Snjóflóð á Íslandi
1 2 3 ›
Boðið verður upp á fylgdarakstur milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar Ákveðið hefur verið að bjóða upp á fylgdarakstur milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í kvöld. Snjóflóð féll úr Hólmatindi Eskifjarðar megin fyrr í dag. Innlent 30.3.2023 19:11
Ráðast í rýmingar á Stöðvarfirði og á Fáskrúðsfirði Veðurstofan hefur vegna hættuástands vegna ofanflóða ákveðið rýmingu á reitum 4 á Stöðvarfirði og reit 7 Fáskrúðsfirði. Innlent 30.3.2023 13:35
Tvöhundruð manns viðbúin að hefja björgun ef kallið kemur Almannavarnir hafa enn aukið viðbúnað sinn á Austfjörðum vegna mjög slæmrar veðurspár næsta sólarhring og mikillar hættu á snjóflóðum. Hættuástand er áfram í gildi á Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað. Innlent 29.3.2023 22:20
Búist við umtalsverðri úrkomu en telja ekki þörf á frekari rýmingum Gert er ráð fyrir umtalsverðri úrkomu á Austfjörðum í kvöld og fram til föstudagsmorguns. Bæði er spáð snjókomu og rigningu. Töluverður fjöldi húsa á Austurlandi var rýmdur í kjölfar snjóflóða sem féllu á svæðinu í upphafi vikunnar. Veðurstofa telur að ekki sé þörf á frekari rýmingum að svo stöddu. Innlent 29.3.2023 18:03
Frekari rýmingar á Seyðisfirði og áfram enginn skóli í Neskaupstað Veðurstofan hefur ákveðið að rýma skuli að nýju hús á reit 14 á Seyðisfirði í varúðarskyni frá klukkan 21 í kvöld. Von er á mikilli snjókomu. Innlent 29.3.2023 14:10
Rýmingar áfram í gildi og mögulegt að þær verði víðtækari Rýmingar frá í gær í Neskaupstað, á Eskifirði og Seyðisfirði eru enn í gildi og hugsanlegt er að rýma þurfi nýju þau hús sem aflétt var af í gær. Innlent 29.3.2023 12:49
Fjórði garðurinn hefði afstýrt hörmungunum Hættuástand er enn í gildi fyrir austan vegna snjóflóða. Ekki er víst að því verði aflétt á næstunni sökum þess hve veðurspáin fyrir svæðið er slæm. Ljóst er að snjóflóðavarnagarðar áttu stóran þátt í því að ekki fór verr þegar stærstu snjóflóðin féllu í gær. Innlent 28.3.2023 22:27
Rýmingu aflétt að hluta til Ákveðuð hefur að aflétta rýmingu á hluta þeirra húsa sem rýmd voru í Neskaupstað og á Seyðisfirði í gær. Þetta var ákveðið í kjölfar þess sem Veðurstofa Íslans mat aðstæður á Austfjörðum með tilliti til snjóflóðahættu í dag. Innlent 28.3.2023 18:04
Gul viðvörun á Austfjörðum á fimmtudaginn Gul viðvörun tekur á ný gildi á Austfjörðum á fimmtudaginn vegna snjókomu. Verður hún í gildi í heilan sólarhring. Innlent 28.3.2023 16:40
Rútur í veseni á Fjarðarheiði bætast við álag á Seyðfirðinga Norræna kom til hafnar á Seyðisfirði fyrr í dag þrátt fyrir að búið sé að rýma fjölda húsa í bænum. Úr skipinu kom fjöldi fólksbíla og rúta sem sumar hverjar lentu í vandræðum á Fjarðarheiði. Innlent 28.3.2023 12:18
Níu gistu í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Egilsbúð í Neskaupstað í nótt. Ákveðið var að rýma mikinn fjölda húsa í bænum vegna snjóflóðanna sem féllu í bænum í gærmorgun. Innlent 28.3.2023 10:11
Ekkert frést af frekari snjóflóðum Ekkert hefur frést af frekari snjóflóðum á Austfjörðum í nótt og hefur veðrið verið með rólegasta móti. Innlent 28.3.2023 07:33
„Hún vaknaði upp við það að glugginn og flóðið kemur yfir hana“ Þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í morgun og þá hafa snjóflóð fallið í Mjóafirði og á Reyðarfirði utan byggðar. Íbúi í Neskaupstað segir atburðina erfiða fyrir marga og áminning um mannskæð snjóflóð í bænum fyrir hálfri öld. Innlent 27.3.2023 23:46
„Fólkinu líður eðlilega illa, þetta er mikið áfall“ Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í morgun í Neskaupstað og síðan þá hafa önnur flóð fallið fyrir austan. Fjölmargir viðbragðsaðilar hafa streymt austur og eru til taks ef fleiri flóð verða. Að sögn lögreglustjórans á Austurlandi líður fólki á svæðinu illa. Innlent 27.3.2023 21:14
Fluttu ólétta konu yfir á Egilsstaði Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið á ellefta tímanum í morgun og fór austur á land vegna snjóflóðanna sem féllu þar í morgun. Í kvöld flutti þyrlan svo ólétta konu frá Neskaupstað og yfir á Egilsstaði. Gert er ráð fyrir því að þyrlan verði fyrir austan í nótt. Innlent 27.3.2023 19:56
