Ástin á götunni Keflavík komið yfir gegn Víkingi Keflavík hefur forystu gegn Víkingi í undanúrslitum VISA-bikars karla en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli. Jónas Guðni Sævarsson skoraði mark keflvíkinga á 22. mínútu eftir laglega sendingu frá Baldri Sigurðssyni. Sport 28.8.2006 20:38 HK með annan fótinn í úrvalsdeildinni Leiknum er lokið, 4-0, fyrir HK á Kópavogsvelli, Ólafur V. Júlíusson bætti fjórða markinu við nýkominn inn á. Hermann Geir Þórsson skoraði þriðja markið. Stefán Eggertsson skoraði annað markið en Finnbogi Llorens það fyrsta. Leikurinn var í öruggum höndum HK-inga allan tíman. Þórsarar virkuðu andlausir og ekki að sjá að þarna færi lið sem væri að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Sport 26.8.2006 17:06 3-0 fyrir HK Hermann Geir Þórsson bætti þriðja markinu við. Sport 26.8.2006 17:10
273 274 275 276 277 278 279 280 281 … 334 ›
Keflavík komið yfir gegn Víkingi Keflavík hefur forystu gegn Víkingi í undanúrslitum VISA-bikars karla en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli. Jónas Guðni Sævarsson skoraði mark keflvíkinga á 22. mínútu eftir laglega sendingu frá Baldri Sigurðssyni. Sport 28.8.2006 20:38
HK með annan fótinn í úrvalsdeildinni Leiknum er lokið, 4-0, fyrir HK á Kópavogsvelli, Ólafur V. Júlíusson bætti fjórða markinu við nýkominn inn á. Hermann Geir Þórsson skoraði þriðja markið. Stefán Eggertsson skoraði annað markið en Finnbogi Llorens það fyrsta. Leikurinn var í öruggum höndum HK-inga allan tíman. Þórsarar virkuðu andlausir og ekki að sjá að þarna færi lið sem væri að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Sport 26.8.2006 17:06
Finnbogi Llorens skorar fyrir HK Finnbogi Llorens var að skora fyrir HK-inga í fjörugum leik gegn Þór á Kópavogsvelli og staðan því orðin 1-0 fyrir HK. HK-ingar sækja hart að marki Þórsara og leika hörku sóknarbolta. Sport 26.8.2006 16:37
HK - Þór Nú stendur yfir leikur HK og Þórs í fyrstu deildinni í knattspyrnu. Takist HK-ingum að sigra eru þeir hársbreidd frá því að tryggja liðinu sæti í úrvalsdeild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Vísir mun fylgjast sérstaklega með þessum leik í dag. Sport 26.8.2006 16:05
Svíar tóku öll völd á vellinum Leik Íslands og Svíþjóðar í kvennaboltanum var að ljúka á Laugardalsvelli, 0-4 urðu lokatölur leiksins. Íslendingar léku fyrri hálfleikinn vel og áttu ekki slikið að vera marki undir í hálfleik. Í seinni hálfleik tóku Svíar hinsvegar öll völd á vellinum og lönduðu auðveldum sigri. Hannah Ljungberg systir Freddy Ljunberg lék vel fyrir Svía en náði ekki að skora. Sport 26.8.2006 15:50
0-1 í hálfleik Það er kominn hálfleikur í Laugardalnum í landsleik Íslands og Svíþjóðar í kvennaboltanum. Svíar leiða með einu marki gegn engu, Malin Monström skoraði markið úr umdeildri vítaspyrnu. Íslenska liðið hefur leikið vel það sem af er leiks og vörnin er þétt. Sport 26.8.2006 14:40
Dæmdur í tveggja leikja bann Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu, var í dag dæmdur í tveggja leikja bann vegna brottvísunar sem hann hlaut í leik Íslands og Tékklands á Laugardalsvelli á dögunum. Það verður Elísabet Gunnarsdóttir sem tekur við liðinu á meðan Jörundur tekur bannið út, en hún er þjálfari Vals og ungmennalandsliðsins. Jörundur verður því í banni í þeim tveimur leikjum sem íslenska liðið á eftir að spila í riðli sínum, hinn fyrri er gegn Svíum hér heima á morgun. Sport 25.8.2006 13:30
KR-ingar í annað sætið KR-ingar skutust í annað sæti Landsbankadeildarinnar í kvöld þegar liðið lagði ÍBV 2-0 í vesturbænum. Björgólfur Takefusa skoraði bæði mörk KR í kvöld. Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var afar óhress með leik sinna manna í kvöld og sagði þá hafa spilað eins og "helvítis lopasokka og aumingja" í fyrri hálfleiknum í viðtali við Guðjón Guðmundsson á Sýn. Sport 24.8.2006 19:52
KR hefur yfir gegn ÍBV Nú hefur verið flautað til leikhlés í viðureignunum þremur sem standa yfir í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Björgólfur Takefusa skoraði bæði mörk KR sem hefur yfir 2-0 gegn ÍBV í Frostaskjóli sem sýndur er í beinni á Sýn. Hafþór Ægir Vilhjálmsson skoraði mark ÍA sem hefur yfir 1-0 gegn Keflavík á Skaganum og markalaust er hjá Grindvíkingum og Víkingi í Grindavík. Sport 24.8.2006 18:46
Birkir í byrjunarliði ÍBV Gamla kempan Birkir Kristinsson hefur tekið fram hanskana á ný og er í byrjunarliði ÍBV sem sækir KR heim í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Birkir lagði hanskana á hilluna í fyrra, en hefur nú snúið aftur til að koma fyrrum félögum sínum í ÍBV til bjargar í markmannsvandræðum þeirra. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og hægt er að fylgjast með gangi mála í leikjum kvöldsins á Boltavaktinni hér á Vísi. Sport 24.8.2006 17:38
KR - ÍBV í beinni á Sýn Þrír leikir fara fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld, en hér er um að ræða fyrstu leikina í 15. umferðinni. Leikur KR og ÍBV verður sýndur beint á Sýn og hefst útsending klukkan 17:50 frá KR-velli. Skagamenn taka á móti Keflvíkingum á Skipaskaga og þá eigast við Grindavík og Víkingur suður með sjó. Allir leikirnir hefjast klukkan 18:00. Sport 24.8.2006 17:16
Þrír leikir í kvöld Fimmtánda umferð Landsbankadeildar karla hefst í kvöld með þremur leikjum. KR mætir ÍBV vestur í bæ, ÍA tekur á móti Keflavík og Grindavík og Víkingur mætast suður með sjó. Umferðinni lýkur síðan á sunnudag þegar FH tekur á móti Breiðablik og Valsmenn heimsækja Fylki í Árbæinn. Sport 23.8.2006 21:46
Skorað fyrir gott málefni Landsbanki Íslands, aðalstyrktaraðili efstu deildar karla- og kvenna í knattspyrnunni hér á landi, hefur í tilefni af 120 ára afmæli sínu ákveðið að hrinda af stað verkefni sem kallað hefur verið "Skorað fyrir gott málefni." Bankinn ætlar að gefa veglega fjárhæð til styrktar hjartveikum börnum fyrir hvert skorað mark í næstu umferð karla- og kvennadeildarinnar. Sport 23.8.2006 15:26
Vona að FH misstígi sig enn frekar Baldur Sigurðsson er leikmaður 14. umferðar landsbankadeildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði bæði mörk Keflavíkur í 2-1 sigri á Íslandsmeisturum FH og verið öflugur með liðinu í allt sumar. Sport 22.8.2006 21:20
Breiðablik mætir Val í úrslitum Það verða bikarmeistarar Breiðabliks sem mæta Val í úrslitum Visabikarsins í knattspyrnu eftir að liðið vann 2-0 sigur á Fjölni á heimavelli sínum í Kópavogi í kvöld. Áður höfðu Valsstúlkur lagt Stjörnuna 2-1 og það verður því sannkallaður draumaúrslitaleikur í kvennaflokki í ár. Erna B. Sigurðardóttir og Edda Garðarsdóttir skoruðu mörk Blika í kvöld. Sport 22.8.2006 19:29
Valur í úrslitaleikinn Valsstúlkur tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik Visabikarsins í knattspyrnu þegar þær lögðu Stjörnuna 2-1 í undanúrslitaleik á Valbjarnarvelli. Björk Gunnarsdóttir kom gestunum yfir í upphafi síðari hálfleiks, en þær Katrín Jónsdóttir og Rakel Logadóttur tryggðu Val sigurinn með mörkum um miðjan hálfleikinn. Sport 22.8.2006 19:13
Leikur Vals og Stjörnunnar að hefjast Leikur Vals og Stjörnunnar í undanúrslitum Visa-bikarsins í kvennaflokki er nú hafinn á Valbjarnarvelli og klukkan 17:30 hefst hin undanúrslitaviðureignin, en þar eigast við Breiðablik og toppliðið í fyrstu deild, Fjölnir. Sport 22.8.2006 17:03
Ármann Smári semur við Brann Norska liðið Brann hefur komist að samkomulagi við Íslandsmeistara FH um kaup á varnarmanninum Ármanni Smára Björnssyni og því líklegt að hann spili sinn síðasta leik fyrir FH gegn Breiðablik um næstu helgi. Ármann hefur gert þriggja ára samning við Brann, en hann hefur spilað mjög vel fyrir Íslandsmeistarana í sumar. Sport 21.8.2006 16:53
