Erlent
60 61 62 63 64 65 66 67 68 … 334 ›
Fram með kústinn kerlíng Alþjóðleg rannsókn hefur leitt í ljós að kvæntir karlmenn taka umtalsvert minni þátt í húsverkunum en karlmenn sem eru í sambúð. Könnuðir við fylkisháskólann í Norður-Karólínu töluðu við yfir 17 þúsund manns í 28 löndum til þess að komast að þessari niðurstöðu. Erlent 31.8.2007 10:52
Stal brú í heilu lagi Rússneska lögreglan hefur haft hendur í hári manns sem stal brú í heilu lagi í Ryazan héraði austan við Moskvu. Brúin var úr stáli, tvíbreið og fimm metra löng. Maðurinn skrúfaði hana í sundur og hlóð henni á trukkinn sinn. Svo fór hann með hana og seldi hana í brotajárn. Lögreglan í Ryazan héraði segir að þetta sé umfangsmesti þjófnaður ársins. Erlent 31.8.2007 10:17
Bush til bjargar fasteignalánamarkaðnum Búist er við að George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, kynni í dag aðgerðir sem eigi að minnka líkurnar á því að einstaklingar með litla greiðslugetu lendi í vanskilum með fasteignalán sín. Mikil vanskil hjá þessum einstaklingum hefur leitt til mikils samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði og valdið titringi á fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 31.8.2007 10:14
Rússar ólu á stríðsótta til þess að selja vopn Rússar gerðu hvað þeir gátu til þess að ala á stríðsótta í Ísrael og Sýrlandi í sumar, til þess að auka vopnasölu sína til Sýrlands, að sögn diplomatisku öryggisþjónustunnar í Ísrael. Snemma í sumar kom upp sá orðrómur að Sýrlendingar hyggðust endurheimta Golan hæðirnar með stríði á hendur Ísrael. Jafnframt var sagt frá liðssafnaði beggja ríkjanna við landamærin. Erlent 30.8.2007 17:09
Kanada fordæmir samninga við Talibana Utanríkisráðherra Kanada hefur gagnrýnt stjórnvöld í Suður-Kóreu harðlega fyrir að semja við Talibana í Afganistan um lausn gísla sem þeir tóku. Talibanar tóku 23 gísla frá Suður-Kóreu. Tveir þeirra voru myrtir en hinir hafa nú allir verið látnir lausir, eftir miklar samningaviðræður. Erlent 30.8.2007 14:45
Hræringar á Wall Street Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum lækkaði lítillega við opnun fjármálamarkaða vestanhafs í dag en óttast er að háir vextir muni draga úr afkomu fjármálafyrirtækja auk þess sem talið er að samdráttur á bandarískum fasteignamarkaði geti hægt á hagvexti. Hagvísar í Bandaríkjunum benda til að hagvöxtur var umfram væntingar á öðrum ársfjórðungi í Bandaríkjunum þótt úr dragi á seinni hluta árs. Viðskipti erlent 30.8.2007 14:38
Meistaradeildin: Drátturinn í beinni á Vísi.is Dregið verður í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í dag klukkan 16:00 í Monte Carlo á Suðurströnd Frakklands. Vísir.is sýndi frá drættinum í beinni ústendingu. Fjögur ensk lið eru í pottinum og eru þau öll í fyrsta styrkleikaflokk. Rosenborg er eina liðið frá Norðurlöndunum. Erlent 30.8.2007 14:37
Beljur með nafnskírteini Bændur í Vestur-Bengal á Indlandi hafa verið skyldaðir til þess að fara með beljur sínar í myndatökur, til þess að útvega þeim nafnskírteini. Þetta er liður í því að koma í veg fyrir stórfellt smygl á þeim til Bangladesh. Meirihluti Indverja eru hindúar og samkvæmt þeirra trú eru þessir jórtrandi ferfætlingar heilagar kýr. Það er bannað að flytja þær úr landi. Erlent 30.8.2007 14:13
Hagvöxtur umfram væntingar í Bandaríkjunum Hagvöxtur jókst um fjögur prósent í Bandaríkjunum á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt nýbirtum tölum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Hann hefur ekki verið meiri í rúmt ár. Til samanburðar nam hann einungis 0,6 prósentum á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 0,6 prósentum meira en viðskiptaráðuneytis hafði búist við. Viðskipti erlent 30.8.2007 12:40
Áhrif af fasteignalánamarkaði takmörkuð Baudouin Prot, forstjóri BNP Paribas, eins stærsta banka Frakklands, varði í dag ákvörðun bankans að skrúfa fyrir þrjá sjóði sína fyrir nokkru til að koma í veg fyrir lausafjárþurrð vegna samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði. Hann segir frönsk fjármálafyrirtæki ekki eiga á hættu að lenda í vandræðum vegna hræringanna í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 30.8.2007 11:13
