Kaup og sala fyrirtækja
1 2 3 4 5 6 7 8 … 13 ›
Skuldabréfasjóður í hluthafahóp Steinsteypunnar eftir endurskipulagningu Skuldabréfasjóður í rekstri Ísafoldar Capital Partners er orðinn einn af eigendum nýs félags um steypuframleiðslufyrirtækið Steinsteypuna eftir erfiðleika í rekstri og fjárhagslega endurskipulagningu, samkvæmt heimildum Innherja. Helmingshlutur í félaginu hafði verið seldur á 750 milljónir fyrir um tveimur árum. Innherji 28.6.2024 16:06
Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið JBT og Marel munu halda opinn fjárfestafund í dag klukkan 13 í höfuðstöðvum Arion Banka í Borgartúni 19 og kynna valfrjálst yfirtökutilboð JBT í Marel. Sýnt verður frá fundinum á Vísi. Viðskipti innlent 24.6.2024 12:31
„Óþarfa áhyggjur“ fjárfesta að horfið verði frá tvískráningu JBT Marel Sameinað félag John Bean Technologies (JBT) og Marel verður ekki of skuldsett, að mati forstjóra JBT, en unnið verður að því að draga úr skuldsetningu og hún fari í ásættanlegt horf á einu ári. Hann segir að íslenskir fjárfestar þurfi ekki að óttast að horfið verði frá tvískráningu hérlendis og í Bandaríkjunum. Tvískráningin verði ekki byrði á rekstrinum og hún muni auka seljanleika með hlutabréf fyrirtækisins. „Marel er með öfluga langtímahluthafa, eins og lífeyrissjóði, og við tökum þeim fagnandi,“ segir forstjórinn í einkaviðtali við Innherja. Innherji 24.6.2024 08:19
Festi fær að kaupa Lyfju Festi og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað sátt vegna kaupa Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. Með sáttinni samþykkir Samkeppniseftirlitið samrunann með skilyrðum sem sett eru til að efla og vernda virka samkeppni á þeim mörkuðum sem samruninn hefur áhrif á. Neytendur 14.6.2024 14:51
Samruninn hefði haft umtalsverð skaðleg áhrif Samkeppniseftirlitið hefur birt ákvörðun um að ógilda kaup Skeljungs ehf. á Búvís ehf.. Eftirlitið telur að samruninn hefði að öllu óbreyttu haft umtalsverð skaðleg áhrif á markaði fyrir innflutning og sölu á áburði. Viðskipti innlent 4.6.2024 07:50
Telja SKE hafa farið offari og hætta við kaupin Stjórn Síldarvinnslunnar hefur samþykkt beiðni Samherja um að kaup félagsins á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood ehf. gangi til baka. Viðskipti innlent 3.6.2024 08:27
Eignast Securitas að fullu Framtakssjóðurinn Edda og Vari eignarhaldsfélag hafa undirritað kaupsamning um kaup Vara á 40 prósenta hlut í Securitas. Eftir að viðskiptin eru frágengin mun Vari eiga Securitas að fullu. Viðskipti innlent 21.5.2024 14:43
Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Magnús Scheving hefur í gegnum fjárfestingarfélagið, LZT Holding ehf., náð samkomulagi við Warner Bros, Discovery, um kaup á öllum eignum LazyTown, eða Latabæ. Undir kaupin falla allir sjónvarpsþættir, vörumerki og hugverkaréttindi LazyTown, um heim allan. Viðskipti innlent 14.5.2024 12:53
Alfa Framtak bætir við hótelsamstæðuna og kaupir Magma Framtakssjóður Alfa Framtak hefur gengið frá kaupum á Magma hóteli sem er þrjá kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri. „Við höfum trú á íslenskri ferðaþjónustu,“ segir fjárfestingarstjóri sjóðastýringarinnar. Innherji 13.5.2024 19:23
Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Helgi Magnús Hermannsson og Jóhannes Birgir Skúlason hafa fest kaup á Grillhúsinu sem rekur veitingastaði á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík. Þá hefur hópur fjárfesta undir forystu Örvars Bessasonar keypt Grillhúsið í Borgarnesi. Viðskipti innlent 13.5.2024 14:03
Kaupa Íslensk verðbréf Skagi, móðurfélag Vátryggingafélags Íslands, hefur undirritað kaupsamning við hluthafa Íslenskra verðbréfa um kaup Skaga á 97,07 prósent hlutafjár í félaginu. Viðskipti innlent 8.5.2024 07:28
Kostnaður vegna endurskipulagningar hjá Arctic Adventures litar afkomuna Talsvert var um einskiptiskostnað hjá Arctic Adventures vegna starfsmannabreytinga og endurskipulagningar á innra starfi félagsins á árinu 2023. Þótt tekjur hafi aukist um 37 prósent dróst hagnaður nokkuð saman af þeim völdum. Fyrirtækið keypti Kerið í Grímsnesi í fyrra en samkvæmt fjárhagsupplýsingum frá Arctic Adventures námu fjárfestingar í fasteignum og landi tæplega tveimur milljörðum. Innherji 6.5.2024 16:48
Öryggismiðstöðin metin á 3,8 milljarða í kaupum VEX á nærri helmingshlut Þegar framtakssjóðurinn VEX gekk frá kaupum á samtals um 45 prósenta hlut í Öryggismiðstöðinni um mitt árið í fyrra af breiðum hópi fjárfesta þá var allt hlutafé fyrirtækisins verðmetið á liðlega 3,8 milljarða í viðskiptunum. Sjóðurinn stóð einnig að fjárfestingu fyrir meira en 1,6 milljarða í bandaríska skyrframleiðandanum Icelandic Provision á liðnu ári sem tryggði honum yfir tíu prósenta hlut í félaginu. Innherji 29.4.2024 18:09
Alfa Framtak áhugasamt um kaup á hlut í KEA hótelum Alfa Framtak er á meðal þeirra sem boðið hafa í hlut Landsbankans í KEA hótelum, einni stærstu hótelkeðju landsins, samkvæmt heimildum Innherja. Eftir því sem næst verður komist styttist í að einkaviðræður hefjist við mögulegan kaupanda. Innherji 24.4.2024 12:10
Guðbjörg orðin pítsudrottning Guðbjörg Matthíasdóttir og fjölskylda eru stærsti hluthafinn í Domino's á Íslandi eftir kaup á níu prósent hlut í félaginu. Guðbjörg er sannkallaður stórlax í sjávarútvegi en styrkir nú stöðu sína á flatbökumarkaðnum þar sem Domino's hefur stærsta hlutdeild. Viðskipti innlent 17.4.2024 10:00
Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Samkeppniseftirlitið hefur fallist á beiðni Festi um að hefja sáttaviðræður um möguleg skilyrði vegna kaupa félagsins á öllu hlutafé Lyfju hf. Gert er ráð fyrir að viðræður hefjist í vikunni. Viðskipti innlent 15.4.2024 17:22
KEA nú stærsti hluthafinn í Norlandair KEA hefur keypt rúmlega 21 prósent hlutafjár í Norlandair og verður eftir viðskiptin stærsti hluthafi félagsins með 43 prósenta eignarhlut. Viðskipti innlent 15.4.2024 11:42
Fyrirtæki í fiskþurrkun hagnaðist um vel á þriðja milljarð við söluna á Kerecis Fyrirtæki á Vestfjörðum, sem sérhæfir sig einkum í þurrkun fisks, hagnaðist um 2,5 milljarða þegar gengið var frá risasölu á Kerecis til Coloplast síðastliðið haust. Félagið Klofningur, sem hafði verið hluthafi í Kerecis í meira en áratug, greiðir bróðurpart söluhagnaðarins út í arð til eigenda sem eru önnur fyrirtæki og einstaklingar af svæðinu. Innherji 15.4.2024 09:40
Kaupa Dive.is að fullu Kynnisferðir, sem starfa undir vörumerkinu Icelandia, hafa gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Dive.is. Viðskipti innlent 11.4.2024 16:12
KEA selur hlut sinn í Slippnum KEA hefur selt 12 prósenta eignarhlut sinn í Slippnum á Akureyri. Kaupandi eignarhlutarins er dótturfélag Kaldbaks sem hefur átt ráðandi hlut í Slippnum um nokkurra ára skeið. Viðskipti innlent 11.4.2024 09:46
Ólöf og Omry selja Kryddhúsið John Lindsay hf. hefur keypt Kryddhúsið af hjónunum Ólöfu Einarsdóttur og Omry Avraham. Þau stofnuðu fyrirtækið árið 2015 og framleiða í dag yfir 90 tegundir af kryddum og kryddblöndum. Með kaupunum verður framleiðsla og vörulager flutt í Klettagarða 23 úr Flatahrauni í Hafnarfirði. Viðskipti innlent 9.4.2024 10:49
