Íþróttir
180 181 182 183 184 185 186 187 188 … 334 ›
Fjórði sigur Federer í röð á Wimbledon Roger Federer varð í dag Wimbledon-meistari í tennis, fjórða árið í röð, þegar hann lagði Spánverjann Rafael Nadal í úrslitaleik 6-0, 7-6 (7-5), 6-7 (2-7) og 6-3. Federer hefur verið í gríðarlega góðu formi á mótinu og undirstrikaði í dag að hann er besti tennisleikari heimsins. Sport 9.7.2006 16:12
Jafnt í Laugardalnum Valur og Breiðablik gerðu jafntefli í leik dagsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu sem fram fór á Laugardalsvellinum í dag. Pálmi Rafn Pálmason kom Valsmönnum yfir á 71. mínútu, en Blikar náðu að jafna leikinn á lokamínútunni með marki frá Petr Podzemski. Sport 9.7.2006 16:03
Skelton vann óvæntan sigur á Williams Matt Skelton vann í gærkvöld nokkuð óvæntan sigur á Danny Williams í þungavigtarbardaga þeirra í Cardiff í gærkvöldi, en bardaginn var sýndur beint á Sýn. Skelton hélt sig óvænt í góðri fjarlægð frá andstæðingi sínum í bardaganum og nýtti sér minni líkamsþyngd sína til að leggja Williams á stigum. Sport 9.7.2006 15:50
Valsmenn komnir yfir Valsmenn eru komnir 1-0 yfir gegn Breiðablik í Laugardalnum. Valsmenn fengu vítaspyrnu á 70. mínútu leiksins, en Hjörvar Hafliðason, markvörður og fyrirliði Blika, varði spyrnu Garðars Gunnlaugssonar. Upp úr því fengu Valsarar hornspyrnu og eftir hana skoraði Pálmi Rafn Pálmason og kom Val yfir. Sport 9.7.2006 15:41
Krefur Jordan og Nike um 60 milljarða Maður nokkur að nafni Allen Heckard í Oregon-fylki í Bandaríkjunum hefur nú farið í skaðabótamál við Michael Jordan og Nike íþróttavöruframleiðandann, því hann segist vera orðinn hundleiður á því að fólk ruglist á honum og körfuboltastjörnunni fyrrverandi. Maðurinn fer fram á tæpa 60 milljarða króna í skaðabætur fyrir það sem hann kallar daglega pínu undanfarin 15 ár. Sport 9.7.2006 15:28
Lilleström 2-0 yfir í hálfleik Norska liðið Lilleström hefur yfir 2-0 gegn Keflavík í síðari viðureign liðanna í Inter Toto keppninni í knattspyrnu, en leikið er í Keflavík. Norska liðið vann fyrri leikinn 4-1 og því er útlitið ansi dökkt hjá heimamönnum í Keflavík. Mörkin komu á 10. og 19. mínútu, en algjör einstefna var á mark Keflvíkinga fyrsta hálftímann. Sport 9.7.2006 15:16
Ekkert mark komið í Laugardalnum Ekkert mark leit dagsins ljós í fyrri hálfleiknum í viðureign Vals og Breiðabliks í Landsbankadeild karla í dag, en leikurinn fer fram í blíðunni á Laugardalsvelli. Mjög fáir áhorfendur eru mættir til að fylgjast með leiknum, en Valsmenn hafa verið með yfirhöndina lengst af. Sport 9.7.2006 15:08
Hafnaði tilboði um að taka við liði í Meistaradeildinni Umboðsmaður Sven-Göran Eriksson, fráfarandi landsliðsþjálfara Englendinga, segir að Svíinn hafi nýlega hafnað tilboði um að taka við liði sem spilar í meistaradeild Evrópu. Hann tekur fram að liðið sé ekki frá Englandi, en auk þess á Eriksson að hafa hafnað tilboði um að taka við landsliði Jamaíka á dögunum. Sport 9.7.2006 15:04