Fjármálaráðherra Kína sagði óvænt af sér Jin Renqing, fjármálaráðherra Kína, hefur sagt af sér. Ákvörðunin kom á óvart en uppsögnin mun vera af persónulegum ástæðum. Skattstjóri Kína tekur við starfi hans en fjármálaráðherrann fyrirverandi mun taka við háttsettri stöðu hjá kínverska kommúnistaflokknum. Viðskipti erlent 30.8.2007 10:49
Svæfðu Madeleine í hel segja portúgalskir fjölmiðlar Portúgalar hafa af einhverjum orsökum misst alla samúð með foreldrum Madeleine McCann, litlu bresku telpunnar sem nú hefur verið leitað í fjóra mánuði. Fjölmiðlar í landinu eru uppfullir af allskonar slúðurfréttum um málið. Erlent 30.8.2007 10:43
Bernanke ekki að flýta sér Seðlabanki Bandaríkjanna ætlar ekki að hlaupa til og lækka stýrivexti. Bankinn vill að fjármálafyrirtæki líti ekki svo á að bankinn eigi að hjálpa fyrirtækjunum úr þeim vanda sem þau hafi komið sér sjálf í. Þetta segir bandaríska dagblaðið Wall Street Journal í dag. Blaðið bendir á að Alan Greenspan, fyrrum seðlabankastjóri og forveri Ben Bernankes, hafi brugðist við viðlíka hræringum með vaxtalækkun. Viðskipti erlent 30.8.2007 09:19
Kínverjar reyna að róa Japani Kínverjar reyndu í dag að róa Japani yfir mikilli hervæðingu sinni, á fundi varnarmálaráðherra landanna. Meðal annars varð að samkomulagi að kínverskt herskip heimsækti Japan og er það í fyrsta skipti í sögu landanna. Kínverjar hafa stóraukið framlög til hermála undanfarin ár, og Japanir hafa af því áhhyggjur. Erlent 30.8.2007 09:40
Hlutabréf hækka í Evrópu og Asíu Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á hlutabréfamörkuðum í Evrópu og Asíu í dag. Þetta er í takti við hækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði í gær en fjárfestar vestanhafs segja auknar líkur á að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti í september til að bregðast við aðstæðum á fjármálamarkaði. Viðskipti erlent 30.8.2007 09:07
Viðsnúningur á Wall Street Gengi hlutabréfa hækkaði talsvert á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Ástæðan fyrir hækkuninni er auknar líkur fjárfesta vestanhafs á því að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum til að koma til móts við þrengingar í bandarísku efnahagslífi. Þá gera sumir þeirra ráð fyrir því að vextirnir lækki fyrr. Viðskipti erlent 29.8.2007 20:31
Lykillinn sem hefði getað bjargað Titanic Lykill sem hugsanlega hefði getað forðað Titanic frá því að sigla á ísjakann verður seldur á uppboði í Bretlandi í næsta mánuði. Lykillinn gekk að hirslu sem geymdi sjónauka fyrir útsýnistunnu skipsins. Skipverji sem var á útkíkki þegar Titanic sigldi á borgarísjakann sagði fyrir sjórétti að ef þeir hefðu haft sjónauka hefur þeir séð jakann það mikið fyrr að þeir hefðu getað sveigt frá honum. Erlent 29.8.2007 16:20
Öflugasti her skæruliða í Írak leggur niður vopn Shía klerkurinn Moqtada al-Sadr hefur skipað Mehdi her sínum að hætta öllum hernaðaraðgerðum í írak í sex mánuði. Þetta eru miklar fréttir því Bandaríkjamenn líta á Mehdi herinn sem mestu ógnina gegn friði og öryggi í Írak. Þessi her er enda öflugastur og best vopnaður af þeim fylkingum sem berjast gegn veru erlendra hermanna í Írak. Erlent 29.8.2007 14:47
OMX sendir spurningalista til Dubai Stjórn norrænu OMX-kauphallarsamstæðunnar sendi kauphöllinni í Dubai bréf í dag þar sem svara er óskað við nokkrum spurningum svo hægt sé að meta yfirtökutilboð kauphallarinnar í OMX. Nasdaq hafði áður gert yfirtökutilboð í OMX-samstæðuna, sem meðal annars rekur Kauphöllina hér. Viðskipti erlent 29.8.2007 14:34
Hershöfðingi rekinn eftir morð á rússneskum hermanni Varnarmálaráðherra Rússlands hefur rekið hershöfðingja sem stjórnaði herstöð þar sem drukknir foringjar börðu ungan óbreyttan hermann til bana. Ill meðferð á ungum hermönnum er landlæg í rússneska hernum. Fjölmörg dæmi eru um að þeir lifi hana ekki af. Átján mánaða herskylda er í Rússlandi og ungir menn gera allt sem þeir geta til þess að komast hjá henni. Erlent 29.8.2007 14:25