Stjórnarformaðurinn getur ekki tjáð sig Arnar Þór Másson, stjórnarformaður Marels, segist ekki geta tjáð sig um samþykkt á yfirtökutilboði JBT í Marel. Viðskipti innlent 5.4.2024 12:21
Samkomulag í höfn um skilmála yfirtökutilboðs JBT í allt hlutafé í Marel Marel hefur undirritað samkomulag við John Bean Technologies Corporation (JBT) um helstu skilmála í tengslum við fyrirhugað yfirtökutilboð í allt útistandandi hlutafé í Marel, líkt og áður hefur verið tilkynnt um. Yfirtökutilboðið, sem felur í sér valfrjálst yfirtökutilboð á verðinu 3,60 evrur á hlut, verði lagt fram í maí næstkomandi og gert ráð fyrir að viðskiptin verði frágengin fyrir árslok. Viðskipti innlent 5.4.2024 07:06
„Einkafyrirtæki myndi ekki taka ákvarðanir sem gengu í berhögg við vilja eigenda“ Sérfræðingur í Evrópurétti telur að eftirlitsstofnun EFTA muni taka til skoðunar fyrirhuguð kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni. Slík skoðun gæti tekið langan tíma, en kaupin mættu ekki fara fram meðan á henni stæði. Innlent 30.3.2024 20:24
Fíll í postulínsbúð? Svigrúm ríkisins til athafna á samkeppnismarkaði Þegar ríkisfyrirtæki kaupir eignir eða rekstur þarf að sama skapi að sýna fram á að ákvörðun standist prófið um skynsamlega hegðun markaðsaðila. Ef leiða má að því líkur að eignarhald ríkisins feli í sér einhvers konar forskot, til dæmis að því er varðar fjármögnun kaupanna eða arðsemiskröfu, fellur ríkið á prófinu og þá er um ríkisaðstoð í skilningi EES samningsins að ræða, að sögn lögmanns og sérfræðings í Evrópurétti. Umræðan 29.3.2024 11:15
Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Festi hefur óskað eftir formlegum sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið um möguleg skilyrði vegna kaupa félagsins á Lyfju. Viðskipti innlent 26.3.2024 10:05
Brýnt að undið verði ofan af kaupunum Þingmaður Viðreisnar segir brýnt að undið verði ofan af kaupum Landsbanks á TM tryggingum. Ekki gangi upp að banki sem er nánast að fullu í eigu ríkisins taki sér það vald, án þess að spyrja kóng eða prest, að að kaupa tryggingafélaga og færa þannig út kvíarnar inn á nýjan markað. Þingmaður Samfylkingar segir fjármálaráðherra hafa brugðist skyldum sínum. Innlent 20.3.2024 22:55
„Sjálfgræðismenn“ vilji koma Landsbankanum í hendur auðmanna Stefán Ólafsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, segir „sjálfgræðismenn“ í Sjálfstæðisflokknum hafa önnur áform en að láta rekstur Landsbankans skila góðum árangri á meðan hann er í eigu ríkisins. Pólitískt upphlaup Sjálfstæðismanna vegna kaupa Landsbankans á TM sé vegna þessa áforma. Innlent 19.3.2024 22:53
KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu KEA hefur keypt 30 prósenta hlut í Ferro Zink hf. af Jóni Dan Jóhannssyni og á eftir viðskiptin allt hlutafé í félaginu, sem er með starfsemi á Akureyri og í Hafnarfirði. Viðskipti innlent 19.3.2024 08:23
Telur að Kvika greiði út um fimmtán milljarða við söluna á TM Söluverð Kviku á TM var í samræmi við væntingar hlutabréfagreinenda sem telur að Kvika verði „sterkari“ eftir söluna en segir slæmt að fjárþurfa ríkissjóður sé með þessum kaupum Landsbankans að „dæla peningum inn í hagkerfið með vinstri hendinni.“ Sjóðstjóri reiknar með að Kvika muni greiða út um fimmtán milljarða samhliða sölunni í formi arðgreiðslna eða endurkaupum á eigin bréfum og hluthafar fái því ríflegan hluta söluverðsins til sín. Innherji 18.3.2024 15:58