við brjóstakrabbameini er mun lengri hér á landi en mælt er með í Evrópu. Það er dauðans alvara að mati þriggja hagsmunafélaga sem skora á stjórnvöld að skilgreina hámarksbiðtíma. Kona sem hefur greinst tvisvar segir mikið aukaálag að bíða vikum saman eftir slíkri meðferð. Innlent 14.10.2025 20:01
Vill heldur sjá langtímasamninga um framlög fyrir „samtök úti í bæ” Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það vera undir fjárlaganefnd komið að ákvarða hvort framlögum til Ljóssins verði breytt í fyrirliggjandi fjárlögum og beinir því til heilbrigðisráðherra að svara hvernig samningar standa við félagið. Hennar persónulega skoðun á því „hvort ákveðin samtök úti í bæ“ þurfi meira fjármagn frá ríkinu ráði litlu þar um. Innlent 14.10.2025 16:20
Lukkudagar lífsins „Ef ég fengi að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld, þá myndi ég fara út í göngutúr með regnhlíf og teyga að mér birkiilminn og gróðurinn.“ Skoðun 11.10.2025 10:02
Nikótín, konur og krabbamein – gamlar hættur í nýjum búningi Lungnakrabbamein er sú tegund krabbameins sem dregur flesta til dauða á heimsvísu, bæði konur og karla. Flest tilfelli má rekja til reykinga, en í nýjustu rannsóknum hefur sjónum verið beint að öðrum aðferðum til nikótínneyslu, sérstaklega rafsígarettum (vape) og nikótínpúðum. Skoðun 9.10.2025 17:32
„Öðruvísi að vera þarna megin við borðið“ í baráttu við krabbann Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ segir eiginkonu sína hafa reynst algjör klettur í óvæntri og erfiðri baráttu við krabbamein. Eftir erfið veikindi er hann snúinn aftur til starfa, syndir með Húnunum og spilar á fiðlu. Lífið 9.10.2025 14:31
Sýndu þér umhyggju – Komdu í skimun Konum sem mæta í skimun fyrir brjóstakrabbameini hefur fjölgað verulega síðustu ár. Þá hefur einnig náðst góður árangur í að fjölga þeim sem koma í leghálsskimun. Skimun er gríðarlega mikilvæg, enda markmið hennar að minnka sjúkdómsbyrði og lækka dánartíðni af völdum krabbameina. Skoðun 8.10.2025 13:30
Krabbamein á vinnustöðum: „Ekki segja; þú veist að ég er til staðar“ Fyrir fullu húsi hélt Viktoría Jensdóttir, VP Global Product Service hjá Emblu Medical og formaður Krafts, erindi í Eldborg á Mannauðsdeginum 2025 sem haldinn var í síðustu viku. Atvinnulíf 8.10.2025 07:01
„Gætum orðið fyrsta þjóð í heimi til að útrýma leghálskrabbameini“ Kvenorkan var við völd þegar glæsilegur hópur kvenna fjölmenntu í sérstöku Leggönguboði á Hafnartorgi á dögunum. Það var góðgerðarfélagið Lífskraftur og 66°Norður sem sameinuðu krafta sína og stóðu fyrir viðburðinum í tilefni nýs átaks sem miðar að því að útrýma leghálskrabbameini á Íslandi. Lífið 3.10.2025 13:00
Það er list að lifa með krabbameini Bleika slaufan er fyrir löngu búin að festa sig í sessi hjá þjóðinni sem einn af föstu liðum haustsins. Í október nælir stór hluti þjóðarinnar Bleika slaufu í barminn, sem sýnilegan stuðning við öll þau sem lifa með krabbameini og aðstandendur þeirra. Skoðun 30.9.2025 07:00
Bein útsending: Farið yfir það nýjasta í krabbameinsrannsóknum Krabbameinsfélagið stendur fyrir málþingi í dag þar sem meðal annars verður farið yfir það nýjasta í krabbameinsrannsóknum. Málþingið er árlegt og er haldið í tilefni af alþjóðadegi krabbameinsrannsókna. Innlent 25.9.2025 15:45
Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Krabbameinslæknir segir að full ástæða sé til að fylgja eftir rannsóknum bandarískra krabbameinslækna á tengslum svokallaðra ofurhlaupa líkt og bakgarðshlaupa við ristilkrabbamein. Mikilvægt sé að muna að hreyfing dragi úr áhættu á krabbameini. Innlent 24.9.2025 18:08
Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna – eitthvað sem mig varðar? Sérfræðingar okkar á Rannsóknasetri - Krabbameinsskrá hjá Krabbameinsfélaginu gáfu nýverið út spá um fjölgun krabbameinstilvika og lifenda til ársins 2045. Áskoranirnar framundan eru stórar, spáð er 63% fjölgun nýrra tilvika en góðu fréttirnar eru að spáð er 96% fjölgun lifenda. Skoðun 24.9.2025 13:30
Holskefla í kortunum Krabbameinstilfellum á Íslandi mun fjölga um meira en helming á næstu tveimur áratugum ef spár ganga eftir. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins hefur áhyggjur af því hvort heilbrigðiskerfið muni ráða við þennan fjölda sjúklinga og segir mikilvægt að brugðist sé við. Innlent 23.9.2025 22:02
Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Í nýrri bók sem kemur út í dag segir sænska tennisgoðið Björn Borg frá kókaínfíkn sinni. Fyrir tæpum fjörutíu árum tók hann of stóran skammt og lífga þurfti hann við. Sport 18.9.2025 09:01
Slökkvum ekki Ljósið Í fyrsta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur stendur til að skerða stuðning til mikilvægra sjálfseignarstofnanna um hálfan milljarð króna. Þar er ráðist harðast að Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem greinist með krabbamein, en skera á niður stuðning til Ljóssins um 200 milljónir króna. Kaldar kveðjur inn í bleikan október. Skoðun 16.9.2025 15:32
Þrjár ráðnar til Krafts Eva Sigrún Guðjónsdóttir, Guðný Sara Birgisdóttir og Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir hafa verið ráðnar til Krafts, félags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra. Viðskipti innlent 3.9.2025 08:58
Húðin gleymi engu og ekki hægt að taka til baka skaðann sem er skeður Ljósabekkjanotkun veldur fleiri húðkrabbameinum en sígarettureykingar valda lungnakrabba að sögn Rögnu Hlínar Þorleifsdóttur húðlæknir. Hún vill sjá enn harðari aðgerðir til að sporna gegn vaxandi ljósabekkjanotkun, til dæmis með skattlagningu en helst banni. Innlent 3.9.2025 08:47
Það sé skammtímalausn að lengja opnunartíma og senda fólk erlendis í geislameðferð Félag geislafræðinga segir það mikil vonbrigði að í tillögum spretthóps um að styrkja geislameðferð á Landspítala hafi ekki verið að finna tillögur um hvernig megi bæta kjör og vinnuaðstæður á geislameðferðardeildinni. Bið eftir geislameðferð vegna krabbameins hefur tvöfaldast síðustu vikur og geislafræðingum fækkað verulega á deildinni síðustu ár. Innlent 1.9.2025 09:07
Leggst undir hnífinn vegna brjóstakrabbameins og frestar túrnum Tónlistarkonan Jessie J hefur frestað og fellt niður tónleika á yfirvofandi tónleikaferðalagi sínu um Bretland og Bandaríkin vegna skurðaðgerðar sem hún þarf að gangast undir vegna brjóstakrabbameins. Lífið 29.8.2025 09:00
Bylting framundan en Landspítalinn þurfi að hlaupa hraðar Hægt er að stórefla forvarnir, greiningar og meðferðir sjúkdóma með því að nýta upplýsingar úr stórum gagna- og lífsýnasöfnum. Heilbrigðisráðherra telur að Ísland geti orðið leiðandi á sviðinu og undirbýr þingsályktun. Kona sem fékk vitneskju um erfðasjúkdóm með slíkri aðferð segir að alla eftirfylgni hafi vantað. Innlent 27.8.2025 20:03
„Blessaður, þú ert með heilaæxli“ „Ég er alls ekki að leitast eftir vorkunn heldur langar mig bara að vekja athygli á því að fólk þarf að finna sínar leiðir og ég fann mína,“ segir Atli Þór Sigurðsson sem var að gefa út plötuna Heilakvel. Atli greindist með heilaæxli í fyrra og syngur um reynsluna. Lífið 26.8.2025 07:04