Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar 21. október 2026 09:31 Í Kveik í síðustu viku var dregin upp mynd af íslenskum veitingamönnum sem viljalausum verkfærum vondra drykkjarvöruframleiðenda; mönnum sem eru bundnir á klafa samninga og láta smáa letrið ráða því hvað ratar í glösin. Ég rek Skreið, Röntgen og Austurbæjarbíó og Ölgerðin er minn stærsti birgi. Ég kannast ekki við þessa mynd.Ég felli ekki dóm um það sem Samkeppniseftirlitið hefur til rannsóknar. Um starf veitingamannsins get ég hins vegar talað, og þar tek ég undir með þeim kollegum mínum sem hafa stigið fram og klórað sér í kollinum yfir þeirri mynd sem Kveikur dró upp af starfsemi Ölgerðarinnar.Hver sem hefur komið á staðina mína sér að ég er ekki bundinn einum birgja. Ég kaupi raunar vörur af 14 drykkjarvörubirgjum og nota dælur og búnað frá Ölgerðinni undir vörur frá keppinautum fyrirtækisins. Á Röntgen er Peroni og náttúruvín á dælu, og þar er ein dæla alltaf frátekin fyrir smábrugghús. Á Skreið er Estrella á dælu og þar er hægt að kaupa bæði kók og pepsi max. Red Bull er á boðstólnum á öllum mínum skemmtistöðum. Enginn hefur haft í hótunum við mig vegna þessa.Sölufólk Ölgerðarinnar er metnaðarfullt og stundum aðgangshart. Það er kostur en ekki galli, því þar er fólki annt um árangurinn. Ég þekki alla þar sem sinna mér með nafni. Þau þrífa dælur sem standa undir vörum keppinauta þeirra og sinna viðhaldi á kælum sem geyma líka önnur vörumerki. Það kalla ég ekki yfirgang, heldur þjónustu.Ég kaupi mest af Ölgerðinni vegna þess að vöruúrvalið er framúrskarandi og fólkið þar kann sitt fag. Þegar þau eiga ekki það sem ég leita að, fer ég annað. Í því felst öll einokunin.Ég á í frábærum samskiptum við aðra birgja, sem margir bjóða spennandi vörur og persónulega þjónustu sem setur mark sitt á staðina mína. Fjölbreytnin á markaðnum er styrkur íslenskrar veitingamenningar og ég nýti mér hana óspart.Veitingamenn eiga að standa í fæturna. Við sýnum birgjum okkar tryggð, en æðsta tryggð okkar er við gestina sem ganga inn um dyrnar á hverju kvöldi. Og þar fara hagsmunir mínir og Ölgerðarinnar saman. Ölgerðinni gengur vel þegar veitingamönnum gengur vel; þegar staðirnir eru fullir, gestirnir glaðir og við sjálf stolt af því sem við berum fram.Ölgerðin sinnir mér eins og ég sé hluti af fjölskyldunni. Og eins og við aðra í fjölskyldunni get ég sagt nei við þau. Metnaður sölumanna er ekki glæpur. Og smekkvísi veitingamanna er ekki samningsbundin, mín er hið minnsta ekki föl.Höfundur er veitingamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ölgerðin (Bera) Veitingastaðir Samkeppnismál Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Sjá meira
Í Kveik í síðustu viku var dregin upp mynd af íslenskum veitingamönnum sem viljalausum verkfærum vondra drykkjarvöruframleiðenda; mönnum sem eru bundnir á klafa samninga og láta smáa letrið ráða því hvað ratar í glösin. Ég rek Skreið, Röntgen og Austurbæjarbíó og Ölgerðin er minn stærsti birgi. Ég kannast ekki við þessa mynd.Ég felli ekki dóm um það sem Samkeppniseftirlitið hefur til rannsóknar. Um starf veitingamannsins get ég hins vegar talað, og þar tek ég undir með þeim kollegum mínum sem hafa stigið fram og klórað sér í kollinum yfir þeirri mynd sem Kveikur dró upp af starfsemi Ölgerðarinnar.Hver sem hefur komið á staðina mína sér að ég er ekki bundinn einum birgja. Ég kaupi raunar vörur af 14 drykkjarvörubirgjum og nota dælur og búnað frá Ölgerðinni undir vörur frá keppinautum fyrirtækisins. Á Röntgen er Peroni og náttúruvín á dælu, og þar er ein dæla alltaf frátekin fyrir smábrugghús. Á Skreið er Estrella á dælu og þar er hægt að kaupa bæði kók og pepsi max. Red Bull er á boðstólnum á öllum mínum skemmtistöðum. Enginn hefur haft í hótunum við mig vegna þessa.Sölufólk Ölgerðarinnar er metnaðarfullt og stundum aðgangshart. Það er kostur en ekki galli, því þar er fólki annt um árangurinn. Ég þekki alla þar sem sinna mér með nafni. Þau þrífa dælur sem standa undir vörum keppinauta þeirra og sinna viðhaldi á kælum sem geyma líka önnur vörumerki. Það kalla ég ekki yfirgang, heldur þjónustu.Ég kaupi mest af Ölgerðinni vegna þess að vöruúrvalið er framúrskarandi og fólkið þar kann sitt fag. Þegar þau eiga ekki það sem ég leita að, fer ég annað. Í því felst öll einokunin.Ég á í frábærum samskiptum við aðra birgja, sem margir bjóða spennandi vörur og persónulega þjónustu sem setur mark sitt á staðina mína. Fjölbreytnin á markaðnum er styrkur íslenskrar veitingamenningar og ég nýti mér hana óspart.Veitingamenn eiga að standa í fæturna. Við sýnum birgjum okkar tryggð, en æðsta tryggð okkar er við gestina sem ganga inn um dyrnar á hverju kvöldi. Og þar fara hagsmunir mínir og Ölgerðarinnar saman. Ölgerðinni gengur vel þegar veitingamönnum gengur vel; þegar staðirnir eru fullir, gestirnir glaðir og við sjálf stolt af því sem við berum fram.Ölgerðin sinnir mér eins og ég sé hluti af fjölskyldunni. Og eins og við aðra í fjölskyldunni get ég sagt nei við þau. Metnaður sölumanna er ekki glæpur. Og smekkvísi veitingamanna er ekki samningsbundin, mín er hið minnsta ekki föl.Höfundur er veitingamaður.
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun