

Búið er að ná upp tækjabúnaði úr American Airlines vélinni sem fórst í Washington á miðvikudagskvöld sem meðal annars tekur upp samtöl í flugstjórnarklefanum og skrásetur flugið sjálft.
Stjórnvöld í Rússlandi hafa staðfest að Evgenia Shishkova og Vadim Naumov, fyrrverandi heimsmeistarar í listdansi á skautum, hafi verið meðal farþega í flugvélinni sem fórst fyrir utan Washington í gærkvöldi að staðartíma.
Nils van der Poel var ein stærsta íþróttahetja Svía fyrir þremur árum síðan en nú hefur orðið stór breyting. Hann vill ekki lengur heita Van der Poel.
Skautafélag Reykjavíkur hefur vaxið gífurlega á síðustu árum og er stærsta skautafélag landsins. Árið 2023 æfðu yfir 800 iðkendur hjá félaginu í listskautum og íshokkí.
Hin rússneska Alina Zagitova vann Ólympíugull þegar hún var aðeins fimmtán ára gömul. Nú sjö árum síðar er hún að koma sér fréttirnar á allt annan máta.
Stórkostlegar aðstæður hafa skapast í frostinu til skautaiðkunar og fluglendingar á Hafravatni. Félagar í Fisfélagi Reykjavíkur nýttu aðstæðurnar í dag til að æfa sig á meðan skautafólk lék sér á ísnum.
Júlía Sylvía Gunnarsdóttir og Ítalinn Manuel Piazza verða fyrsta parið í sögunni til að keppa fyrir Íslands hönd á sjálfu Evrópumeistaramótinu á listskautum, eftir að hafa unnið bronsverðlaun á móti í Dortmund um helgina.
Á morgun sunnudag verður slegið upp skautadiskói í Egilshöll til styrktar hinum sex ára Þorsteini Elfari Hróbjartssyni og fjölskyldu hans. Þorsteinn Elfar greindist nýlega með hvítblæði og því ljóst að næstu mánuðir verða krefjandi og erfiðir fyrir hann og fjölskyldu hans.
Stórhuga framkvæmdir eru fyrirhugaðar í Þorlákshöfn fyrir nokkra milljarða króna en þar á að fara að byggja miðbæ í einkaframkvæmd. Skautasvell verður hluti af nýja miðbænum.
Júlía Sylvía Gunnarsdóttir og Manuel Piazza verða þau fyrstu til að keppa fyrir Íslands hönd í parakeppni á listskautum.
Í fyrsta sinn í sjö ár sést í steypuna undir ísnum í Skautahöllinni í Laugardal þar sem endurbætur standa nú yfir. Fjóra daga tók að þíða ísinn áður en hægt var rífa niður veggi.
Ein þekktasta skautakona heims er án félags eftir að lið hennar ákvað að hætta samstarfi við hana.
Alþjóða íþróttadómstóllinn, CAS, hefur greint frá því að hin rússneska Kamila Valieva hafi fengið alls 56 mismunandi lyf, næringar- og fæðubótarefni á tveggja ára tímabili þegar hún var 13 til 15 ára gömul.
Rússar hafa sent inn þrjár áfrýjanir til Alþjóða íþróttadómstólsins vegna gullverðlaunanna sem voru tekin af þeim vegna lyfjamáls skautakonunnar Kamilu Valievu.
Rússneska skautakonan Kamila Valieva, sem var dæmd í fjögurra ára bann fyrir ólöglega lyfjanotkun, hefur komið með útskýringu á því hvað hafi getað valdið því að hún féll á lyfjaprófi.
Hin rússneska Kamila Valieva, listdansari á skautum, var í vikunni dæmd í fjögurra ára keppnisbann vegna lyfjamisnotkunar þrátt fyrir að vera undir lögaldri. Framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands segir málið leiðinlegt en verki vonandi sem forvörn fyrir aðra.
