Grindavík
1 2 3 4 5 6 … 74 ›
Kaupsamningar nærri helmingi fleiri en í fyrra Sögulegt ár á fasteignamarkaði vegna Grindavíkuráhrifa er að baki að sögn fasteignasala og kaupsamningar voru nærri helmingi fleiri en í fyrra. Hann spáir allt að tíu prósenta hækkun á fasteignaverði á næsta ári. Viðskipti innlent 30.12.2024 12:21
Stiklað á stóru sigrunum: „Erum stolt af því að vera íþróttabær“ Fyrsti þáttur heimildaþáttaraðarinnar Grindavík fór í loftið í gær. Þar var stiklað á stóru sigrunum í körfuboltasögu Grindvíkinga. Körfubolti 30.12.2024 07:00
Grindvíkingar um daginn örlagaríka: „Í fyrsta sinn sem ég missi kúlið“ Í heimildaþáttaröðinni Grindavík lýsa bæjarbúar meðal annars upplifun sinni af hinum örlagaríka degi, 10. nóvember 2023, þegar þeir þurftu að flýja heimili sín. Körfubolti 29.12.2024 10:01
Dagbók móður: „Munum við fara fjárhagslega á hausinn?“ „Einangrunin er að setjast inn. Öll rútína daglegs lífs er farin út um gluggann. Það er ekkert að gera nema hugsa og hafa áhyggjur af öllu saman,“ segir í dagbók Karitas Nínu Viðarsdóttur. Áskorun 28.12.2024 08:02
Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð tíunda tímanum í morgun. Talið er að boðið komi frá einkaneyðarsendi, en það gaf upp tvær staðsetningar, annars vegar inn við Meradali og hins vegar úti á sjó, suður frá Þorlákshöfn. Innlent 27.12.2024 12:48
Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” „Flestir nemendur voru þó jákvæðir en allan morguninn voru skjálftarnir í bakgrunninum og skólinn hristist endalaust. Á tímabili voru skjálftarnir svo margir að mér leið eins og ég væri á skipi sem ruggaði fram og til baka, mér varð óglatt.“ Áskorun 25.12.2024 08:00
Landris heldur áfram á stöðugum hraða Landris í Svartsengi heldur áfram á stöðugum hraða og því áframhaldandi kvikusöfnun. Síðasta eldgos á svæðinu var það annað stærsta frá því í desember í fyrra en í gær 18. desember var eitt ár liðið frá því að fyrsta eldgosið í atburðarrásinni á Sundhnúksgígaröðinni hófst. Hættumat gildir að óbreyttu til 2. janúar 2025. Innlent 19.12.2024 12:44
Hafi fjórar til fimm vikur á nýju ári Áætlað er að verktakar hafi fjórar til fimm vikur á nýju ári, til þess að hækka varnargarða norðan við orkuverið í Svartsengi. Kostnaður við aðgerðina er minnst milljarður, en verkfræðingur segir tjónið af því að aðhafast ekkert geta orðið mun meira. Innlent 18.12.2024 11:37
Leggja til framtíðarsýn fyrir breytta Grindavík Grindavíkurbær hefur kynnt fyrstu drög að rammaskipulagi sem byggir á hugmyndum og tillögum Grindvíkinga um framtíðarsýn á bænum. Innlent 18.12.2024 11:31
Forsetar mættu á tilfinningaríka stund með Grindvíkingum Það voru miklar tilfinningar í gær í Smárabíó þegar fyrstu tveir þættirnir af heimildaþáttaröðinni Grindavík voru forsýndir. Fyrsti þáttur verður sýndur á Stöð 2 Sport sunnudaginn 29. desember en þættirnir eru eftir Garðar Örn Arnarson og Sigurð Má Davíðsson, þeim sömu og gerðu Edduverðlaunaþáttaraðirnar Víkingur: Fullkominn endir og Jón Arnór. Lífið 17.12.2024 10:44
Krefjast þess að faðir þeirra verði úrskurðaður látinn Börn Lúðvíks Péturssonar, sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rétt tæpu ári, hafa krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að ákveðið verði með dómi að faðir þeirra sé talinn látinn. Innlent 16.12.2024 12:58
Nýtt bílastæði hafi kostað gríðarlegt fjármagn Nýtt bílastæði innan varnargarðanna við Bláa lónið var opnað í fyrsta skipti í dag eftir hamfarir sem fylgdu eldgosi á svæðinu í nóvember. Framkvæmdastjóri segir nýja stæðið hafa kostað gífurlegt fjármagn og vinnu. Þá hefur Grindavíkurvegur nú einnig verið opnaður umferð. Innlent 15.12.2024 12:01
Telur að slysið sem leiddi bróður hans til dauða verði veigamikið í rýni „Við höfum alveg frá fyrsta degi talað fyrir því að þessi atburður sé þannig að það þurfi að fara yfir í rauninni alla atburðarásina og ná sýn á stóru myndina,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést eftir að hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í janúar síðastliðnum. Innlent 13.12.2024 08:00
Eldgosinu er lokið Eldgosinu austur af Stóra-Skógfelli er lokið. Þetta var staðfest í dag þegar almannavarnir flugu drónaflug yfir svæðið og engin virkni var sjáanleg. Innlent 9.12.2024 14:45
Leiðin fyrir dýpri kviku verður bara greiðfærari Meira magn af kviku virðist streyma úr dýpra kvikuhólfi með hverju gosinu, enda verður leiðin alltaf greiðfærari. Innlent 7.12.2024 16:25
