Barnalán

„Óraunverulegustu fréttir sem við getum fært“
Tónlistarkonan og plötusnúðurinn Ragnhildur Jónasdóttir og kærastan hennar Elma Valgerður Sveinbjörnsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni í haust. Parið greinir frá gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum í gær.

Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni
Fótboltakonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er barnshafandi og leikur því ekki með Stjörnunni í sumar.

„Draumur að verða að veruleika“
Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir og eiginmaður hennar Hilmar Arnarsson eiga von á sínu fyrsta barni saman í haust. Hjónin greina frá tímamótunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

Stjörnulífið: „Þarna á sviðinu er æskudraumur að rætast“
Liðin vika var með eindæmum viðburðarík. Edduverðlaunahátíðin, skvísutónleikarnir Mamma þarf að djamma, árshátíðir og afmæli báru þar hæst.

Elísa og Elís búin að eiga draumaprinsinn
Fegurðardrottningin Elísa Gróa Steinþórsdóttir og kærasti hennar Elís Guðmundsson eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum. Þetta tilkynna þau í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram.

„Sumt er ekki í boði fyrir fólk að hafa skoðun á“
„Það eru margir sem eru búnir að hlusta á plötuna og segja vá ég var ekki að búast við þessu frá þér. Ég veit ekki hvort að það sé jákvætt eða neikvætt,“ segir tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, sem er viðmælandi í Einkalífinu.

Jóhanna Helga og Geir eiga von á dreng
Útvarps- og sjónvarpskonan Jóhanna Helga Jensdóttir og Geir Ulrich Skaftason, viðskiptastjóri hjá Isavia, eiga von sínu öðru barni í september. Parið tilkynnti á Instagram að von væri á dreng. Fyrir eiga þau eina stúlku, Tinnu Maríu sem er fjögurra ára.

Edda Sif og Villi eiga von á sínu öðru barni
Íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir og Vilhjálmur Sigurgeirsson framleiðandi eiga von á sínu öðru barni. Fyrir eiga þau einn dreng, Magnús sem er fjögurra ára gamall.

„Fjölskyldan stækkar og heimurinn hlær af hamingju“
Pétur G. Markan bæjarstjóri Hveragerðis og eiginkona hans Margrét Lilja Vilmundardóttir prestur eignuðust stúlku í vikunni. Pétur deilir gleðifregnunum í færslu á Facebook.

Stjörnulífið: Pretty segir vin sinn hafa lagt bílnum
Liðin vika var svo sannarlega viðburðarrík hjá stjörnum landsins og báru árshátíðir, barnalán, utanlandsferðir og afmæli þar hæst.

Arna Ýr fæddi þriðja barnið í stofunni heima
Arna Ýr Jónsdóttir fegurðardrottning og hjúkrunarfræðinemi og Vignir Þór Bollason kírópraktor eignuðust dóttur 3. apríl síðastliðinn. Fæðingin var heimafæðing og kom stúlkan í heiminn í uppblásinni sundlaug heima í stofu. Um er að ræða þriðja barn parsins.

„Tíu ár en enginn hringur“
Birta Líf Ólafsdóttir, markaðssérfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi, og Gunnar Patrik Sigurðsson fasteignasali kynntust í gegnum sameiginlega vini fyrir um tíu árum. Síðan þá hafa þau búið í Englandi, verið í fjarbúð og eignast saman eina dóttur, Emblu Líf þriggja ára.

Júlí Heiðar og Þórdís eiga von á stelpu: „Djöfull var ég tekin“
Listaparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir eiga von á stúlku ef marka má bleika litinn í óvæntu steypiboði Þórdísar um helgina. Hún sagðist alsæl hafa óskað eftir því að slík veisla yrði ekki haldin.

Fertug og frjó í flutningum
Katla Hreiðarsdóttir, eigandi hönnunarverslunarinnar Systur og makar, og Haukur Unnar Þorkelsson eiga von á sínu þriðja barni saman. Katla fagnar fertugsafmæli sínu í dag með því að tilkynna óléttuna. Auk þess festi parið kaup á fallegu einbýli í Hafnarfirði.

