Lífið

Fréttamynd

PSP verður bleik

Sony Computer Entertainment í Evrópu (SCEE) hefur tilkynnt um nýja tölvu í PSP fjölskyldunni eða bleika PSP. Útgáfa tölvunnar er gerð í samvinnu við metsölu listamanninn P!nk.

Lífið
Fréttamynd

Útimarkaður í Álafosskvos

Varmársamtökin standa fyrir útimarkaði í Álafosskvos í tengslum við hátíðina Í túninu heima laugardaginn 26. ágúst kl. 11-17. Á boðstólum verður allt milli himins og jarðar svo sem ferskt grænmeti frá Dalsgarði, Reykjum og Sólheimum; heimalöguð sulta, chutney og kryddolíur.

Lífið
Fréttamynd

Síðustu stofutónleikarnir

Sunnudaginn 27. ágúst er komið að síðustu tónleikunum í stofunni á Gljúfrasteini í sumar. Það er enginn annar en Jónas Ingimundarson, píanóleikari sem lýkur þessari stofutónleikaröð með því að leika á flygilinn. Á efnisskránni verða verk eftir Mozart og Schumann.

Lífið
Fréttamynd

Kvennakór Öldutúns hefur sitt annað starfsár

Kórinn býður nýja meðlimi velkomna og vill bæta við sig fólki. Hvetur stjórnandinn alla sem áhuga hafa úr, röðum starfsfólks eða foreldra, að hafa samband. Þetta er góð leið til að læra söngtækni, og að þjálfa hlátursvöðvana, því það er mikið hlegið á æfingum.

Lífið
Fréttamynd

Fyrsta lagið frá Lay Low

Nú er komið út fyrsta lagið hjá listakonunni Lay Low. Lagið er titillag hennar fyrstu plötu og ber hið skemmtilega nafn, “Please don’t hate me”. Upptökur á plötunni sjálfri eru langt á veg komnar og er áætlaður útgáfudagur þann 20. september næstkomandi.

Lífið
Fréttamynd

Miðasala að hefjast

Miðasala á stórtónleika Björgvins Halldórssonar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefst næsta föstudag, 25. ágúst, kl. 10:00 á öllum sölustöðum. Miðasalan er í höndum Miða.is og er fram á www.midi.is, www.bravo.is, í verslunum Skífunnar og verslunum BT á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Einnig er hægt að kaupa miða í síma 580-8020.

Lífið
Fréttamynd

Matt Dillon og Marisa Tomei væntanleg til landsins

Stórstjörnurnar Matt Dillon og Marisa Tomei koma til Íslands í næstu viku í tilefni af opnun Iceland film festival þann 30. ágúst. Einnig er það staðfest að opnunarmynd hátíðarinnar er kvikmyndin Factotum eftir norska leikstjórann Bent Hamer, en þau Matt og Marisa leika aðalhlutverkin í þessar splunkunýju og stórgóðu mynd.

Lífið
Fréttamynd

Klúbbakvöld á Broadway

Hinir einu sönnu Josh Gabriel og Dave Dresden, eða dúóið Gabriel & Dresden, ætla að trylla dansþyrsta íslendinga á Broadway föstudaginn 25. ágúst. Plötusnúðarnir, sem eru frá San Francisco, hafa slegið í gegn um heim allan og hafa þeir tekið ákvörðun að koma til íslands og spila á Flex Music kvöldi á Broadway.

Lífið
Fréttamynd

Geitur og kirkjukaffi

Kirkjuhúsið, Laugavegi 31, verður opið frá 14.00 – 22.00 á Menningarnótt. Þar munu Hjálparstarf kirkjunnar, Skálholtsútgáfan og Biskupsstofa bjóða upp á kirkjukaffi og léttar veitingar um leið og starfið verður kynnt með lifandi hætti.

