Ítalski boltinn
194 195 196 197 ›
Juventus í 8 stiga forystu Juventus jók í dag forystu sína á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í 8 stig þegar liðið vann 1-2 útisigur á Atalanta. Á sama tíma töpuðu helstu keppinautar þeirra, AC Milan öðrum leik sínum í röð í deildinni, nú 0-1 fyrir Bologna, og það á heimavelli sínum San Siro. Ruben Olivera og Alessandro Del Piero skoruðu fyrir Juventus í dag. Sport 13.10.2005 15:29
Candela leitar nýs félags Franski varnarmaðurinn Vincent Candela hjá Roma virðist vera á leið frá félaginu ef marka má orð umboðsmans hans, Alexander Kristic. Hinn 31 árs gamli Candela hefur verið hjá Roma síðan hann kom frá franska liðinu Guingamp árið 1997, en hefur lítið fengið að spila eftir að Luigi Del Neri tók við liðinu af Rudi Völler fyrr á tímabilinu. Sport 13.10.2005 15:27
Juventus í 5 stiga forskot Juventus náði að auka forystu sína í 5 stig á toppi ítölsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í dag eftir 2-0 sigur á Brescia því á sama tíma tapaði AC Milan óvænt á útivelli fyrir Livorno, 1-0. Udinese sem er í 3. sæti og 8 stigum á eftir Milan tapaði einnig óvænt á heimavelli fyrir Reggina, 0-2. Sport 13.10.2005 15:26
Maldini fór næstum til Chelsea Fyrirliði ítalska knattspyrnustórveldisins AC Milan, Paolo Maldini, hefur opinberað að hann hafi verið nálægt því að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea þegar Gianluca Vialli stýrði liðinu fyrir 5 árum. Maldini sagði í dag að þetta sé í eina skiptið á ferli sínum sem hann hafi svo mikið sem íhugað að yfirgefa Milan. Sport 13.10.2005 15:24
Enn eitt heimaleikjabannið á Roma Ítalska knattspyrnuliðið Roma hefur fengið á sig enn eitt heimaleikjabannið vegna slæmrar hegðunar stuðningsmanna liðsins, það þriðja á innan við ári. Liðið var í dag úrskurðað til að leika heimaleik sinn gegn Fiorentina í 8 liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar fyrir luktum dyrum. Stuðningsmenn liðsins létu öllum illum látum í leik gegn Siena í síðustu viku. Sport 13.10.2005 15:23
13. jafntefli Inter á leiktíðinni Tveir leikir voru í ítalska boltanum í gær. Brescia og Fiorentina gerðu 1-1 jafntefli. Reggina mætti Inter Milan á heimavelli og var niðurstaðan markalaust jafntefli. Þetta var þrettánda jafntefli Inter í nítján leikjum en liðið hefur enn ekki tapað leik. Sport 13.10.2005 15:23
Mutu semur við Juventus Rúmsneki landsliðsmaðurinn Adrian Mutu, sem rekinn var frá Chelsea í haust vegna kókaínsneyslu, skrifaði í gær undir fimm ára samning við Juventus á Ítalíu. Mutu, sem dæmdur var í sjö mánaða keppnisbann, verður löglegur með Juventus 18. maí. Sport 13.10.2005 15:21
Bilbao og Betis áfram í bikarnum Atletic Bilbao sigraði Lanzarote 3-1 í 16 liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Elche vann Numancia 1-0, Real Betis lagði Mirandes 3-1, Osasuna bar sigurorð af Getafe 2-0 og Atletico Madrid vann Lorca 3-1. Sport 13.10.2005 15:21
Eiður í byrjunarliðinu gegn Man U Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Man Utd í undanúrslitum ensku deildarbikarkeppninnar í knattspyrnu. Þá eru 4 leikir á dagskrá ítölsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld og er tveimur þeirra lokið. Sport 13.10.2005 15:21
Inter og AC unnu á Ítalíu 4 leikir fóru fram í ítölsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld. Parma steinlá á heimavelli fyrir Fiorentina, 0-3, Inter Milan átti enn eina endurkomuna á lokamínútunum þegar liðið sigraði Bologna 1-3 á útivelli. Inter lenti undir í fyrri hálfleik en Obafemi Martins skoraði þrennu í síðari hálfleik. AC Milan lagði Palermo 2 - 0. Sport 13.10.2005 15:21
Ítalir vilja EM 2012 Ítalir ætla að sækja um að halda Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu 2012. Ákvörðun um hvar keppnin verður haldin það ár verður tekin í desember á næsta ári. Grikkir hafa þegar lýst því yfir að þeir ætli að sækjast eftir því að halda keppnina. Sport 13.10.2005 15:21
Skoruðu þrjú mörk í uppbótartíma Forysta Juventus er aftur kominn í fjögur stig í ítölsku deildinni eftir að Juve bar sigurorð af Livorno 4-2 en AC Milan gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Palermo. Inter tryggði sér sigur gegn Sampdoria með því að skora þrjú mörk í uppbótartíma. Sport 13.10.2005 15:20
Hátterni Di Canios rannsakað Ítalska lögreglan rannsakar hátterni Paolos Di Canios, leikmanns Lazio, eftir að hann skoraði gegn Roma í grannaslag síðastliðinn fimmtudag. Di Canio er gefið að sök að hafa fagnað markinu með fasistakveðju, með því að lyfta hægri handlegg. Lazio var á sínum tíma eftirlætislið Benitos Mussolinis, einræðisherra Ítalíu. Sport 13.10.2005 15:19
Milan vill kaupa Crespo AC Milan hafa hafið samningaviðræður við Chelsea um að tryggja sér krafta argentínska sóknarmannsins Hernan Crespo áfram, en Crespo er sem stendur á lánssamningi hjá ítalska liðinu. Talið er að Milan muni bjóða Chelsea georgíska bakvörðinn Khaka Kaladze og hinn íslenskættaða Dana, Jon Dahl Tomasson sem einhvern hluta af kaupverðinu. Sport 13.10.2005 15:19
Crespo með þrennu í sigri Milan Argentínumaðurinn Hernan Crespo skorað þrennu er AC Milan vann stórsigur á Lecce 5-2, en í dag byrjaði ítalska deildin aftur eftir vetrarfrí. Sport 13.10.2005 15:18
Lazio sigraði Roma Lazio sigraði Roma í síðasta leik dagsins í ítalska boltanum í miklum hitaleik á Stadio Olimpico. Paolo Di Canio kom Lazio yfir með laglegu marki á 29. mínútu, en Antonio Cassano jafnaði tuttugu mínútum fyrir leikslok. Rodriguez Aparecido Cesar kom Lazio aftur yfir á 74. mínútu og Tommaso Rocchi innsiglaði sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok. Sport 13.10.2005 15:18
Berlusconi hættur hjá AC Milan Silvio Berlusconi sagði í dag af sér sem forseti ítalska stórliðsins AC Milan, en lög á Ítalíu banna mönnum sem gegna ráðherraembætti að reka eigið fyrirtæki á meðan þeir eru í starfi. Sport 13.10.2005 15:15
Loksins sigur hjá Inter Milan Roma valtaði yfir Parma 5-1 í ítölsku Serie A deildinni í knattspyrnu í dag þegar 8 leikir fóru fram. Francesco Totti og Antonio Cassano skoruðu tvö mörk hvor og Vincenzo Montella eitt fyrir Parma. Inter Milan tókst loks að innbyrða sigur eftir 12 jafntefli í 15 leikjum í vetur og unnu Brescia 1-0. Sport 13.10.2005 15:12
Einvígi Shevchenko og Nedved Einar Logi Vignisson skrifar vikulega um fótboltann í Suður Evrópu í Fréttablaðið. Að þessu sinni tekur hann fyrir stórleik Juventus og AC Milan á Delli Alpi í kvöld en þar mætast tvö efstu liðin í deildinni. Sport 13.10.2005 15:12
Sheva ekki til Chelsea Umboðsmaður Andrei Shevchenko, Oscar Damiano, hló í dag af þeim sögusögnum að umboðsmaður hans væri á leið til Stamford Bridge, en Jose Mourinho, stjóri Chelsea, er mikill aðdáandi Úkraínumannsins og hefur áður sagt að hann sé hann fullkomni sóknarmaður. Sport 13.10.2005 15:11
Shevchenko knattspyrnumaður Evrópu Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan var í dag valinn knattspyrnumaður Evrópu fyrir árið 2004, en Shevchenko vann sinn fyrsta ítalska meistaratitil á árinu auk þess var hann markahæstur í Seria A með 24 mörk. Sport 13.10.2005 15:10
Segja Sheva hljóta verðlaunin Ítalskir fjölmiðlar og þá sérstaklega hið virta íþróttadagblað þar í landi, "La Gazzetta dello Sport" segjast hafa komist á snoðir um að úkraínski knattspyrnusnillingurinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan hljóti verðlaunin besti knattspyrnumaður í Evrópu árið 2004. Verðlaunin virtu og eftirsóttu verða afhend í París annað kvöld, mánudagskvöld. Sport 13.10.2005 15:10
Besti leikur tímabilsins "Á því leikur enginn vafi að þetta var okkar besti leikur á tímabillinu," voru orð Carlo Ancelotti, stjóra AC Milan eftir að liðið gekk frá Fiorentina með sex mörkum gegn engu í Seríu A á Ítalíu í gær. Með sigrinum er Milan kyrfilega í öðru sæti, sex stigum á undan næsta liði í þriðja sæti en Juventus er enn á toppnum. Sport 13.10.2005 15:10
Rossi ráðinn þjálfari Atalanta Ítalska liðið Atalanta hefur ráðið Delio Rossi sem aðalþjálfara liðsins. Sport 13.10.2005 15:07
AC Milan nálgaðist Juventus AC Milan minnkaði forystu Juventus í eitt stig í ítölsku úrvalsdeildinni þegar liðið sigraði Parma 2-1 í gærkvöldi. Alberto Gilardino skoraði fyrir Parma á 67. mínútu en Mílanómenn skoruðu tvívegis á síðustu átta mínútum leiksins, fyrst Brasilíumaðurinn Kaka og svo Andrea Pirlo sigurmarkið á næstsíðustu mínútunni. Sport 17.10.2005 23:41
Ellefta jafntefli Inter Juventus mistókst að endurheimta 6 stiga forskot sitt á toppi ítölsku efstu deildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Inter Milan á útivelli. Heimamenn í Inter lentu 0-2 undir með mörkum Marcelo Zalayeta og Zlatan Ibrahimovic úr víti áður en Christian Vieri og Adriano náðu að jafna fyrir Inter í seinni hálfleik. Sport 13.10.2005 15:04