Erlendar
111 112 113 114 115 116 117 118 119 … 264 ›
Marion Jones ætti að hætta keppni Heimsmethafinn í 200 og 400 metra hlaupi, Michael Johnson, segir að landa sín Marion Jones ætti að sjá sóma sinn í því að hætta keppni eftir að hún slapp með skrekkinn við að falla á lyfjaprófi á dögunum. Jones hefur lengi verið sökuð um að nota ólögleg lyf til að bæta árangur sinn á hlaupabrautinni, en enn hefur ekkert slíkt sannast á hana. Sport 19.9.2006 19:34
Úrvalsdeildarliðin sluppu með skrekkinn Úrvalsdeildarliðin Watford og Reading sluppu með skrekkinn í kvöld þegar þau lögðu lægra skrifaða andstæðinga sína í enska deildarbikarnum eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni. Brynjar Björn Gunnarsson spilaði 120 mínútur fyrir Reading þegar liðið vann Darlington í vítakeppni. Enski boltinn 19.9.2006 21:51
Sam Allardyce sakaður um spillingu Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton og einn þeirra sem hvað líklegastir þóttu til að taka við stöðu landsliðsþjálfara Englendinga í sumar, var þungamiðjan í þætti breska sjónvarpsins Panorama, sem sýndur var þar í landi í kvöld, þar sem umfjöllunarefnið var meint spilling í knattspyrnuheiminum á Englandi. Enski boltinn 19.9.2006 21:15
Everton marði Peterborough Everton vann í kvöld nauman sigur á þriðjudeildarliði Peterborough í annari umferð enska deildarbikarsins. Það var varamaðurinn Tim Cahill sem tryggði úrvalsdeildarliðinu sigur með marki á 87. mínútu. Úrvalsdeildarliðin sem voru í eldlínunni í kvöld lentu fleiri í vandræðum. Enski boltinn 19.9.2006 20:57
Curbishley hefur ekki áhuga á WBA Alan Curbishley, fyrrum knattspyrnustjóri Charlton, hefur staðfest við breska sjónvarpið að hann hafi ekki í huga að taka við stjórn 1. deildarliði West Brom, en hann hafði verið nefndur til sögunnar sem arftaki Bryan Robson sem sagði af sér í gær. Curbishley vill taka við liði í ensku úrvalsdeildinni og er strax farið að kitla að komast aftur í slaginn eftir að hafa látið af störfum hjá Charlton í vor. Enski boltinn 19.9.2006 18:46
Óvæntir hlutir að gerast Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í enska deildarbikarnum. Everton hefur yfir 1-0 gegn Peterborough í sjónvarpsleiknum á Sýn með marki frá James Beatty, en á öðrum vígstöðvum eru að eiga sér stað nokkuð óvæntir hlutir eins og svo oft í þessari skemmtilegu keppni. Enski boltinn 19.9.2006 19:43
Kveikir í mér að sjá konuna í búningnum Enska knattspyrnugoðið David Beckham viðurkenndi í viðtali við útvarpsmanninn og félaga sinn Chris Moyles að það kveikti í sér þegar konan hans gengi um í búningum af sér. Hann segir konu sína Victoriu gjarnan ganga um í keppnistreyjum sínum í húsi þeirra hjóna og viðurkennir að stundum fái hann morgunmat í rúmið frá konunni í treyju hans einni fata. Fótbolti 19.9.2006 16:52
Shevchenko hefur engar afsakanir Jose Mourinho segir að stjörnuframherjinn Andriy Shevchenko hafi engar afsakanir fyrir því að skora ekki mörk í ensku úrvalsdeildinni, því Chelsea sé að spila nákvæmlega sama leikkerfi og Shevchenko hafi spilað allan sinn feril hjá AC Milan. Enski boltinn 19.9.2006 16:39
Peterborough - Everton í beinni í kvöld Nokkrir leikir fara fram í enska deildarbikarnum í kvöld og verður leikur Peterborough og Everton sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. Peterborough leikur í þriðju deildinni á Englandi og er þar um miðja deild, svo ljóst er að erfitt verkefni bíður liðsins í kvöld gegn einu heitasta liðinu í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 19.9.2006 15:12
Meiðsli hjá Manchester City Enska úrvalsdeildarliðið Manchester City hefur tilkynnt að markvörðurinn Andreas Isaksson og varnarmaðurinn Hatem Trabelsi verði frá keppni næsta mánuðinn vegna meiðsla og eykur það enn á ófarir liðsins í upphafi leiktíðar, en City er í sautjánda sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig að loknum fimm leikjum. Enski boltinn 19.9.2006 14:22
