Íþróttir
139 140 141 142 143 144 145 146 147 … 334 ›
Gríðarlega mikilvægur sigur Arsene Wenger sagði að þó hans menn í Arsenal hefðu vissulega ekki verið úr leik í baráttunni um meistaratitilinn þó þeir hefðu tapað fyrir Manchester United á Old Trafford í dag, hefði það verið leikmönnum sínum áfall sem erfitt hefði verið að komast yfir. Enski boltinn 17.9.2006 19:21
Barrera varði titil sinn Marco Antonio Barrera varði í nótt WBC titil sinn í fjaðurvigt þegar hann vann sigur á Rocky Juarez í Las Vegas í Bandaríkjunum. Bardaginn var sýndur beint á Sýn og hafði Barrera meiri yfirburði í þetta sinn en í fyrri bardaga þeirra, þar sem honum var dæmdur sigur á umdeildan hátt. Sport 17.9.2006 17:21
Sáttur við rauða spjaldið Jose Mourinho segist ekki mótmæla rauða spjaldinu sem Michael Ballack fékk að líta í leiknum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag, en gat þó ekki stillt sig um að senda dómara leiksins smá pillu á blaðamannafundi eftir leikinn. Enski boltinn 17.9.2006 19:04
Fluttur á sjúkrahús eftir samstuð Írski markvörðurinn Shay Given hjá Newcastle hefur verið fluttur á sjúkrahús í Lundúnum eftir að hafa lent í samstuði við Marlon Harewood, sóknarmann West Ham í leik liðanna í dag. Given verður á sjúkrahúsi í nótt og fór því ekki norður til Newcastle til með félögum sínum eftir leikinn. Given kenndi sér meins í maganum og því var ákveðið að flytja hann á sjúkrahús. Enski boltinn 17.9.2006 18:58
Racing - Barcelona í beinni Leikur Racing Santander og Barcelona er nú að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Það er hinn óviðjafnanlegi Guðjón Guðmundsson sem lýsir leiknum og vonandi fá áhorfendur tækifæri til að sjá landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen spreyta sig hjá Katalóníuliðinu, en hann er á varamannabekknum í dag. Síðar í kvöld er svo leikur Real Madrid og Real Sociedad sýndur beint á Sýn. Fótbolti 17.9.2006 17:53
Arsenal stal sigrinum á Old Trafford Arsenal krækti í sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Manchester United 1-0 á Old Trafford með marki frá Emmanuel Adebayor þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Þetta var fyrsti sigur Arsenal á Old Trafford síðan árið 2002, en Arsenal misnotaði einnig vítaspyrnu þegar Gilberto lét verja frá sér í upphafi leiksins. Enski boltinn 17.9.2006 17:08
Newcastle skellti West Ham Leikjunum þremur sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Newcastle vann góðan 2-0 útisigur á West Ham í Lundúnum, Blackburn skellti Manchester City 4-2 á Ewood Park og Tottenham og Fulham gerðu markalaust jafntefli á White Hart Lane. Enski boltinn 17.9.2006 16:02
Jafnt í hálfleik á Old Trafford Staðan í leik Manchester United og Arsenal er jöfn 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign erkifjendanna á Old Trafford. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í leiknum, en besta færi leiksins átti Arsenal. Tomasz Kuszczak markvörður United fékk dæmda á sig mjög vafasama vítaspyrnu eftir aðeins tíu mínútna leik, en Kuszczak gerði sér lítið fyrir og varði vítið frá Gilberto. Enski boltinn 17.9.2006 15:52
Góður sigur hjá Paul Casey Enski kylfingurinn Paul Casey vann í dag glæsilegan sigur á heimsmótinu í holukeppni sem fram fór á Wentworth vellinum í Lundúnum. Casey sigraði Bandaríkjamanninn Shaun Micheel 10-8 í úrslitum mótsins, en Casey er fyrsti nýliðinn sem vinnur mótið síðan Ernie Els afrekaði það árið 1994. Golf 17.9.2006 15:43
Mikið fjör á Ewood Park Nú er kominn hálfleikur í þremur leikjum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni, en öll fjögur mörkin sem litið hafa dagsins ljós komu á Ewood Park, þar sem staðan í leik Blackburn og Manchester City er 2-2. Markalaust er hjá Tottenham og Fulham á White Hart Lane, eins og hjá West Ham og Newcastle á Upton Park. Enski boltinn 17.9.2006 14:58