Lífið
Fréttamynd

Símon leikur á Gljúfrasteini

Á sunnudaginn er komið að næst síðustu tónleikum sumarsins á Gljúfrasteini. Að þessu sinn i mun gítarleikarinn Símon H. Ívarsson leika blóðheita og suðræna tóna, ættaða frá Andalúsíu á Spáni. Verkin á efnisskránni eru eftir nokkur af helstu tónskáldum Spánverja, þá Gaspar Sanz, E. Granados, Manual de Falla og Isack Albeniz

Lífið
Fréttamynd

Þrjár Idol stjörnur skemmta gestum

Laugardaginn 19. ágúst ætla Idolstjörnunar Bríet Sunna, Ingó og hvíti kóngurinn sjálfur,Snorri, að taka lagið í aðalútibúi KB banka við Austurstræti 5. Krakkarnir hafa haft nóg að gera síðan Idolinu lauk og hafa heldur betur stimplað sig inn í íslenskt tónlistarlíf.

Lífið
Fréttamynd

Greifarnir á Salatbarnum og Players

Hljómsveitin Greifarnir verður með tónleika á Players Kópavogi á menningarnótt eftir miðnætti. Greifarnir munu leika öll sín gömlu og góðu lög sem allir þekkja í bland við nýtt efni sem væntanlegt er frá hljómsveitinni með haustinu. Þess má geta að Greifarnir munu hita upp fyrir kvöldið með því að taka lagið órafmagnaðir á Salatbarnum Faxafeni 9, í hádeginu.

Lífið
Fréttamynd

Unglingar vega og meta íslenska list

Elstu nemendur Vinnuskóla Reykjavíkur fengu í sumar menningarfræðslu í Hafnarhúsinu. Unglingarnir skoðuðu ólík listform og reyndu aðstandendur fræðslunnar að leiða þeim fyrir sjónir miklivægi lista í daglegu lífi.

Lífið
Fréttamynd

Hljómsveitin Miri stígur á stokk

Hljómsveitin Miri leikur í dag á hljómleikum í gallerí humar & frægð kl. 17. Klukkan 21.00 hefjast svo tónleikar í tónleikaröð Smekkleysu og Reykjavík Grapevine ásamt Lödu Sport og Bertel. Þeir tónleikar verða haldnir á Amsterdam og kostar 500 kr. inn.

Lífið
Fréttamynd

Sólarhliðarnar á Stígamótum

Menningardagskrá Stígamóta verður kærkomin tilbreyting frá hefðbundinni starfsemi í húsinu. Áherslan verður á sólarhliðarnar í samskiptum fólks og allt tal um ofbeldi og svik sem þrífast í skugga samfélagsins verður lagt til hliðar.

Lífið
Fréttamynd

Íslensk tónlist á Public Service hátíðinni

Apparat Organ Quartet, Trabant, Unsound auk plötusnúðanna Margeirs og Alfsons X munu koma fram á tónlistarhátíðinni Public Service í miðborg Kaupmannahafnar nú um helgina á vegum Iceland Airwaves og Icelandair.

Lífið
Fréttamynd

Mín dagskrá á menningarnótt

Nýr dagskrárvefur menningarnætur hefur nú verið opnaður á slóðinni www.menningarnott.is. Vefnum er ætlað að bæta aðgengi að þeim viðburðum sem í boði eru á Menningarnótt og auðvelda fólki að setja saman sína eigin dagskrá til að taka með í miðborgina.

Lífið
Fréttamynd

Andóf og æskufjör

Næstkomandi fimmtudag, 17. ágúst, er komið að síðustu kvöldgöngu sumarsins. Að þessu sinni er um að ræða óvissugöngu í boði Borgarbókasafns, Listasafns Reykjavíkur, Ljósmyndasafns Reykjavíkur og Minjasafns Reykjavíkur.

Lífið
Fréttamynd

Menningarnótt á Þjóðminjasafninu

Dagskrá Menningarnætur í Þjóðminjasafninu er tileinkuð konum sem ekki eru alltaf mjög sýnilegar. Dagskráin verður mest á blíðlegum nótum þótt stöku tröllskessa stingi upp kollinum.