Valur og Víkingur gerðu jafntefli Valur og Víkingur gerðu markalaust jafntefli á Laugardalsvelli í kvöld í lokaleik umferðarinnar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Skemmst er frá því að segja að leikurinn var hundleiðinlegur og fengu þeir 878 áhorfendur sem borguðu sig inn á völlinn afar lítið bitastætt fyrir peninginn í kvöld. Sport 20.8.2006 21:45
Mikilvægur sigur ÍBV - Keflavík lagði FH Leikjunum þremur sem hófust klukkan 18 í Landsbankadeild karla er nú lokið. Eyjamenn unnu mikilvægan 2-1 sigur á Grindvíkingum í Eyjum, Keflvíkingar skelltu Íslandsmeisturunum 2-1 á heimavelli sínum og KRingar lögðu Blika 1-0 á útivelli. Leikur Vals og Víkings hefst nú klukkan 20. Sport 20.8.2006 19:54
Jafnt í frábærum leik í Árbænum Fylkir og ÍA skildu jöfn 3-3 í frábærum leik í Árbænum í kvöld. Skagamenn fóru afar illa að ráði sínu í síðari hálfleiknum, því Heimir Einarsson kom þeim í 3-1 á 79. mínútu leiksins. Þeir Sævar Þór Gíslason og Haukur Ingi Guðnason jöfnuðu fyrir Fylki með tveimur mörkum á tveimur mínútum. Þrátt fyrir harða sókn Fylkis á lokamínútunum, tókst þeim þó ekki að tryggja sér sigurinn og Skagamenn því heppnir að tryggja sér stig eftir að hafa verið með leikinn í höndum sér. Sport 20.8.2006 18:47
Fylkir minnkar muninn Sævar Þór Gíslason er búinn að minnka muninn í 2-1 fyrir Fylki gegn Skagamönnum í leik liðanna í Landsbankadeildinni. Sævar Þór kom inná sem varamaður fyrir Christian Christiansen í fyrri hálfleik og hefur náð að setja svip sinn á leikinn. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 20.8.2006 18:13
Skagamenn komnir í 2-0 Skagamenn eru komnir í 2-0 gegn Fylki í Árbænum í leik liðanna í Landsbankadeildinni. Bjarni Eggerts Guðjónsson skoraði annað mark Skagamanna beint úr aukaspyrnu á 32. mínútu með einstaklega glæsilegum hætti og kemur gestunum í góða stöðu. Áður hafði Guðjón Sveinsson komið Skagamönnum í 1-0. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Sport 20.8.2006 17:34
Skagamenn komnir yfir Það tók Skagamenn aðeins um 6 mínútur að ná forystunni gegn Fylki í sjónvarpsleiknum á Sýn, en þar var að verki Guðjón Heiðar Sveinsson sem skoraði eftir snarpa sókn gestanna. Hægt er að fylgjast með gangi mála í leiknum á Boltavaktinni hér á Vísi. Sport 20.8.2006 17:10
Leikur Fylkis og ÍA að hefjast í beinni á Sýn Fyrsti leikurinn af fimm í Landsbankadeild karla í knattspyrnu er nú að hefjast, en það er viðureign Fylkis og ÍA í Árbænum. Skagamenn þurfa nauðsynlega á sigri að halda í dag, enda liðið í bullandi fallbaráttu. Leikurinn er sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Sport 20.8.2006 17:00
Tap fyrir Tékkum og HM-draumurinn úti Íslenska kvennalandsliðið tapaði 4-2 fyrir Tékkum á Laugardalsvelli í dag í undankeppni HM í knattspyrnu og því ljóst að liðið kemst ekki á HM. Tékkar komust yfir strax í upphafi leiks, en eftir að íslenska liðið náði að komast yfir 2-1, hrundi leikur þess í síðari hálfleik. Sport 19.8.2006 17:59
Jafnt í hálfleik á Laugardalsvelli Nú er kominn hálfleikur í leik Íslendinga og Tékka í undankeppni HM í knattspyrnu og er staðan jöfn 2-2. Ásthildur Helgadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu mörk íslenska liðsins. Sport 19.8.2006 16:59
Fram í Landsbankadeild Fram tryggði sér í kvöld sæti í efstu deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð þegar liðið lagði Þrótt að velli 1-0 á Valbjarnarvelli. Það var Chris Vorenkamp sem skoraði sigurmark Fram um miðbik síðari hálfleiksins. Tap Þróttar gæti átt eftir að reynast liðinu afar dýrt, því liðið er nú fimm stigum á eftir HK sem er í öðru sæti deildarinnar. Sport 18.8.2006 21:02
Fyrsti sigur FH í sumar FH-stúlkur unnu í gærkvöld sinn fyrsta sigur í Landsbankadeild kvenna þegar þær lögðu lið Þórs/KA á heimavelli sínum í Kaplakrika 3-2. Sigurinn dugði FH þó ekki til að komast upp úr botnsæti deildarinnar, en liðið situr á botninum ásamt norðanliðinu með 3 stig, en hefur lakari markatölu. Sport 16.8.2006 22:14
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent