Kaup og sala fyrirtækja
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 13 ›
Ardian hyggst fjórfalda umsvif Verne og leggja gagnaverunum til 163 milljarða Franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian mun leggja gagnaverum Verne, sem meðal annars er með starfsemi á Íslandi, til 1,2 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 163 milljarða króna, til að vaxa í Norður-Evrópu og fjórfalda þannig umsvifin. Eftir kaupin hefur Ardian, sem á Mílu, fjárfest fyrir jafnvirði um það bil 120 milljarða á Íslandi. „Við erum einn stærsti erlendi fjárfestir á Íslandi og höfum mikla trú á landinu,“ segir framkvæmdastjóri hjá félaginu. Innherji 15.3.2024 07:14
Lífeyrissjóðir fái eignir Heimstaden á 15 milljarða afslætti Sjóður í eigu nokkurra lífeyrissjóða í stýringu Stefnis er sagður munu greiða 61 milljarð króna fyrir allt hlutafé í leigufélaginu Heimstaden. Fasteignamat eigna Heimstaden er tæpir 76 milljarðar króna. Viðskipti innlent 10.3.2024 13:00
Sverrir Viðar kaupir og sameinar tvö félög sem velta munu þremur milljörðum Sverrir Viðar Hauksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Lykli og Heklu, og sjóður á vegum Ísafold Capital Partners hafa keypt Verslunartækni og Bako Ísberg í því skyni að sameina félögin. Sameinað félag munu að líkindum velta þremur milljörðum króna í ár. Innherji 8.3.2024 14:25
Þögull sem gröfin um söluna á Wok On til Davíðs Kristján Ólafur Sigríðarson, stofnandi og fyrrverandi eigandi og framkvæmdastjóri Wok on veitingastaðanna, segir lögreglu ekki hafa rætt við sig í tengslum við umfangsmiklar aðgerðir embættisins víða um land í gær. Hann segist enda ekki tengjast málinu með nokkrum hætti. Viðskipti innlent 6.3.2024 15:56
Starfsfólki hefur fjölgað hjá Kerecis eftir söluna Fjöldi starfsmanna fyrirtækisins Kerecis á Ísafirði hefur nærri tvöfaldast á tólf mánuðum og framleiðslan vaxið. Framleiðslustjórinn segir fyrirtækið leggja mikla áherslu að styðja við samfélagið í bænum. Viðskipti innlent 6.3.2024 08:00
ECIT Virtus kaupir bókhalds- og launaþjónustu PwC Bókhalds- og launaþjónusta PwC í Reykjavík hefur færst yfir til félagsins ECIT Virtus. Starfsemin verður héðan í frá rekin undir merkjum Virtus. Viðskipti innlent 1.3.2024 17:06
Skoða enn hvort Samherji og Síldarvinnslan séu sama fyrirtækið Samkeppniseftirlitið hefur hafið athugun á því hvort samband Samherja og Síldarvinnslunnar sé svo náið að félögin jafngildi einni efnahagslegri einingu en ekki samstarfi sjálfstæðra keppinauta. Viðskipti innlent 28.2.2024 11:30
Noona kaupir SalesCloud Noona Labs ehf., sem á og rekur markaðstorgið Noona og rekstrarumsjónarkerfið Noona HQ, hefur fest kaup á öllu hlutafé í hugbúnaðarfyrirtækinu SalesCloud ehf., sem hefur um áraraðir þróað sölu- og greiðslukerfi fyrir veitingastaði, bari, hótel og ýmsa afþreyingu hér á landi og í Svíþjóð. Viðskipti innlent 27.2.2024 10:26
Kaldbakur festir kaup á Optimar Fjárfestingafélagið Kaldbakur, sem er í eigu tveggja stofnenda Samherja, hefur gengið frá kaupum á hátæknifyrirtækinu Optimar af þýska eignarhaldsfélaginu Haniel. Optimar framleiðir sjálfvirk fiskvinnslukerfi til notkunar um borð í fiskiskipum, á landi og í fiskeldi og er með viðskiptavini í meira en 30 löndum. Viðskipti innlent 26.2.2024 11:03
Kaupa gagnaver í Finnlandi Borealis Data Center, sem rekur þrjú gagnaver hér á landi, hefur fest kaup á á gagnaveri í Kajaani í Norður-Finnlandi sem verður fyrsta starfsstöð félagsins erlendis. Viðskipti innlent 15.2.2024 09:08
