Besti hópur sem ég hef unnið með: „Þær vilja vita öll smáatriði“ Bretinn Tom Goodall er leikgreinandi og hluti af þjálfarateymi íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta. Hann ræddi við Sýn um sitt hlutverk á EM, þar sem hann er að frá morgni og fram á nótt, og hvernig er að vinna með Íslendingunum. Fótbolti 3.7.2025 16:16
„Það er ekki þörf á mér lengur“ Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, styrktarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, er til staðar fyrir þá leikmenn sem vilja leita til hennar en segir mikilvægt að vera ekki yfirþyrmandi. Gunnhildur nýtur sín sem þjálfari í teymi landsliðsins og segir það ekki kitla að sprikla með á æfingum. Fótbolti 3.7.2025 15:32
Fékk rautt spjald fyrir ári síðan og má ekki spila í kvöld Irene Paredes verður í leikbanni þegar Spánn mætir Portúgal á Evrópumóti kvenna í fótbolta í kvöld, vegna rauðs spjalds sem hún fékk fyrir ári síðan. Fótbolti 3.7.2025 14:33
Glódís mætti ekki á æfingu Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir hefur ekki jafnað sig af magakveisunni sem neyddi hana af velli í gær og mætti ekki á æfingu íslenska landsliðsins í morgun. Fótbolti 3. júlí 2025 09:08
Myndasyrpa: Stelpurnar vel studdar í svekkjandi tapi Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fékk góðan stuðning úr stúkunni en þurfti að sætta sig við svekkjandi 1-0 tap í fyrsta leik gegn Finnlandi á Evrópumótinu í Sviss. Anton Brink, ljósmyndari Vísis, var á vellinum og fangaði stemninguna. Fótbolti 3. júlí 2025 08:02
„Ótrúlega gott fyrir hjartað að sjá þau“ „Eins og mamma segir: Við fáum fram að miðnætti til að svekkja okkur. Svo höldum við bara áfram, næsti leikur,“ sagði hin tvítuga Katla Tryggvadóttir í gærkvöld, eftir 1-0 tapið gegn Finnum í fyrsta leik á EM. Vonbrigðin yfir tapinu skyggðu á annars stóra stund fyrir hana í Thun í gær. Fótbolti 3. júlí 2025 07:32
Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Stefán Árni Pálsson fékk systurnar og landsliðsgoðsagnirnar Þóru Björg og Ásthildi Helgadætur til sín í Besta sætið, hlaðvarpi Íþróttadeildar Sýnar, til að fara yfir fyrsta leik íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í Sviss. Fótbolti 3. júlí 2025 07:03
Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Ef ég hefði skrifað upp dæmi um afleita byrjun á Evrópumóti hjá íslenska landsliðinu fyrir mót þá hefði það líklegast geta innihaldið tap gegn Finnum og tilþrifalitla frammistöðu, að besti leikmaður liðsins myndi þurfa að yfirgefa völlinn og svo til þess að toppa eymdina gætum við misst leikmann af velli með rautt spjald. Fótbolti 2. júlí 2025 23:17
Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Virkni íslensku landsliðsstelpnanna á samfélagsmiðlum var til umræðu á samfélagsmiðlum í kvöld eftir tap í fyrsta leik á Evrópumótinu í Sviss. Tvær landsliðsgoðsagnir tjáðu sig um málið í Besta sætinu. Fótbolti 2. júlí 2025 21:12
Dramatík í endurkomusigri Norðmanna í hinum leik íslenska riðilsins Noregur er á toppi íslenska riðilsins eftir 2-1 endurkomusigur á Sviss í hinum leiknum á Evrópumótinu í fótbolta í Sviss í kvöld. Fótbolti 2. júlí 2025 20:58
Sveindís: Hefði kannski átt að gera meira til að koma mér inn í leikinn Það var auðvitað fúlt fyrir leikmenn íslenska landsliðsins að tapa fyrsta leiknum á EM í Sviss. Sveindís Jane sat lengi vel og íhugaði hvað hafði getað farið betur. Hún fékk úr litlu að moða á löngum köflum og náði ekki að nýta besta færi leiksins í 0-1 tapi gegn Finnum. Fótbolti 2. júlí 2025 19:13
„Heilt yfir var ég bara sáttur“ Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson er ósammála flestum og fannst Ísland gera margt gott í tapinu gegn Finnlandi. Hann segir hundfúlt að hafa tapað en mótið ekki búið og nú þurfi bara að spýta í lófana. Fótbolti 2. júlí 2025 19:06
