Íþróttir
172 173 174 175 176 177 178 179 180 … 334 ›
Viðræður Bolton og Fortune á lokastigi Nú virðist fátt því til fyrirstöðu að enska úrvalsdeildarfélagið Bolton gangi frá samingi við suður-afríska miðjumanninn Quinton Fortune í kvöld eða á morgun. Fortune var áður hjá Manchester United, en erfið barátta hans við meiðsli setti þar strik í reikninginn. Umboðsmaðuri Fortune segir æfingar hans með liðinu undanfarið hafa gengið mjög vel og að búið sé að ganga frá meginatriðum í samningi hans. Sport 25.7.2006 13:44
Íhugaði að fara til Newcastle Framherjinn öflugi Wayne Rooney hjá Manchester United greinir frá því í æfisögu sinni sem kemur út fljótlega að hann hafi átt í miklum deilum við David Moyes, stjóra Everton, rétt áður en hann gekk í raðir Manchester United. Hann segir að um tíma hafi Newcastle verið eina liðið sem sýndi sér áhuga og segir að líklega hefði hann frekar farið þangað en að vera áfram hjá Everton. Sport 25.7.2006 13:32
KR-ingar í undanúrslit KR-ingar eru komnir í undanúrslitin í Visa-bikarnum eftir sigur á ÍBV í vítakeppni í Frostaskjóli í kvöld. Bjarni Aðalsteinsson kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik, en Björgólfur Takefusa jafnaði fyrir KR í þeim síðari. Staðan var jöfn 1-1 að lokinni framlengingu og það var markvörðurinn Kristján Finnbogason sem var hetja sinna manna og tryggði þeim 4-2 sigur. Sport 24.7.2006 22:07
Veigar á skotskónum í sigri Stabæk Veigar Páll Gunnarsson skoraði síðasta mark norska liðsins Stabæk í 3-1 sigri þess á Tromsö í leik kvöldsins í norska boltanum. Veigar átti auk þess þátt í öðru marki liðsins og er markahæsti leikmaður deildarinnar um þessar mundir. Stabæk er í öðru sæti deildarinnar. Fótbolti 24.7.2006 22:05
Erum að reyna að kaupa Cristiano Ronaldo Forseti spænska knattspyrnufélagsins Valencia segist ætla að gera allt sem í hans valdi stendur til að reyna að lokka portúgalska vængmanninn Cristiano Ronaldo til Spánar frá Manchester United. Sport 24.7.2006 20:59
Kynlíf og leikjatölvur ástæða daprar frammistöðu á HM Breska slúðurblaðið The Sun hefur það eftir franskri unnustu brasilíska knattspyrnusnillingsins Ronaldinho að slaka frammistöðu hans á HM megi rekja til þess að hann eyddi mörgum nóttum í að stunda kynlíf og leika sér í tölvuleikjum á meðan á keppninni stóð. Sport 24.7.2006 19:45
Ætlar að vinna báða leikina gegn Chelsea Jose Mourinho skartar nýrri klippingu þessa dagana og segir sá portúgalski að krúnuraksturinn tákni það að hann sé tilbúinn í stríðið sem enska úrvalsdeildin verður í vetur. Kollegi hans Sir Alex Ferguson er á sama hátt tilbúinn í slaginn og ætlar að vinna báða deildarleikina við þá bláu. Sport 24.7.2006 19:32
Vieira hefði aldrei átt að fara frá Arsenal Framherjinn Dennis Bergkamp sem lék kveðjuleik sinn með Arsenal á nýja Emirates vellinum um síðustu helgi, sagði í samtali við breska blaðið Sun að Patrick Vieira hefði aldrei átt að fara frá Arsenal. Vieira er nú talinn vera á leið til Inter Milan, en Bergkamp segist hafa fundið fyrir því um helgina að sá franski ætti enn stóran hlut í hjörtum stuðningsmanna Arsenal. Sport 24.7.2006 19:18
Knapi til rannsóknar fyrir að skalla hest sinn Breski knapinn Paul O´Neill á hefur verið kallaður inn á teppi hjá æðstu mönnum í hestaíþróttinni þar í landi eftir að myndir náðust af honum skalla hest sinn um helgina. Myndirnar hafa eðlilega vakið mikla reiði, en O´Neill brást svona við eftir að hafa dottið af baki við eina hindrunina. Sport 24.7.2006 18:39
Mjög ósáttur við ljósmyndara Hinn dagfarsprúði sigurvegari Opna breska meistaramótsins, Tiger Woods, var fjarri því að vera sáttur með ágang ljósmyndara á meðan mótið stóð yfir um helgina. Þar átti hann ekki við atvinnuljósmyndarana, heldur áhugamenn sem tóku myndir af honum, sumir hverjir með farsímamyndavélum. Golf 24.7.2006 18:27