Set velti fimm milljörðum og sett í söluferli Fjölskyldufyrirtækið Set á Selfossi, sem sérhæfir sig í fjölbreyttri starfsemi á lagnasviði, hefur verið sett í söluferli. Set velti um fimm milljörðum króna í fyrra og jukust tekjur um 33 prósent á milli ára. Að auki voru tekjur erlendra félaga innan samsteypunnar samanlagt um 2,5 milljarðar króna árið 2023. Innherji 13.2.2024 16:39
Halda fullum launum í fæðingarorlofi Verkfræðistofan Mannvit sem starfað hefur frá árinu 1963 heitir COWI frá og með næstu viku. COWI keypti íslensku verkfræðistofuna í fyrra og er nafnabreytingin hluti af sameiningarferli Mannvits við COWI-samstæðuna. Íslensku starfsfólki bjóðast fríðindi á borð við full laun í fæðingarorlofi. COWI sér fyrir sér vöxt og leitar að öflugu starfsfólki. Viðskipti innlent 9.2.2024 12:56
Næstum þrefaldur hagnaður af því að reisa Urðarfellsvirkjun Heildarvirði Urðarfellsvirkjunar var tæplega 17 sinnum hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) við kaup bresks orkusjóðs á virkjuninni í janúar. Munur á stofnverði og söluverði er næstum þrefaldur en virkjunin hóf að framleiða rafmagn fyrir um sex árum. Innherji 5.2.2024 14:31
Héðinn kaupir tvö félög Véltæknifyrirtækið Héðinn hf. gekk nýlega frá samningum um kaup á rekstri félaganna El-Rún ehf. og Hind ehf. Viðskipti innlent 29.1.2024 08:50
Breskur orkusjóður kaupir Urðarfellsvirkjun á 900 milljónir Breskur orku- og innviðasjóður hefur keypt Urðarfellsvirkjun á um fimm milljónir punda, jafnvirði tæplega 900 milljónir króna. Stærsti eigandi vatnsaflsvirkjunarinnar með um 90 prósent hlut var Bergþór Kristleifsson. Innherji 26.1.2024 15:10
Guðbjörg kaupir þrjú fyrirtæki Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir útgerðarkona í Eyjum hefur keypt fyrirtækin Expert, Expert kæling og GS Import í gegnum félag sitt Fastus ehf sem sérhæfir sig í heildsöluverslun. Hið sameinaða fyrirtæki ber heitið Fastus ehf., en starfsemi þess skiptist nú í tvö meginsvið; Fastus heilsu og Expert. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fastus. Viðskipti innlent 23.1.2024 10:26
Viðræður hafnar um samruna Samkaupa við Heimkaup og Orkuna Fjárfestingafélagið Skel og Samkaup hafa undirritað yfirlýsingu um að hefja könnunarviðræður vegna mögulegs samruna Samkaupa við Orkuna og Heimkaup. Þetta kemur fram í tilkynningu Skeljar til Kauphallar. Viðskipti innlent 19.1.2024 17:39
Össur kaupir þýskt stoðtækjafyrirtæki Össur hefur undirritað samning um kaup á öllum hlutum þýska stoðtækjafyrirtækisins Fior & Gentz. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Össuri en tilkynnt var um kaupin rétt í þessu. Viðskipti innlent 16.1.2024 08:08
158 milljón króna gjaldþrot félags Ásgeirs Kolbeins Lýstar kröfur í þrotabú félagsins Soho Veitingar ehf. námu 158 milljónum króna. Félagið var í meirihlutaeigu hjónanna Sólveigar Birnu Gísladóttur og Einars Jóhannesar Lárussonar en athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson átti tuttugu prósenta hlut í því. Félagið sá um rekstur veitingastaðarins Pünk á Hverfisgötu en Ásgeir var um tíma framkvæmdastjóri staðarins. Viðskipti innlent 15.1.2024 12:58