Kuszczak stendur í marki United Nú styttist í leik Manchester United og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni, en þessi stórleikur hefst klukkan 15. Byrjunarliðin eru klár og ljóst er að Tomasz Kuszczak stendur í marki Manchester United í stað Edwin van der Sar, sem er veikur. Thierry Henry er ekki í liði Arsenal vegna meiðsla. Enski boltinn 17.9.2006 14:50
Glæsimark Drogba tryggði Chelsea sigur Chelsea lagði Liverpool 1-0 í fyrri stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var Didier Drogba sem skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks með glæsilegu skoti, en Michael Ballack var vikið af leikvelli í upphafi þess síðari fyrir glórulaust brot. Liverpool sótti nokkuð í sig veðrið í síðari hálfleiknum en náði ekki að nýta sér liðsmuninn og hefur því enn ekki lagt Chelsea í deildinni undir stjórn Rafa Benitez. Enski boltinn 17.9.2006 14:17
Ungu leikmennirnir verða að leggja harðar að sér Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, segir að ungu mennirnir í liðinu verði að leggja harðar að sér og geti ekki búist við því að hann sjálfur dragi vagninn. Enski boltinn 17.9.2006 13:53
Verður frá í minnst sex vikur Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves verður frá keppni í lágmark sex vikur efir að staðfest er að hann braut bein í fæti sínum í leik gegn Bielefeld í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Þetta þýðir að hann mun missa ef leikjum Englendinga í undankeppni EM í næsta mánuði. Fótbolti 17.9.2006 13:40
Vill frekar halda áfram en vera heima hjá konunni Sir Alex Ferguson segir í samtali við News of the World um helgina að hann ætli sér að halda áfram að stýra Manchester United í að minnsta kosti tvö ár í viðbót, því ef hann hætti störfum - bíði hans ekkert annað en að hanga heima með konu sinni. Enski boltinn 17.9.2006 13:30
Chelsea yfir gegn Liverpool Englandsmeistarar Chelsea hafa yfir 1-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í fyrri stórleik dagsins, en leikið er á Stamford Bridge í Lundúnum. Það var Fílstrendingurinn Didier Drogba sem skoraði mark Chelsea á 42. mínútu með frábæru einstaklingsframtaki, en hann fékk háa sendingu inn á teiginn með bakið í markið, sneri af sér varnarmann og skaut viðstöðulausu vinstrifótarskoti framhjá markverðinum. Enski boltinn 17.9.2006 13:15
Breiðablik mætir Arsenal Kvennalið Breiðabliks tryggði sér í dag sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða þegar liðið lagði Vitebsk frá Hvíta-Rússlandi 1-0 í lokaleik sínum í 16-liða úrslitunum í Finnlandi. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði sigurmark Blika skömmu fyrir leikslok og fær Kópavogsliðið nú það erfiða verkefni að mæta Englandsmeisturum Arsenal í 8-liða úrslitunum. Íslenski boltinn 17.9.2006 13:10
Stórt tap fyrir Austurríki Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði stórt fyrir Austurríkismönnum ytra í B-deild Evrópumótsins í gærkvöldi, 85-64. Stóru mennirnir í Íslenska liðinu fóru allir útaf með fimm villur í leiknum og eftirleikurinn var heimamönnum auðveldur. Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 14 stig, en þetta var þriðja tap liðsins í riðlinum í fjórum leikjum. Körfubolti 17.9.2006 13:06
Meiddur í nára og lék ekki Landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék ekki með liði sínu Hannover í þýsku úrvalsdeildinni vegna meiðsla. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Hannover tognaði Gunnar Heiðar lítillega á æfingu fyrir helgi og gat ekki leikið með af þeim sökum. Fótbolti 16.9.2006 21:19
