

Að þú hreinlega skulir voga þér að tala um stefnuleysi í málaflokki barna í alvarlegum vanda hjá nýkjörinni ríkisstjórn er til marks um ....tja hvað? Að þú sért siðblind?
Lífið er stutt. Börnin okkar eru hjá okkur í örfá ár. Þetta er dýrmætur tími sem kemur ekki aftur. Það er staðreynd að þegar ungt fólk er að koma sér inn á fasteignamarkaðinn er það jafnframt að fara inn í dýrasta fasa lífs síns.
Virkni foreldra og foreldrastarf í skólum landsins hefur átt undir högg að sækja um allt land. Þessi bagalega þróun er mikið áhyggjuefni fyrir okkur öll sem látum okkur skólastarf og vellíðan skólabarna varða. Við foreldrar leikum lykilhlutverk í farsæld barna og verðum að láta okkur málið varða og vera tilbúin að leggja okkar af mörkum til þess að börnum landsins farnist sem best.
Á vefsíðu Kennarasambands Íslands mátti sjá æsifréttamennsku af verstu sort í síðustu viku þar sem greint var frá því að kennara hefðu verið dæmdar milljónir í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar í kjölfar þess að hafa löðrungað nemanda.
Hvað þarf til þess að þið vaknið kæra fólk? Þarf barn að láta lífið í skólakerfinu til þess að þið skiljið alvarleikann? Ykkur finnst kannski fjarstæða að slíkt gæti gerst á litla Íslandi, en hér fjallar abc fréttastofan um nokkur tilfelli þar sem börn létu lífið eftir að vera þvinguð í gólfið af starfsmönnum skóla.
Í fréttum vikunnar stóð kynbundið ofbeldi, loftlagsráðstefna og lausaganga katta mest uppúr að mati viðmælenda í bítinu. „Það voru tvö hitamál í þessari viku, annars vegar drottningarviðtalið í Kveik og hins vegar bann við lausagöngu katta,“ var svo haft eftir Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur í Fréttablaðinu.
Það er ekki að ástæðulausu að sérfræðingum greinir á um evrumálin því það getur skipt máli frá hvaða sjónarhorni við skoðum hlutina. Til þess að geta tekið upp evru þarf að sýna ákveðinn aga.
Ýmiss konar ofbeldi hefur verið fyrirferðarmikið í samfélagsumræðunni síðustu mánuði. Það er þó ein tegund ofbeldis sem ekki hefur fengið verðskuldaða athygli, að minnsta kosti ekki frá yfirvöldum og frambjóðendum til Alþingis, en það er vanræksla barna í skólakerfinu.
Fyrir nokkru hafði móðir samband við mig því drengurinn hennar dansar við landamæri Sumarlandsins og samfélagið horfir á. Á hinu barnvæna Íslandi, þessu frábæra norræna velferðarsamfélagi virðist ekki vera hægt að gera neitt til þess að koma honum til hjálpar.
„Með fullri virðingu fyrir MeToo byltingunni, hvers vegna er engin slík bylting í gangi fyrir börn?“ Þetta var athugasemd hópmeðlims á fésbókarsíðunni „Sagan okkar“.
Okkar veruleiki getur verið ljótur. Ljótur vegna þess að við upplifum skilningsleysi, dómhörku og útskúfun í samfélaginu. Ég hef alltaf litið á dómhörkuna sem afleiðingu af vanþekkingu, vegna þess að fólk sýnir almennt skilning þegar það heyrir svo ”hina hliðina”.
Án efa eru nokkur í þinni fjölskyldu eða nánasta vinahóp því við erum að tala um þriðja hvert barn í íslenskum grunnskólum. Þetta eru börnin með sérþarfir.
Þessi fyrirsögn er brot úr umræðu á fésbókarsíðunni ”Sagan okkar” þar sem fólki gefst tækifæri til þess að segja frá sinni reynslu úr skólakerfinu.
Fyrir nokkrum dögum skrifaði Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi minnihluta nokkuð harðorðan pistil í garð meirihluta vegna stöðu einhverfra barna í skólakerfinu.
Í umræðu um skóla án aðgreiningar og þann skort á sérfræðingum sem hefur loðað við innleiðingu stefnunnar kemur iðulega fram sú röksemd að kennarar séu einnig sérfræðingar og eigi að geta tekist á við vandann. Þeir þekki börnin best, þeir vita hvaða aðstoð nemendur þeirra þurfa, þeir séu færir í sínu fagi og flinkir í öllu.
Í siðmenntuðu samfélagi er vanræksla barna ekki liðin. Samkvæmt lögum ber að tilkynna grun um slíkt til barnaverndar. Hvernig stendur þá á því að yfirvöld megi vanrækja barnið mitt?
Þetta var svona nánast það sem mátti lesa út úr pistli sem Friðrik Agni skrifaði um ADHD og greiningar.
Frumvarp til laga um kristinfræðslu var rætt á Alþingi í fyrradag. Þar sem ég hef nýlokið rannsókn á fjármálalæsi í skólakerfinu vegna meistaranáms við Háskóla Íslands tel ég mig knúna til þess að leggja orð í belg og vekja athygli á undarlegri forgangsröðun okkar ágætu þingmanna.