Ein af frægustu þjálfurum Rússa er mjög reið yfir því hvernig er farið með rússnesku listskautakonuna Kamilu Valievu en Alþjóða Íþróttadómstóllinn dæmdi hana í fjögurra ára keppnisbann í vikunni.
Keppendurnir sem misstu af verðlaunum þegar Rússar unnu gullið í liðakeppni í listdansi á skautum á Vetrarólympíuleikunum í Peking 2022 munu fá verðlaun sín við hátíðlega athöfn.
Hin 17 ára gamla Kamila Valieva mun ekki keppa í listhlaupi á skautum næstu fjögur árin þar sem hún hefur verið dæmd í keppnisbann af CAS, Alþjóða íþróttadómstólnum.
Júlía Sylvía Gunnarsdóttir vann sögulegan sigur á Reykjavíkurleikunum um helgina.
Skaftholtsréttir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa fengið tímabundið nýtt hlutverk því búið er að útbúa skautasvell í réttunum. Mikil ánægja er á meðal heimamanna, ekki síst barnanna með nýja skautasvellið þó þar séu engar kindur.
„Ég fæ enn kvíðaköst, martraðir eða slæmar minningar út af þessum þjálfara. Hún var ekki bara ströng heldur var hún mjög ofbeldisfull og notaði alls ekki réttar aðferðir,“ segir Elísabet Sævarsdóttir.
Mál rússnesku skautakonunnar Kamilu Valievu verður tekið fyrir hjá Alþjóða íþróttadómstólnum (Cas) í dag.
Ísland þarf fleiri skautahallir til að skautaíþróttir geti vaxið og dafnað og mætt aukinni eftirspurn. Það vekur athygli að aðeins tvö af sex stærstu sveitarfélögum landsins hafa byggt sér hallir. Við berum okkur gjarnan saman við nágranna okkar á norðurlöndum en við erum þó eftirbátar þeirra þegar kemur að fjölda skautahalla.
Opið bréf til borgarstjórnar og menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar. Nú hefur menningar-, íþrótta- og tómstundarráð Reykjavíkurborgar ákveðið að stytta sér leið til að efna þau hagræðingarloforð sem borgarstjórn lagði upp með í desember síðastliðnum. Eins og svo oft áður í rekstri borgarinnar er sparnaður látinn bitna á varnarlausum hópum sem geta ekki varið hagsmuni sína sjálfir, í þessu tilviki börnum sem iðka íshokkí og listskauta.
Forráðamenn íþróttafélagsins Fjölnis í Grafarvogi eru verulega ósáttir við borgina vegna lokunar skautasvellsins í Egilshöll í sumar og segja verið að mismuna milli íþróttagreina. Jón Karl Ólafsson formaður Fjölnis segir að ástæðan fyrir lokun sé sparnaður Reykjavíkurborgar.
Bandarísk kona sem lenti í slysi ákvað að koma til Íslands til að ná bata. Læknir hennar sagði að það væri ekkert sem hún gæti gert en hún fullyrðir að henni líði mun betur eftir að hafa verið hér í sjö mánuði. Hún lærir íslensku til að þjálfa heilann og fer í sund til að hjálpa líkamlegu hliðinni.
Rússneski ólympíumeistarinn Romas Kostomarov liggur nú á sjúkrahúsi í Rússlandi en hann hefur misst báða fæturnar í kjölfar þess að hann kom fram á skautasýningu í miklu frosti í janúar.
Egill Helgason sjónvarpsmaður birti á dögunum gamla mynd af ísilagðri tjörninni í Reykjavík. Og óhætt er að segja að skautaáhugi í bland við fortíðarþrá hafi brotist út á netinu í kjölfarið, einkum meðal miðborgarbúa og Vesturbæinga.
Aldís Kara Bergsdóttir, besti listskautari Íslands undanfarin ár, hefur ákveðið að leggja skautana á hilluna þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gömul.