Ætlar að fara frá Manchester United Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hefur gefið það afdráttarlaust út að hann ætli að fara frá Manchester United og ganga til liðs við Barcelona eða Real Madrid á Spáni. Ronaldo er ekki sáttur við að hafa ekki fengið meiri stuðning úr herbúðum Manchester United í kjölfar þeirrar gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir eftir leik Englendinga og Portúgala á HM. Sport 9.7.2006 14:30
Danny Williams mætir Matt Skelton Sýn býður upp á beina útsendingu frá hnefaleikum í kvöld, þar sem aðalbardaginn verður viðureign þeirra Danny Williams og Matt Skelton í þungavigtinni. Þessir kappar áttust við í febrúar síðastliðnum og þar vann Williams á stigum. Hann hefur nú þyngt sig til muna fyrir bardaga kvöldsins og hefur lofað því að verða enn betri en í fyrri viðureigninni, en sigurvegarinn í kvöld mun væntanlega mæta rússneska tröllinu Nikolai Valuev um WBC-beltið. Sport 8.7.2006 20:50
Schweinsteiger stal senunni í sigri Þjóðverja Gestgjafarnir Þjóðverjar kórónuðu frábært heimsmeistaramót með því að tryggja sér þriðja sætið í dag þegar þeir lögðu Portúgala að velli 3-1 í Stuttgart í dag. Bastian Schweinsteiger hlaut uppreisn æru þegar hann skoraði tvö af mörkum þýska liðsins og var maðurinn á bak við það þriðja. Nuno Gomez minnkaði muninn fyrir Portúgala skömmu fyrir leikslok, eftir sendingu frá Luis Figo sem var að spila sinn síðasta leik fyrir landsliðið. Fótbolti 8.7.2006 20:34
Þjóðverjar komnir í 2-0 Þjóðverjar hafa náð 2-0 forystu gegn Portúgölum í leiknum um þriðja sætið á HM sem fram fer í Stuttgart. Það var miðjumaðurinn Bastian Schweinsteiger sem var allt í öllu í mörkum Þjóðverja, en hann skoraði fyrra markið með flöktandi þrumufleyg utan teigs á 56. mínútu. Síðara markið kom einnig eftir þrumuskot frá Schweinsteiger aðeins um fimm mínútum síðar, en þá hrökk skot hans af varnarmanninum Armando Petit og í netið. Sport 8.7.2006 20:16
Powell og Jones sigruðu í 100 m hlaupinu Heimsmethafinn Asafa Powell frá Jamaíku sigraði í 100 m hlaupi karla á gullmótinu í frjálsum íþróttum í París í dag. Powell kom í mark á 9,85 sekúndum, tveimur hundraðshlutum úr sekúndu á undan næsta manni. Gamla kempan Marion Jones hristi af sér ásakanir um lyfjamisnotkun með sigri í kvennaflokki þegar hún kom í mark á 10,92 sekúndum sem er besti tími hennar í fjögur ár. Sport 8.7.2006 20:10
Markalaust í Stuttgart í hálfleik Staðan í leik Þjóðverja og Portúgala um þriðja sætið á HM er markalaus í hálfleik. Leikurinn hefur verið nokkuð fjörugur og hefur í raun boðið upp á allt nema mörkin í fyrri hálfleiknum. Rétt er að árétta að samkvæmt samningi Sýnar um sýningarrétt á HM 2006 verða aðeins fjórir leikir úr keppninni sendir út í opinni dagskrá og er þessi leikur ekki einn þeirra. Sport 8.7.2006 19:44
Þróttur lagði Milwall Lið Þróttar í 1.deildinni gerði sér lítið fyrir og skellti enska 2. deildarliðinu Milwall 2-0 í æfingaleik liðanna á Valbjarnarvellinum í dag. Sinisa Valdimar Kekic skoraði annað mark Þróttar beint úr aukaspyrnu og þá var Magnús Már Lúðvíksson einnig á skotskónum. Milwall mætir KR í æfingaleik á mánudag. Sport 8.7.2006 18:59