Landris hafið enn eina ferðina í Svartsengi Virkni í eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina hefur dregist saman hægt og rólega síðustu daga. Minni virkni er sýnileg á vefmyndavélum og gosórói hefur farið minnkandi þegar horft er til síðustu daga. Innlent 6.12.2024 18:23
Frumsýning á Vísi: „Er ég að fara að missa allt?“ „Íþróttir skipta okkur ótrúlegu máli. Þetta er eitthvað sem við sækjum okkar identity í og við erum mjög stolt af því að vera íþróttabær,“ segir Bryndís Gunnlaugsdóttir aðstoðarþjálfari kvennaliðs Grindavíkur í fyrstu stiklunni úr heimildarþáttunum Grindavík eftir Garðar Örn Arnarson og Sigurð Má Davíðsson, þeim sömu og gerðu Edduverðlaunaþáttaraðirnar Víkingur: Fullkominn endir og Jón Arnór. Lífið 5.12.2024 09:48
Gosið mallar en framrás hraunjaðarsins er hægur Á meðan landsmenn gengu til Alþingiskosninga mallaði eldgosið á Reykjanesskaga áfram. Lítil breyting hefur orðið á hegðun gossins samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu. Innlent 2.12.2024 07:04
Pavel um leikjamet Óla Óla fyrir Grindavík: „Ég reyndi að eyðileggja þetta“ Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, sótti ekki aðeins mikilvægan sigur í Sláturhúsið í Keflavík í gær heldur bætti hann einnig leikjamet félagsins í úrvalsdeild karla. Körfubolti 30.11.2024 12:00
„Þetta var stórt og allir sigrar í þessari deild eru mikilvægir“ Grindavík vann átta stiga útisigur gegn Keflavík 96-104. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var afar ánægður með sigurinn. Sport 29.11.2024 21:41
Gosmengun mögulega viðvarandi í Grindavík í dag Virkni í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni var mjög stöðug í nótt en hraun rennur nú nær eingöngu til austurs og norðausturs; að og meðfram Fagradalsfjalli. Innlent 28.11.2024 06:22
Gasmengun gæti náð á höfuðborgarsvæðið Gasmengunar gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna eldgossins á Sundhnúkagígsröðinni, samkvæmt gasdreifingarspá Veðurstofunnar. Innlent 27.11.2024 15:26
Alls 914 umsóknir um uppkaup í Grindavík samþykktar Alls hafa 914 umsóknir um kaup á húsnæði í Grindavík verið samþykktar hjá fasteignafélaginu Þórkötlu. Afhending hefur farið fram í 822 tilvikum. Þá hefur fasteignafélaginu borist 17 umsóknir um svokallaða hollvinasamninga vegna eigna sem þau hafa keypt í Grindavík. Í október á þessu ári þáðu 571 einstaklingur frá Grindavík leigustuðning en þeim hefur fækkað um nærri helming frá því í febrúar þegar 901 þáði slíkan stuðning. Innlent 27.11.2024 11:47
Verulega dregið úr hættu á að hraun nái innviðum Hraun frá eldgosinu á Sundhnúkagígaröðinni rennur nú til austurs og ógnar ekki innviðum. Fáar vísbendingar eru um hvort landris sé hafið á ný eða ekki. Innlent 27.11.2024 11:26
Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum en varað við gasmengun Nóttin var tíðindalítil á gosstöðvunum, samkvæmt náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Innlent 27.11.2024 06:24
Hraun streymir að langmestu frá Svartsengi „Það heldur áfram að malla. Okkur sýnist það streyma að langmestu leyti til austurs í átt að Fagradalsfjalli og þá ógnar það ekki Svartsengi.“ Innlent 26.11.2024 23:32
Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Virkni á gosstöðvunum var mjög stöðug í nótt en er nú eingöngu bundin við nyrsta gíginn eftir að slökknaði í syðsta gígnum í gær. Þetta segir í tilkynningu náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands sem barst í morgun. Innlent 26.11.2024 06:10
Gasmengun helsta hættan í Grindavík Virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni hefur ekki minnkað jafn hratt og í fyrri gosum og er hraunflæðið á við kröftugustu gosin í Fagradalsfjalli. Aðgengi að Grindavík var aukið á ný í dag. Innlent 25.11.2024 19:50
Opna Grindavík á ný Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið í samvinnu við Grindavíkurnefndina að auka aðgengi að Grindavíkurbæ. Bænum var lokað á miðvikudag þegar enn eitt eldgosið hófst á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 25.11.2024 13:03
Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana Helgi Hjörleifsson, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og hraunkælingarstjóri, segir hraunkælinguna ganga vel við varnargarðana í Svartsengi. Það sé nægt vatn til eins og stendur. Tvær af fjórum dælum eru í gangi. Innlent 25.11.2024 11:10