Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
162 163 164 165 166 167 168 169 170 … 334 ›
Sektirnar verði alltaf hærri en kostnaður við að útvega sér vottorð Frá og með deginum í dag þurfa farþegar sem koma hingað til lands að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi við komuna ásamt því að fara í tvöfalda skimun. Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli, segir vinnuna tímafreka en dagurinn í dag hafi gengið vel. Innlent 19.2.2021 19:23
Elsti hópurinn boðaður í seinni bólusetningu Allir þeir sem eru níutíu ára og eldri eru boðaðir til seinni bólusetningar gegn kórónuveirunni á þriðjudag. Þeir sem misstu af fyrri bólusetningunni geta einnig mætt til að fá hana. Innlent 19.2.2021 19:21
Hundrað þúsund dánir í Afríku vegna Covid-19 Fjöldi þeirra sem hafa dáið vegna Covid-19 í Afríku er kominn yfir hundrað þúsund, svo vitað sé. Ráðamönnum heimsálfunnar hefur verið hrósað fyrir góð viðbrögð við upphaflegu flóðbylgju heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, en ný bylgja virðist nú ganga þar yfir. Erlent 19.2.2021 16:18
Loka öllum skólum í Kolding og senda alla eldri en tólf ára í skimun Ríkisstjórn Danmerkur hefur fyrirskipað að loka skuli öllum skólum og stofnunum í bænum Kolding á Jótlandi eftir að mikill fjöldi fólks hefur greinst með kórónuveiruna síðustu daga. Erlent 19.2.2021 14:56
Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Sá sem greindist var í sóttkví við greiningu. Smitið er það fyrsta sem greinist hér á landi í eina viku. Innlent 19.2.2021 10:36
Fleiri mega fara á skíði og veitingasala heimiluð Embætti landlæknis og sóttvarnalæknir hafa gefið út nýjar reglur á skíðasvæðum landsins sem taka gildi í dag. Nú mega skíðasvæðin taka við 50 prósent af móttökugetu svæðisins en leyfilegt hlutfall var áður 25 prósent. Innlent 19.2.2021 10:23
Þórólfur segir ósanngjarnt að sekta próflausa fyrst um sinn Hertar aðgerðir á landamærunum sem Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, boðaði í vikunni taka gildi í dag. Farþegar sem koma til landsins næstu daga án PCR-prófs verða þó ekki sektaðir fyrst um sinn. Innlent 19.2.2021 07:58
Skorar á Evrópu og Bandaríkin að senda bóluefni til fátækari hluta heimsins Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur skorað á Evrópuríkin og Bandaríkin að þau sendi hið fyrsta fimm prósent af öllu bóluefni sem til sé í löndunum til fátækari hluta heimsins. Erlent 19.2.2021 07:33
Ísland áfram eina græna land Evrópu Fjórðu vikuna í röð er Ísland eina græna landið á litakóðunarkorti Sóttvarnastofnunar Evrópu vegna kórónuveirufaraldursins. Innlent 19.2.2021 06:33
Fleiri flugvélar lentu á Akureyri en á Keflavíkurflugvelli Það hefur sjaldan verið eins tómlegt á Keflavíkurflugvelli þar sem farþegum hefur fækkað enn frekar undanfarnar vikur. Nú ráfa nokkrir tugir og kannski í mestu örfá hundruð farþega um flugstöðina á meðan það voru þúsundir og jafnvel upp í tugþúsundir manna á ferð á hverjum degi. Innlent 18.2.2021 21:01
Heimir með kórónuveiruna Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, hefur greinst með kórónuveiruna. Fótbolti 18.2.2021 15:30
Dæmdur fyrir að hósta á lögreglu og hrópa „kóróna“ Hæstiréttur í Danmörku hefur dæmt tvítugan karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa hóstað á tvo lögreglumenn og hrópað „kóróna“. Maðurinn er dæmdur fyrir brot gegn valdstjórninni, en sömuleiðis fyrir að hafa flúið frá lögreglustöð. Erlent 18.2.2021 14:54
Telur aðgerðir á landamærum hér með þeim vægari í Evrópu Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, vísar því á bug að aðgerðir hér á landamærum verði með því hörðustu sem um getur í Evrópu þegar ný reglugerð tekur gildi á morgun. Innlent 18.2.2021 12:34
„Erfitt að bregðast við því þegar fólk er með svo einbeittan brotavilja“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að aukið eftirlit með komufarþegum á Keflavíkurflugvelli hafi meðal leitt til þess að fjölmargir panti leigubíl niður í bæ í Keflavík þangað sem ættingjar sækja þá. Innlent 18.2.2021 12:17
Á ferðinni um Ísafjörð en átti að vera í skimunarsóttkví Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar nú meint sóttkvíarbrot manns, sem handtekinn var á Ísafirði í síðustu viku. Maðurinn var nýkominn til landsins og átti að vera í skimunarsóttkví en var handtekinn við akstur bifreiðar í bænum. Innlent 18.2.2021 11:51
Tillögur að tilslökunum um eða eftir helgi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, mun skila Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, tillögum að tilslökunum innanlands um helgina eða fljótlega eftir helgi. Innlent 18.2.2021 11:37