Liverpool með bestan árangur allra liða Breska blaðið The Times birtir í dag úttekt á árangri liða í efstu deild frá því deildarkeppni hófst árið 1888. Þar kemur fram að Liverpool er sigursælasta liðið í sögu deildarinnar, nokkuð á undan erkifjendum sínum Manchester United. Arsenal vermir þriðja sætið. Sport 24.7.2006 17:54
Framtíð mín er á Anfield Spænski miðjumaðurinn Xabi Alonso hjá Liverpool er nú kominn aftur til æfinga með liðinu eftir sumarfrí. Hann segir framtíð sína klárlega vera á Anfield og segist ekkert kippa sér upp við orðróm á borð við þann sem fór af stað fyrir nokkru um að hann væri á leið til Real Madrid í heimalandi sínu. Sport 24.7.2006 17:43
Mig langar að lyfta Englandsbikarnum Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segist að mestu vera búinn að jafna sig á vonbrigðunum með Englendingum á HM og ætlar sér stóra hluti með liði Liverpool á komandi leiktíð. Sport 24.7.2006 16:47
Al Harrington sagður á leið til Indiana Heimildarmaður ESPN-sjónvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum segir að aðeins eigi eftir að ganga frá smáatriðum svo framherjinn sterki Al Harrington geti gengið í raðir Indiana Pacers. Harrington hefur leikið með Atlanta Hawks undanfarin ár, en virðist nú vera aftur á leið til liðsins sem tók hann í nýliðavalinu árið 1998. Sport 24.7.2006 16:39
Casiraghi og Zola ráðnir þjálfarar Ítalska knattspyrnusambandið hefur ráðið gömlu kempurnar Pierluigi Casiraghi og Gianfranco Zola til starfa sem þjálfara U21 árs landsliðsins. Casiraghi lék síðast með liði Chelsea, en þurfti að hætta vegna meiðsla. Zola lagði skóna á hilluna í fyrra eftir glæsilegan feril þar sem hann lék einnig lengi með Chelsea. Fótbolti 24.7.2006 16:19
Íhugar að létta sig Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton, sem er orðinn áhorfendum Sýnar af góðu kunnur, íhugar nú að fara niður um þyngdarflokk í kjölfar þess að Kanadamaðurinn Arturo Gatti tapaði fyrir Carlos Baldomir um helgina. Hatton er í sama þyngdarflokki og Gatti, en sá var hugsaður sem næsti andstæðingur Bretans þangað til hann tapaði um helgina í bardaga sem sýndur var á Sýn. Sport 24.7.2006 16:12
Hefur ekki áhyggjur af áhlaupi Ferrari Heimsmeistarinn Fernando Alonso í Formúlu 1 hefur ekki áhyggjur þó Michael Schumacher og Ferrari hafi unnið tvær síðustu keppnir og eigi þá næstu á heimavelli hans, Hockenheim-brautinni í Þýskalandi. Formúla 1 24.7.2006 16:06
Platini gefur formlega kost á sér til forseta Franska knattspyrnugoðsögnin Michel Platini hefur nú formlega boðið sig fram á móti Lennart Johanson sem næsti forseti evrópska knattspyrnusambandsins og hefur franska knattspyrnusambandið skilað inn umsókn hans. Platini er eini mótframbjóðandi Svíans, sem hefur setið í valdastóli síðan árið 1990. Sport 24.7.2006 15:51
Vieira á leið til Inter Franski landsliðsmaðurinn Patrick Vieira er sagður vera nálægt því að ganga í raðir Inter Milan fyrir um 9 milljónir punda. Roberto Mancini, þjálfari Inter, er mjög hrifinn af hinum þrítuga Vieira, en segir liðið væntanlega breyta nokkuð um stíl á næstu leiktíð ef af kaupum þessum verður. "Við missum væntanlega einhverja tækni og útsjónasemi þegar Veron fer, en í stað þess fáum við kraft og styrk í formi Vieira," sagði Mancini. Fótbolti 24.7.2006 15:46
Lee McCulloch framlengir við Wigan Miðjumaðurinn Lee McCulloch hefur skrifað undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarfélagið Wigan og gildir samningurinn til fjögurra ára. McCulloch er skoskur landsliðsmaður og hefur verið lykilmaður Wigan síðan hann kom frá liði Motherwell í heimalandinu árið 2001. Hann er einnig í miklum metum hjá Paul Jewell knattspyrnustjóra, sem segir leikmanninn endurspegla það sem lið Wigan stendur fyrir á vellinum. Sport 24.7.2006 15:40
Veit ekki hvort Carrick er falur fyrir 20 milljónir Martin Jol, stjóri Tottenham, segist vera feginn að vera búinn að endurheimta miðjumanninn Michael Carrick úr sumarfríi og vonar að leikmaðurinn verði áfram hjá félaginu. Manchester United hefur þegar verið neitað um 10 milljón punda tilboð í leikmanninn og breskir fjölmiðlar leiða líkum að því að Alex Ferguson og félagar eigi eftir að hækka boð sitt. Sport 24.7.2006 15:27