„Ég var bara með niðurgang“ Fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins var í vandræðum með magann sinn í fyrsta leik Íslands á EM og þurfti að fara af velli í hálfleik. Fótbolti 2. júlí 2025 18:53
Ingibjörg: Gríðarlega svekkjandi Ingibjörg Sigurðardóttir var að vonum svekkt með niðurstöðuna þegar íslenska landsliðið tapaði gegn Finnum 0-1 í fyrsta leik EM2025 í Sviss. Liðið náði ekki miklum takti í sinn leik og varð fyrir miklum skakkaföllum í seinni hálfleik sem gerðu verkefnið erfiðara en Ingibjörg gat verið stolt af stelpunum. Fótbolti 2. júlí 2025 18:45
„Mér fannst við alveg halda þeim í skefjum“ Cecilía Rán Rúnarsdóttir segir íslenska landsliðið hafa brugðist vel við og sýnt karakter eftir áföll í leiknum gegn Finnlandi. Henni fannst Ísland halda markaskorara Finnlands vel í skefjum, fyrir utan eitt skiptið þegar hún skoraði. Fótbolti 2. júlí 2025 18:45
Einkunnir íslensku stelpnanna: Cecilía best en liðið betra manni færri Íslenska kvennalandsliðið byrjaði Evrópumótið í Sviss á naumu 1-0 tapi á móti Finnlandi þar sem íslenska liðið var manni færri í meira en hálftíma. Finnarnir fengu færi framan af leik en skoruðu ekki sigurmarkið sitt fyrr en þær voru orðnar manni færri. Fótbolti 2. júlí 2025 18:24
Twitter yfir leiknum gegn Finnlandi: Vonbrigði í Thun Stuðningsmenn íslenska landsliðsins, sem hóf leik á EM2025 í Sviss í dag, létu skoðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlinum X sem áður var þekktur sem Twitter. Fótbolti 2. júlí 2025 18:11
Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Íslensku stelpurnar eru þessa stundina að mæta Finnum í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í Sviss. Þetta hefur verið viðburðaríkur fyrri hálfleikur hjá fyrirliðanum Glódísi Perlu Viggósdóttur. Fótbolti 2. júlí 2025 16:32
Frábærar myndir af glöðum Íslendingum á EM Mikill fjöldi Íslendinga naut sín í sólinni á stuðningsmannasvæðinu í Thun í Sviss í dag, fyrir fyrsta leik Íslands á EM kvenna í fótbolta. Ljósmyndarinn Anton Brink fangaði stemninguna með frábærum myndum. Fótbolti 2. júlí 2025 15:37
„Við erum betra liðið“ Sérfræðingar Vísis voru sammála um að Ísland sé sigurstranglegra en Finnland fyrir fyrsta leik á EM í Sviss. Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir sló um sig varnagla og sagði finnska liðið ekki eins slakt og margir halda, en systur Ásthildur og Þóra Björg Helgadætur segja ekkert annað en sigur koma til greina. Fótbolti 2. júlí 2025 15:07
Fyrsta byrjunarlið Íslands á EM Nú er ljóst hvaða ellefu leikmenn fá það verkefni að hefja fyrsta leik Íslands á EM kvenna í fótbolta, á Stockhorn Arena í Thun þar sem flautað verður til leiks gegn Finnum klukkan 16. Fótbolti 2. júlí 2025 14:47
Uppgjörið: Ísland - Finnland 0-1 | Finnar þorðu og stelpurnar okkar horfðu upp á tap Ísland mátti þola 1-0 tap gegn Finnlandi í fyrsta leik á Evrópumótinu í Sviss. Stelpurnar okkar þurftu að spila seinni hálfleikinn án fyrirliðans og síðasta hálftímann manni færri. Katariina Kosola skoraði eina mark leiksins eftir að hafa ógnað ítrekað. Finnland var frá upphafi betri aðilinn og þorði að spila boltanum milli manna, annað en stelpurnar okkar sem leituðu yfirleitt alltaf hátt og langt. Fótbolti 2. júlí 2025 14:31
Mamman hefur trú á Sveindísi: „Hún er að fara láta þeim líða hræðilega“ „Ég er smá stressuð og það er kannski bara eðlilegt,“ segir Eunice Quason, móðir knattspyrnu- og landsliðskonunnar Sveindísar Jane Jónsdóttur. Fótbolti 2. júlí 2025 13:40
Feðgarnir spenntir fyrir leiknum: „Þá þarf ég að fljúga aftur til Sviss“ „Ég er stressaður,“ segir Brynjar Ómarsson, sonur Dagnýjar Brynjarsdóttir, leikmann íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Kvennalið okkar mætir Finnum í fyrsta leik á EM í Thun klukkan fjögur í dag. Brynjar er viss um að stelpurnar nái að leggja Finna að velli í dag. Fótbolti 2. júlí 2025 13:28