Samdráttur hjá DaimlerChrysler Þýski bílaframleiðandinn DaimlerChrysler hagnaðist um 1,85 milljarða evra, jafnvirði 162 milljarða íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi. Þetta er 14 prósenta samdráttur frá sama tíma á síðasta ári. Hagnaður Chrysler-hluta Daimler og lánaarms fyrirtækisins í Bandaríkjunum jókst um 18 prósent á milli ára. Viðskipti erlent 29.8.2007 14:07
Bandarískar vísitölur á uppleið Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag eftir lækkun síðustu tvo daga. Lækkunin í gær skýrist af taugatitringi vegna frétta um samdrátt á fasteignamarkaði í Bandaríkjunum og lækkunar á fasteignaverði. Nú virðist sem verðlækkunin hafi náð til fasteigna í dýrari kantinum. Viðskipti erlent 29.8.2007 13:48
EMI skiptir um eigendur í september Eric Nicoli, forstjóri breska útgáfurisans EMI, ætlar að yfirgefa forstjórastólinn þegar nýir eigendur taka við félaginu í næsta mánuði. Félagið hefur átt við mikinn rekstrarvanda að stríða vegna minnkandi geisladiskasölu og fór í söluferli fyrr á árinu. Úr varð að fjárfestingafélagið Terra Firma keypti útgáfufélagið í maí fyrir 2,4 milljarða punda, jafnvirði rúmra 300 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 29.8.2007 10:29
Dregur úr væntingum Þjóðverja Væntingavísitalan í Þýskalandi lækkaði nokkuð á milli mánaða og hafa Þjóðverjar ekki verið svartsýnni um horfur á næstu mánuðum í hálft ár og nú. Ástæðan fyrir þessu eru þrengingar á bandarískum fasteignamarkaði og spár um að það geti dregið úr hagnaði fyrirtækja og hagvexti á heimsvísu. Viðskipti erlent 29.8.2007 09:27
Lækkun í Evrópu og Asíu Gengi hlutabréfa í Evrópu og Asíu lækkaði nokkuð á fjármálamörkuðum í álfunum í morgun. Þetta er í takt við lækkun á bandarískum hlutabréfamörkuðum í gær vegna samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði og verri lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja. Óttast er að samdrátturinn geti leitt til þess að hagvöxtur í Bandaríkjunum dragist saman vegna þessa. Viðskipti erlent 29.8.2007 09:11
Bakslag í Bandaríkjunum Helstu vísitölur á bandarískum hlutabréfamarkaði féllu um rúm tvö prósent við lokun markaða í dag. Helstu ástæðurnar fyrir lækkuninni eru minni væntingar neytenda vestanhafs nú en áður í skugga samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði. Þá dvína vonir fjárfesta um að bandaríski seðlabankinn kæmi til móts við þrengingar á fjármálamarkaði með lækkun stýrivaxta. Viðskipti erlent 28.8.2007 20:37
Brann lifandi með fjórum börnum sínum Tugir manna hafa farist í skógareldunum í Grikklandi og margir eiga um sárt að binda. Sérstaklega þykir þó sorgleg saga 37 ára gamallar móður sem reyndi að flýja eldana ásamt fjórum börnum sínum. Hún átti heima í Aþenu en var í heimsókn hjá móður sinni í smáþorpinu Artemida sem er um 330 kílómetra suðvestur af höfuðborginni. Erlent 28.8.2007 16:15
Bandarískir neytendur svartsýnir Væntingavísitala bandarískra neytenda tók dýfu í mánuðinum en hún hefur ekki fallið jafn mikið á milli mánaða í tvö ár. Fréttveita Bloomberg segir þetta sýna að neytendur vestanhafs séu svartsýnni nú en áður um horfur í efnahagsmálum vegna viðvarandi lækkunar á fasteignaverði auk þess sem erfiðara er nú en áður að fjármagna fasteignakaup. Viðskipti erlent 28.8.2007 15:28
Slegist um boðskort á minningarathöfn um Díönu Hatrammur slagur geisar nú um það í Bretlandi að fá boðskort í minningarathöfn um Díönu prinsessu. Þá eru liðin tíu ár frá dauða hennar. Þannig hringdi fyrrverandi bryti hennar öskureiður í skipuleggjendurna þegar hann fékk ekkert kort. Paul Burrell taldi sig trúnaðarvin hennar. Hann hefur hinsvegar makað krókinn vel á bókum sem hann hefur skrifað um þjónustu sína. Erlent 28.8.2007 15:39
Ryanair rukkar meira Flugfélög hafa löngum verið lagin við að finna sér matarholur. Lággjaldafyrirtækið Ryanair er nú búið að finna enn eitt gjaldið til þess að leggja á farþega sína. Frá og með tuttugusta september verða farþegarnir að greiða 200 króna aukagjald fyrir að fá að fara um borð í flugvélina sem þeir eiga að ferðast með. Erlent 28.8.2007 14:23