Óttaðist að verða seldur frá United Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United greinir frá því í óútkominni bók sinni að hann hafi óttast mjög að verða seldur frá félaginu í kjölfar þess að myndir náðust af honum og Peter Kenyon, yfirmanni knattspyrnumála hjá Chelsea, á veitingahúsi í fyrra. Ferdinand segist aldrei hafa séð Alex Ferguson jafn reiðan og í kjölfarið. Enski boltinn 19.9.2006 13:27
Vill komast aftur í ensku úrvalsdeildina Framherjinn Stan Collymore hefur hvergi nærri gefið upp alla von með að snúa aftur til keppni í ensku úrvalsdeildinni, þó hann hafi ekki spilað alvöru leik í mörg ár og sé orðinn 35 ára gamall. Collymore hefur getið sér gott orð sem leikari á síðustu misserum og fór síðast á kostum í stórmyndinni Basic Instinct 2 við hlið kynbombunnar Sharon Stone. Enski boltinn 19.9.2006 13:05
Þáttur um spillingu í knattspyrnunni á BBC í kvöld Nú ríkir nokkur titringur á Englandi vegna sjónvarpsþáttarins Panorama sem sýndur verður á BBC sjónvarpsstöðinni í kvöld, en þar verður til rannsóknar meint spilling umboðsmanna og knattspyrnustjóra í landinu. Sagt er að nokkur úrvalsdeildarfélög muni jafnvel fá á baukinn í þættinum, en frekari frétta af málinu er að vænta í kvöld. Enski boltinn 19.9.2006 12:48
Lehmann til rannsóknar hjá lögreglu Jens Lehmann, markvörður Arsenal, er nú til rannsóknar hjá lögreglu í Manchester eftir að henni bárust athugasemdir um að markvörðurinn hefði sparkað vatnsbrúsa í átt að stuðningsmönnum United í stúkunni á leik liðanna á sunnudag. Enski boltinn 19.9.2006 11:59
Lerner tekinn við stjórnarformennsku hjá Aston Villa Ameríski auðkýfingurinn Randy Lerner hefur nú tekið formlega við stjórnarformennsku hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa, eftir að Doug Ellis steig af stóli í morgun. Ellis hefur verið í stjórn Villa síðan 1968 og hefur verið gerður að heiðursforseta, en nú tekur Lerner við stjórnartaumunum. Lerner er hársbreidd frá því að eignast 90% hlut í félaginu. Enski boltinn 19.9.2006 11:54
Mínus tvö stig í síðustu fimm leikjum Eftir afar gott gengi í fyrri hluta móts í sænsku úrvalsdeildinni hefur Stokkhólmsliðið Hammarby ekki náð sér á strik á undanförnum vikum. Auk þess sem leikur liðsins gegn Djurgården var blásinn af í síðasta mánuði vegna óláta áhorfenda hefur liðið nú ekki unnið síðustu fimm leiki í röð og tapað fjórum þeirra. Hammarby var lengi vel í efsta sæti deildarinnar framan af sumri en er nú fallið í sjötta sæti. Til að bæta gráu á svart voru þrjú stig dregin af liðinu vegna fyrrnefndra óláta. Fótbolti 18.9.2006 20:38
Verð ef til vill í Færeyjum næsta sumar Landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir heldur áfram að gera það gott í sænsku úrvalsdeildinni þar sem hún leikur með Malmö. Um helgina skoraði hún bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli gegn Linköping á útivelli. Hún er markahæst í deildinni ásamt öðrum leikmanni og hefur skorað 17 mörk. Fótbolti 18.9.2006 20:38
McClaren vill fá Scholes aftur í landsliðið Terry Venables, aðstoðarþjálfari enska landsliðsins, segir að Steve McClaren landsliðsþjálfari hafi sett sig í samband við Paul Scholes hjá Manchester United með það fyrir augum að fá hann til að taka landsliðsskóna fram að nýju í kjölfar þess að Owen Hargreaves fótbrotnaði um helgina. Enski boltinn 18.9.2006 15:41
Mótum fjölgar á næsta ári Í dag var ákveðið að fjölga mótum á keppnistímabilinu í Formúlu 1 úr 17 í 18 og útlit er fyrir að San Marino-kappaksturinn á Imola muni halda áfram eftir allt. Þetta var ákveðið á fundi í París í dag, þar sem Alþjóða akstursíþróttasambandið og fulltrúar bílaframleiðenda og keppnisliðanna komu saman. Formúla 1 18.9.2006 19:19
