„Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. október 2026 22:03 Emil Barja, þjálfari Stjörnunnar. Vísir/Diego Emil Barja, þjálfari Stjörnunnar, segir að leikur liðsins hafi einfaldlega ekki verið nógu góður í kvöld er liðið mátti þola sex stiga tap gegn Grindavík í 3. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta. „
Við vorum ekki nógu góðir. Við breyttum svolítið því sem við ætluðum að gera varnarlega. Við ætluðum að stoppa þessa íslensku skotmenn í hornunum og reyna að láta hina gera hlutina,“ sagði Emil í leikslok. „Þetta var full auðvelt fyrir þá í fyrri hálfleik og svo aftur í seinni þegar við breyttum aftur aðeins meira. Varnarlega verðum við bara að vera miklu betri því við erum að fá á okkur allt of mikið af körfum.“ Eftir ágæta byrjun Stjörnunnar í leiknum lenti liðið undir um miðbik 1. leikhluta og náði aldrei að brúa bilið eftir það. Emil segist þó ekki vita hvað vantaði upp á til að ná að snúa dæminu við. „Ég veit það ekki. Þeir litu bara miklu betur út en við. Ég veit að það var jafnt í fráköstum, en mér fannst þeir samt bara miklu grimmari allsstaðar. Varnarlega fannst mér þeir grimmari og þeir héldu mönnunum fyrir framan sig á meðan við vorum einhvernveginn að missa okkar menn og hjálpin kom of seint. Í seinni hálfleik fannst mér við byrja að hjálpa meira, en við vorum bara einhvernveginn of mikið á hælunum.“ Stjörnumenn hafa nú tapað fyrstu þrem leikjunum í deildinni á tímabilinu. „Maður hefur alltaf áhyggjur. Meira að segja þó við værum búnir að vinna þessa þrjá. Maður er alltaf að reyna að verða betri og betri. Það góða er að við getum bara orðið betri núna,“ sagði Emil. „Við erum með þennan nýja leikmann, Nojel Eastern, sem kom inn bara núna og hann þarf að komast aðeins betur inn í þetta því hann er bara nýkominn. Vonandi getum við slípað okkur aðeins betur saman. Ég hef mikla trú á þessu liði og ég held að við eigum mjög mikið inni. Ég held að við munum sýna það,“ bætti Emil við. „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur fyrir framtíðinni.“ En hvað geta Stjörnumenn tekið með sér úr þessum leik inn í þann næsta, sem er gegn ÍR í næstu viku? „Ég veit það ekki. Við þurfum bara aðeins að byrja upp á nýtt. Við erum allavega ekki að fara að spila sömu vörn, en við ætlum bara að sjá hvernig þeir eru og vinna út frá því,“ sagði Emil að lokum.
Bónus-deild karla Stjarnan Grindavík Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Fleiri fréttir „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Sjá meira