Viggó Sigurðsson tekur við liði Flensburg Viggó Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Flensburg til bráðabirgða í kjölfar þess að þjálfari liðsins, hinn sænski Kent-Harry Andreson þarf að fara í uppskurð. Viggó þjálfaði lið Wuppertal í Þýskalandi um miðjan síðasta áratug. Sport 24.7.2006 15:23
Ferillinn senn á enda Króatíski framherjinn Dado Prso hjá Glasgow Rangers segist óttast að hann þurfi að leggja skóna á hilluna að loknu næsta tímabili, en samningur hans rennur út næsta vor. Prso lagði nýverið landsliðsskóna á hilluna og segist ekki eiga von á að geta leikið meira en eitt tímabil í viðbót vegna þrálátra hnémeiðsla. Prso er 32 ára gamall og spilaði með franska liðinu Mónakó áður en hann gekk í raðir Rangers. Sport 24.7.2006 14:22
Bayern herðir róðurinn Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen eru nú farnir að herða róðurinn í þeirri von að landa hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy frá Manchester United. Enn ber nokkuð í milli peningatilboðs Bayern og þess verðs sem United vill fá fyrir hann, en Franz Beckenbauer segir þýska liðið ætla að losa annað hvort Claudio Pizarro eða Roy Makaay frá félaginu í staðinn. Sport 24.7.2006 14:10
Chelsea bíður eftir ásættanlegu tilboði í Crespo Úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur gefið út yfirlýsingu þar sem það áréttar að argentínski framherjinn Hernan Crespo sé samningsbundinn félaginu næstu tvö ár og verði því ekki seldur nema fyrir ásættanlegt fé. Crespo tjaldar öllu til að fá að fara aftur til Ítalíu, en segist mjög þakklátur forráðamönnum og stuðningsmönnum Chelsea. Sport 24.7.2006 14:03
Duff kostaði 5 milljónir punda Newcastle hefur nú formlega kynnt Damien Duff sem nýjan leikmann félagsins, en það kom mörgum á óvart í dag þegar kaupverðið var skráð aðeins 5 milljónir punda en ekki 10 eins og breskir miðlar hafa greint frá yfir helgina. Duff segist hafa fylgt hjartanu þegar hann ákvað að ganga í raðir Newcastle frekar en einhvers af hinum liðunum sem voru á eftir honum. Sport 24.7.2006 14:00
Þáttur um Esso-mótið á Sýn annað kvöld Annað kvöld verður á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar sérstakur þáttur helgaður Esso-mótinu í knattspyrnu sem fram fór á Akureyri á dögunum, en þetta var í 20. sinn sem mótið er haldið. Þorsteinn Gunnarsson íþróttafréttamaður var á svæðinu og tók fjölda viðtala við keppendur og áhorfendur á mótinu. Þátturinn hefst klukkan 20:10 annað kvöld. Sport 24.7.2006 13:46
Keflvíkingar lögðu Skagamenn í frábærum leik Keflavík, Víkingur og Þróttur tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Visa-bikars karla í knattspyrnu. Keflvíkingar lögðu Skagamenn 4-3 í frábærum leik á Skaganum, Víkingur lagði Val 2-1 á útivelli og Þróttarar gerðu góða ferð norður á Akureyri og burstuðu KA 5-1. Á morgun mætast svo KR og ÍBV um síðasta sætið í undanúrslitunum. Sport 23.7.2006 21:30
Jafnt á öllum vígstöðvum í hálfleik Nú hefur verið flautað til leikhlés í leikjunum þremur sem fram fara í 8-liða úrslitum Visa-bikarsins í knattspyrnu og er staðan jöfn 1-1 í þeim öllum. Valsmenn taka á móti Víkingum á Laugardalsvelli, ÍA tekur á móti Keflvíkingum á Skaganum og þá mætast KA og Þróttur fyrir norðan. Sport 23.7.2006 20:39
Tiger Woods varði titil sinn Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur tryggt sér sigur á opna breska meistaramótinu í golfi, annað árið í röð. Woods lék af fádæma öryggi í dag og tryggði sér sigur með því að leika lokahringinn á 67 höggum og endaði á 18 höggum undir pari. Chris DiMarco lék á 68 höggum í dag og lauk keppni tveimur höggum á eftir Woods, sem grét fögrum tárum þegar sigurinn var í höfn. Golf 23.7.2006 17:28