Enginn greindist innanlands sjötta daginn í röð Sjötta daginn í röð greindist enginn með korónuveiruna innanlands í gær. Tveir greindust með veiruna á landamærum, þar sem annar reyndist vera með mótefni og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum hins. Innlent 18.2.2021 10:54
Svona var 163. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Þar munu Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi. Innlent 18.2.2021 10:33
Kórónuveirusmitum á Englandi fækkað mikið á einum mánuði Á einum mánuði hefur kórónuveirusmitum á Englandi fækkað um tvo þriðju. Sérfræðingar vara þó við því að skólar verði opnaðir í bráð, því veiran sé nú að dreifa sér hraðast á meðal barna á skólaaldri og yngra fólks. Erlent 18.2.2021 07:48
Fékk ekki að millilenda þrátt fyrir „gulltryggingu með tveimur mótefnamælingum“ Ísold Guðlaugsdóttir er búsett í Svíþjóð. Hún var búin að vera á Íslandi í um tvo mánuði en var snemma í gærmorgun mætt á Keflavíkurflugvöll þar sem hún átti flugmiða heim til Stokkhólms með millilendingu í Kaupmannahöfn. Hún fékk aftur á móti ekki að fara um borð í vélina til Kaupmannahafnar þar sem hvorugt skjalið sem hún var með í höndunum um að hún væri með mótefni gegn covid-19 var tekið gilt. Annað reyndist of gamalt og hitt of nýtt. Innlent 17.2.2021 23:23
Breyta fyrirkomulagi upplýsingafunda og þakka samstöðu þjóðarinnar Frá því í október hefur fréttamönnum verið óheimilt að vera viðstaddir upplýsingafundi almannavarna og landlæknis af sóttvarnarástæðum og í stað þess tekið þátt í fundunum í gegnum fjarfundarbúnað. Innlent 17.2.2021 19:18
Tekjur tvöfölduðust á kórónuveiruárinu Tekjur netöryggisfyrirtækisins AwareGo rúmlega tvöfölduðust frá árinu 2019 til 2020. Fyrirtækið þakkar vöxtinn að mestu stórum langtímasamningum við erlend fyrirtæki og endursöluaðila sem hlaupi á milljónum dollara, hundruðum milljóna króna. Framkvæmdastjóri AwareGo segir vöxt fyrirtækisins undanfarin tvö ár hafa verið ævintýralegan. Viðskipti innlent 17.2.2021 16:25
Hyggjast smita allt að 90 heilbrigða einstaklinga í rannsóknarskyni Á næstu vikum verður nýju rannsóknarverkefni hrint úr vör þar sem heilbrigðir einstaklingar verða smitaðir af SARS-CoV-2. Tilgangurinn er að kanna betur ónæmisviðbrögð líkamans og hvernig veiran berst á milli einstaklinga. Erlent 17.2.2021 15:05
Íslendingar komist heim án PCR-prófs en líkast til beittir sektum Engum íslenskum ríkisborgara verður meinað að koma til landsins samkvæmt reglugerð um kröfu á farþega um að framvísa neikvæðu PCR-prófi áður en þeir koma til Íslands. Framkvæmdin hefur enn ekki verið fullmótuð en grípa þyrfti til viðurlaga ef Íslendingur kemur ekki með neikvætt próf til landsins. Innlent 17.2.2021 14:41
Hafa þróað hermilíkan um áhrif bólusetningar Hröð bólusetning elstu aldurshópanna dregur mjög úr fjölda þeirra sem veikjast lífshættulega af Covid-19 þótt ljóst sé að afleiðingarnar yrðu miklar á heilbrigðiskerfið ef kæmi til útbreidds faraldurs, jafnvel þótt vel takist að verja elstu hópana. Innlent 17.2.2021 11:47
Aftur greindist enginn með veiruna innanlands en sex á landamærum Fimmta daginn í röð greindist enginn með korónuveiruna innanlands í gær. Sex greindust með veiruna á landamærum, fimm með virk smit í fyrri skimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum eins. Innlent 17.2.2021 10:43
Mörg flugfélög í samstarf við UNICEF um dreifingu bóluefna Flugfélög um allan heim leggjast á eitt um að koma bóluefna gegn COVID-19 til fátækari ríkja heims. Heimsmarkmiðin 17.2.2021 10:13
Ekki ljóst hvort bólusettir geti borið veiruna til landsins Sóttvarnalæknir vildi að heilbrigðisráðherra drægi til baka ákvörðun um að undanskilja þá tvöfaldri skimun á landamærunum geti þeir sýnt fram á að þeir hafi verið bólusettir við kórónuveirunni. Ekki liggi fyrir vísindalega séð hvort þeir sem eru bólusettir geti borið veiruna án þess að veikjast og þannig smitað aðra. Innlent 16.2.2021 19:30
Bóluefni Janssen komið á borð evrópsku lyfjastofnunarinnar Lyfjastofnun Evrópu hefur borist umsókn um skilyrt markaðsleyfi fyrir bóluefni Janssen, sem er dótturfélag bandaríska lyfjaframleiðandans Johnson og Johnson. Erlent 16.2.2021 18:33
Íslenskum ríkisborgurum verði aldrei vísað úr landi Heilbrigðisráðherra segir að íslenskum ríkisborgurum verði aldrei vísað úr landi. Hún telur kröfu um að allir framvísi PCR-prófi áður en þeir koma til landsins standast stjórnarskrá og tekur ekki undir efasemdir sem komið hafa fram þess efnis. Innlent 16.2.2021 15:24