„Ég er oftast mjög rólegur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. október 2026 21:57 Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, er hér áhyggjufullur á svip en hann segir stressið ekki hafa verið sérlega mikið á spennandi lokakafla. Vísir/Anton Brink Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var ánægður með 107-102 sigur sinna manna á Sindra í fjórðu umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. KR leiddi mest með tuttugu stigum en leikurinn réðist ekki fyrr en á lokasekúndum. „
Þetta var bara mjög jafnt hérna í lokin. Við vorum komnir með gott forskot en misstum það niður. Sindri gerði rosalega vel í því að koma til baka. Við réðum náttúrulega bara ekkert við bakvörðinn hjá þeim, Kaleb,“ segir Jakob Örn eftir leik og þar er engu logið. Kaleb Wiggins setti heil 47 stig og var aðeins einu frákasti frá þrefaldri tvennu í ofanálag. En hvað skilaði KR sigrinum? „Bara það að hafa spilað vel í öðrum og þriðja leikhluta og að hafa náð að byggja upp svolítið forskot. Það er alltaf gott en getur verið hættulegt þegar forskotið fer að minnka og minnka. Það getur myndast svolítið stress en við gerðum vel í lokin, Roberts setti stóran þrist fyrir okkur og settum svo vítin okkar. Það er líka bara gott próf að geta klárað svona leiki,“ segir Jakob sem segist ekki hafa verið sélega stressaður. „Taugarnar voru bara ágætar. Ég er oftast mjög rólegur. Ég hef séð þetta allt áður.“ KR er eftir sigur kvöldsins með fullt hús eftir fjóra leiki. Þeir hafa unnið Grindavíkurlið sem var enn að púsla sér saman í upphafi móts, meiðslum hrjátt lið Njarðvíkur, auk heimasigra á Ármanni og Sindra. Hafa KR-ingar verið heppnir með uppröðun leikja í upphafi móts? „Við höfum klárlega átt auðveldara prógram en mörg önnur lið í deildinni. Það segir sig sjálft. Hálft Grindavíkurlið, hálft Njarðvíkurlið og svo heimaleikir við Ármann og Sindra. En það þarf að vinna þessa leiki. Við höfum oft flaskað á því áður sjálfir að tapa svona leikjum sem mér finnst við eigum að vinna. Það er sterkt að ná í þessa sigra. Þeir munu skipta máli í lokin og núna koma bara fullmönnuð lið og betri lið og við þurfum að mæta klár gegn þeim og sjá betur hvar við stöndum,“ segir Jakob en KR sækir annað taplaust lið í Álftanesi heim í næstu umferð.
KR Bónus-deild karla Körfubolti Sindri Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Leik lokið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Sjá meira