Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Eftirvænting var fyrir fyrsta leik Eiðs Smára Guðjohnsen sem þjálfari KA, fyrsti leikur í erfiðari kantinum gegn KR. Topplið Víkings Reykjavíkur tók þá á móti Val í Reykjavíkurslag. Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins hér í fréttinni. Íslenski boltinn 24.8.2026 09:02
„Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var ánægður með að hafa sótt þrjú stig norður þegar lið hans sigraði KA 5-3 á Greifavellinum á Akureyri. Hann fór vel yfir leik dagsins skömmu eftir lokaflaut. Íslenski boltinn 23.8.2026 21:30
Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan KR vann öruggan 5-3 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í 20. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn var hin mesta skemmtun en staðan var 4-2 í hálfleik. Íslenski boltinn 23.8.2026 16:15
Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Íslenski boltinn 22.8.2026 12:01
Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Íslenski boltinn 18.8.2026 09:01
„Kýs að líta á glasið hálffullt“ Það voru blandaðar tilfinningar í huga Hallgríms Jónassonar, þjálfara KA, eftir 4-4 jafntefli liðsins gegn Val í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Heilt yfir var þó Hallgrímur frekar jákvæðari en vonsvikinn með eitt stig. Fótbolti 17. ágúst 2026 20:59
Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Valur og KA skildu jöfn, 4-4, í kaflaskiptum leik liðanna í 19. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Íslenski boltinn 17. ágúst 2026 19:54
„Komin mjög góð holning á liðið“ Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, var kampakátur með sigurinn og sáttur við varnarleikinn þegar lið hans lagði Víking að velli í fallbaráttuslag í Bestu-deild kvenna í fótbolta í kvöld. Fótbolti 14. ágúst 2026 20:32
Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Þór/KA sótti sterkan sigur þegar liðið sótti Víking heim á Heimavöll hamingjunnar í Fossvoginum í 15. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Sigurinn fjarlægir Þór/KA frá fallsvæðinu en Víkingur er í vondum málum á botninum. Íslenski boltinn 14. ágúst 2026 19:48
Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akureyri N1 mót stúlkna á Akureyri fór fram á Akureyri um síðastliðna helgi. Þetta er í annað skiptið sem mótið er haldið og mættu yfir sjö hundruð stúlkur til leiks með sínum liðum. Gleðin var við völd og tilþrifin mikil. Sýnt var frá mótinu í þættinum Sumarmótin á Sýn Sport í gær. Þáttinn má sjá í heild sinni hér. Íslenski boltinn 14. ágúst 2026 12:02
Stelpurnar tóku yfir Akureyri Það var líf á fjör á Akureyri þegar að N1 mót stúlkna fór fram og knattspyrnustjörnur framtíðarinnar léku listir sínar. Íslenski boltinn 13. ágúst 2026 12:32
„Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var ánægður með 1-0 útisigur gegn KA í botnbaráttuslag Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 9. ágúst 2026 23:00
Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ KA beið lægri hlut gegn FH á heimavelli, og er nú komið í fallsæti Bestu deildarinnar þegar átján umferðum er lokið.Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, telur frammistöðuna hafa verið fína í leiknum en liðið þurfi að vinna í sínum málum til að fara vinna leiki þar sem staðan sé erfið. Íslenski boltinn 9. ágúst 2026 22:19
„Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ Ísak Óli Ólafsson, leikmaður FH, skoraði eina mark leiksins þegar FH sótti gríðarlega mikilvægan útisigur gegn KA í átjándu umferð Bestu deildar karla. Íslenski boltinn 9. ágúst 2026 21:43
Uppgjörið: KA - FH 0-1 | Úr fallsæti og auka á þjáningar norðanmanna FH vann 1-0 sigur á KA í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Akureyri. FH fer upp úr fallsæti með sigrinum en KA fer þangað niður á móti. Íslenski boltinn 9. ágúst 2026 20:15
Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ KA tekur á móti FH í fallbaráttuslag Bestu deildarinnar í kvöld. Þjálfari KA, Hallgrímur Jónasson, gefur lítið fyrir gagnrýni á vinnuframlag leikmanna liðsins og þó hann finni fyrir tali um starfsöryggi sett hefur Hallgrímur fulla trú að því að hann sé maðurinn til að snúa gengi KA við. Íslenski boltinn 9. ágúst 2026 12:25
Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Emma Nicole Phillips stal senunni í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær er hún skoraði öll fjögur mörk Grindavíkur/Njarðvíkur gegn ÍBV. Þá Valur gífurlega mikilvægan sigur gegn Víkingi Reykjavík í botnslag deildarinnar. Öll mörk gærkvöldsins má sjá hér. Íslenski boltinn 8. ágúst 2026 11:15
„Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Karen Hulda Hrafnsdóttir, leikmaður Þór/KA, skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í 2-0 sigri á Fram í 15. umferð Bestu deildar kvenna en leikið var á VÍS-vellinum á Akureyri. Íslenski boltinn 7. ágúst 2026 21:04
Uppgjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Þór/KA vann 2-0 sigur á Fram í fimmtándu umferð Bestu deildar kvenna með tveimur mörkum í síðari hálfleik og heldur liðið þar með áfram frábærum árangri sínum á VÍS-vellinum. Síðasta tap liðsins á heimavelli kom þann 30. maí. Íslenski boltinn 7. ágúst 2026 19:52
Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni KA tapaði 3-0 fyrir Keflavík í gær og er í harðri fallbaráttu í Bestu deild karla. Albert Ingason segir að leikmenn liðsins hafi nánast kastað inn hvíta handklæðinu í leiknum í gær. Íslenski boltinn 6. ágúst 2026 12:31
Sjáðu kveðjumark Kjartans Kára fyrir FH og Keflavík klára KA á níu mínútum Sautjándu umferð Bestu deildar karla lauk í gær með tveimur leikjum. Nýliðar Keflavíkur kláruðu KA með þremur mörkum á níu mínútum og þrátt fyrir mikla yfirburði tókst KR ekki að vinna botnlið FH. Íslenski boltinn 6. ágúst 2026 10:02
Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Keflvíkingar héldu áfram góðu gengi sínu á grasinu í Keflavík með 3-0 sigri á KA í sautjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 5. ágúst 2026 19:52
„Þetta er kvikindisleg spurning“ Stúkan gerði upp sextándu umferð í Bestu deild karla í síðasta þætti sínum og sérfræðingarnir fengu einnig þrjár áhugaverðar spurningar eða umræðupunkta í lok þáttarins. Íslenski boltinn 30. júlí 2026 11:02
Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Þrettánda umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta kláraðist í gær með þremur leikjum og hér í fréttinni má sjá mörkin ellefu sem voru skoruð í leikjunum. Íslenski boltinn 30. júlí 2026 10:31
Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Breiðablik heldur í við topplið FH eftir 2-0 sigur á Þór/KA á Kópavogsvelli í 13. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 29. júlí 2026 17:17
„Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ KA-menn eru enn eitt árið búnir að leggja mikið í sitt lið í Bestu deild karla í fótbolta en sérfræðingur Stúkunnar segir uppskeruna vera hvergi nærri því sem ásættanlegt er. Íslenski boltinn 29. júlí 2026 11:02