Fara af neyðarstigi á hættustig Þegar snjóflóð féllu á Neskaupstað í morgun var neyðarstigi Almannavarna lýst yfir. Nú hefur ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig. Innlent 27.3.2023 19:15
Snjóflóð féll á yfirgefna byggingu á Seyðisfirði Snjóflóð féll á byggingu á Seyðisfirði í dag. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Landsbjargar var um að ræða yfirgefna byggingu. Töluverður fjöldi björgunarsveitarmanna eru nú komnir austur og tilbúnir til aðstoðar. Innlent 27.3.2023 18:45
Mættir austur með tryllitæki Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun. Björgunarsveitarmenn hafa fjölmennt þangað og í önnur bæjarfélög á svæðinu til að hjálpa og vera til taks ef önnur snjóflóð falla. Innlent 27.3.2023 17:49
Brýnt að ljúka ofanflóðavörnum: „Þetta sýnir þörfina svo vel“ Bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir snjóflóðin sem féllu í Neskaupstað í morgun skiljanlega hafa áhrif á íbúa en flestir þekki söguna af mannskæða flóðinu 1974. Mikilvægi þess að ljúka ofanflóðavörnum í bænum hafi bersýnilega komið í ljós í morgun og bæjarstjóri segir þau vinna að málinu með íbúum sem ein heild. Innlent 27.3.2023 12:31
Sjötíu viðbragðsaðilar á leið með flugi austur: „Það er mjög mikil snjóflóðahætta á svæðinu“ Rýming stendur yfir vegna minnst þriggja snjóflóða sem féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og taka þær til 160 húsa. Eitt flóðanna féll á fjölbýlishús í bænum og eru tíu slasaðir, enginn alvarlega. Leitarhundar eru á leið austur með þyrlu Landhelgisgæslunnar auk sjötíu viðbragðsaðila sem fara með flugi á svæðið í dag. Mikil snjóflóðahætta er á svæðinu og neyðarstigi almannavarna lýst yfir. Innlent 27.3.2023 12:21
Fólki mjög brugðið og ýfir upp gömul sár Íbúum í Neskaupstað er mjög brugðið eftir snjóflóðin í morgun, að sögn íbúa í bænum. Fjöldi fólks hefur komið sér fyrir í fjöldahjálparstöð í Egilsbúð. Flóðin ýfa upp gömul sár eftir mannskæð snjóflóð fyrir fjórum áratugum. Innlent 27.3.2023 11:22
Lýsir hvernig hurðin „sprakk“ og snjór ruddist inn Íbúi á annarri hæð húss við Starmýri í Neskaupstað segir snjóflóðið sem féll úr Nesgili í morgun hafa náð inn í íbúðina og fjölskyldumeðlimir orðið fastir inni í herbergi. Fjölskyldumeðlimir hafi meiðst lítillega. Innlent 27.3.2023 11:06
Leitarhundar á leiðinni austur með þyrlu Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni í loftið með þrjá björgunarsveitarmenn og jafnmarga leitarhunda á Hornafjörð til að vera til taks vegna snjóflóðanna og viðvarandi snjóflóðahættu á Austfjörðum. Innlent 27.3.2023 10:36
Vaktin: Snjóflóð féllu í Neskaupstað og unnið að rýmingu Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og féll eitt þeirra á fjölbýlishús við Starmýri í bænum. Unnið er að rýmingu og búið er að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér neðst í fréttinni. Innlent 27.3.2023 10:03
Það sem skal gera við rýmingu Lögreglan á Austurlandi hefur birt tilmæli á Facebook-síðu sinni um hvað skal gera við rýmingu. Unnið er að því að rýma hús bæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Innlent 27.3.2023 09:37
Neyðarstigi Almannavarna lýst yfir vegna flóðanna Neyðarstigi Almannavarna hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðanna sem féllu í Norðfirði í morgun. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi Almannavarna segir að verið sé að reyna að ná yfirsýn yfir ástandið. Innlent 27.3.2023 08:43
Snjóflóð féll á fjölbýlishús í Neskaupstað og verið að rýma fjölda húsa Að minnsta kosti tvö snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og vitað er að annað þeirra féll á fjölbýlishús við Starmýri í bænum. Gluggar hafa brotnað og bílar henst til. Verið er að rýma mikinn fjölda húsa í bænum vegna snjóflóðahættu og hefur neyðarstigi Almannavarna verið lýst yfir. Innlent 27.3.2023 08:13
Snjóflóð féll í Norðfirði og búið að rýma eitt hús Snjóflóð féll í Norðfirði í nótt vestan leiðigarða við Urðarteig í nótt. Flóðið fór yfir Strandgötu og í sjó fram. Verið er að rýma eitt hús. Innlent 27.3.2023 07:27