Dýraheilbrigði
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 20 ›
N1 selur límgildrur sem óheimilt er að nota Fyrirtækið N1 selur sérstakar límgildrur sem Matvælastofnun hefur sagt að samræmist ekki lögum um dýravelferð. Samkvæmt lögunum er óheimilt að beita aðferðum við aflífun dýra, sem valda þeim óþarfa limlestingum eða kvölum. Viðskipti innlent 15.1.2022 16:54
Nær 300 svartfuglar fundist dauðir á Suðausturlandi Á dögunum fannst mikill fjöldi svartfugla dauður á Suðausturlandi. Matvælastofnun hefur ákveðið að láta rannsaka sýni úr fuglunum á Tilraunastöð HÍ að Keldum, meðal annars með tilliti til fuglaflensu. Innlent 13.1.2022 06:36
Segja ólíklegt að fuglaflensa hafi valdið fjöldadauða svartfugla hér á landi Matvælastofnun mun koma til með að senda sýni til rannsóknar úr fjölda svartfugla sem fundust dauðir á Suðausturlandi en þar verður meðal annars kannað hvort um fuglaflensa hafi valdið dauða fuglanna. Mikið er um fuglaflensu í Evrópu um þessar mundir, bæði í villtum fyglum og alifuglum. Innlent 12.1.2022 16:08
Matvælastofnun rannsakar dularfullan hósta meðal hunda á höfuðborgarsvæðinu Matvælastofnun hefur sett af stað rannsókn í samvinnu við Tilraunastöð Háskólans á Keldum til að reyna að komast til botns í því hvað veldur hósta hjá hundum sem hefur gert vart við sig á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. Innlent 11.1.2022 09:50
Bandarískur fræðimaður lýsir upplifun sinni af blóðmerahaldi á Íslandi „Sumar merarnar voru alræmdar fyrir mótstöðu sína og brutu stundum básana við að reyna að kasta sér yfir hliðið. Harpa, grá meri sem kom oft út ötuð í blóðslettum, var fræg fyrir þann hæfileika sinn að geta kastað sér niður á hliðina í litlum básnum.“ Innlent 11.1.2022 08:47
Álitsgerð um heildarblóðmagn íslenska hestsins, magn og tíðni blóðtöku og möguleg áhrif hennar á fylfullar hryssur, út frá sjónarmiðum dýralæknavísinda og dýraverndar Með þessari greinargerð viljum við taka afstöðu til ákveðinna grundvallaratriða varðandi blóðmerahald á Íslandi. Við beinum sérstaklega sjónum okkar að blóðmagninu sem tekið er úr hryssunum, en það fer langt fram úr þeim reglugerðum um blóðtöku sem gilda í Sviss, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Skoðun 8.1.2022 15:01
MAST lýkur rannsókn á meðferð blóðtökuhryssa og vísar til lögreglu Matvælastofnun (MAST) hefur lokið rannsókn sinni á meintri illri meðferð á blóðtökuhryssum sem sást í myndbandi sem birt var af erlendum dýraverndunarsamtökum. Hefur málinu nú verið vísað til lögreglu ásamt fyrirliggjandi gögnum. Innlent 7.1.2022 14:57
Búin að skipa starfshóp til að skoða blóðmerahald Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að fjalla um blóðtöku á fylfullum hryssum. Mun hópurinn hefja störf á næstu dögum en honum er ætlað að skoða starfsemina, regluverkið og eftirlitið í kringum hana. Innlent 3.1.2022 15:27
Ánægður með að teljast flugeldaóvinur númer eitt Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari, sem stundum er kallaður Stjörnu-Sævar, segir það vonbrigði að flugeldar seljist nú sem aldrei fyrr. Hann veltir fyrir sér því hvort vert sé að setja kvóta við flugeldakaupum. Innlent 30.12.2021 14:03
Dýragarði lokað eftir að úlfar sluppu út Dýragarði í Suður-Frakklandi hefur verið lokað tímabundið eftir að níu úlfum tókst að sleppa út fyrir girðingu í garðinum. Garðurinn var opinn þegar atvikið átti sér stað en engan sakaði. Erlent 25.12.2021 08:55
Veiruskita herjar á kýr Veiruskita í kúm hefur geisað á Eyjafjarðarsvæðinu að undanförnu og virðist nú vera farin að stinga sér niður í Þingeyjarsýslum og á Héraði. Biðlað er til bænda að huga að sóttvörnum til að forðast að fá smitið inn á kúabú. Innlent 20.12.2021 14:01
Koma upp eftirlitsmyndavélum hjá blóðbændum Framkvæmdastjóri Ísteka segir að líftæknifyrirtækið hafi nú hrint af stað umbótaáætlun vegna frétta sem komu fram í síðasta mánuði um illa meðferð á blóðmerum. Framvegis verði tekið upp myndavélaeftirlit hjá blóðbændum sem fyrirtækið skiptir við og þá ætli Ísteka sér að auka fræðslu til bænda. Innlent 19.12.2021 21:10
Ekkert á Ísteka og MAST að treysta – Annar alvarlegur skuggi á blóðmerahaldi Vegna laga um dýravernd og dýravelferð fer almennt blóðmerahald ekki fram í öðrum evrópskum löndum, enda sæta fylfullar eða mjólkandi hryssur þar víðast sérstakri vernd, vegna þess viðkvæma líkamlega og andlega ástands, sem þær eru í. Skoðun 18.12.2021 15:01
Á annan tug umsagna vegna stækkunar áforma Ísteka Þrettán umsagnir hafa borist Umhverfisstofnun (UST) vegna tillögu að starfsleyfi fyrir stækkun Ísteka, fyrirtæki sem vinnur frjósemisaukandi hormón úr blóði hryssa (eCG) og rekur blóðmerabújarðir hér á landi. Fréttastofu er kunnugt um að fleiri umsagnir séu í vinnslu, en frestur til að skila inn athugasemdum rennur úr 22. desember. Innlent 17.12.2021 11:01
Blóðmerahald – Hvað segja vísindin? Markmiðið með þessari grein er að sýna fram á það á vísindalegum grunni að blóðtaka úr fylfullum hryssum ein og sér er dýraníð. Óháð meðhöndlun, meðferð eða nýtingu afurða. Skoðun 16.12.2021 07:30
Ætlar Landssamband hestamanna að hygla illri meðferð á hestum? Undanfarin ár hefur verið aukin vakning á meðal hestamanna hvað varðar velferð hesta og bæting verið á mörgum sviðum í þágu velferðar hesta. Mikilvægt er að sú þróun haldi áfram innan hestaíþróttarinnar. Skoðun 14.12.2021 14:00
Mörg hundruð blóðmerar í eigu Ísteka Ísteka, fyrirtækið sem framleiðir frjósemislyf úr merablóði einkum fyrir svínarækt erlendis, rekur sjálft þrjár starfsstöðvar (bújarðir) þar sem blóðtaka er stunduð og átti 283 hryssur sem voru í blóðtöku á þessu ári, 2021. Innlent 13.12.2021 09:00
Bannað að nota lím- og drekkingargildrur Notkun límbakka og drekkingargildra brjóta gegn ákvæðum laga um velferð dýra og það er óheimilt að bera út eitur eða nota músagildrur fyrir hagamýs utanhúss. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun vegna frétta um óvanalega mikinn músagang. Innlent 13.12.2021 07:40
Skipar starfshóp til að fjalla um blóðmerahald Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á efninu eCG, frjósemislyfja handa dýrum. Innlent 9.12.2021 14:45
„Þetta er bara vægast sagt hræðilegt fyrir orðspor okkar“ Eftir miklar umræður um fjárlagafrumvarp og tekjufrumvörp ríkisstjórnarinnar undanfarna daga áttu stjórnarandstöðuþingmenn sviðið á Alþingi í dag. Innlent 8.12.2021 23:06
Ísteka riftir samningum við þá bændur sem birtust í myndskeiðinu Líftæknifyrirtækið Ísteka hefur rift samningum við bændur sem sýndir voru fara illa með hross við blóðtöku í myndskeiði sem fór í dreifingu á dögunum og vakti mikla athygli. Innlent 8.12.2021 12:37