Davíð Helgason og Isabella eiga von á barni
Davíð Helgason fjárfestir og danska fyrirsætan Isabella Lu Warburg eiga von á öðru barni sínu. Fyrir eiga þau soninn Ágúst en Davíð á einnig tvö börn úr fyrra hjónabandi.

Tímamótavika hjá Bjögga Takefusa og Sólveigu
Björgólfur Takefusa, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, og Sólveig Heimisdóttir viðskiptafræðingur eignuðust sitt fyrsta barn saman 14. mars síðastliðinn. Auk þess hefur Sólveig sett sjarmerandi eign sína í miðbæ Reykjavíkur á sölu.

Martin og Anna María eignuðust dreng
Martin Hermannsson landsliðsmaður í körfubolta og Anna María Bjarnadóttir eignuðust dreng á dögunum. Um er að ræða þeirra annað barn saman en fyrir eiga þau soninn Manúel fimm ára.

Hildur María og Sigurður nefndu dótturina
Fyrrverandi fegurðardrottningin og handboltakonan Hildur María Leifsdóttir og kærastinn hennar Sigurður Jakob Helgason lögmaður, skírðu dóttur sína við hátíðlega athöfn um helgina. Stúlkunni var gefið nafnið Lína María.

Ingó veðurguð og Alexandra eiga von á stelpu
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, þekktur sem Ingó veðurguð, og kærasta hans Alexandra Eir Davíðsdóttir eiga von á stúlku í ágúst. Parið greinir frá tímamótunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

Rétta úr kynjahlutfallinu á Álftanesi
Íslenski landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson og unnusta hans Sara Dögg Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur eiga von á sínu þriðja barni. Parið tilkynnti í einlægri færslu á Instgram að von væri á dreng.

Sýnir ást sína með Weetos-kaupum seint að kvöldi
Hjónin Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, betur þekktur sem Áki, eigendur heilsustaðarins Maikai, kynntust í gegnum Instagram fyrir um átta árum þegar Elísabet fór að fylgja honum á miðlinum.

Tískudrottning og fréttamaður eiga vona á stúlku
Eva Katrín Baldursdóttir, annar eigandi tískuvöruverslunarinnar Andrá, og Ragnar Jón Hrólfsson fréttamaður á Rúv eiga vona á sínu öðru barni í sumar. Eva deilir gleðifréttunum með fallegri myndafærslu á samfélagmiðlum.

„Ég er að verða afi í ágúst“
Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur, hlaðvarpsstjarna, er að verða afi lok sumars og segist yfir sig spenntur fyrir komandi hlutverki. Hann greinir frá gleðitíðinudum í hlaðvarpsþætti Hæ Hæ sem er í umsjón hans og Helga Jean Claessen.

Birkir Bjarna og Sophie orðin foreldrar
Birkir Bjarnason, leikjahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðslins í fótbolta frá upphafi, er orðinn faðir.

Stjörnulífið: Binni Glee fær ekki nóg af Laufeyju
Viðburðarík vika er nú að baki og báru árshátíðir og tónleikar Laufeyjar Lín í Hörpu þar hæst. Þá nýttu margir tækifærið og skelltu sér á skíði áður en snjórinn kveður okkur í bili.

„Vildu frekar nýta þetta til bætingar heldur en að vera reið við mig“
Í ágúst í fyrra kom fram viðtal við íþróttafréttakonuna Svövu Kristínu Gretarsdóttur sem ætlaði eins síns liðs að eignast barn með hjálp Livio.

Edda Falak á von á barni: „Loksins mamma“
Edda Falak baráttukona og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið greinir frá tímamótunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

Elísa Viðars orðin strákamamma
Knattspyrnuparið Elísa Viðarsdóttir og Rasmus Christiansen eignuðust dreng 2. mars síðastliðinn. Elísa greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í gær.

Baltasar og Sunneva Ása eiga von á barni
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eiga von á sínu fyrsta barni saman í byrjun ágúst. Um er að ræða fyrsta barn Sunnevu en Baltasar á fjögur börn fyrir.

Birgitta Líf með 450 þúsund króna skiptitösku
Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og áhrifavaldur, birti mynd af sér með son sinn í fanginu og 450 þúsund króna Blue Dior Oblique Canvas skiptitösku yfir öxlina.