Lífið

Fréttamynd

Dvelur í Jemen í sex mánuði

Útvarpsmaðurinn Sveinn H. Guðmarsson flýgur til Jemens í næstu viku þar sem hann mun starfa í hálft ár sem upplýsingafulltrúi fyrir Unicef, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, í gegnum íslensku friðargæsluna.

Lífið
Fréttamynd

McGregor í Don Kíkóta

Skoski leikarinn Ewan McGregor hefur ákveðið að fara með aðalhlutverkið í nýrri mynd um Don Kíkóta. Leikstjóri verður Terry Gilliam. Johnny Depp ætlaði upphaflega að leika í myndinni en hætti við fyrr á þessu ári og ætlar þess í stað að leika í fjórðu Pirates of the Caribbean-myndinni.

Lífið
Fréttamynd

Neistarnir flugu við tökur Wall Street

Shia LaBeouf og Carey Mulligan eru byrjuð saman. Leikstjórinn Oliver Stone segir það sér að þakka en þau kynntust við tökur á kvikmyndinni Wall Street: Money Never Sleeps.

Lífið
Fréttamynd

Ekki meiri Edward

Leikarinn Robert Pattinson, sem þekktastur er fyrir að leika vampíruna Edward Cullen, hefur sýnt áhuga á að leika í væntanlegri kvikmynd sem gerð verður eftir metsölubókinni Kill Your Friends.

Lífið
Fréttamynd

Aska ógnar opnun sundlaugar í Eyjum

Einstök trampólínrennibraut, þreföld hraðrennibraut, klifurveggur, nuddpottar og vaðlaug eru meðal þess sem prýðir nýtt sundlaugarsvæði í Vestmannaeyjum.

Lífið
Fréttamynd

Askan sendir Lindsay í steininn

Eyjafjallajökull heldur áfram að hrella stórstjörnur enda hefur askan frá eldgosinu sett flugsamgöngur úr skorðum undanfarna daga. Lindsay Lohan gæti verið í vondum málum.

Lífið
Fréttamynd

Sálmar frá suðurríkjum

Sungið verður Guði til dýrðar í Garðakirkju í kvöld. Þá mun tríó skipað þeim Gerði Bolladóttur, sópran, Sophie Schoonjans, hörpuleikara og Victoriu Tarevskaia, sellóleikara, flytja trúarsöngva bandarískra blökkumanna.

Lífið
Fréttamynd

Diktu-menn brosa hringinn

„Menn bara brosa hringinn og hafa gaman,“ segir Nonni kjuði, eða Jón Þór Sigurðsson, trommari Diktu. Hljómsveitin hefur fengið gullplötu afhenta fyrir að hafa selt plötu sína Get It Together í yfir fimm þúsund eintökum. Alls hafa sjö þúsund eintök verið framleidd og búast má við því að þau rjúki út eins og heitar lummur á næstunni.

Lífið
Fréttamynd

Fyrsta hjákona Tigers í Playboy

Rachel Uchitel, fyrsta hjákona Tigers Wood af fjölmörgum, ætlar að fækka fötum fyrir karlatímaritið Playboy. Óvíst er hvenær myndirnar birtast, en samkvæmt fréttamiðlinum TMZ hefur hún þegar gert samning við Playboy um myndatökuna.

Lífið
Fréttamynd

Bedroom Community: fimm stjörnur

Valgeir Sigurðsson, Ben Frost, Nico Muhly og Sam Amidon rugluðu saman reitum sínum á áhrifamikinn og eftirminnilegan hátt í Þjóðleikhúsinu á sunnudagskvöldið.

Lífið
Fréttamynd

Hera Björk baðst afsökunar á öskunni

Fyrsta æfing íslenska Eurovision-hópsins fór fram í Telenor-höllinni í Osló í gær. Hera klæddist Eurovision-kjólnum sem er rauður að lit og góður rómur var gerður að flutningi hópsins. Hera var sjálf ákaflega ánægð með flutninginn þegar Fréttablaðið náði tali af henni skömmu eftir að hún var laus úr klóm eldheitra Eurovision-blaðamanna.

Lífið
Fréttamynd

Keyptu Alþjóðahúsið á Hverfisgötu fyrir Bar 11

Össur Hafþórsson, eigandi Reykjavík Ink og skemmtistaðanna Sódómu og Ellefunnar, keypti nýverið húsnæðið sem áður hýsti Kaffi Cultura á Hverfisgötu og stendur til að færa hinn goðsagnakennda Bar 11 þangað yfir.

Lífið
Fréttamynd

Sarínó-sirkusinn frumsýndur

Fjölskyldusöngleikurinn Sarínó-sirkusinn verður frumsýndur á litla sviði Borgarleikhússins í kvöld klukkan 19. Önnur sýning verður á morgun og er uppselt á þær báðar. Söngleikurinn er hluti af listahátíðinni List án landamæra sem hefur verið í fullum gangi frá mánaðamótum víða um land.

Lífið
Fréttamynd

Tinna frumflytur verk á raflistahátíð

Píanóleikarinn Tinna Þorsteinsdóttir frumflytur verkið Sonorities II á raflistahátíðinni Raflost á miðvikudagskvöld. Verkið, sem er eftir Magnús Blöndal Jóhannsson, er frá árinu 1968 og er því um merkisflutning að ræða.

Lífið
Fréttamynd

Jessica vill leggina frá Gisele

Leikkonan Jessica Alba hefði ekkert á móti því að vera með leggi eins og brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen. Hún segist engu að síður vera ánægð með líkamann sinn.

Lífið
Fréttamynd

Naomi leikur Marilyn í myndinni Blonde

Leikkonan Naomi Watts ætlar að leika þokkagyðjuna Marilyn Monroe í nýrri kvikmynd um leikkonuna. Myndin nefnist Blonde, eða Ljóska, og hefjast tökur í janúar.

Lífið
Fréttamynd

Viðurkennir framhjáhald

Leikarinn David Boreanaz, sem fer með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Bones, hefur komið fram og viðurkennt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni til níu ára.

Lífið