„Ólympíuverðlaununum var stolið frá mér“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2026 10:33 Hollendingurinn Joep Wennemars var gríðarlega svekktur eftir óhappið. Getty/ Joris Verwijst Það var mikil dramatík í þúsund metra skautahlaupi karla á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina í gær.
Tveir keppendur rákust saman á síðasta hringnum og skömmu síðar setti bandarísk stjarna ólympíumet. „Ólympíuverðlaununum var stolið frá mér í dag,“ segir hollenska skautastjarnan Joep Wennemars við norska ríkisútvarpið eftir keppni og skautasérfræðingur NRK var sammála. „Algjört hneyksli! Hann keyrir bara beint á hann. Þetta bitnar á Wennemars,“ sagði Even Wetten, skautasérfræðingur NRK. Þetta er eitt af dramatískustu augnablikum Ólympíuleikanna. „Þetta var óhapp. Ég sá Wennemars ekki. Ég fann bara að hann var mjög nálægt mér. Þegar ég sá hann var hann mjög nálægt,“ sagði sökudólgurinn, Kínverjinn Lian, við NRK eftir hlaupið. Dzisiaj zawody te mają często mało wspólnego z fair play 👎 Tak przez holenderskiego rywala potraktowany został Joep Wennemars...Holender dostał od organizatorów możliwość powtórzenia swojego biegu. I bardzo dobrze.#HomeOfTheOlympics #MilanoCortina2026 pic.twitter.com/puVF4Gdh4x— Eurosport Polska (@Eurosport_PL) February 11, 2026 Eftir hlaupið hægði 23 ára gamall Hollendingur á sér. Greinilega svekktur sló hann út í loftið í átt að Kínverjanum þegar hann fór fram hjá. Reglurnar segja nefnilega að keppandinn sem er kominn lengra í hlaupi sínu, sá sem er á síðustu innri braut, hafi forgang á síðasta brautaskiptasvæðinu. Því var það Kínverjanum að kenna að Hollendingurinn þurfti að hægja á sér og Lian var dæmdur úr leik. „Ég er mjög leiður,“ sagði Lian. Vegna árekstursins fékk Wennemars að skauta 1000 metrana aftur, án mótkeppanda. Þar átti hann enga möguleika. Með tímann 1.08,46 var hann 88 hundraðshlutum úr sekúndu lengur en í upprunalega hlaupinu. „Þetta er eitt af dramatískustu augnablikunum, svona tæknilega og íþróttalega séð, sem ég hef séð á Ólympíuleikum. Hann er að missa af verðlaununum vegna þessa,“ sagði Wetten. Hann telur að Hollendingurinn hefði skautað á undir einni mínútu og sjö sekúndum ef óhappið hefði ekki átt sér stað. Það hefði dugað til bronsverðlauna. Joep Wennemars zit erdoorheen na dramatisch verlopen 1000 meter: 'Ik ben helemaal kapot'https://t.co/rtqn6y8MNL#vandaaginside pic.twitter.com/t12g5ik685— Vandaag Inside (@vandaaginside) February 11, 2026 Wennemars hefur látið að sér kveða í skautaíþróttinni síðustu ár. Stærsti áfanginn er HM-gullið í 1000 metra skautahlaupi á HM 2025, þar sem hann sigraði þekkta keppendur eins og Jenning De Boo og Ólympíumeistarann Jordan Stolz. Í næstsíðasta hringnum í gær tryggði umræddur Jordan Stolz sér Ólympíugull með nýju Ólympíumeti: Á þessu tímabili hefur Stolz unnið fimm af fimm heimsbikarmótum. Hann er sá skautari sem hefur heillað Wetten mest af öllum sem hann hefur séð. „Af þeim sem ég hef séð, og ég hef séð ansi marga, þá er hann klárlega besti skautarinn. Fyrst og fremst er hann einstakur líkamlega,“ sagði Wetten. Stolz verður sigurstranglegur í fleiri vegalengdum síðar á Ólympíuleikunum. Margir hafa velt því fyrir sér hversu mörg verðlaun hann gæti endað með að lokum. Gullverðlaunahafinn Jordan Stolz á pallo með silfurhafanum Jenning de Boo og bronshafanum Ning Zhongyan.Getty/Wang Xianmin
Skautaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Serena Williams snéri aftur og lék með Alcaraz Sprungið dekk í Þakgili eyðilagði úrslitaleik HM Dagný orðin sendiherra West Ham Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Apollon - FH | Fyrsti Evrópuleikur FH „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Sjá meira