Lyfjarisar keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki Stærstu lyfjafyrirtæki í heimi keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki til að efla framleiðslu sína. Stjórnendur lyfjaframleiðenda vilja hafa hraða hendur því einkaréttur á allt að 170 lyfjum mun falla úr gildi við upphaf næsta áratugar sem standa undir næstum 400 milljarða Bandaríkjadala í tekjum fyrir stærstu fyrirtækin. Innherji 12.1.2024 16:10
Sólar og Mánar sameinast Sólar ehf. og Mánar ehf. hafa náð samkomulagi um að sameina félögin undir nafni Sólar. Viðskipti innlent 11.1.2024 13:28
JBT fær tveggja vikna frest Marel hefur verið upplýst um að fjármálaeftirlit Seðlabankans hafi veitt JBT tveggja vikna framlengingu á fresti til þess að birta lokaákvörðun um hvort það hyggist gera yfirtökutilboð í Marel. Viðskipti innlent 5.1.2024 15:56
Skel gerði tilboð sem KEA gat ekki hafnað KEA hefur selt fjárfestingafélaginu Skel allt hlutafé sitt í Eignarhaldsfélaginu Bjarma ehf. sem haldið hefur utan um fimm prósenta eignarhlut KEA í matvörukeðjunni Samkaup hf. Viðskipti innlent 3.1.2024 11:45
Nokkur óskuldbindandi tilboð gerð í TM Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist Kviku í hlutabréf TM, bæði í félagið í heild og að hluta. Fjórum aðilum hefur verið boðið að halda áfram í söluferlinu. Viðskipti innlent 22.12.2023 12:53
Kaupverðið á PayAnalytics getur orðið allt að sex milljarðar Kaupverð PayAnalytics getur numið allt að fimm til sex milljörðum króna gangi tiltekin afkomumarkmið eftir, samkvæmt heimildum Innherja. Til samanburðar er markaðsvirði flugfélagsins Play 6,5 milljarðar króna. Innherji 20.12.2023 14:08
Bakarafjölskylda tekur við bakaríi á Reyðarfirði Fyrirtækið Baker family ehf., sem er í eigu bakarameistarans Vals Þórssonar, Elísabetar Sveinsdóttur, Þóreyjar Sveinsdóttur og Gregorz Zielke, tekur við rekstri Sesam Brauðhúss af Lostæti Austurlyst ehf. um komandi áramót. Innlent 18.12.2023 13:12
Hafdís Björg þarf að greiða tíu milljónir Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari sem fékk Porsche í jólagjöf frá unnusta sínum á dögunum þarf að greiða tíu milljónir króna vegna kaupa á fyrirtækinu Trimmform Berglindar. Innlent 15.12.2023 14:11
Meniga tilkynnir um 2,2 milljarða fjármögnun Meniga hefur tilkynnt um 15 milljóna evru fjármögnun, sem samsvarar um 2,2 milljörðum íslenskra króna, í D-fjármögnunarlotu. Þátttakendur í fjármögnungarlotunni voru stórir evrópskir bankar eins og BPCE og Crédito Agrícola, fjárfestingafélagið Omega ehf, ásamt þátttöku margra af núverandi hluthöfum. Viðskipti innlent 14.12.2023 11:28
Sannfærður um „verulega“ samlegð af mögulegri sameiningu Marel og JBT Uppfærð viljayfirlýsing um mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel, sem er hækkað um átta prósent frá fyrra boði, gerir ráð fyrir sambærilegu gengi og erlendir greinendur eru að verðmeta íslenska félagið á um þessar mundir. Forstjóri JBT segist sannfærður um að mögulegur samruni muni hafa í för með sér „verulega“ samlegð fyrir bæði félög sem hluthafar ættu að njóta góðs af en hlutabréfaverð Marels hefur rokið upp í fyrstu viðskiptum á markaði í morgun. Innherji 14.12.2023 10:57
Hækka hugsanlegt tilboð um 22 milljarða króna Marel hefur borist uppfærð óskuldbindandi viljayfirlýsing frá John Bean Technologies Corporation, JBT, varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu. JBT lýsir yfir vilja til að greiða mögulega átta prósent meira fyrir hvern hlut í félaginu. Það gerir um 22 milljörðum króna meira en í upphaflegri yfirlýsingu. Viðskipti innlent 14.12.2023 07:45