LeBron James framlengir við Cleveland Stuðningsmenn Cleveland Cavaliers vörpuðu öndinni léttar í gær þegar félagið gaf það út að ungstirnið LeBron James hefði samþykkt að framlengja samning sinn um fimm ár. James fær fyrir vikið um 80 milljónir dollara í laun á samningstímanum, en áður höfðu þeir Dwyane Wade og Carmelo Anthony úr 2003 árgangi nýliða samþykkt hliðstæða samninga hjá liðum sínum. James undirritar nýja samninginn formlega á miðvikudaginn. Sport 8.7.2006 18:50
Figo er á bekknum hjá Portúgölum Nú styttist í að leikur Þjóðverja og Portúgala um þriðja sætið á HM hefjist, en hann er að sjálfssögðu sýndur í beinni á Sýn. Luis Figo er á varamannabekk Portúgala í dag, en ef hann kemur við sögu í dag verður það síðasti landsleikur hans á ferlinum. Oliver Kahn stendur í marki Þjóðverja í stað Jens Lehmann og er að leika sinn síðasta leik á HM. Sport 8.7.2006 18:44
Sol Campbell hættur hjá Arsenal Enski landsliðsmiðvörðurinn Sol Campbell hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila með úrvalsdeildarliði Arsenal og segir tíma til kominn að reyna fyrir sér með öðru liði. Campbell segist vel geta hugsað sér að leika utan Englands, en hefur ekkert gefið upp um framtíðaráform sín að öðru leiti. Sport 8.7.2006 17:44
Honchar í forystu Úkraínumaðurinn Serhiy Honchar hjá liði T-Mobile klæðist nú gulu treyjunni í Frakklandshjólreiðunum eftir að hann sigraði á sjöundu leiðinni í dag. Þá lá leið keppenda 52 kílómetra leið frá Saint Gregoire til Rennes. Sigur Honchar var mjög sannfærandi og kom hann í mark rúmri mínútu á undan Bandaríkjamanninum Floyd Landis sem varð annar. Sport 8.7.2006 17:11
Blikar sigruðu KA/Þór Íslandsmeistarar Breiðabliks lögðu sameiginlegt lið KA og Þórs 3-0 norður á Akureyri í leik dagsins í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Erna Sigurðardóttir, Greta Mjöll Samúelsdóttir og Edda Garðarsdóttir skoruðu mörk Blika í dag og er liðið sem fyrr í öðru sæti Landsbankadeildarinnar, en norðanstúlkur í næst neðsta sæti. Sport 8.7.2006 16:25
Birgir Leifur á þremur undir pari í Skotlandi Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að spila ágætlega á áskorendamótinu í Skotlandi og lauk þriðja keppnisdeginum á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Birgir er því samtals á þremur höggum undir pari fyrir lokadaginn og er nokkuð ofarlega á töflunni. Efsti maður mótsins eins og staðan er nú er á 12 höggum undir pari. Sport 8.7.2006 16:09
Owen gagnrýnir Eriksson Enski landsliðsframherjinn Michael Owen hefur nokkuð óvænt gagnrýnt þá ákvörðun Sven-Göran Eriksson að hafa teflt Wayne Rooney fram einum í framlínu enska liðsins á HM og segir þessa ákvörðun eina af ástæðunum fyrir því að Rooney var rekinn af velli gegn Portúgölum. Sport 8.7.2006 15:56
Fyrsti sigur Amelie Mauresmo á Wimbledon Franska tenniskonan Amelie Mauresmo vann í dag sinn fyrsta sigur á Wimbledon-mótinu þegar hún lagði Justine Henin-Hardenne í dramatískum úrslitaleik 2-6, 6-3 og 6-4 í London. Mauresmo hefur haft það orð á sér að standast ekki mikla pressu, en eftir skelfilega byrjun í dag náði hún að snúa leiknum sér í hag og sigra. Sport 8.7.2006 15:38
