Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar 30. september 2026 07:02 Í október tekur öll þjóðin undir með Krabbameinsfélaginu og veitir krabbameinum hjá konum sérstaka athygli. Það er afar dýrmætt, því við vitum að fólk er upptekið og athygli þess beinist að ótal hlutum. Í ár hvetjum við konur til að beina athyglinni að sjálfum sér, undir yfirskriftinni Sjáðu þig. Á hverju ári fá að meðaltali 1.038 konur krabbamein og standa þá frammi fyrir einni stærstu áskorun lífs síns. Framfarir í krabbameinsmeðferð eru sem betur fer stöðugar og sífellt fleiri læknast eða lifa lengi með sjúkdóminn. Því fyrr sem krabbamein greinast og því lægra sem stig þeirra er, því betri líkur eru á lækningu og léttari meðferð. Í ár viljum við hvetja konur til að sjá sig og vera vakandi fyrir einkennum eins og óútskýrðu þyngdartapi, sárum sem ekki gróa, breytingum á fæðingarblettum, hnútum, óútskýrðri þreytu, óvenjulegum blæðingum og fleiru. Flest einkenni reynast vera af völdum annars en krabbameins, en ef um það er að ræða er mikilvægt að greina meinin fljótt. Könnun Krabbameinsfélagsins frá árinu 2020 sýndi að fimmta hver kona beið í þrjá mánuði eða lengur með að leita til læknis eftir að hafa orðið vör við einkenni sem reyndust vera af völdum krabbameins. Því viljum við breyta. Við hjá Krabbameinsfélaginu erum óendanlega þakklát þeim Tönju Levý og Jökli Jónssyni, hönnuðum slaufunnar í ár. Það er ómetanlegt að þau skyldu treysta okkur fyrir sinni reynslu, sem þau flétta í bókstaflegri merkingu inn í slaufuna. Tanja greindist með brjóstakrabbamein í október í fyrra, einungis 36 ára að aldri, en hún var þá með ársgamalt barn þeirra á brjósti. Tanja lýsir því að vegna Bleiku slaufunnar sem var þá nýfarin af stað, hafi hún verið sérstaklega vakandi fyrir einkennum og sjálf fundið hnútinn í brjóstinu. Slaufan var hönnuð samhliða öllu sem þau gengu í gegnum; greiningu, meðferð og bata. Hún endurspeglar reynslu þeirra beggja og sýnir hvernig lífið verður aldrei eins eftir erfiða lífsreynslu, heldur jafnvel enn dýrmætara. Niðurstaðan er algjörlega einstök, fallegur skartgripur, þrunginn merkingu, allt frá örvæntingu til bjartsýni og bata. Markmið Krabbameinsfélagsins er að færri fái krabbamein, fleiri læknist eða lifi lengi og líði betur, með og eftir krabbamein. Að þessum markmiðum vinnur félagið með margvíslegum hætti í trausti þjóðarinnar, sem með stuðningi við félagið gerir allt starfið mögulegt. Með því að kaupa Bleiku slaufuna gerir þú okkur kleift að vera tryggur bakhjarl fólks með krabbamein og aðstandenda þeirra og leiðandi í forvörnum og þekkingarmiðlun um krabbamein. Hvort sem er í alvarlegum veikindum, bataferli, endurhæfingu, forvörnum eða rannsóknum skiptir samstaða og stuðningur öllu máli. Með því að bera Bleiku slaufuna verður stuðningurinn sýnilegur. Við heyrum aftur og aftur hve miklu það skiptir konur að sjá fólk með Bleiku slaufuna í barminum. Í ár öðlast þessi sýnileiki nýja og mikilvæga dýpt með öllum þeim tilfinningum sem felast í slaufunni en líka sem blíðleg áminning um að vera vakandi fyrir einkennum og að bíða ekki með að leita til læknis ef þeirra verður vart. Sjáðu þig. Höfundur er formaður stjórnar Krabbameinsfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hlíf Steingrímsdóttir Krabbamein Skimun fyrir krabbameini Kvenheilsa Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar