Bláa lónið
1 2 3 4 5 … 5 ›
Opna Bláa lónið þrátt fyrir hættu á gasmengun Bláa lónið opnar dyr sínar á ný á hádegi á morgun. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir ákvörðunin alfarið forsvarsmanna fyrirtækisins. Áfram sé hætta á gasmengun á svæðinu. Innlent 5.4.2024 14:50
Funda um opnun Bláa lónsins í fyrramálið Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum fundaði með forsvarsmönnum Bláa lónsins í dag og mun gera það aftur í fyrramálið til að taka ákvörðun um starfsemi lónsins. Hættuleg gasmengun hefur komið í veg fyrir opnun lónsins frá því að eldgos hófst á Reykjanesskaga í síðasta mánuði. Innlent 4.4.2024 16:01
Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar. Innlent 27.3.2024 11:57
Ekki forsvaranlegt að opna Bláa lónið að mati lögreglu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir óbreytt ástand í Grindavík og í kring og því ekki forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu á meðan eldgos er enn í gangi. Það eigi einnig við um aðra starfsemi á svæðinu. Innlent 26.3.2024 15:42
Gasmengun í Bláa lóninu í nótt Nokkur gasmengun mældist við Bláa lónið í nótt en dregið hefur úr henni nú í morgunsárið. Innlent 26.3.2024 08:27
Starfsemi í lóninu vart forsvaranleg að mati lögreglu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur vart forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu við núverandi aðstæður en hætta er talin á loftmengun vegna eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 22.3.2024 22:12
Starfsmaðurinn á batavegi og stjórnendum brugðið Starfsmaður Bláa lónsins, sem leitaði á bráðamóttöku í gær vegna öndunarfæraeinkenna af völdum gasmengunar, er á batavegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir að stjórnendum sé brugðið vegna málsins og það sé tekið alvarlega. Innlent 21.3.2024 18:45
Starfsmaður Bláa lónsins á sjúkrahús vegna gaseitrunar Starfsmaður Bláa lónsins leitaði á sjúkrahúsí gær í kjölfar eitrunareinkenna vegna gasmengunnar. Alvarleiki veikindanna liggur ekki fyrir en öryggisstjóri aðgerða í Grindavík fundar með forsvarsmönnum Bláa lónsins. Innlent 21.3.2024 15:45
Vaktin: Meiri gasmökkur nú en í öllum hinum gosunum Hraun flæðir enn frá eldgosi sem hófst milli Skógfells og Hagafells á níunda tímanum í gærkvöldi. Þó hefur dregið töluvert úr virkni og gosrennsli. Innlent 17.3.2024 06:58
Sjö hundruð manns drifu sig úr Bláa lóninu Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að rýming í Grindavík og í Bláa lóninu hafi gengið vel. Örfáir voru í bænum að hans sögn, en sex- til sjöhundruð í Bláa lóninu. Innlent 16.3.2024 22:35
Bein útsending: Enn gýs í grennd við Grindavík Eldgos hófst á milli Hagafells og Stóra-Skógfells norðan Grindavíkur klukkan 20:23 í kvöld. Örfáir Grindvíkingar yfirgáfu bæinn og Bláa lónið var rýmt með hraði. Innlent 16.3.2024 21:54
Búið að rýma í Bláa lóninu Bláa lónið í Svartsengi hefur þegar rýmt öll sín athafnarsvæði vegna eldsumbrotanna við Sundhnjúkagígaröðina nú í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu. Innlent 16.3.2024 21:30
Floyd Mayweather með dóttur sinni í Bláa lóninu Bandaríski hnefaleikakappinn Floyd Mayweather naut lífsins í Bláa lóninu nýlega. Þar var hann staddur ásamt dóttur sinni Jirah Mayweather. Lífið 7.3.2024 09:17
Bláa lónið opnað á ný Allar starfsstöðvar Bláa lónsins hafa verið opnaðar á ný eftir lokun og rýmingu síðdegis á laugardag þegar allt benti til þess að eldgos væri yfirvofandi. Innlent 4.3.2024 13:08
Eldgos líklegast á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells Minnkandi líkur eru á að kvika komi upp í tengslum við kvikuhlaupið sem hófst seinni partinn í gær. Þrátt fyrir það eru áfram auknar líkur á eldgosi og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur nú áfram. Veðurstofan telur mestar líkur á að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells. Innlent 3.3.2024 10:37
Fimm til átta hundruð manns í Bláa lóninu Unnið er að því að rýma Grindavík, Bláa lónið og svæðið í kringum Svartsengi vegna þeirrar skjálftavirkni sem tók sig upp á Sundhnúkagígsröðinni um klukkan 16 í dag. Mörg hundruð manns voru í Bláa lóninu þegar viðvörunarlúðrarnir fóru í gang. Innlent 2.3.2024 16:50