Ekkert spurt um aðbúnað dýra í útlöndum Formaður Bændasamtakanna segir íslenska neytendur ekki hafa hugmynd um hvernig farið er með þau dýr í útlöndum og við hvernig aðbúnað þau lifa þegar kjöt af gripunum eru flutt inn til Íslands. Hann krefst þess að sömu kröfur verði gerðar til innfluttra matvæla eins og gert er til innlendrar matvælaframleiðslu þegar aðbúnaðarreglugerð dýra er annars vegar. Innlent 5.12.2021 13:16
Skyndiákvörðun gæti stefnt velferð þúsunda hryssna í voða Matvælastofnun er enn með til rannsóknar ábendingar um aðbúnað blóðtökuhryssna sem hafa mikið verið til umfjöllunar að undanförnu. Stofnunin segist taka ábendingum um brot mjög alvarlega. Mikilvægt sé að heildstæð umræða fari fram en ekki sé hægt að grípa til skyndilausna. Innlent 2.12.2021 11:42
Nýtt frumvarp um bann við blóðmerahaldi lagt fram Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, lagði í gær fram á Alþingi nýtt frumvarp um bann við blóðmerahaldi með breytingu á lögum um velferð dýra. Inga segir að nýbirt myndband alþjóðlegra dýraverndarsamtaka um búgreinina á Íslandi sýni harkalega meðferð hryssa við blóðtöku og að velferð þeirra sé ekki gætt. Innlent 2.12.2021 10:08
Óboðlegt að dýr fái ekki hjálp Formaður Dýralæknafélags Íslands segir það ekki boðlegt að dýraeigendur sem reyni að ná í lækni vegna veiks dýrs fái ekki hjálp. Fjármagn skorti til þess að halda úti aukinni neyðarþjónustu dýralækna. Innlent 29.11.2021 22:07
„Það er skelfilegt að vera með slasað dýr í höndunum og geta ekkert gert“ Kona sem reyndi ítrekað að ná í neyðarnúmer dýralækna um síðustu helgi þegar hundur hennar slasaðist alvarlega kallar eftir svörum frá Matvælastofnun. Hún segir óásættanlegt að fólk þurfi að horfa upp á dýr sitt þjást. Varaleið þurfi að standa til boða ef neyðarvakt svarar ekki. Innlent 28.11.2021 21:04
Reyndu ítrekað að ná í neyðarvakt dýralækna án árangurs Dæmi komu upp um síðustu helgi þar sem ekki náðist í neyðarnúmer dýralækna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Héraðsdýralæknir hjá Matvælastofnun segir að málið sé til skoðunar en segir gríðarlega mikið álag á vöktunum mögulega skýringu. Innlent 28.11.2021 12:30
Segir traustið til Ísteka brostið Forsendur sem settar hafa verið um blóðmerabúskap hefur ekki verið fylgt eftir að mati Sveins Steinarssonar formanns Félags hrossabænda. Það valdi því að traust til fyrirtækisins Ísteka sé brostið, en það kaupir allt blóð til framleiðslu frjósemislyfs sem notað er í ræktun búfjár erlendis. Innlent 26.11.2021 17:09
Grunur um blóðþorra í fyrsta skipti á Íslandi Rökstuddur grunur er um blóðþorra, svonefnda ISA-veiru, í laxi í sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Veiran uppgötvaðist við krufningu og sýnatöku í kjölfar vaxandi óútskýrðra affalla í sjókví númer sjö hjá Löxum. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir fyrirtækið komið með þykkan skráp fyrir áföllum. Innlent 26.11.2021 15:20
Mannúðlegt og dýravænt blóðmerahald er ekki til! Á dögunum dreifðu dýraverndunarsamtökin AWF, Þýzkalandi, og TSB, Sviss, viðamikilli skýrslu, ásamt myndbandi, um blóðmerahald á Íslandi, en þessi samtök höfðu unnið að rannsókn blóðmerahalds hér frá 2019. Skoðun 26.11.2021 09:32