Sendir landsliðsmönnum sínum aðvörun Steve McClaren hefur sent þeim leikmönnum sem verið hafa inn og út úr enska landsliðshópnum aðvörun og segir að ef menn ætli sér að vinna sér fast sæti í liði sínu - verði þeir á sama hátt að vera fastamenn í félagsliðum sínum. Sport 16.9.2006 19:21
Deportivo lagði Villarreal Einn leikur fór fram í spænska boltanum í kvöld. Deportivo La Corunia bar sigurorð af Villarreal 2-0 á heimavelli sínum, þar sem Juan Capdevila skoraði bæði mörk Deportivo. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. Fótbolti 16.9.2006 21:50
Barrera mætir Rocky Juarez Bardagi Marcos Antonio Barrera og Rocky Juarez verður aðal viðburður kvöldsins þegar Sýn verður með beina útsendingu frá hnefaleikum frá Las Vegas í Bandaríkjunum. Þetta verður í annað sinn sem þeir mætast í titilbardaga, en hinum mexíkóska var dæmdur sigur á stigum í fyrri bardaganum og þótti sú ákvörðun mjög umdeild. Útsending hefst klukkan eitt eftir miðnætti. Sport 16.9.2006 21:27
Varar við of mikilli bjartsýni Harry Redknapp hefur varað stuðninsmenn Portsmouth við of mikilli bjartsýni í kjölfar þess að liðið náði toppsætinu í ensku úrvalsdeildinni með sigri á Charlton í dag. Portsmouth hefur hvorki tapað leik né fengið á sig mark það sem af er deildarkeppninni, en stjórinn vill ekki að stuðningsmenn fari að byggja skýjaborgir. Sport 16.9.2006 21:00
Deportivo yfir í hálfleik Nú stendur yfir leikur Deportivo la Corunia og Villarreal í spænsku deildinni og hefur Deportivo 1-0 yfir þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Þorsteinn Gunnarsson lýsir leiknum beint á Sýn, en það var Capdevila sem skoraði mark Deportivo í fyrri hálfleik. Fótbolti 16.9.2006 20:54
Stórsigur hjá Gummersbach Sjö leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum þegar Gummersbach burstaði Grosswallstadt 35-22 en þessi lið berjast í toppbaráttunni í deildinni. Þá töpuðu Viggó Sigurðsson og félagar í Flensburg mjög óvænt fyrir Kronau Östringen á útivelli 31-30. Sport 16.9.2006 20:11
Segir dómara leggja lið sitt í einelti Paul Jewell var ekki par ánægður með frammistöðu dómarans Alan Wiley eftir 2-2 jafnteflið við Everton í dag, en hann segir dómara í ensku úrvalsdeildinni allt of spjaldaglaða á sitt lið á meðan stóru liðin sleppi ítrekað með sömu brot. Sport 16.9.2006 19:54
Boðar tiltekt í hópnum David Moyes var ekki par kátur með að hans menn næðu aðeins 2-2 jafntefli við Wigan á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Moyes gagnrýndi leikmenn sína fyrir að fá á sig tvö óþarfa mörk og boðar breytingar í hóp sínum í kjölfarið. Sport 16.9.2006 19:44
Jafnt hjá Watford og Villa Watford og Aston Villa skildu jöfn 0-0 á Vicarage Road í ensku úrvalsdeildinni í dag, þar sem markverðir beggja liða voru í aðalhlutverki og komu í veg fyrir að öðru liðinu tækist að stela sigrinum. Villa hafði mikla yfirburði framan af leiknum, en heimamenn tóku við sér í síðari hálfleik og segja má að jafnteflið hafi verið sanngjörn niðurstaða. Sport 16.9.2006 18:26
FH Íslandsmeistari - ÍBV fallið FH-ingar eru Íslandsmeistarar í knattspyrnu þriðja árið í röð eftir öruggan 4-0 sigur á Víkingi á heimavelli sínum í Kaplakrika. Á sama tíma lögðu Skagamenn baráttuglaða Eyjamenn 4-2 á Skipaskaga og sendu ÍBV því niður um deild. Sport 16.9.2006 17:46
Hargreaves líklega fótbrotinn Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen þurfti að fara meiddur af velli eftir 25 mínútna leik í tapinu gegn Bielefeld í dag og nú eftir nánari skoðun er óttast að hann sé fótbrotinn. Hargreaves var mikið orðaður við lið Manchester United í sumar, en forráðamenn Bayern harðneituðu að selja hann. Hargreaves spilaði á miðjunni hjá Bayern ásamt Mark Van Bommel. Fótbolti 16.9.2006 17:42