Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, bætti markamet Bestu deildarinnar í lokaumferð er KR vann 8-3 sigur á Breiðabliki. Hann gerði tímabilið upp í lokaþætti Stúkunnar. Íslenski boltinn 26.10.2026 13:00
KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Fannar Heimisson skoraði eitt af átta mörkum KR-inga í lokaleik Bestu deildar karla um helgina og kom sér þar með í hóp með yngstu markaskorurunum í sögu efstu deildar. Íslenski boltinn 26.10.2026 06:31
Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins KR-ingar enduðu Íslandsmótið með því að skora átta mörk í fimm marka sigri á Blikum í Vesturbænum í lokaleik sínum og urðu því bæði fyrsta liðið til að skora bæði yfir áttatíu og níutíu mörk á einu tímabili í efstu deild á Íslandi. Íslenski boltinn 25.10.2026 22:32
Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn 24.10.2026 13:16
„Vonandi ekki okkar einkennismerki“ „Þetta er góð tilfinning. Við erum að vinna þriðja leikinn í röð svo við erum að ná smá skriðþunga núna. Auðvitað var þetta ekki fullkomið, það eru hlutir sem við þurfum að vinna í en við getum ekki verið annað en ánægðir með 30+ stiga sigur,“ segir Svíinn Adam Ramstedt eftir 108-74 sigur KR gegn Ármanni í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Körfubolti 22. október 2026 21:35
Svona missti Aron markið sögulega Engin formleg markanefnd er til staðar hjá KSÍ heldur var það mótasvið sambandsins sem tók ákvörðunina um að lagfæra leikskýrslu þannig að Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, missti sögulegt mark gegn Fram. Íslenski boltinn 22. október 2026 08:00
Dazia skoraði 46 stig fyrir KR KR vann þrettán stiga sigur á Ármanni, 102-89, í fjórðu umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. KR hafði tapað fyrsta leiknum á tímabilinu í leiknum á undan en komst aftur á sigurbrautina í Vesturbænum í kvöld. Körfubolti 21. október 2026 21:08
Framlengir í Vesturbænum Stefán Árni Geirsson hefur skrifað undir nýjan samning við KR til haustsins 2028. Fyrri samningur var við það að renna út. Íslenski boltinn 20. október 2026 12:01
„Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Markametið í efstu deild karla í fótbolta var til umræðu í Stúkunni á Sýn Sport í gær. Þar var staðfest að Aron Sigurðarson hefur ekki jafnað markametið líkt og talið var í fyrstu. KSÍ tók af honum mark sem hann skoraði gegn Fram á dögunum. Íslenski boltinn 20. október 2026 10:32
Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Þrír athyglisverðir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. KR tryggði annað sæti deildarinnar og í neðri hlutanum áttu sér stað óvæntar sviptingar sem breyta landslaginu fyrir lokaumferð deildarinnar. Íslenski boltinn 18. október 2026 09:00
Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti KR tryggði sér annað sætið í Bestu deild karla með dramatískum 3-2 sigri á Keflavík á HS Orku-vellinum í dag. KR-ingar komust tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en heimamenn jöfnuðu metin eftir hlé áður en Gabríel Hrannar Eyjólfsson tryggði gestunum sigurinn á 89. mínútu. Íslenski boltinn 17. október 2026 16:13
„Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Bræðurnir Arnór Ingvi og Viktor Árni Traustasynir mættust í sitt hvorum búningnum þegar KR lagði Keflavík að velli, 3–2, í Bestu deild karla í dag. Arnór Ingvi átti stóran þátt í sigri KR-inga en hann lagði upp sigurmark liðsins undir lok leiks og tryggðu KR-ingar sér þar með annað sætið í deildinni. Fótbolti 17. október 2026 15:09
Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Framtíð Bandaríkjamannsins Rashun Davis með liði KR er í lausu lofti sökum seinagangs á skrifstofu Útlendingastofnunar. Davis er farinn aftur til Bandaríkjanna og KR-ingar hafa beðið svara um landvistar- og atvinnuleyfi í rúma tvo mánuði. Körfubolti 16. október 2026 13:39
Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ Jakobi Erni Sigurðarsyni, þjálfara KR, var fyrst og fremst létt eftir 84-73 sigur liðsins á Njarðvík í Bónus deild karla í körfubolta vestur í bæ í kvöld. Segja má að fæðingin hafi verið erfið. Körfubolti 15. október 2026 21:54
Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Hinn 17 ára gamli Mattías Kjeld hefur nú útskýrt af hverju hann yfirgaf uppeldisfélagið sitt Val í vor sem endaði með því að hann sló í gegn hjá Gróttu og var keyptur til KR. Hann fékk þau skilaboð hjá Val að hugarfarið væri ekki nógu gott og að leikmenn vildu ekki hafa hann í liðinu. Íslenski boltinn 15. október 2026 21:39
Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu KR vann 84-73 heimasigur á Njarðvík í annarri umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Fæðingin var erfið gegn vængbrotnum Njarðvíkingum, en það hafðist á lokakaflanum. Körfubolti 15. október 2026 21:00
Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu 18 stiga sigur gegn KR-ingum 97-115. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Njarðvíkingar settu í annan gír í seinni hálfleik sem skilaði sigri. Uppgjör og viðtöl væntanleg. Körfubolti 12. október 2026 21:00
Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Orri Hrafn Kjartansson, leikmaður KR, lenti illa á hálsinum í leik gegn Fram um helgina. Betur fór en á horfðist en þrátt fyrir það var Orri Hrafn ósáttur með nokkra stuðningsmenn Fram. Íslenski boltinn 11. október 2026 22:26
Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Fjórir leikir voru á dagskrá í Bestu deild karla í fótbolta í gær. ÍBV féll úr deildinni, FH bjargaði sér og Akureyrarliðin heyja áfram harða baráttu. KR fór langt með að tryggja sér annað sætið. Íslenski boltinn 11. október 2026 10:17
„Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, segir að barátta og seigla hafi skilað stigunum þremur á móti Fram í rimmu liðanna í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. KR-liðið hafi í fyrsta skipti í sumar innbyrt sigur sem liðið átti sennilega ekki skilið. Íslenski boltinn 10. október 2026 22:43
„Þetta var alltaf mitt mark“ Áhöld eru um hvort Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, hafi skorað fyrra mark liðsins þegar liðið vann Fram í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld og þar af leiðandi jafnað markamet Benónýs Breka Andréssonar í efstu deild. Fótbolti 10. október 2026 22:39
Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti KR náði fjögurra stiga forskoti á Fram í baráttu liðanna um annað sæti Bestu-deildar karla í fótbolta með 2-1 sigri í leik liðanna í 25. umferð deildarinnar á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld. Íslenski boltinn 10. október 2026 21:12
„Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Mikil barátta er um annað sætið í Bestu deild karla og mætast liðin í þeirri baráttu í kvöld. KR er sem stendur í öðru sæti deildarinnar en liðið fer í heimsókn til Fram í kvöld þar sem Framarar eru einu stigi fyrir neðan KR í þriðja sætinu. Íslenski boltinn 10. október 2026 09:32
„Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var sáttur við kafla í leik sinna manna þegar liðið bar sigurorð af Grindavík í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Seinni hálfleikurinn og tempóið þar hafi verið meira að hans skapi. Körfubolti 9. október 2026 22:36
Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur KR fór með sigur af hólmi þegar liðið sótti ríkjandi Íslandsmeistara, Grindavík, heim í HS Orku-höllina í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Körfubolti 9. október 2026 21:36