
Grindavík

Segja umbrotum við Grindavík geta lokið innan eins til tveggja mánaða
Hópur jarðvísindamanna við Háskóla Íslands, með prófessorana Þorvald Þórðarson og Ármann Höskuldsson í fararbroddi, segir kvikuinnflæði inn undir Svartsengi hafa helmingast frá því í seinni hluta desember. Þeir segja að haldi þessi þróun áfram með sama hraða gætu umbrotin á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur tekið enda innan eins til tveggja mánaða.

Engin merki um að jarðhræringum á Reykjanesi ljúki í bráð
Veðurstofa Íslands segir engin skýr merki um að jarðhræringum á Reykjanesi og við Grindavík ljúki á næstunni. Kvikusöfnun heldur áfram undir svartsengi og á meðan eru líkur á öðru kvikuhlaupi og að það leiði til eldgoss á Sundhnúksgígaröðinni.

Á allt eins von á gosi um helgina
Framhald jarðhræringa á Reykjanesskaga er þrungið mun meiri óvissu nú en áður. Eldfjallafræðingur segir að tregða gæti verið komin í kerfið og kvika gæti þannig mögulega leitað upp á öðrum slóðum en áður. Þá sé spá tveggja vísindamanna um möguleg lok jarðhræringanna síðsumars athyglisverð.

Spáð fyrir um endalok umbrota við Grindavík
Merki eru um að meira magn kviku þurfi að safnast fyrir undir Svartsengi en áður, til að koma af stað nýju kvikuhlaupi og ríkir meiri óvissa um tímasetningu þess. Tveir jarðvísindamenn segja kvikusöfnunina vera að hægja á sér og hafa þeir spáð fyrir um lok umbrotanna við Grindavík síðsumars.

Spá því að umbrotum við Grindavík ljúki síðsumars
„Við teljum að nú liggi fyrir vísindagögn, sem leyfa okkur að áætla hvenær kvikuhreyfingum og gosum lýkur í Sundhnúks gígaröðinni,“ segja jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur og Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur í sameiginlegri grein sem birt er á eldfjallabloggi Haraldar. Niðurstaða þeirra, sem þeir kalla einfalda spá, er að umbrotunum við Grindavík ljúki síðsumars árið 2024, eftir fjóra til fimm mánuði.

Allt að 75 hús ónýt
Náttúruhamfaratryggingu Íslands hefur borist um fimm hundruð tilkynningar um tjón í Grindavík frá því að atburðir hófust þar 10. nóvember síðastliðinn. Við yfirferð innsendra tilkynninga hefur komið í ljós að sendar hafa verið fleiri en ein tilkynning vegna nokkurra mála og eru því mál sem krefjast meðferðar af hálfu NTÍ nokkru færri en innsendar tilkynningar, eða 474.

Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum
Suðurnes hafa að geyma hlutfallslega fleiri leiguíbúðir í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar en nokkur annar landshluti. Fimmtungur íbúða í landshlutanum er skráður í leiguskrá.

Fasteignasamningar í uppnámi vegna stíflu í brunabótamati
Dæmi eru um að fasteignaviðskipti séu í uppnámi vegna mikils fjölda beiðna um brunabótamat hjá Hús- og mannvirkjastofnun. Endurmatsbeiðnir í febrúar voru á pari við fjölda slíkra beiðna yfir átján mánuði.

Kvikumagn komið yfir þau mörk sem hleypt hafa af stað eldgosi
Veðurstofan varar við því að heildarmagn kviku undir Svartsengi sé núna komið yfir þau mörk, sem sett hafa af stað kvikuhlaup og eldgos í Sundhnúksgígaröðinni. Því séu auknar líkur á nýju kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu dögum.

Grindvíkingar í hjólhýsum og pínulitlum íbúðum
Forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir 130 fjölskyldur úr Grindavík enn búa við óviðunandi húsnæðiskost. Dæmi séu um fólk sem búi í hjólhýsum og fjölskyldur í um tuttugu fermetra íbúðum. Farið er fram á frekari stuðning ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum.

Grindvíkingar fái sömu kjör og fyrstu kaupendur
Bæjarstjórn Grindavíkur ásamt nokkrum félagasamtökum í bænum fer fram á að Grindvíkingar fái sömu kjör við fasteignakaup líkt og um fyrstu kaupendur væri að ræða.

Býst við eldgosi á næstu dögum og það gæti orðið með sírennsli
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðiprófessor telur líklegt að eldgos brjótist upp á næstu dögum og langlíklegasta staðsetning verði á miðri Sundhnúkssprungunni. Hann telur þá sviðsmynd mögulega að næsta gos detti í sírennsli hraunkviku.

„Menn trúðu því um tíma að hægt væri að semja við skrattann“
„Við búum á Þórsgötunni í húsi með fjórum íbúðum og erum þar öll nema dóttirin sem býr í Bandaríkjunum. Þar ætlum við að anda í eitt ár en ég skal alveg viðurkenna að það hefur bjargað okkur alveg sálfræðilega að geta verið svona saman fjölskyldan,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík.

„Ég held að þetta sé ógeðslega óþægilegt“
Grindvíkingar unnu frábæran sigur í Sláturhúsinu í Keflavík í Subway deild karla í körfubolta í gær og það þótt að lykilmaðurinn DeAndre Kane gengi ekki alveg heill til skógar. Kane harkaði af sér og leiddi Grindavíkurliðið til níunda sigursins í röð.

Margir vilja halda rekstri áfram í Grindavík
Ríflega þriðjungi fyrirtækja í Grindavík hefur verið lokað vegna jarðhræringanna og rýmingarinnar. Þrátt fyrir það segjast 41,2 prósent fyrirtækjaeigenda stefna að því að halda áfram fullum rekstri í bænum, á einhverjum tímapunkti.

Grindavíkurbær heiðursgestur Menningarnætur 2024
Grindavíkurbær verður heiðursgestur Menningarnætur Reykjavíkurborgar þann 24. ágúst 2024. Tilefnið er vinatengsl bæjarfélaganna og fimmtíu ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar í ár.

Opnað á sölu húsa í Grindavík
Fólk sem vill selja íbúðarhúsnæði sitt í Grindavík til ríkissjóðs getur nú gert það. Eigendur um níu hundruð íbúða í Grindavík geta nýtt sér úrræði þetta sem fer í gegnum Fasteignafélagið Þórkötlu.

„Ekki fleiri íbúafundi!“
Hundruð grindvískra barna komu saman á fundi í Laugardalshöll í dag, þar sem þau ræddu stöðu sína vegna jarðhræringanna við heimabæinn.

„Samræðurnar sem ég hef átt við sumt fólkið eru algjörlega fáránlegar“
Eigendur húss í Grindavík sem eyðilagðist í eldgosinu í janúar þurfa sjálf að hreinsa járn og rusl af húsgrunninum til að geta leyst út förgunargjald frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Þau þurfa sárlega á fjármununum að halda til að geta gengið frá kaupum á nýju húsnæði. Bæjaryfirvöld ætlast til þess að lóðin sé hreinsuð en vilja á sama tíma ekki að eigendur séu á staðnum, þar sem Grindavík er skilgreint hættusvæði.

Virknin meiri við Fagradalsfjall en við kvikuganginn
Skjálftavirkni yfir kvikuganginum í Svartsengi hefur verið með minnsta móti síðan kvikuhlaupinu lauk á laugardag. Heldur meiri virkni er við Fagradalsfjall en þar hafa mælst um tuttugu skjálftar síðasta sólarhringinn.

Bláa lónið opnað á ný
Allar starfsstöðvar Bláa lónsins hafa verið opnaðar á ný eftir lokun og rýmingu síðdegis á laugardag þegar allt benti til þess að eldgos væri yfirvofandi.

Dregur líklega til tíðinda í vikunni
Líklegt er að það dragi til tíðinda á ný á Reykjanesi í vikunni að mati Benedikts Ófeigssonar jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Kvikuhólfið undir Svartsengi heldur áfram að fyllast en á morgun verður staðan líklega orðin eins og fyrir síðast kvikuhlaup.

Boðað til fundar með börnum frá Grindavík
Umboðsmaður barna býður 6-17 ára börnum frá Grindavík til fundar í Laugardalshöll á fimmtudag. Markmið fundarins er að heyra hvað börnunum liggur á hjarta og átta sig á því hvernig stjórnvöld geta með sem bestum hætti staðið vörð um réttindi þeirra við þær aðstæður sem nú eru uppi.

„Þá verður maður bara að vera mannlegur“
Grindvíkingar æfa nú víðs vegar um höfuðborgarsvæðið í undirbúningi sínum fyrir Lengjudeildina í fótbolta í sumar. Þjálfari liðsins segir að oft hafi komið upp atvik síðustu mánuði þar sem hann hafi þurft að vera mannlegur og beygja reglurnar.

„Við getum búist við að þetta endurtaki sig“
Kvikumagn undir Svartsengi heldur áfram að aukast en virkni á Sundhnúksgígaröðinni hefur minnkað síðan í gær. Jarðeðlisfræðingur segir líkurnar á eldgosi fara minnkandi með tímanum en það geti samt enn gosið. Hann á von á því að kvikuinnskot endurtaki sig á næstu viku eða dögum.

Aflétta rýmingu í Grindavík
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að opna aftur fyrir aðgengi að Grindavík eftir að svæðið var rýmt í gær í kjölfar kvikuhlaups. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Endurmeta rýmingu í kvöld
Lögreglan á Suðurnesjum hyggst endurmeta aðgengi að rýmdum svæðum í og við Grindavík í kvöld klukkan 19:00. Beðið er eftir því að Veðurstofan vinni úr gögnum af svæðinu.

Eldgos líklegast á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells
Minnkandi líkur eru á að kvika komi upp í tengslum við kvikuhlaupið sem hófst seinni partinn í gær. Þrátt fyrir það eru áfram auknar líkur á eldgosi og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur nú áfram. Veðurstofan telur mestar líkur á að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells.

Dæmigerðar aðstæður fyrir eldgos en ekkert hægt að útiloka
Jarðeðlisfræðingur sem flaug yfir svæðið þar sem kvikuhlaupið fór af stað segir enga virkni sjáanlega úr lofti. Hins vegar séu dæmigerðar aðstæður fyrir eldgos þegar kvika fer af stað. Hegðunin sé svipuð og í fyrri eldgosum en það sé ekkert hægt að útiloka.

Uppfært hættumat
Veðurstofa Íslands hefur uppfært nýtt hættumat og fylgir því hættumatskort sem skiptist upp í sjö hættusvæði. Hættan er talin mjög mikil á tveimur þeirra, lengju sem nær frá Klifhólahrauni norðan við Grindavík yfir Sundhnúksgíga og norður að Kálffellsheiði handan við hraunið frá því í desember í fyrra.