Cufre og Rodriguez í bann Tveir af leikmönnum argentínska landsliðsins hafa verið dæmdir í leikbönn vegna ólátanna sem brutust út eftir leik Argentínumanna og Þjóðverja í 8-liða úrslitum HM. Varamaðurinn Leandro Cufre fékk fjögurra leikja bann og sekt upp á tæp 5000 pund fyrir að sparka í Pet Metersacker og þá fékk Maxi Rodriguez tveggja leikja bann og 2000 punda sekt fyrir að slá til andstæðings síns. Þjóðverjinn Torsten Frings hafði áður tekið út eins leiks bann fyrir sinn þátt í málinu. Sport 8.7.2006 15:09
Rooney í tveggja leikja bann Enski landsliðsframherjinn Wayne Rooney hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann og gert að greiða 2400 pund í sekt fyrir brot sitt á Ricardo Carvalho í leik Englands og Portúgal í 8-liða úrslitum HM á dögunum. Rooney verður því í banni í næstu tveimur landsleikjum enska liðsins í undankeppni EM gegn Andorra og Makedóníu. Sport 8.7.2006 15:05
ÍA lagði Grindavík á Skaganum Skagamenn nældu sér í þrjú mikilvæg stig í botnbaráttunni í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld þegar liðið lagði Grindvíkinga á heimavelli sínum 2-1. Bjarni Guðjónsson kom Skagamönnum yfir á 17. mínútu með laglegu marki beint úr aukaspyrnu, en Jóhann Þórhallsson jafnaði metin á 71. mínútu. Jóhanni Helgasyni var svo vikið af velli skömmu síðar og heimamenn náðu að nýta sér liðsmuninn þegar Hjörtur Hjartarson skoraði sigurmark ÍA á 88. mínútu. Sport 7.7.2006 19:55
Draumaúrslitaleikur í karlaflokki Það verður Rafael Nadal sem mætir Roger Federer í úrslitaleik í karlaflokki á Wimbledon-mótinu í tennis um helgina, en Nadal vann í kvöld sigur á Marcos Baghdatis í undanúrslitum. Nadal sigraði 6-, 7-5 og 6-3 og er því kominn í úrslit á Wimbledon í fyrsta sinn á ferlinum. Sport 7.7.2006 19:24
Æfingar bannaðar í Berlín Liðum Frakka og Þjóðverja sem leika til úrslita á HM á sunnudaginn, hefur verið bannað að æfa á vellinum í Berlín þar sem úrslitaleikurinn fer fram vegna lélegra skilyrða á vellinum. Mikið hefur rignt í Berlín undanfarið og vilja vallarverðir ekki taka áhættuna á því að völlurinn verði út sparkaður þegar kemur að úrslitaleiknum sjálfum. Sport 7.7.2006 18:00
Ég er enn í rusli Þýski markvörðurinn Jens Lehmann segist enn vera í rusli eftir að hafa misst af því að fara í úrslitaleikinn á HM. Hann segist ekki vita hvað framtíðin ber í skauti sér varðandi landsliðið, en ítrekar að hann vilji ólmur hafa Jurgen Klinsmann áfram í starfi landsliðsþjálfara. Sport 7.7.2006 17:05
Byrjar að æfa eftir sex vikur Ástralski miðjumaðurinn Harry Kewell hjá Liverpool getur ekki byrjað að æfa aftur með félaginu fyrr en eftir um sex vikur. Kewell var greindur með gigt í öðrum fætinum á HM, en læknar Liverpool segja þann úrskurð þvætting og segja að hann hafi fengið sýkingu í fótinn. Hann þarf engu að síður að fara í aðgerð og verður frá keppni í fyrrgreindan tíma. Sport 7.7.2006 16:58