Fjárfestar virðast enn hafa „litla trú“ á viðsnúningi í rekstri Kviku Á síðustu fjórðungum hefur „fátt ef eitthvað“ fallið með rekstrinum hjá Kviku og miðað við markaðsvirði bankans, sem er með TM í söluferli, eru væntingar fjárfesta til framhaldsins „mjög hófstilltar,“ að sögn forstjóra Stoða sem telur að undirliggjandi hagnaður eigi að geta tvöfaldast. Fjárfestingafélagið, sem er ráðandi hluthafi í First Water, segir eldið hafa gengið „vonum framar“ í fyrsta fasa og útlit sé fyrir að heildarframleiðsla landeldisfyrirtækisins verði töluvert meiri en áður var talið. Innherji 28.2.2024 14:04
Svona hljómuðu viðvörunarflauturnar í Grindavík Almannavarnir prófuðu viðvörunarflautur sínar í Grindavík og við Bláa lónið í gærkvöldi klukkan 22:00. Innlent 27.2.2024 09:57
Bein útsending frá Þorbirni Veðurstofan hefur uppfært hættumat sitt fyrir umbrotssvæðin við Svartsengi og Grindavík. Kvikuhlaup hófst skammt frá Sýlingarfelli síðdegis í dag. Innlent 27.2.2024 09:30
Prófa viðvörunarlúðra í Grindavík Almannavarnir ætla að prófa viðvörunarlúðra í Grindavík og við Bláa lónið í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 26.2.2024 10:04
Bláa lónið opnar á morgun Bláa lónið opnar aftur á morgun. Opnunin mun ná til allra rekstrareininga lónsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lónsins. Viðskipti innlent 15.2.2024 18:29
Bláa lónið áfram lokað Bláa lónið verður áfram haldið lokuðu, í það minnsta út daginn í dag. Seinni partinn verður staðan síðan endurmetin á ný. Viðskipti innlent 14.2.2024 11:59
Ætla að vinna með nýjan veruleika í Bláa lóninu Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu- markaðs og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins, segir að forsvarsmenn lónsins ætli að vinna með nýjan veruleika sem eldgos á Reykjanesskaga hafi haft í för með sér. Kerfi Bláa lónsins séu innan varnargarða. Viðskipti innlent 8.2.2024 12:49
„Þetta er upplifun lífsins!“ Ferðamenn sem voru staddir á hóteli Bláa lónsins í morgun þegar það var rýmt vegna yfirvofandi eldgoss, voru himinlifandi yfir upplifuninni. Einhverjir vöknuðu við jarðskjálfta og óskuðu þess heitast að gos væri að hefjast. Innlent 8.2.2024 09:37
Viðbragðslúðrar ómuðu við Svartsengi „Við vitum að eldgosið hófst þarna um sex leytið og við vitum að það er á svipuðum stað og eldgosið sem hófst 18. desember og við vitum að þetta er alveg bara, við þekkjum þetta,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 8.2.2024 07:49
Búið að rýma Bláa lónið Öll athafnasvæði Bláa lónsins í Svartsengi hafa verið rýmd vegna skjálfta sem mældust við Sundhnjúkagígaröðina í aðdraganda eldgossins sem hófst um klukkan 6 í morgun. Innlent 8.2.2024 06:42
Lilja Dögg ráðherra er ánægð með að Bláa lónið sé opið Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir er mjög sátt við að Bláa lónið sé opið þrátt fyrir jarðhræringar á Reykjanesi. Hún segir fyrirtækið afar mikilvægt þegar ferðaþjónustan er annars vegar en þar starfa tæplega níu hundruð manns. Innlent 4.2.2024 13:30
Bláa lónið vel sótt um helgina Bláa lónið var vel sótt um helgina að sögn framkvæmdastjóra Bláa lónsins. Lónið var opnað að nýju á laugardag eftir að hafa verið lokað í flýti sunnudaginn helgina áður þegar gaus í Grindavík. Viðskipti innlent 22.1.2024 10:22
Ferðamenn óhræddir við að fara í nýopnað lónið Bláa lónið var opnað aftur í dag eftir að hafa verið lokað í flýti síðastliðinn sunnudag vegna eldgossins við Grindavík. Framkvæmdastjóri segir gleðitíðindi að starfsemi sé hafin að nýju og ferðamenn, þeir eru ánægðir. Innlent 20.1.2024 21:51
„Nýr og breyttur veruleiki sem við ætlum að lifa með“ Bláa lónið opnaði á ný í morgun eftir vikulokun. Framkvæmdastjóri sölu- rekstrar og þjónustu Bláa Lónsins.s segir enga ónotatilfinningu á meðal starfsfólks né gesta. Nýr veruleiki blasi við og ljóst að Bláa lónið muni koma til með að opna og loka á víxl næstu árin. Innlent 20.1.2024 16:31