
Grín og gaman

Faldi synina fyrir Björk undir fréttaborðinu
Elín Stefánsdóttir Hirst, fyrrverandi fréttamaður á Stöð 2, rifjaði það upp í 35 ára afmælisþætti Stöðvar 2, sem sýndur var á laugardaginn að hún hafi eitt sinn þurft að daga syni sína tvo með í vinnuna þegar hún var að lesa kvöldfréttir. Drengirnir hafi verið eins og englar og beðið undir fréttaborðinu en skotið upp kollinum þegar tónlistarkonan Björk mætti í stúdíóið.

Beit sig til blóðs við tökur á einu þekktasta atriði Fóstbræðra
Kvikmyndatökumaðurinn Egill Aðalsteinsson hefur starfað hjá Stöð 2 síðan stöðin fór í loftið árið 1986. Hann rifjaði upp eftirminnileg augnablik á ferlinum í afmælisþætti Stöðvar 2 á laugardaginn með Kristjáni Má Unnarssyni fréttamanni.

Kampakát Kim kom á óvart í SNL
Kim Kardashian West þykir hafa staðið sig merkilega vel í Saturday Night Live um helgina. Hún var fengin til að stýra þættinum og gerði hún meðal annars stólpagrín að sjálfri sér og fjölskyldu sinni.

Hárið á Jóa eins og „gömul, lúin moppa“ og fékk að fjúka í Idolinu
Athafna- og fjölmiðlamennirnir Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson, sem nánast undantekningalaust eru þekktir saman sem Simmi og Jói, voru á meðal gesta í 35 ára afmælisveislu Stöðvar 2 í gær og ræddu tíma sinn sem kynnar í Idol Stjörnuleit.

Mörg hundruð kýr í sumarbústað
Þeir sem eru svo heppnir að hafa komið inn í sumarbústað í Holtum í Rangárvallasýslu missa hökuna niður á bringu þegar inn er komið. Ástæðan er sú að bústaðurinn er fullur af gripum, sem tengjast kúm á einn eða annan hátt.

Fyndnustu gæludýramyndir ársins
Forsvarsmenn hinnar árlegu Comedey Pet Photo Awards gæludýraljósmyndakeppninnar hafa valið þær fjörutíu myndir sem keppa til úrslita þetta árið.

Komst að því að Íslendingar eru ekki með alþjóðlega dætradaginn á hreinu
Ósk Gunnars þáttastjórnandi á FM957 fékk mikið samviskubit í gær þegar hún sá á samfélagsmiðlum margar færslur um einhvern alþjóðlegan dætradag.

Sóli Hólm hringdi í kjósendur sem Sigmundur Davíð
Sóli Hólm og Máni eru gestir í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Blökastið. Sóli Hólm er nýlega farinn af stað með nýtt eftirhermuuppistand og því var við hæfi að fá hann til þess að taka eitt símaat.

Vildu frelsa talningarfólk: „Fyrir aftan okkur er fólkið sem er búið að frelsissvipta til að telja“
Þeir Patrekur Jaime og Bassi Maraj fóru á stúfana í fyrrakvöld, þegar spennan vegna Alþingiskosninganna stóð sem hæst. Þeim þótti miður að talningarfólk í Laugardalshöll væri látið geyma símana sína í kassa og kölluðu eftir því að fólkið yrði frelsað sem fyrst.

Fyndnustu dýralífsmyndir ársins
Af þúsundum mynda sem sendar voru inn í ljósmyndakeppnina Comedy Wildlife Photography Awards 2021, er búið að velja þær myndir sem munu keppa til úrslita. Þar er úr mörgum skemmtilegum myndum að velja.

Birna Ben, Kiddi Jak, Ingvar Sæland og Sigrún Dagný vekja lukku
Þráður af myndum af oddvitum stjórnmálaflokkanna hefur farið eins og eldur í sinu á Twitter síðan í gær. Ekki er um neitt venjulegar myndir að ræða, því kyni oddvitanna hefur verið breytt á skemmtilegan hátt.

Fyrsta blikið: „Þess vegna sæki ég alltaf um smálán“
Flest fyrstu stefnumót byrja á smá stressi og hnúti í maga og getur fólki reynst miserfitt að brjóta ísinn. Í þriðja þætti stefnumótaþáttarins Fyrsta bliksins mátti sjá ísbrjóta sem ættu að fá flesta til að skella upp úr.

Frambjóðendur afhjúpa leynda hæfileika: „Ég veit að þetta er ekki sniðugt fyrir stjórnmálamann að segja“
Flestir hafa leynda hæfileika og eru frambjóðendur flokkanna engin undantekning. Í myndbandinu má sjá leynda hæfileika Katrínar Jakobsdóttur og Guðmundar Gunnarssonar.

„Veðurhundurinn“ Stormur slær í gegn
Hundur sem ber nafn með rentu truflaði nýverið eiganda sinn við að flytja veðurfréttir, við mikla ánægju áhorfenda og netverja. Myndband af Stormi í setti hjá veðurfræðingi Global News í Toronto hefur farið eins og eldur í sinu um internetið.

Bibba á Brávallagötunni enn lukkuleg á Flórída
Edda Björgvins kíkti í afmælisútsendinguna í tilefni af 35 ára afmæli Bylgjunnar. Hún rifjaði þar upp hina ógleymanlegu Bibbu á Brávallagötunni sem varð vinsæl í árdaga Bylgjunnar.

Þáttastjórnendur Reykjavík síðdegis gátu ekki hætt að hlæja
Í Brennslunni á FM957 barst umræðan að broddgöltum og að því tilefni rifjaði Rikki upp óborganlegt atvik sem átti sér stað í beinni útsendingu á Bylgjunni fyrir nokkrum árum.

Bjarni féll í hoppukastala
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra virðist heldur ósjóaður í hoppuköstulum en hann brá sér í einn slíkan á dögunum.

Misskildi grímuskyldu á fundi með viðbragðsaðilum
Það er ekkert gaman að taka sig of alvarlega, að mati Gylfa Þórs Þorsteinssonar, umsjónarmanns sóttvarnahúsa Rauða krossins. Það var því ekki leiðinlegt hjá honum í morgun á fundi sínum með Almannavörnum, sóttvarnalækni, ráðuneytum, landspítalanum og fleirum en Gylfi mætti á hann glæddur grímubúningi.

„Þú opnar ekkert munninn núna án þess að móðga einhvern“
„Spaugstofan, hvað er það aftur?“ segir leikarinn Pálmi Gestsson og í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Ástarsagan sem er að trylla Twitter: „Hann geymir ennþá öll bréfin“
Það er ekkert eins skemmtilegt og góð, sönn saga. Sérstaklega þegar sagan er ástarsaga. Og ekki skemmir það fyrir þegar sagan er bráðfyndin.

Boris í basli með regnhífar
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, lenti í vandræðum með regnhlíf á afhjúpun minnisvarða í London í gær. Vindur krækti í regnhlífina eftir að hann átti í erfiðleikum með að opna hana svo nærstaddir hlógu að forsætisráðherranum.

Álit eldri kynslóðarinnar á TikTok: „Að mörgu leyti finnst mér unga fólkið skemmtilegra en það eldra“
Fulltrúum eldri kynslóðarinnar sem fréttastofa ræddi við líst vel á samfélagsmiðilinn TikTok. Þeir segja unga fólkið í dag skemmtilegra en það eldra og ein gæti vel hugsað sér að stofna sinn eigin TikTok reikning.

Allt gekk á afturfótunum hjá YouTube-stjörnu við eldgosið
Tom Scott, sem er með yfir fjórar milljónir áskrifenda á YouTube-rás sinni, hafði í hyggju að ná myndbandi af sér fyrir framan vígalega hrauná þegar hann kom til landsins. Hann bað ekki um mikið meira.

Hafa reist hæsta sandkastala í heimi í Danmörku
Búið er að reisa 21,16 metra háan sandkastala í Blokhus á norðvesturströnd Jótlands í Danmörku og ku hann vera sá hæsti í heimi.

„Grensársvegur“ verður ekki lengi uppi
Búið er að panta nýtt götuskilti eftir að stafsetningarvilla á nýju götuskilti við Grensásveg kom í ljós. Mistökin hafa vakið mikla athygli netverja á undanförnum sólarhring.

John Oliver gerir stólpagrín að Michele Ballarin
John Oliver tekur íslandsvininn Michele Roosevelt Edwards, betur þekkta sem Michele Ballarin, fyrir í þætti sínum Last Week Tonight sem sýndur verður á Stöð 2 í kvöld. Umfjöllun Kveiks er meðal þess sem Oliver notar til að hæða Ballarin.

Friðrik Dór les upp andstyggileg ummæli um sig
Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson kynnti lagið Hvílíkur dagur í Brennslunni í dag. Lagið var frumflutt í þættinum og kemur á allar streymisveitur á morgun en það er Pálmi Ragnar sem gerði lagið með Frikka.

„Mun fara yfir það á spaugilegum nótum hvernig er að greinast með heilaæxli á stærð við sítrónu“
Valdimar Sverrison missti sjónina og sneri sér að gríninu. Hann ætlar að standa fyrir uppistandssýningu í næsta mánuði.

Áslaug Arna les upp andstyggilegar athugasemdir um sig
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, mætti í Brennsluna í morgun og las upp andstyggilegar athugasemdir sem skrifaðar hafa verið um hana á veraldarvefnum.

Svona eru seðlar prentaðir víðs vegar um heiminn
Peningaseðlar eru prentaðir í milljónum eintaka um heim allan á hverju ári.