Lífið

Æsi­spennandi átta liða úr­slit en ein­stefna í úr­slitunum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fulltrúar Fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og K100 mættust í úrslitaviðureigninni í ár.
Fulltrúar Fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og K100 mættust í úrslitaviðureigninni í ár. Vísir/Agnes

Þótt að Fréttablaðið hafi verið lýst gjaldþrota þann 31. mars síðastliðinn þá stóðu fulltrúar fjölmiðilsins sig með miklum sóma í árlegri spurningakeppni fjölmiðlanna um páskana. Frammistaðan dugði ekki til sigurs í keppninni en fulltrúar hins fallna risa fóru alla leið í undanúrslit.

Spurningakeppni fjölmiðlanna hefur verið fastur liður á Bylgjunni í vel á annan áratug. Þættirnir eru teknir upp í aðdraganda páska og ríkir mikil leynd yfir úrslitunum. Landsmenn á ferðalagi um landið, í sumarbústöðum eða heima í eldhúsi spreyta sig á spurningunum.

Björn Teitsson stýrði keppninni í ár og segir keppnina í ár hafa verið einstaklega skemmtilega. Nefnir hann sem dæmi óbærilega spennu í átta liða úrslitum keppninnar þar sem bráðabani varð frekar að reglu en undantekningu.

„Fyrir hlustendur kom líklega á óvart að lið frá Hringbraut og Fréttablaðinu hafi verið með, og staðið sig frábærlega, og voru sínum vinnustöðum til sóma þótt þeir séu í raun ekki til lengur,“ segir Björn.

Þá kom honum skemmtilega á óvart hve vel keppendur voru að sér í fuglahljóðum sem hljóti að ylja Ævari Erni Jósepssyni, fjölmiðlamanni og fuglaáhugamanni, um hjartarætur. Að neðan má hlusta á allar keppnirnar, allt frá sextán liða úrslitum og inn í sjálfan úrslitaleikinn þar sem Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar mætti K100.


Sextán liða úrslit, fyrsta viðureign: Fréttablaðið gegn Skessuhorni

Fyrir Fréttablaðið kepptu Þórarinn Þórarinsson og Oddur Ævar Gunnarsson en fyrir Skessuhorn þau Valdimar K Sigurðsson og Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir.


Sextán liða úrslit, önnur viðureign: K100 gegn Steve Dagskrá

Vilhjálmur Freyr Hallsson og Andri Geir Gunnarsson kepptu fyrir hönd Steve Dagskrá en þeir Auðun Georg Ólafsson og Yngvi Eysteins fyrir hönd K100.


Sextán liða úrslit, þriðja viðureign: Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar gegn RÚV útvarpi

Lóa Björk Björnsdóttir og Gunnar Hansson kepptu fyrir hönd RÚV útvarps, en þeir Gunnar Reynir Valþórsson og Atli Ísleifsson fyrir hönd Fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.


Sextán liða úrslit, fjórða viðureign: DV gegn Útvarpi Sögu

Björn Þorfinnsson og Erla Dóra Magnúsdóttir kepptu fyrir hönd DV og þau Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson fyrir hönd Útvarps Sögu.


Sextán liða úrslit, fimmta viðureign: Bylgjan gegn RÚV fréttum

Fyrir Bylgjuna kepptu þau Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Bragi Guðmundsson og þau Oddur Þórðarson og Júlía Margrét Einarsdóttir fyrir fréttastofu RÚV.


Sextán liða úrslit, sjötta viðureign: FM957 gegn Mbl.is

Gústi B og Ósk Gunnarsdóttir kepptu fyrir hönd FM975 og Ólafur Pálsson og Urður Egilsdóttir fyrir hönd mbl.is.


Sextán liða úrslit, sjöunda viðureign: Hringbraut gegn Morgunblaðinu

Fyrir Hringbraut kepptu þau Margrét Erla Maack og Gunnar Anton Guðmundsson, en þau Stefán Gunnar Sveinsson og Andrea Sigurðardóttir fyrir Morgunblaðið.


Sextán liða úrslit, áttunda viðureign: Mannlíf gegn Heimildinni

Jón Ingi Stefánsson og Erla María Markúsdóttir kepptu fyrir hönd Heimildarinnar og Svanur Már Snorrason og Björgvin Gunnarsson fyrir hönd Mannlífs.


Átta liða úrslit, fyrsta viðureign: Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar gegn Heimildinni


Átta liða úrslit, önnur viðureign: Hringbraut gegn Mbl.is


Átta liða úrslit, þriðja viðureign: Bylgjan gegn Fréttablaðinu


Átta liða úrslit, fjórða viðureign: DV gegn K100


Undanúrslit: Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar gegn Fréttablaðinu


Undanúrslit: Mbl.is gegn K100


Úrslit: Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar gegn K100






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.