Lífið
Fréttamynd

Listaport á menningarnótt

Fjölbreytt dagskrá verður í portinu á bakvið BSRB-húsið allan laugardaginn á menningarnótt í Reykjavík. Það eru félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir sem staðsett eru við portið, þar á meðal BSRB og aðildarfélögin í BSRB-húsinu, sem standa að þessu.

Lífið
Fréttamynd

Ástin blómstrar í Bolungarvík

Nú stendur yfir Ástarvika í Bolungarvík en hún hófst á sunnudaginn 13. ágúst og lýkur á laugardaginn 19. ágúst. Í þessari viku svífur rómantíkin yfir vötnum í Bolungarvík og bæjarbúar geisla af ást og hamingju.

Lífið
Fréttamynd

Bætist við dagskrá Iceland Airwaves

Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves, sem fram fer í miðborg Reykjavíkur daganna 18-22 október, er óðum að taka á sig mynd. Þegar er búið að tilkynna um 70 listamenn og hljómsveitir sem koma munu fram á hátíðinni og nú eru kynntir til leiks tæplega 30 flytjendur til viðbótar.

Tónlist
Fréttamynd

Ljósmyndasýning í Kaupmannahöfn

Föstudaginn 18. ágúst klukkan 14:00 verður opnun á ljósmyndasýningu í Gallerí Ásdís í Klösterstræde 14 (hliðargata á Strikinu) í Kaupamannahöfn með myndum eftir Frímann Frímannsson frá Akureyri.

Lífið
Fréttamynd

Evrópskar verðlaunamyndir á Menningarnótt

Þrjár evrópskar verðlaunadansmyndir sem vakið hafa verðskuldaða athygli langt út fyrir raðir dansáhugafólks, verða frumsýndar hér á landi á Menningarnótt í Reykjavík. Sýningarnar verða í Tjarnarbíói kl. 14.00 og 16.30 og í versluninni 12 tónum á Skólavörðustíg kl. 18.00 til 22.00

Lífið
Fréttamynd

Mannlíf - minjar og menning í Garðinum

Menningar- og sögutengd ganga og fræðsla um Garð verður farin laugardaginn 19. ágúst. Gangan hefst við Íþróttahúsið kl. 11:00 og er liður í dagskrá Sólseturshátíðarinnar í Garði.

Lífið
Fréttamynd

Íslenska óperan gerir samstarfssamning

Sparisjóðurinn í Keflavík er einn af traustustu samstarfsaðilum Íslensku óperunnar og hefur um árabil lagt fram ákveðna fjárupphæð til stuðnings starfsemi hennar.

Lífið
Fréttamynd

Björgvin í Laugardalshöllina

Laugardaginn 23. september kl. 20:00 verður efnt til sannkallaðra stórtónleika í Laugardalshöll þar sem Björgvin Halldórsson flytur úrval laga úr efnisskrá sinni ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands, Fóstbræðrum, Hljómsveit Björgvins, bakröddum og nokkrum landsþekktum gestum.

Lífið
Fréttamynd

Uppskera og handverk sett

Uppskera og Handverk 2006 að Hrafnagili sett í gær með viðhöfnBjarni Kristjánsson sveitarstjóri setti sýninguna og Jón Marinó Jónsson sagði sögu einnar fiðlu. Þar á eftir var frumflutningur á fiðlu Jóns Marinós.

Lífið
Fréttamynd

Söngur og orgel í Reykholtskirkju

Fimmtu tónleikarnir af sjö í orgeltónleikröð Reykholtskikrju og FÍO verða haldnir sunnudaginn 13. ág. kl. 17.00. Þá syngur Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir sópransöngkona og Jón Ólafur Sigurðsson, organisti Hjallakirkju í Kópavogi leikur á orgelið. Þetta eru fyrst og fremst söngtónleikar þar sem lögð er áhersla á að sýna orgelið sem undirleikshljóðfæri.

Lífið