Vonast enn eftir landsliðssæti Varnarmaðurinn Sol Campbell hjá enska úrvalsdeildarliðinu Portsmouth segist enn ekki hafa gefið upp alla von með að spila fleiri leiki fyrir hönd enska landsliðsins, en þessi 32 ára gamli fyrrum fastamaður í liðinu hefur byrjað leiktíðina afar vel með Portsmouth. Enski boltinn 18.9.2006 18:02
Peterborough - Everton í beinni annað kvöld Sýn verður með beinar útsendingar frá leikjum í enska deildarbikarnum annað kvöld og á miðvikudagskvöldið, en þá fer fram fjöldi leikja í keppninni. Annað kvöld verður viðureign Peterborough og Everton í beinni útsendingu og hefst útsending klukkan 18:35 og á sama tíma á miðvikudagskvöldið verður leikur Scunthorpe í beinni á sama tíma. Enski boltinn 18.9.2006 17:46
Einn besti dagur í lífi mínu Jose Antonio Reyes, leikmaður Real Madrid á Spáni, skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í gærkvöld þegar það lagði Real Sociedad 2-0 á heimavelli sínum. Reyes var að spila sinn fyrsta heimaleik fyrir félagið og sagðist ekki hafa geta beðið um betri byrjun. Fótbolti 18.9.2006 16:30
Meistaradeildin á Fjölvarpinu Eurosport hefur gert samning við Handknattleikssamband Evrópu um beinar útsendingar frá meistaradeildinni í handbolta og verða leikir þýsku liðanna allir í beinni útsendingu næstu þrjú árin. Þetta þýðir að þeim sem hafa aðgang að fjölvarpinu á Digital Ísland geta séð Íslensku leikmennina fara á kostum með liðum sínum í vetur. Handbolti 18.9.2006 17:04
Hætti hjá Renault vegna óvissu um framtíð liðsins Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault, sem gengur í raðir McLaren á næsta tímabili, hefur gefið það upp að hann hafi ákveðið að yfirgefa liðið vegna óvissu um framtíð liðsins í Formúlu 1. Formúla 1 18.9.2006 16:18
Útilokar að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni David Beckham segir ekki koma til greina fyrir sig að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni af þeirri einföldu ástæðu að hann geti ekki hugsað sér að spila gegn Manchester United. "Ég er stuðningsmaður Manchester United og elska félagið, svo ég gæti aldrei farið í búning annars liðs og spilað á móti þeim," sagði fyrrum landsliðsfyrirliðinn sem vonast enn til að vinna titil með spænska liðinu Real Madrid áður en hann leggur skóna á hilluna. Enski boltinn 18.9.2006 16:11
Leroy Lita sleppur Framherjinn Leroy Lita hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Reading, verður ekki sóttur til saka fyrir að skalla mann á næturklúbbi á dögunum eftir að lögreglan í Bristol ákvað að hætta við að höfða mál gegn honum í ljósi þess að maðurinn sem kærði hann dró vitnisburð sinn til baka. Enski boltinn 18.9.2006 15:36
Schumacher launahæstur þrátt fyrir að vera hættur Umboðsmaður þýska ökuþórsins Michael Schumacher fullyrðir í samtali við þýska blaðið Bild, að Schumacher muni hala inn meiri tekjur en helstu keppinautar hans Kimi Raikkönen og Fernando Alonso á næsta ári - þó hann setjist aldrei upp í bíl. Formúla 1 18.9.2006 15:21
Hnémeiðslin munu ekki ógna ferli Owen Bandaríski sérfræðingurinn Richard Steadman hefur lofað enska landsliðsframherjanum Michael Owen að hnémeiðsli hans muni ekki ógna ferli hans sem knattspyrnumanns. Owen fór í aðgerð hjá Bandaríkjamanninum á dögunum og er sagður á ágætum batavegi. Enski boltinn 18.9.2006 14:58
Boro semur um kaupverð á Woodgate Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni, segir að félagið hafi þegar komist að samkomulagi við spænska félagið Real Madrid á miðverðinum Jonathan Woodgate, sem gekk í raðir enska liðsins sem lánsmaður á dögunum. Enski boltinn 18.9.2006 14:16
Shay Given fór í aðgerð Írski landsliðsmarkvörðurinn Shay Given gekkst undir aðgerð á kvið á sjúkrahúsi í London í nótt eftir að hafa lent í slæmu samstuði í leik með liði sínu Newcastle gegn West Ham í gær. Given verður frá keppni í einhvern tíma í kjölfarið, en enn hefur ekki verið gefið upp hve lengi hann verður frá. Enski boltinn 18.9.2006 14:05